Tíminn - 24.01.1989, Side 15
Tíminn 15
Þriðjudagur 24. janúar 1989
i Mnr
Hortense Gabel dómari glataði
embætti og mannorði fyrir að Bess
Myerson réð Sukhreet dóttur
hennar til starfa.
Nú var í uppsiglingu tragisk
sápuópera í New York. Hvers
vegna vogaði Bess Myerson svona
miklu - sínum eigin frama og þar
að auki ferli aldna dómarans Gabel
einungis til að spara hinum
stórauðuga elskhuga sínum Andy
Capasso nokkur þúsund dollara?
Og fleiri spurningum er ósvarað,
sem ekki var leitað svara við í
réttarrannsókninni en vörpuðu
dapurlegu Ijósi á hina ákærðu Bess
Myerson. Hvers vegna varð hún að
stela handfylli af ódýru drasli í
vöruhúsi utanbæjar, þegar hún
heimsótti Andy í fangelsið í sumar
sem leið? Þýfið var alls 44 dollara
virði, en þegar hún var gómuð var
hún með 160 dollara í töskunni
sinni.
Enn óskiljanlegri eru hótunar-
bréfin. 1978 kynntist Bess glæsileg-
um og auðugum verðbréfasala,
John Jakobson að nafni. Pegar upp
úr slitnaði nokkrum mánuðum síð-
ar og Jakobson sneri aftur til fyrri
vinkonu sinnar, trylltist Bess.
Vinkonan fór skyndilega að fá
ruddaleg hótunarbréf og einn góð-
an veðurdag sendi nafnlausi bréf-
ritarinn umslag með mannasaur á
heimilisfang Jakobsons í hinu
glæsilega hóteli Carlyle.
Allar vísbendingar sem lögregl-
an fann lágu beinustu leið til Bess
Myerson. Blaðakona, sem mikið
hefur velt vöngum yfir ráðgátunni
Myerson kemst að þeirri niður-
stöðu að „öfgarnar í óútreiknan-
legri og ruglingslegri hegðun henn-
ar komu fram þegar hún var altekin
af nýjum manni“.
En það var ekki bara undir þeim
kringumstæðum. Sálfræðingar
slógu því föstu að Bess sé andlega
trufluð. Einkennunum hafi oftast
nær verið haldið í skefjum með
ítarlegri sálgreiningu, en ekki
alltaf. Eitt dæmi þess er þegar Bess
birtist allt í einu óboðin og með
hárið í óreiðu í kvöldverðarboði í
borgarstjórabústaðnum Gracie
Mansion og „talaði eintómt bull“
að því er einn viðstaddra segir.
Ed Koch hlýtur að hafa vitað um
andlegt jafnvægisleysi menningar-
fulltrúans síns, en hann hafði ekki
enn greitt henni gamlar skuldir og
eins og einn ráðgjafi hans orðar
það: „Við héldum að hún gæti ekki
gert mikinn skaða sem menningar-
fulltrúi“.
Fólk sem átti samskipti við Bess
vissi aldrei hvaða Bess Myerson
það þyrfti að eiga við. Var það
hofmóðuga og drambsama „Bess
drottning" sem eitt sinn hafði kall-
að sig „Drottningu gyðinga"?
Eða hin Iítilláta „Bessie frá
Bronx“, sem spjallaði á jiddísku
við íbúa elliheimila og kallaði
hamborgara með of litlu fituinni-
haldi „skammborgara" þegar hún
var yfirmaður neytendamála í
borgarstjóratíð Johns Lindsay?
Svo var það sú Bessie, sem hjarta-
hlý eins og „jiddísk mamma“ veitti
öllum umönnun og blandaði sér í
öll mál, líka þau sem komu henni
hreint ekkert við.
Niðurlægjandi reynsia
fegurðardrottningar
Það er ekki hægt að skýra þving-
aðar og oft sjálfseyðandi gerðir
Bess Myerson á rökrænan hátt.
Það væri helst að leitað væri í
myrkum afkimum örlaga hennar
að merkingu. Bess ólst upp í fá-
tækrahverfi í Bronx, dóttir rúss-
neskra gyðinga sem höfðu flúið til
Bess reyndist elskhuga sínum,
Andy Capasso, haukur í homi
meðan hún gegndi embætti menn-
ingarfulltrúa.
Bandaríkjanna vegna gyðingaof-
sókna. Þunglynd og nöldrandi
móðir gerði lífið leitt fyrir Bess,
systur hennar tvær og föður þeirra,
sem vann sem málari. Bess, sem
var greind, falleg og hæfileikarík,
spilaði ljómandi vel á flautu og
kom m.a.s. fram sem píanóleikari
í Carnegie Hall. 1945 losnaði hún
úr þessu drungalega umhverfi þeg-
ar hún var kosin Ungfrú Ameríka.
21 árs að aldri sinnti hún skyld-
um fegurðardrottningarinnar og
ferðaðist um öll ríki Bandaríkj-
anna. Það var þó ekki einber
sigurför. Þannig segir frá því í
ævisögu hennar að iðulega hafi
þessi unga gyðingastúlka staðið
fyrir framan hótel þar sem stóð
„No Catholics, No Jews, No Dogs“
(engir kaþólikkar, engir gyðingar,
engir hundar). Og oft varð fegurð-
ardrottningin að læðast út um bak-
dyr fínu klúbbanna þar sem and-
gyðinglegir meðlimir mótmæltu
nærveru hennar þar.
Á þessum tíma breyttist Bess úr
flautuleikandi Ungfrú Ameríku í
málsvara gegn fordómum og kyn-
þáttahatri. „Þetta var svo niður-
lægjandi reynsla fyrir mig,“ sagði
hún síðar í blaðaviðtali. „Ég held
að ég hafi orðið hörð af mér við
þetta. Ég sagði við sjálfa mig, allt
í lagi - ef þeir vilja ekki láta þig
njóta þess sem þú hefur unnið til
verður þú að læra að finna þína
eigin leið til að berjast í gegnum
raðir þeirra“.
Barátta varð sterkur þáttur í
skapgerð hennar. Hún barðist
gegnum tvö óhamingjusöm hjóna-
bönd og andstyggilega skilnaði.
Hún yfirvann móðurlífskrabba-
mein með geislalækningu og járn-
vilja. 1980 tapaði hún baráttu sem
hún hefði umfram allt viljað vinna.
Önnur kona, yngri en Bess, vann
hið eftirsótta öldungadeildarsæti.
Einn góðan veðurdag uppgötv-
aði Bess Myerson að vopnin
hennar, hin svokölluðu kvenna-
vopn - töfrar og tælandi yndisþokki
-, voru orðin bitlaus. Búðarþjófn-
aðurinn hennar var nokkurs konar
svar hennar við þessu tapi, en ný
könnun í Bandaríkjunum sýnir að
konur komnar nær sextugu eru
áköfustu búðaþjófarnir.
„Ég geri ráð fyrir að Bess Myer-
son hafi ekki getað fengið það sem
hana langaði í,“ segir sálfræðingur
einn. „Hún fann að hún var búin
að missa aðdráttarafl sitt á
karlmenn, starfið sitt og þá ímynd
sem hún einu sinni hafði. Og hún
framdi þjófnaðinn í örvilnaðri til-
raun til að fá huggun."
Jón Helgason Guðni Ágústsson Unnur Stefánsdóttir
Árnesingar
Árlegir stjórnmálafundir og viðtalstímar þingmanna Framsóknar-
flokksins verða haldnir á eftirtöldum stöðum:
Félagslundur, þriðjudag 24. jan. kl. 21.00.
Þorlákshöfn, í Kiwanishúsinu, miðvikudag 25. jan kl. 21.00.
Stokkseyri, fimmtudag 26. jan kl. 21.00.
Suðurland
Spilum félagsvist að Eyrarvegi 15, Selfossi 24. og 31. janúar n.k. kl.
20.30.
Framsóknarfélag Seifoss.
Suðurland
Skrifstofa kjördæmissambandsins Eyrarvegi 15, Selfossi er opin á
fimmtudögum kl. 17-19 simi 98-22547.
KSFS.
HlJ
Steingrímur
Fundir um atvinnu- og efnahagsmál
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, heldur fundi um at-
vinnu- og efnahagsmál á eftirtöldum stöðum:
Norðurland-E, þriðjudag 24. jan. Hótel KEA kl. 21.00.
Vesturland, fimmtudag 26. jan. Hótel Akranes kl. 20.45.
Austurland, laugardag 28. jan. Egilsstaðir kl. 15.00.
Vestfirðir, sunnudag 29. jan. Félagsheimiiinu, Patreksfirði kl.
16.00.
Norðurland-V, laugardag 4. feb. Varmahlíð kl. 14.00.
Allir velkomnir
Þorrablót framsóknarmanna
á Suðurnesjum
Framsóknarfélögin í Keflavík standa fyrir þorrablóti þann 27. janúar
í Glaumbergi efri sal.
Húsið opnar kl. 19. Aðgangur að neðri sal að vild.
Mætum öll og tökum með okkur gesti.
Sérstakir gestir verða:
Steingrímur Hermannsson og Edda Guðmundsdóttir.
Miðapantanir: Péturs. 11431, Sigurðurs. 12719, Þorsteinns. 12330,
Gunnar s. 15410, Kolbeinn s. 12458.
Miðasala í anddyri hússins. Verð kr. 1500-
Framsóknarfélögin í Keflavík
MATARSPJALLSFUNDUR
Landssamband framsóknar-
kvenna heldur sinn íyrsta
matarspjallsfund á árinu að
Lækjarbrekku, fimmtudaginn
26. janúar n.k. kl. 19:30.
Gestur fundarins verður Jóna
Ingibjörg Jónsdóttir, kynlífs-
fræðingur og flytur hún
fyrirlestur sem nefnist:
"Hvað er gott kynlíf'.
Þátttaka tilkynnist til Ingu í
síma 24480.
Allir velkomnir.
LFK