Tíminn - 24.01.1989, Blaðsíða 2
2 T.írnirvn
^Þfiðjúelðgúr 24. jártúáf' V9'89
Mgrgar spurningar hafa vaknað vegna atburðarásarinnar þegar danska flutningaskipið strandaði við Grindavík:
Menn hafa furðað sig mikið á tildrögum þess að danska
flutningaskipið Mariane Danielsen strandaði við Hópsnes í
innsiglingunni við Grindavík laust eftir kl. 19:00 s.l. föstu-
dagskvöld. Þá hefur hegðun yfirmanna skipsins ekki síður
vakið furðu. M.a. er uppi sterkur orðrómur um það að
skipstjórinn hafi verið ölvaður er strandið varð, þá þykir
undarlegt að aðstoð við að koma skipinu á flot var ekki þegin
og einnig það hvað yfirmenn skipsins þrjóskuðust lengi við
að dvelja um borð í skipinu. Fengust þeir ekki til að koma í
land fyrr en lögreglan skipaði þeim í land 33 klukkustundum
eftir að strandið varð. Rannsókn slyssins fer nú fram og er
ráðgert að sjópróf verði n.k. fimmtudag.
Mariane Danielsen er rúmlega
2600 tonna skip með 12 manna
áhöfn. Undirmenn cru allir frá Fil-
ippseyjum en yfirmennirnir fjórir
eru danskir. Skipið kom til Grinda-
víkur að morgni föstudags frá Eng-
landi til að taka fiskimjöl. í innsigl-
ingunni vildi ekki betur til en svo að
skipið tók niðri og kom gat á tvo af
jafnvægistönkum skipsins. Þegar
skipið strandaði var það á leið til
Akureyrar í slipp^til að gera við
skemmdirnar.
Bjarni Þórarinsson, hafnsögu-
maður og hafnarstjóri í Grindavík
lóðsaði skipið út úr höfninni.
Skömmu eftir að Bjarni fór frá borði
tók skipið rúmlega 90 gráðu beygju
og sigldi beint upp í fjöru austan við
Grindavík.
Skipstjórinn drukkinn?
Heimamönnum þykir heldur
ótrúleg sú skýring skipverja á strand-
inu, að sterkir straumar hafi hrifið
skipið með sér og þeir hafi ekki
fengið við neitt ráðið. Framferði
skipstjórans eftir strandið hefur
einnig vakið eftirtekt, m.a. það að
hann svaraði ekki boði um aðstoð en
togarinn Júpiter var kominn á
strandstað skömmu eftir að strandið
varð.
Af viðtölum við menn í Grinda-
vík, og aðra sem höfðu afskipti af
þessu máli, kemur berlega í Ijós
sterkur grunur um að skipstjórinn
hafi verið undir áhrifum áfengis er
strandið varð. Menn draga þó við sig
aö fullyrða mikið um þetta atriði þar
til sjópróf hafa farið fram.
John Hill, rannsóknar-lögreglu-
maður, sagði í viðtali við Tímann að
ekki hefði verið talið ráðlegt að fara
út í skipið til að kanna ástand
skipstjórans og hefðu flugmenn
þyrlu Landhelgisgæslunnar ráðið
lögreglunni frá slíku. John sagði að
vissulega væru uppi ákveðnar og
miklar grundsemdir um það að
skipstjórinn hafi verið ölvaður.
Hægt að bjarga
skipinu strax?
Um 85 tonn af olíu láku úrskipinu
Á strandstað. Stærð skipsins sést vel ef miðað er við manninn sem stendur upp við stefni þess. Tímamynd: Pjc
Hér sést þegar John Hill rannsóknarlögreglumaður var dreginn um borð í
skipið eftir hádegi á laugardeginum. Þá var skipstjórinn í ágætu ástandi.
Tímamynd: Pjelur
Bæjarstjórn Grindavíkur var kölluð á skyndifund á laugardaginn vegna
þeirrar mengunarhættu sem var talin vofa yfir. Standandi fyrír miðri mynd
er Jón G. Stefánsson bæjarstjóri en lengst til vinstri sést Magnús
Jóhannesson, siglingamálastjóri. Tímamynd: pjctur
og í fyrstu var óttast að það kynni að
hafa áhrif á þrjár fiskeldisstöðvar
sem eru vestan við Grindavík. Þær
virðast vera úr allri hættu. Flestir eru
svartsýnir á að hægt veröi að koma
skipinu á flot úr þessu enda hafa
umboðsmenn skipsins og trygginga-
félagið ekki sýnt því nokkurn áhuga.
Margir þeirra sem til þekkja telja
fullvíst aö unnt heföi verið að ná
skipinu út strax ef leyfi útgerðar
skipsins hefði fengist til að hefja
björgunaraðgerðir.
Sigmar Eðvarðsson, formaður
slysavarnadeildarinnar Þorbjarnar í
Grindavík, sagði að enginn vafi léki
á því að unnt hefði verið að ná
skipinu út ef það hefði verið reynt
strax. Sigmar sagðist halda að
ábyrgðarmenn skipsins, hefðu hafn-
að öllum björgunaraðgerðum. Sigm-
ar sagði jafnframt: „Maður skilur
þetta hreinlega ekki. Nema þá ef
vera skyldi að eigandinn hafi neitað
aðstoð til að láta skipið eyðileggjast
og fá þar með pening út út tryg-
gingunum.“
Sigmar var jafnframt spurður að
því hvort hann vissi af hvaða ástæðu
yfirmennirnir voru svona lengi um
borð, en björgunarsveitin stóð vakt
við skipið allan tímann. „Ég held að
þeir hafi ekki gert sér grein fyrir því
að skipið' var strandað, þeir hafi
haldið að þeir gætu bakkað út á
næsta flóði. í sjálfu sér hefði átt að
skipa þeim í land strax, sérstaklega
þar sem grunur lék á að skipstjórinn
væri undir annarlegum áhrifum.“
Frá strandinu hefur skipið færst
um 140 metra nær Grindavík, og
líklegast þykir að það verði látið
grotna þar niður. SSH
Á laugardagsmorgun drógu yfir-
mcnnirnir fjórir íslenska fánann að
húni. Hverju þeir voru að fagna er
ekki vitað. Tímamynd: Pjetur
Hægt var að bjarga
skipinu í upphafi!
- björgunarsveitarmenn hrista höfuöiö og eru hneykslaðir vegna framferöis skipstjóra