Tíminn - 24.01.1989, Blaðsíða 5
Þ'ríðjúciágur ‘24.‘januarf 989
Tíminn 5
Dilkakjötssala til bandarískra veitingastaöa:
800 grömm nýtast ur
hverjum kjötskrokki
Búvörudeild Sambandsins er nú með í undirbúningi
útflutning á dilkakjöti til veitingahúsa á austurströnd Banda-
ríkjanna. Ætlunin er að senda eitt tonn á mánuði næsta árið
eða tólf tonn alls, og að fyrsta sendingin fari í febrúar. Verðið
er allgott, eða tæpar 500 kr. fyrir kílóið. Hér er um tilraun
að ræða, sem gerð er fyrir tilmæli Markaðsnefndar landbún-
aðarins og Útflutningsráðs, í framhaldi af markaðsleit þessara
aðila vestra nú undanfarið.
Kaupendurnir viija hins vegar
aðeins fá úrbeinuð og fituskorin
lendstykki af hrygg, sem þýðir að
það eru aðeins um 800 grömm af
hverjum skrokki sem hægt er að
selja þeim. hað þýðir að til þess að
selja þessi tólf tonn þarf að saga
niður um 15 þúsund skrokka eða um
240 tonn af útflutningsverkuðu kjöti,
fyrir magn sem aðeins er um 5% af
skrokkþunganum. Reyndar er ekki
enn búið að ganga endanlega frá
þessari sölu né reikna að fullu út
kostnaðarhlið hennar, en Búvöru-
deild hyggst þó taka þátt í þessu í
trausti þess að mögulegt reynist að
nýta aðra hluta þessara skrokka hér
heima eða flytja þá út til annarra
staða.
Jóhann Steinsson í Búvörudeild
sagði það ljóst að hér væri ekki um
neina allsherjarlausn á vandamálum
landbúnaðarins að ræða. l>ó að verð-
ið væri vissulega gott þá væri líka
mikil vinna við frágang kjötsins.
Einnig væri hér verið að tala um
heildsöluverð í Bandaríkjunum,
þannig að af því þyrfti að borga
flutningskostnað vestur, tryggingu,
uppskipun, toll og heimsendingu til
kaupenda. Það væru vissulega von-
brigði hve lítill hluti færi þarna af
hverjum skrokki, en hins vegar þætti
réttlætanlegt að gera þessa tilraun í
þeirri von að hún ætti eftir að opna
möguleika á að selja meira þarna og
fleiri hluta af skrokknum.
Það er fyrirtæki á sviði markaðs-
setningar, Creative Food Service,
sem gerði markaðskönnunina sem
þessi sala er árangur af. Kaupandi er
fyrirtæki að nafni Dole & Baily, og
er kjötið ætlað fyrir veitingastaði af
vandaðra taginu. Meðal annars af
þeim ástæðum hafa þessir kaupend-
ur beðið um mjög staðlaða vöru-esig
Til þess að ná tólf tonnum af því hráefni sem Bandaríkjamcnn vilja þarf að saga niður 240 tonn. Nýtingin verður
því að teljast í lágmarki.
Veðrið sem gekk yfir landið á
sunnudaginn var olli ekki teljandi
vandræðum annarsstaðar en í
Reykjavík og næsta nágrenni.
Snjókoma var mest á vestan-
verðu Suðurlandi og um Vestur-
land og spilltist færð mest á höf-
uðborgarsvæðinu og í nágrenni.
Að sögn vegaeftirlits Vegagerð-
arinnar voru vegir út frá Reykjavík
mokaðir strax og veður gekk niður
seinnipart sunnudags og hefði
komið í ljós þegar snjóruðnings-
tæki fóru af stað, að vegir höfðu
aðeins teppst í næsta nágrenni við
borgina.
Leiðin austur yfir Hellisheiði
lokaðist af snjóhafti rétt vestan við
Litlu kaffistofuna. í brekkunni fyr-
ir austan hana, svonefndri Drauga-
hlíð, var annað haft og það þriðja
á Bæjarhálsi. Að öðru leyti var
lítill snjór á veginum.
Leiðin norður lokaðist einnig í
næsta nágrenni borgarinnar en
snjóhaft kom á veginn um Leirvog-
stungu rétt norðan Mosfellsbæjar
en þar var mikill skafrenningur
sem linnti lítið þótt ofankoma
hætti.
Skamman tíma tók að opna
vegina út frá borginni þegar veðr-
inu slotaði. í gær voru þeir hreins-
aðir betur og er færð nú góð, nema
hvað hálka er á köflum.
Fært var frá Reykjavík í Borg-
arnes í gær og fært stórum bílum
ogjeppum um Holtavörðuheiði og
í Skagafjörð en Öxnadalsheiði var
lokuð.
Veðurstofan hafði spáð annarri
stórhríð í fyrrinótt og í gær en ekki
varð af henni hvað varðaði Suður-
og Suðvesturland því þar var rign-
ing eða slydda.
Erfið færð var í gær um Snæfclls-
nes og Dali og allir vegir vestan við
Búðardal ófærir.
Hinsvegar var hið versta veður
og hríð á Vestfjörðum og þar var
veruleg ófærð. Allir vegir á
norðanverðum Vestfjörðum voru
að heita mátti ófærir en vegurinn
um Breiðadalsheiði var mokaður.
Einnig var mokað til Bolungarvík-
ur og Súðavíkur en búist var við að
Timamynd: Pjetur
þessar leiöir tepptust fljótt aftur.
Fært er nú austur á Firði um
Suðurland en í gær var mokað á
Brciðamerkursandi, í Almanna-
skarði og í Þvottárskriðum. Mokað
var cinnig á sunnanverðum Aust-
fjörðum í gær þótt samkvæmt áætl-
un eigi að moka á þriðjudögum.
Mokstri var flýtt um einn dag þar
sem komin var hláka og veðurútlit
var allgott. -sá
Menn úr björgunarsveitinni Ingólfi lögðn í hann á þessum mikla trukki í gær. Ætlunin var að sækja fólk sem veðurteppt var í skíðaskálum uppi í Hveradölum og við Hengil. Aftanl trukknum var
vagn með svokölluðum snjóketti sem seig í og festist trukkurinn í skafli uppi á Bæjarhálsi. Tioumynd Pjetur.