Tíminn - 24.01.1989, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 24. janúar 1989
Tíminn 7
Hvar stöndum við í samanburði við aðrar Norðurlandaþjóðir?:
Beinir skattar Dana og
Norðmanna fjórfalt hærri
Beinir skattar, sem hlutfall af landsframleiðslu, eru um fjórfalt hærri í
Noregi og Danmörku heldur en hér á landi, um þrefalt hærri í Svíþjóð og og
meira en tvöfalt hærri í Finnlandi. I heildarskattheimtu voru íslenskir
ráðamenn árið 1987 ennþá varla nema hálfdrættingar á við sænska (kannski
„farið fram síðan?“) og langt á eftir öllum öðrum Norðurlöndum.
Upplýsingar um skattheimtu á
Norðurlöndunum fintm, sem hlutfall
af landsframleiðslu, árið 1975 og
síðan 1980 til 1987 koma frant í
skýrslu sem unnin hefur verið sam-
eiginlega af vinnuveitandasamtök-
um þessara landa. Vegna þess hve
stjórnmálamenn og aðrir grípa oft til
margskonar samanburðar við
„helstu grannlönd okkar" getur ver-
ið fróðlegt að sjá hvernig íslendingar
standast þann samanburð á sumum
sviðum.
Svíar skattakóngar
Hvað varðar hlutfall heildarskatta
af landsframleiðslu hefur það á fyrr-
nefndu tímabili hækkað verulega t'
Danmörku og Svíþjóð, heldur þok-
ast upp á við í Finnlandi, en lítið
breyst frá ári til árs í Noregi. Á
íslandi var skatthlutfallið 1987 lægra
en nokkurt annað ár frá 1980, en
hæst komst það í 33%. Taflan sýnir
annars vegar heildarskatta og hins
vegar beina skatta, hvorutveggja
sem hlutfall landsframleiðslu 1987.
Hlutfall skatta af landsframleiðslu
Heildar- Beinir-
skattar % skattar %
Danmörk 51,9 30,1
Finnland 41,4 17,3
Noregur 42,2 29,1
Svíþjóð 54,8 23,8
ísland 28,6 7,1
Ljóst virðist af þessunt töluni, að
sögur af gífurlegri skattheimtu með-
al grannþjóða okkar eru engar ýkju-
sögur.
Séu tölur um landsfrantleiðslu
Norðurlandaþjóðanna umreiknaðar
eftir meðalgengi ársins 1987 verður
sú niðurstaðan að landsframleiðsla á
hvern íbúa hafi verið hæst á íslandi
(829 þús.) þá í Danmörku (767 þ.),
sú sama í Noregi og Svíþjóð (733 þ.)
og lægst (688 þ.) í Finnlandi. Skatt-
heimta á hvern íbúa í íslenskum
krónum var sem hér segir:
Skattar á hvern íbúa
Beinirsk. Allirsk.
ísl. kr. ísl. kr.
Danmörk 231.000 398.000
Finnland II9.000 284.000
Noregur 213.000 353.000
Svíþjóð 175.000 402.000
(sland 59.000 237.000
Heildarskattheimta á hvern íbúa
Danmerkur og Svíþjóðar er sam-
kvæmt þessu 68% og 70% hærri
heldur en „plokkað" er af hverjum
íslendingi. Virðist þar m.a. að finna
orsök/afleiðingu hinna fjölbreyti-
legu styrkja, niðurgreiðslna, bóta og
almannaþjónustu sem sögur fara af
að séu miklu meiri og betri cn hér.
Hvort íslendingar yrðu allir sam-
mála um að kaupa sér áþekk réttindi
fyrir 50-70% skattahækkanir er aftur
á móti forvitnileg spurning.
Einkaneysla langmest
á Islandi
Danir og Finnar vörðu tæplega
55% landsframleiðslu sinnar til
einkaneyslu 1987, sem er svipað
hlutfall og 1980. Einkaneysla íslend-
inga var þá svipuð (57%) en hafði
1987 hoppað upp í 65% af lands-
framleiðslu. Á móti höföu einstakl-
ingar m.a. skorið niður fjárfestingu
í íbúðarhúsnæði. Hlutfall einka-
neyslu hefur verið hvað lægst hjá
Svíum, um 52%.
í santneyslu eru Svíarnir hins
vegar efstir, með nær 27% lands-
framleiðslu, þrátt fyrir nokkra lækk-
un frá 1980. Há Dönum er hlutfalliö
heldur lægra og hefur einnig farið
lækkandi. íslendingar eru lang
„sparsamástir" í samneyslunni mcð
18%, sem er þó hækkun úr 16% í
byrjun áratugarihs. Pcirri hækkun
hefur verið mætt með niðurskurði í
opinberum framkvæmdum, úr 9%
niður í 5% af jandsframleiðslu.
(Noreg vantar í þessuni tölum.)
Inn- og útflutningur
Innflutningur er svipað hlutfall
iandsframleiðslunnar (36%) hjá Is-
lendingum og Dönum, mun minni
(31%) hjá Svíum og aðeins unt 25%
hjá Finnum. Islendingar er þeir einu
þessara þjóða sem ekki flytja meira
út en inn.
Islendingar og Danir
skuldakóngar
Flestum Norðurlandaþjóðanna
hefur þó gengið illa að láta það sem
þær afla duga fyrir því sem þær eyða.
Norðmenn eru þeir einu sem ekki
hafa nær árlega endað með halla á
greiðslujöfnuði við útlönd. Hvað
varðar erlendar skuldir sem hlutfall
af landsframleiðslu bera Danir og
íslendingar þó af sem skuldakóngar.
Hlutfall erlendra skulda
% 1980 % 1987
Danmörk 26,7 39,2
Finnland 14,2 14,3
Noregur 32,6 16,5
Svíþjóð 9,7 21,6
ísland 34,6 40,4
Hjá Dönunt hækkuðu erlendar
skuldir sem hlutfall af landsfram-
leiðslu jafnt og þétt til 1984 en hafa
svo nánast staöið i stað síðan. Það
sama ár komst hlutfall (slendinga í
rúm 60% en fór síðan lækkandi til
1987. Finnar hafa haldiðsínu skulda-
hlutfalli lítt breyttu þcnnan áratug.
Norðmenn höfðu jákvæðan
greiðslujöfnuð við útlönd öll árin
1980-85 og höfðu þá komið hlutfalli
erlendra skulda niður fyrir 10%.
Árin 1986 og 87 hefur Itins vegar
sigið á ógæfuhliðina, væntanlega
fyrst og fremst vegna lækkunar olíu-
verðs - sem við höfum hins vegar
notið góðs af. - HEl
51,9% Danmörk 41 j4% Finnland 42,2% Noregur 54,8% Svíþjóð 28,6% ísland
Islenskir iðnrekendur:
I7% gengisfellingu
Félag íslenskra iðnrekenda krefst þess að gengi íslensku
krónunnar verði fellt um 10-17%. Það mundi þýða
kaupmáttarskerðingu um 6-7% ef áhrif gengisfellingar
yrðu ekki tekin inn í útreikning launa, sem iðnrekendur
telja nauðsynlegt td að hun
Á fundi í gær þar sem ályktun
Félags íslenskra iðnrekenda um
gengismál var kynnt sögðu þeir
Víglundur Þorsteinsson formaður
og Davíð Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri að raungengi krón-
unnar yrði að lækka verulega á
næstu misserum til að ná hallalaus-
um utanríkisviðskiptum. Forsend-
ur fyrir hallalausum utanríkisvið-
skiptum væru tvær, annars vegar
gengisfelling allt að 17% og hins
vegar samdráttur í ríkisútgjöldum.
Bent var á að erlendar skuldir
þjóðarinnar færu ört vaxandi og ef
svo héldi fram sem horfði mundu
heildarskuldir íslensku þjóðarinn-
ar vera nálægt 180 milljörðum árið
1993, en þær eru 114 milljarðar í
dag.
Víglundur Þorsteinsson taldi
umsvif í rekstri ríkisins hafa vaxið
allt of mikið og nú yrði ríkið að
skera niður sinn rekstur eins og
nai takmarki smu.
öðrum væri skipað að gera. Víg-
lundur kvað það ekki í verkahring
Félags íslenskra iðnrekanda að
koma með tillögur um hvar ætti að
skera niður á fjárlögum ríkisins, en
það væri of algengt að menn
ákvæðu í einhverjum glasaglaumi
að gera hitt og þetta á vegum
ríkisins, en hugsuðu minna um
hvernig ætti að fjármagna fram-
kvæmdirnar.
Iðnrekendur telja að aðgerðir
stjórnvalda megni ekki að draga úr
viðskiptahalla, en nauðsynlegt sé
að ná hallalausum utanríkisvið-
skiptum fyrir árið 1990 til að koma
í veg fyrir að við festumst í víta-
hring viðskiptahalla og erlendrar
skuldasöfnunar. Hallalaus ríkis-
búskapur og háir raunvextir dugi
ekki til að ná þessu markmiði og
þess vegna sé nauðsynlegt að fella
gengi íslensku krónunnar. - ág
Lilja Eiríksdóttir tekur við vinningi sínum
Flugbjörgunarsveitirnar:
Vinningar afhentir
Nýlega voru afhentir aðalvinning-
arnir í Stórhappdrætti Flugbjörgun-
arsveitanna, sem dregið var í 24.
desember s.l.
Bergþór Ólafsson vann einn hinna
glæsilegu heimilispakka, sem inni-
heldur hvorki meira né minna en:
Macintosh Plus einkatölvu, Nord-
mende CV 2201 kvikmyndatökuvél,
Bang & Olufsen Beosystem 5000
hljómtækjasamstæðu ásamt Penta
hátölurum, Nordmende Prestige 29"
sjónvarpstæki, Nordmende V 1405
myndbandstæki, Goldstar örbylgju-
ofn og Mitsubishi farsíma, samtals
að verðmæti 823.500,- kr.
Önnur Toyota Land Cruiser
Turbo Diesel bifreiðin féll í hlut
hinnar Ijónheppnu Lilju Eiríksdótt-
ur, en sá vinningur er að verðmæti
2.200.00,- kr.
Flugbjörgunarsveitirnar óska
þeim, svo og öðrum vinningshöfum,
innilega til hamingju með vinning-
ana og þakka landsmönnum öllum
veittan stuðning.
Án stuðnings landsmanna væri
ekki mögulegt að halda þessu starfi
áfram, því rekstur björgunarsveita
er kostnaðarsamur, þrátt fyrir að öll
vinna við þjálfun, æfingar og leitir sé
unnin í sjálfboðavinnu af hörkudug-
legu og óeigingjörnu fólki.