Tíminn - 24.01.1989, Page 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 24. janúar 1989
Verðbólgan logar glatt í verðstöðvuninni:
Byggingarefni flest
hækkaðum 12-16%
Flest helstu byggingarefni hækk-
uðu um allt að 16% nú um áramótin,
sem leiddi til 3,3% hækkunar á
vísitölu byggingarkostnaðar milli
desember og janúar. Þyngst vegur
12% hækkun á steypu. í tilkynningu
Hagstofunnar eru verðhækkanir
eftirtalinna byggingavara nefndar
sérstaklega:
Tvöfalt gler
Mótatimbur
Steypa
Málningarvörur
Blikksmíðaefni
Pípulagningaefni
Innihurðir
15%
14%
12%
12%
9%
8%
6%
Spónaplötur
Einangrunarplast
16%
16%
Um fimmti hluti vísitöluhækkun-
arinnar varð þó vegna ýmissa ann-
arra verðhækkana.
Verðhækkanir þessar eru annars-
Jökulfell
til Evrópu
í kjölfar minnkandi flutninga á verkefnum fyrir skipiö til að bæta
freðfiski til Bandaríkjanna er nýtingu þess.
Skipadeild Sambandsins farin að Pá hcfur Skipadeild tekið upp
leita viðbótarverkefna fyrir frysti- samstarf við erlent skipafciag um
skipið Jökulfell. Núna undanfarið gámaflutninga frá Bandaríkjunum
hefur skipið þannig farið nokkrar í veg fyrir Sambandsskipin í við-
ferðir til Evrópuhafna og llutt komuhöfnum þeirra í Evrópu.
frystar vörur milli þeirra og áfanga-
staða vestanhafs, en aðalverkefni
skipsins er þó eftir sem áður að
flytja vörur milli íslands og Banda-
rfkjanna. Skipið var á sínum tíma
byggt sérstaklega fyrir flutninga á
frystum fiski héðan vestur um haf
og sérhannað til þess verkefnis,
auk þess sem það flytur vörur til
landsins ’frá Bandaríkjunum og
Kanada.
Núna þessa dagana er Jökulfell
þannig nýbúið að losa farm í Dan-
mörku sem það flutti þangað frá
Nýfundnalandi. í framhaldi af því
lestar skipið farm í Þýskalandi sem
fer til Nýfundnalands, en í leiðinni
þangað kemur það við á íslandi og
tekur fisk vestur. Þá er skammt
síðan skipið lestaði farm í Græn-
landi sem það fór með til Dan-
merkur og Englands. Hér er ekki
um fastar siglingar að ræða, a.m.k.
ekki enn sem komið er, heldur er
einungis verið að leita að nýjum
Óniar Hl. Jóhannsson frkvstj
sagði að náðst hefðu mjög hagstæð-
ir samningar um þetta, sem tryggðu
vikulega flutninga yfir hafið. Pað
þýddi aftur að nú byðist vikuleg
flutningaþjónusta frá austurströnd
Bandaríkjanna til íslands, í stað
þess að áður hefði Jökulfeilið að-
eins verið þar á þriggja til fjö'gurra
vikna fresti.
Innan skamms munu einnig tveir
starfsmcnn Skipadeildar taka til
starfa í Hull og Hamborg, þar sem
þeir verða staðsettir hjá umboðs-
fyrirtækjum hennar. Þessar borgir
cru báðar þungaviktarstaöir í starfi
deildarinnar, og með þessu móti er
m.a. ætlunin að auka enn þjónustu
hennar í sambandi við framhalds-
flutninga til staða lengra undan.
Auk þess rekur Skipadeild eigin
skrifstofu í Rotterdam sem annast
alla þjónustu fyrir viðskiptavini
hennar. -esig
„Bætt lýsing
betra líf“
Ljóstæknifélag íslands hefur gefið
út rit sem ber nafnið Ljós.
Þetta rit er til þess ætlað að flytja
lesendum fróðleik um sjónstarf, ljós.
Lést af
slysförum
Ungur' íslendingur Valdimar
Þorvarðarson lést af slysförum á
sjúkrahúsi í Barcelona síðastlið-
inn föstudag.
Valdimar var frá Grundarfirði,
fæddur 15. maí 1958. Hann var
búsettur í Árósum í Danmörku
en var við tungumálanám á Spáni
er hann varð fyrir bíl og lést af
þeim sökum. jkb
vegar raktar til 9% vörugjalds sem
lagt var á ýmsar byggingarvörur rétt
fyrir áramótin og hins vegar 5%
gengisfellingar í upphafi ársins.
Vörugjald var líka lækkað úr 14%
niður í 9% á öðrum vörutegundum,
en þær lækkanir hafa kannski gufað
upp í gengisfellingunni. Auk þessa
gætti einnig í vísitölunni „áhrifa
ýmissa verðhækkana, sem ekki
verða skýrðar með breytingu vöru-
gjalds eða gengis", eins og orðrétt
segir í tilkynningu Hagstofunnar.
Þessi hækkun ásamt með 1,7%
hækkun framfærsluvísitölunnar milli
sömu mánaða mun leiða til í kring-
um 2,2% hækkunar á lánskjaravísi-
tölunni í febrúar (sem svara mundi
til um 30% verðbólgu á heilu ári).
Sú hækkun mun t.d. hækka höfuð-
stól 3.300 þús. króna húsnæðisláns í
kringum 73.000 kr. þann 1. febrúar.
- HEI
í minningu
Jóns Konráðssonar:
Stjórn
Sauðfjár-
vemdar
í stjóm Sauðfjárvemdarinnar
hafa hafa verið skipuð Ólafur R.
Dýrmundsson formaður, Björg-
vin Þ. Valdimarsson og Jórunn
Sörenssen meðstjórnendur.
Sauðfjárverndin var stofnuð af
Jóni Konráðssyni á Selfossi árið
1965. Markmiðið með stofnun
hennar var að bæta umhirðu og
umgengni manna gagnvart sauð-
kindinni.
Er stofnandi hennar lést arf-
leiddi hann Sauðfjárverndina að
eigum stnum og stofnaði sjálf-
seignarfélag um hana árið 1986.
Hrossahópur hins kunna ræktunarmanns Bjöms Runólfssonar á Hofstöðum gæðir sér á tuggunni. Tínumynd ö.þ.
Útflutningur hrossakjöts til Belgíu:
Hrossakjötið líkaði
betur en folaldakjöt
I haust gerði markaðsnefnd félags
hrossabænda tilraun með að flytja
hross til Belgíu þar sem þeim var
slátrað og kjötið sett á markað.
Þannig voru flutt út um 270 hross,
þar af voru 80 úr Skagafirði og 60 úr
Húnavatnssýslum. Einnig var flutt
út við þetta tækifæi talsvert af reið-
hrossum sem seld höfðu verið til
Danmerkur og Svíþjóðar.
Þessir flutningar fóru fram með
flugvélum og voru alls farnar 40
ferðir frá Keflavíkurflugvelli. Eins
og kunnugt er hafa hross verið flutt
úr landi með skipum undanfarin ár.
Margir bændur hafa hinsvegar verið
tregir að senda með þessum hætti og
virðist sem hinn nýi flutningsmáti
falli hestamönnum betur í geð því
ekki reyndist neinum vandkvæðum
bundið að fá nægilega marga gripi í
útflutninginn. Að sögn forráða-
manna markaðsnefndar hér nyrðra
líkaði kjötið af fullorðnu gripunum
ágætlega í Belgíu en mun lakar af
nokkum folöldum sem send voru í
tilraunaskyni.
Kostnaður við flutninginn út var
greiddur af útflutningsbótafé, en
eigendur báru sjálfir kostnað við
flutning gripanna tii Keflavíkur.
Skilaverð til bænda verður tæpar 16
þús. krónur og á að greiða það 3
mánuðum eftir að hrossin fóru úr
landinu. Ástæður þess að hrossa-
bændur grípa til þessa ráðs er mjög
treg sala á hrossakjöti undanfarið,
eða alveg frá því 25% söluskattur
var lagður á hrossakjöt um áramótin
’87 og ’88. Nú er verið að kanna
hugsanlegan markað fyrir hrossakjöt
víðar, Ijóst er að hægt er að koma
kjötinu út fersku jafnvel til fjarlægari
landa. Hinsvegar mun spurningin
um verð og fyrirgreiðslu ekki enn að
fullu svarað. . Ö.Þ. Fljótum
lýsingu og skyld svið.
í því er meðal annars minnst á
áhrif lýsingar á andlega og líkamlega
vellíðan, að afköst starfsmanna auk-
ist, hreinlæti batni og slysum fækki
með bættri lýsingu auk fleiri atriða.
Markmið Ljóstæknifélagsins eru
að stuðla að bættri lýsingu og sjón-
skilyrðum og veita almenna fræðslu
um allt er varðar sjónstarf og lýsing-
artækni. Félagið er fulltrúi íslands í
alþjóða ljóstæknisamtökunum CIE
og tekur einnig þátt í samstarfi
norrænu Ijóstæknifélaganna.
Fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök
og einstaklingar sem eiga hagsmuna
að gæta eða hafa áhuga á lýsingar-
tækni geta gerst félagar en þeir eru
nú um 200 talsins. Formaður Ljós-
tæknifélags Islands er Aðalsteinn
Guðjohnsen rafmagnsstjóri en skrif-
stofa þess er að Hallveigarstíg 1 í
Reykjavík. jkb
Eldvarnareftirlitsmaðurinn í Hafnarfirði með 22 þúsund manns á
sínu svæði. Slökkvilið Hafnarfjarðar hafði í nógu að snúast í fyrra:
221 útkall 1988
Óvenju mikið var að gera hjá
slökkviliðinu í Hafnafirði á síðast-
liðnu ári. En brunavarnarsvæði
þess nær einnig til Garðabæjar og
Bessastaðahrepps.
í skýrslu slökkviliðsins kemur
frant að samtals voru útköll 221
talsins. Langflest útkallanna voru
vegna bruna á sinu, mosa og rusli,
eða samtals 117.
Hafnfirðingar sátu á strák sínum
og nörruðu slökkviliðsmennina
ekki nema fimm sinnum út að
nauðsynjalausu. Aftur á móti voru
þeir ekki nógu aðgætnir í rneðför-
um elds því upptök bruna mátti í
meira en helmingi tilfella rekja til
íkveikju af vangá eða öðrum or-
sökum.
Tjón vegna eldsvoða varð í fæst-
um tilfellum mikið, aðeins fjórum
sinnum nam það meiru en tveimur
milljónum króna.
Slökkviliðið sér einnig um
sjúkraflutninga á sama svæði og
voru þeir samtals 1315.
íbúafjöldi á svæði eldvarnareft-
irlitsmanns í Hafnarfirði Péturs
Kristbergssonar mun nú vera um
22 þúsund manns. En það er fjöl-
mennasta svæði sem einn eldvarn-
areftirlitsmaður hefur eftirlit með.
jkb