Tíminn - 24.01.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 24. janúar 1989
Ríkisútvarpið - Sjónvarp
auglysir samkeppni Evrópusjónvarps-
stöðva um sjónvarpshandrit
Sjónvarpsstöðvar og menningarmálastofnanir í
Evrópu efna nú öðru sinni til sameiginlegrar
verðlaunasamkeppni í því skyni að hvetja unga
höfunda til að skrifa handrit að leiknum sjónvarps-
þáttum.
Um er að ræða samkeppni um starfsverðlaun er
veitt verða í október n.k. Starfsverðlaunahafar
koma síðan til greina er aðalverðlaun verða veitt
haustið 1990.
Starfsverðlaunin eru 25.000 svissneskir frankar
og jafnframt er verðlaunahöfum gefinn kostur á
námskeiði á vegum þeirrar sjónvarpsstöðvar sem
tilnefndi verðlaunahafa. Heimilt er að veita allt að
tíu starfsverðlaun í hvert skipti.
Umsækjendur skulu vera fæddir árið 1949 eða
síðar. Þeir skulu skila til Ríkisútvarpsins fimm til
tíu síðna tillögu að sjónvarpsþætti og skal miðað
við að lágmarkslengd hans sé 50 mínútur.
Ríkisútvarpið hefur heimild til að tilnefna allt að
þrjá umsækjendur til samkeppninnar.
Umsóknarfrestur um starfsverðlaun þessa árs er
til 1. júní n.k.
Umsóknum ásamt tillögu að sjónvarpshandriti
skal skilað til Sjónvarpsins, Laugavegi 176, 105
Reykjavík, þar sem reglur samkeppninnar liggja
frammi. Skulu handritin merkt Verðlaunasam-
keppni Evrópu.
KENNARA-
HÁSKÓLI
ÍSLANDS
Laust starf við
Kennarahá-
skóla íslands
Laust er til umsóknar starf endurmenntunarstjóra
við Kennaraháskóla íslands. Endurmenntunar-
stjóri hefur í umboði rektors og skólaráðs umsjón
með endurmenntun (og skólaþróun) á vegum
skólans, vinnur að stefnumótun og stýrir daglegri
framkvæmd í endurmenntunardeild.
Umsækjendur skulu hafa staðgóða reynslu af
kennslu og skólastarfi. Þeir skulu hafa fullgilt
háskólapróf ásamt prófi í uppeldis- og kennslu-
fræði.
Ráðning er miðuð við 1. september 1989 og er
tímabundin. Laun samkvæmt launakerfi starfs-
manna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri greinar-
gerð um nám og störf skal senda til Kennarahá-
skóla íslands v/Stakkahlíð, Reykjavík, fyrir 20.
febrúar 1989.
Rektor
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRM0LA 3 108 REYKJAVlK SlMI (81)681411
TELEX 3103 SAMVUHS
TELEl'AX 686664
Samtök stofnuö um hagsmuni heimavinnandi fólks:
Vilja laun til
heimavinnandi
Um helgina var skipuö nefnd sem vinna mun að stofnun
samtaka um hagsmuni og réttindamái heimavinnandi fólks.
Meðal þessara hagsmuna teljast laun til heimavinnandi fyrir
barnagæslu. En Davíð Oddsson sagði það vera í stefnu
Reykjavíkurborgar og gæti þessa ekki orðið langt að bíða.
Hagsmunanefnd heimavinnandi
húsmæðra hélt um helgina ráðstefnu
um hagsmuni og réttindamál heima-
vinnandi fólks.
Hagsmunanefndin er ein margra
nefnda sem starfar innan Bandalags
kvenna í Reykjavík.
Á ráðstefnunni var kynnt tillaga
þess efnis að fólk um allt land
stofnaði með sér samtök til að vinna
að hagsmunamálum sínum.
Að því búnu var skipuð sjö manna
stjórn sem vinna mun að stofnun
þessara samtaka.
„Ráðgert er að samtökin verði
stofnuð innan þriggja mánaða" sagði
Ragnheiður Olafsdóttir sem situr í
undirbúningsstjórnog er ein af nefn-
darmönnum, í samtali við Tímann.
Aðrir nefndarmenn eru Arndís
Tómasdóttir, Dóra Guðmundsdótt-
ir, Rúnar Sigurður Birgisson, Anna
Daníelsdóttir, Bergrós Ingvarsdóttir
og Margrét Sigurðsdóttir. Með
nefndinni munu starfa Ingimundur
Sigurpálsson bæjarstjóri í Garðabæ
og Guðmundur Ágústsson alþingis-
maður.
„Samtökin munu vinna að þeim
málum sem til umræðu voru á ráð-
stefnunni. Jafnrétti í öllum þeim
málum þar sem okkur finnst vera
brotið á heimavinnandi fólki. Til
dæmis má nefna persónuafsláttinn,
sjúkradagpeninga, örorkubætur, líf-
eyrissjóðsréttindi, fæðingarorlof og
fleira“ sagði Ragnheiður.
Athygli vekur að Davíð Oddsson
sótti ráðstefnuna og sagði þar að
þess gæti ekki verið langt að bíða að
Reykjavíkurborg myndi greiða þeim
sem þess æsktu, fyrir að vera heima
með börn. En kostnaður borgarinn-
ar végna hvers dagheimilispláss er
nú um 330 þtisund krónur á ári.
Ragnheiður sagði Gunnar Ragn-
ars sem situr í bæjarstjórn Akureyr-
ar hafa tekið undir þetta og hefði
hann sagt þessi mál lengi hafa verið
til umræðu þar í bæ. jkb
Talsmenn Landvara kynntu hina nýju gíróþjónustu vöruflutningabílanna. Lengst til vinstri og fremst á myndinni er
Gissur Þorvaldsson, þá Magnús Svavarsson, Sigurður Hilmarsson, Kristinn Arason og Alfreð Þórsson.
Tímamynd, Árni Bjarna.
Póstkröfur seinvirkar, póstfax dýrt:
Lausnin er C-gírókrafa
Landvari, sem er félag vörubíla-
eigenda á vöruflutningaleiðum hafa
tekið upp þá nýbreytni að þeir sem
panta vörur sem fluttar eru með
bílum félagsmanna, geta greitt bíl-
stjóra flutningabílsins.
Þetta fer þannig fram að sendandi
lætur fylgja reikning og C-gíróseðil
sem á hefur verið ritað nafn send-
anda, viðtakanda, fjárhæð greiðslu,
nafn flytjanda og númer farmbréfs
eða fylgibréfs.
Þannig tekur sá flutningsaðili sem
skráður er á fylgibréfið alfarið
ábyrgð á því að kröfufjárhæðin kom-
ist til skila, en ekki vöruafgreiðsla sú
sem flutningsaðili skiptir við.
Póstkröfusendingar með vöru-
flutningabifreiðum hafa tíðkast um
langt skeið og hafa reynst misjafn-
lega. Vörurnar hafa komið á áfanga-
stað jafnvel nokkrum dögum á und-
an kröfunni og hafa því flytjendur
orðið að geyma þær þar til móttak-
andi hefur greitt kröfuna á pósthús-
inu.
Komið hefur fyrir að kröfur hafi
ekki verið greiddar og hafa því
flutningsaðilar og vöruafgreiðslur
haft af slíku óþægindi og jafnvel
beðið fjárhagslegt tjón.
Þá hefur stundum komið fyrir að
vörur sem greiða átti með póstkröfu
hafa verið afhentar viðtakanda þar
sem krafan sjálf hafði ekki borist á
pósthúsið. Síðan haft varan einfald-
lega aldrei verið greidd.
Til að leysa þetta var komið á
póstfaxþjónustu í þessu sambandi,
sem bæði er fljótvirk og örugg. Hún
hefur hins vegara verið gagnrýnd
fyrir að vera dýr, eða frá 500 kr.
Gíróþjónusta Landvara er hins
vegar ódýr. Hún nemur aðeins and-
virði gíróseðilsins. - sá
Viöbót við menntakerfi landsmanna:
Matsmannafræðsla
Fulltrúaráðsfundur
Samvinnutrygginga g.t. verður haldinn laugardag-
inn 28. janúar n.k. í Samvinnutryggingahúsinu,
Ármúla 3, Reykjavík, og hefst kl. 10 fyrir hádegi.
Stjórnin.
Stjórnun efnahagsmála er ofar-
lega á baugi hér sem víða annars
staðar. Einn þátturþeirrarstjórnun-
ar er staðgóð vitneskja um fjárntagn
bundið í fasteignum. Vegna þessa
auk margs annars er traust mat
fasteigna talið mjög áríðandi.
Endurmenntunarnefnd Háskóla
íslands, Yfirfasteignamatsnefnd
ríkisins og nýstofnað Matsmannafé-
lag íslands hafa af þessum sökum
tekið þá ákvörðun að standa fyrir
námskeiðum í matsfræðum.
Ákveðið hefur verið að halda
næstu tvö árin röð námskeiða fyrir
starfandi matsmenn. Námskeiðin
eru einkum hugsuð fyrir þá er ekki
hafa lokið tækniskóla- eða öðru
svipuðu námi.
Markmiðið er að þeir sem ljúka
þessu námi hafi öðlast færni í al-
mennum störfum á sviði fasteigna-
niats og búi að fræðilegum grunni í
því sambandi. Hafi grunnþekkingu
og þjálfun í rekstrarfræðum og séu
búnir undir frekara nám í matsfræð-
um.
Einnig er stefnt að því að haldin
verði sérhæfðari framhaldsnámskeið
að þessunt loknum. jkb