Tíminn - 24.01.1989, Qupperneq 13
Þriðjudagur 24. janúar 1989
Tíminn 13
Flóttamannabuðir í Norður-Sómalíu:
Hungurvofan ógnar
lífi 400.000 manns
Sómalir segja að ef ekkert verði
að gert í snatri muni nærri 400
þúsund Eþíópíumenn sem flúið hafa
til Sómalíu deyja úr hungri þar sem
flóttamannahjálp Sameinuðu þjóð-
anna hafi hætt matarsendingum til
þeirra. Segja Sómalir að matarbirgð-
ir verði algerlega á þrotum í lok
janúar.
- Án nýrra matarbirgða munu
afleiðingarnar verða hrikalegar,
sagði Abdi Mohamed Tarrah sem
situr í forsæti nefndar'í Sómalíu sem
hefur með flóttamenn að gera.
Sagði Tarrah að í fimmtán flótta-
mannabúðum í norðurhluta Sómalíu
hafi dagiegur matarskammtur þegar
verið minnkaður úr 573 grömmum í
237 grömm. Sagði hann að flótta-
mennirnir sem flestir eru börn, kon-
ur og gamalmenni væru „á brún
hungursneyðar".
Sameinðu þjóðirnar tilkynntu
Sómölum það í desembermánuði að
matarsendingum til norðurhluta
Sómalíu yrði hætt vegna „óstöðug-
leika" á svæðinu.
Bardagar milli skæruliða og
stjórnarhersins í Sómalíu hafa valdið
miklum usla í norðurhluta landsins
og hrakið fjölda fólks sem flúið hafa
átök og hungursneyð í Eþíópíu aftur
heim á leið. Hafa fjölmargir erlendir
hjálparstarfsmenn verið teknir
höndum í þeim bardögum.
Hungurvofan ógnar nú 400 þúsund
flóttamönnum í norðurhluta Sómal-
íu eftir að Sameinuðu þjóðirnar hafa
stöðvað matarsendingar vegna átaka
skæruliða og stjórnarhersins í Sóm-
alíu.
Um áttahundruð
„Andófstékkar“
teknir fastir
Átta hundruð manns hafa verið
handteknir fyrir mótmælaaðgerðir í
Tékkóslóvakíu síðustu vikuna og
hafa slíkar fjöldahandtökur ekki
verið viðhafðar frá því sem þar
gerðist í kjölfar innrásar Sovét-
manna í Tékkóslóvakíu árið 1968.
Reyndar hafa ekki heldur verið svo
öflug mótmæli meðal tékknesks al-
mennings í þessi tuttugu ár.
Að minnsta kosti fjögur hundruð
manns voru handteknir og yfirheyrð-
ir á laugardaginn eftir að lögreglan
hafði fjarlægt fólkið úr járnbrautar-
lestum í þorpinu Vsetaty 30 km
norður af Prag. Hugðist fólkið halda
í pílagrímsför að leiði heimspeki-
stúdentsins Jan Palchs sem kveikti í
sér í ársbyrjun 1969 til að mótmæla
kúgun þeirri er fylgdi í kjölfar inn-
rásar Sovétmanna sem murkuðu líf-
ið úr „Vorinu í Prag“.
Fjölmennar mótmælaaðgerðir
hafa verið á Wenceslastorginu á
hverjum degi síðustu viku eftir að
lögregla leysti upp minningarathöfn
um Jan Palach sunnudaginn fyrir
viku. Þá voru tuttugu ár síðan hann
framdi sjálfsmorð á Wenceslastorg-
inu.
Sovétríkin:
Lögregla skaut lög-
reglu af misgáningi
Sovéskur lögregluþjónn sem
reyndi að stöðva slagsmál var skot-
inn til bana af félaga sínum sem tók
hann fyrir vopnaðan glæpamann.
Um þetta mátti lesa í Komsomolska
Pravda á sunnudaginn.
Atburður þessi átti sér stað í
Síberu, nánar tiltekið í bænum No-
vosibirsk eftir að lögregluforinginn
Yevgeny Byelokopytov hugðist
handsama óðan hnífamann sem
stungið hafði mann í vínbúð þar í
bæ.
-Hið rauða einkennisskírteini lög-
reglumannsins hafði sömu áhrif á
hnífamanninn og rauð dula hefur á
naut. Vinir mannsins réðust að lög-
reglumanninum og hugðust frelsa
félaga sinn. Skot Byelokopytovs upp
í loftið hafði engin áhrif á múginn,
sagði í frétt dagblaðsins.
Byelokopytov var hrakinn að ís-
hokkívelli bæjarins, þar sem hann
varðist árásum lýðsins með skothríð.
Lögreglusveit kom á staðinn eftir að
skothríðin hófst. Þeir báru ekki
kennsl á starfsfélaga sinn, en skutu
hann þess í stað á færi með riffli,
eftir að lögregluþjónninn hafði sært
þrjá menn.
Pólskur
prestur
myrtur
Pólskur prestur sem var mikill
stuðningsmaður hinna óháðu
verkalýðssamtaka Samstöðu var
myrtur á heimili sínu á sunnudag-
inn. Það var hin opinbera pólska
fréttastofa PAP sem skýrði frá
þessu á sunnudaginn.
í frétt PAP sagði að það „væri
augljóst" að Monsignor Stefan
Niedzielak „hafi orðið fórnar-
lamb innbrotsþjófa, og áverkar á
líkinu bendi til að um morð sé að
ræða.“
Fréttaþjónusta Samstöðu SIS
skýrði frá því að „staðsetning
líksins og fyrsta könnun á áverk-
unt bendi til að ekki sé um
eðlilegan dauðdaga að ræða.“
„Það er orðrómur um að
greinileg merki eftir barsmíðar
hafi fundist á líkinu," sagði í frétt
SIS.
St. Charles Borromeo kirkjan
var troðfull við messu á sunnudag
þar sem fólk flykktist að til að
biðja fyrir séra Niedzielak, en
hann var sérlega vinsæll prestur
þar sem hann predikaði oft gegn
kommúnisma og bað sérstaklega
fyrir Pólverjum sem talið er að
Sovétmenn hafi drepið í sfðari
heimsstyrjöld. Leikur því grunur
á að harðir andstæðingar Sam-
stöðu hafi myrt prestinn vegna
þess að stjórnvöld hyggjast lög-
leiða samtökin.
Kópavogur Skrifstofan i Hamraborg5eropinþriðjudagaogmiðvikudagakl.9-13. Sími 41590. Heitt á könnunni. Opið hús alla miðvikudaga kl.17-19. Félagsmenn eru hvattirtil að líta inn og taka með sér gesti. Eflum flokksstarfið. Framsóknarfélögin í Kópavogi.
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaður: Nafn umboðsmanns Heimili Sími
Hafnarfjörður Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195
Kópavogur LindaJónsdóttir Holtagerði 28 45228
Garðabær Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195
Keflavík GuðríðurWaage Austurbraut 1 92-12883
Sandgerði Margrét Magnúsdóttir Hjallagötu 4 92-37771
Njarðvik Kristinn Ingimundarson Faxabraut 4 92-13826
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut 55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata 26 93-71740
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Ólafsvík Linda Stefánsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269
Grundarfjörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur Ester Friðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629
Búðardalur Kristiana Guðmundsdóttir Búðarbraut3 93-41447
ísafjörður Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541
Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Flateyri Guðrún Kristjánsdóttir Brimnesvegi 2 94-7673
Patreksfjörður Ása Þorkelsdóttir Urðargötu 20 94-1503
Bildudalur HelgaGisladóttir TjarnarbrautlO 94-2122
Þingeyri Karitas Jónsdóttir Brekkugötu 54 94-8131
Hólmavík ElísabetPálsdóttir Borgarbraut 5 95-3132
Hvammstangi Friðbjörn Níelsson Fifusundi 12 95-1485
Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut20 95-4581
Skagaströnd ÓlafurBernódusson Bogabraut 27 95-4772
Sauðárkrókur Guðrún Kristóf ersdótti r Barmahlíð13 95-5311
Siglufjörður Guðfinna Ingimarsdóttir Hvanneyrarbraut 54 96-71555
Akureyri Jóhannes Þengilsson Kambagerði 4 96-22940
Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Húsavík Ólafur Geir Magnússon Hjarðarhóli 2 96-41729
Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbvaqð8 96-62308
Raufarhöfn Ófeigur I. Gylfason Sólvöllum 96-51258
Þórshöfn Kristinn Jóhannsson Austurvegi 1 96-81157
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir Koibeinsgötu 44 97-31289
Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógar 13 97-1350
Seyðisfjörður Anna Dóra Árnadóttir Fjarðarbakka 10 97-21467
Neskaupstaður KristinÁrnadóttir Nesbakka16 97-71626
Reyðarfjörður Marínó Sigurbjörnsson Heiðarvegi 12 97-41167
Eskifjörður Þórey Dögg Pálmadóttir Svínaskálahlíð19 97-61367
Fáskrúðsfjörður Guðbjörg H. Eyþórsdóttir Hlíðargötu4 97-51299
Stöðvarfjörður SvavaG. Magnúsdóttir Undralandi 97-58839
Djúpivogur Óskar Guðjón Karlsson Stapa, Djúpavogi 97-88857
Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir Smárabraut 13 97-81255
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Skólavöllum 14 98-22317
Hveragerði LiljaHaraldsdóttir Heiðarbrún51 98-34389
Þorlákshöfn Þórdís Hannesdóttir Lyngberg 13 98-33813
Eyrarbakki Þórir Erlingsson Túngötu28 98-31198
Stokkseyri Hjörleifur Bjarki Kristjánsson Sólvöllum 1 98-31005
Laugarvatn Halldór Benjaminsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur JónínaogÁrnýJóna Króktún 17 98-78335
Vík ViðirGylfason Austurveg 27 98-71216
Vestmannaeyjar MartaJónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192
Nýtt símanúmer
Frá mánudeginum 23. janúar 1989 hefur Stjórnar-
ráö íslands símanúmerið
609000
Alúðarþakkir færum við öllum þeim, sem heiðruðu
mig með gjöfum, árnaðaróskum og á annan hátt
ááttræðisafmælinu mínu 18. janúarsíðastliðinn.
Kristján Guðbjartsson
Jaðarsbraut 39,
Akranesi.
TÖLVU-
NOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum,
setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða
fyrir tölvuvinnslu
Smiðjuvegi 3,
200 Kópavogur.
Sími 45000
BILALEIGA
með útibu allt í kringum
landið, gera þér mögulegt
að leigja bíl á einum stað
og skila honum á öðrum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíia erlendis
interRent
Bilaleiga Akurey nr