Tíminn - 18.03.1989, Side 4
4 Tíminn
Laugardagur 18. mars 1989
Úthlutun styrkja
úr Sáttmálasjóði
Umsóknir um utanfararstyrki og verkefnastyrki úr
Sáttmálasjóði Háskóla íslands, stílaðar til háskóla-
ráðs, skulu hafa borist skrifstofu rektors í síðasta
lagi 30. apríl 1989.
Tilgangi sjóðsins er lýst í 2. gr. skipulagsskrár frá
29. júní 1919, sem birt er í Árbók Háskóla íslands
1918-1919, bls. 52.
Umsóknareyðublöð og nánari úthlutunarreglur,
samþykktar af háskólaráði, liggja frammi í skrif-
stofu Háskóla íslands hjá ritara rektors.
Vjr Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. gatnamálastjórans í Reykja-
vík, óskareftirtilboöum í eftirfarandi verk, umeittútboðeraðræða:
1. Fylling norðan Suðurlandsbrautar vestan Reykjavegar alls um
9.000 m3.
Verklok 15. september n.k.
2. Undurbúningur fyrir malbikun við Þönglabakka 4, fylling um 6.500
m3, flatarmál um 1.950 m2.
Verklok 1. ágúst n.k.
3. Undirbúningur undir malbikun á bifreiðaverkstæði í Mjódd,
flatarmál alls um 3.200 m2.
Verklok 1. júlí n.k.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
frá og með þriðjudeginum 21. mars n.k. gegn kr. 15.000,-
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 5. apríl 1989, kl.
16.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Skólaskrifstofu Reykjavíkur,
óskar eftir tilboðum í:
A. Viðgerðir og viðhald á íþróttahúsi Breiðholtsskóla.
Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 4. apríl n.k. kl. 15.00.
B. Viðgerðir og viðhald á þökum Hagaskóla.
Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 4. apríl n.k. kl. 14.00.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, á ofangreindum tíma.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
O
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. byggingardeildar borgar-
verkfræðings, óskar eftir tilboðum í viðvörunarkerfi fyrir íbúa í stofnun
aldraðra að Norðurbrún 1.
Verktími er til 1. október 1989.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 19. apríl 1989, kl.
14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
\í\ Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar borgar-
verkfræðings, óskar eftir tilboðum í viðgerð og endurnýjun á þaki
Sundhallar Reykjavíkur.
Um er að ræða endurnýjun á þaki og endursteypu á þakkanti.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða oþnuð á sama stað, miðvikudaginn 12. apríl 1989, kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Um 293.000 kr. staðgreiðsluskattur af 2ja milljóna tekjum meðalfjölskyldunnar:
Um 14,5% teknanna í
staðgreiðsluna 1988
16
14
12
10
8
6
4
2
J F MAMJ JÁSONO
Þannig skiptust laun 1988 niður á mánuði ársins. Neðst á hverjum stöpli
(mánuði) kemur fram hvað mikið af þeim fór í skattinn. Athygli vekur hve
laun voru miklu hærri í desember (um 15 milijarðar) heldur en aðra mánuði
ársins, allt upp í 65-70% hærri en í janúar. Skýringin mun að stórum hluta
felast í því að a.m.k. Launaskrifstofa ríkisins og Reikjavíkurborg greiða þann
mánuð yfirvinnu út fyrr en aðra mánuði, sem jafnframt skýrir hina lágu
launaupphæð í janúar. Ennfremur gætir þarna greiðslu viðbótarlauna í
desember, t.d. 13. mánaðarins sem tíðkast í bankastofnunum og að
einhverjum hluta víðar. Sem sjá má tók skatturinn hlutfallslega mun stærri
skerf (um 2,8 milljarða) af hinum háu desemberlaunum heldur en aðra
mánuði, enda mun mörgum hafa brugðið i brún við þá útborgun. Aftur á
móti fór aðeins rúmlega 1,1 milljarður í skattinn af hinni lágu launasummu
(dagvinnulaunum) janúarmánaðar.
Rúmlega 21.100 milljónir
höfðu innheimst í staðgreiðslu-
skatta fyrir árið 1988, nú í lok
janúar s.l. af samtals 146.000
milljóna króna launagreiðslum
til launþega ásamt tekjum svo-
kallaðra ársmanna í stað-
greiðslu, sem búið var að gera
grein fyrir á sama tíma. Það
þýðir að 14,4% teknanna hafa
farið í skattinn. Um 60% af
sköttunum (12.660 milljónir)
voru innheimtir hjá Gjaldheimt-
unni í Reykjavík.
Þess má geta að hluta af þessum
sköttum hafa margir launþegar síðan
fengið endurgreiddan t.d. í formi
barnabóta og húsnæðisbóta. Sömu-
leiðis má benda á að auk þessarar
146 milljarða launasummu hafa
landsmenn haft einhverja milljarða
í skattfrjálsar vaxtatekjur.
Um 2.700.000 launafærslur voru
skráðar á árinu á samtals 183.700
launamenn, eða 14,7 launafærslur
að meðaltali á hvern og einn. Þessir
183.700 launamenn er nánast sami
fjöldi og allir íslendingar sem voru
16 ára og eldri á árinu. Launasumm-
an svarar því til 795.000 kr. á hvern
þeirra að meðaltali.
Ef þjóðinni væri hins vegar deilt
niður í 3,5 manna fjölskyldur (þ.e.
sömu stærð og vísitölufjölskyldan)
og 146 milljarða launasummunni
skipt jafnt á milli þeirra kæmu um
2.025 þús. króna tekjur í hlut hverrar
þeirrar að meðaltali. Þar af hafa um
293 þús. krónur farið í skattinn, en
1.732 þús. verið útborgaðar. Það er
um 18.000 kr. hærri upphæð heldur
en útgjöld meðalfjölskyldu af þessari
stærð voru áætluð á síðasta ári
samkvæmt grundvelli framfærslu-
vísitölunnar.
Reiknaður skattur (35,2%) af 146
milljarða kr. tekjum væri 51,4 millj-
arðar. Ef allir áðurnefndir 183.700
launþegar hefðu getað nýtt sinn
186.629 kr. persónuafslátt (samtals
34,3 milljarða kr.) að fullu hefði
aðeins 17,1 milljarðurorðiðeftirhjá
skattinum í stað 21,1 milljarðs eins
og raun varð á. Mismunurinn bendir
til að um 11% alls persónuafsláttar
hafi ekki nýst til frádráttar af ein-
hverjum ástæðum, m.a. hjá lifeyris-
þegum með lágar tekjur, mökum
með lítil eða engin laun og skólafólki
sem aðeins vinnur hluta ársins.
í Tíund, fréttabréfi ríkisskatt-
stjóra, segir að ljóst sé orðið að
staðgreiðslan hafi reynst mun virk-
ara innheimtukerfi heldur en margir
þorðu að vona. M.a. verði innheimt-
an árangursríkari vegna þess að
staðgreiðslan er dregin af launum
áður en útborgun fer fram. Megin-
ástæða þess að svo vel hefur tekist til
sé þó að sjálfsögðu það, að launa-
greiðendur framfylgja lögunum um
staðgreiðslu með því að halda
skattinum eftir. Ef það hefði brugð-
ist í verulegum mæli, hefði stað-
greiðslan orðið ómarkviss. - HEI
Verslunarhús Kaupfélags Rangæinga á Hvolsvelli.
Nýr kaupfélagsst jóri
ráðinn á Hvolsvelli
Kaupfélagsstjóraskipti verða í
Kaupfélagi Rangæinga á Hvolsvelli
hinn 1. júní næst komandi.
Ólafur Ólafsson frá Syðstu-Mörk
lætur af störfum. Ólafur hefur
stjórnað kaupfélaginu af mikilli at-
orku í nær aldarfjórðung. Áður var
hann kaupfélagsstjóri á Ólafsfirði.
Við kaupfélagsstjórastarfi tekur
Ágúst Ingi Ólafsson frá Hemlu.
Ágúst hefur starfað við Kaupfélag
Rangæinga í tvo áratugi og um
árabil sem aðstoðarkaupfélagsstjóri.
Formaður stjórnar Kaupfélags
Rangæinga er Pálmi Eyjólfsson á
Hvolsvelli.
Ólafur Ólafsson, kaupfélagsstjóri.
Ágúst Ingi Ólafsson, verðandi kaup-
félagsstjóri.