Tíminn - 18.03.1989, Page 10
10 Tíminn
Laugardagur 18. mars 1989
Laugardagur 18. mars 1989
Tíminn 11
i Mrtr
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Suðurland
FUF í Árnessýslu
og Félag framsóknarkvenna í Árnessýslu áformar aö halda félags-
málanámskeiö í lok mars og í apríl. Um er að ræöa byrjenda- og
framhaldsnámskeið. Námskeiöin eru öllum opin sem áhuga hafa.
Þátttaka tilkynnist sem fyrst til formanna félaganna.
Sigurðar Eyþórssonar í síma 34691
og Ólafíu Ingólfsdóttur í síma 63388.
FUF og FFÁ.
Norðurland vestra
Stjóm kjördæmasambands framsóknarmanna, stjórnir framsóknar-
félaga, blaðstjórn Einherja og fulltrúar i verkalýösráði eru boöuö til
fundar í Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki laugardaginn 18. mars n.k.
Fundurinn hefst kl. 14.00.
Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson mæta á
fundinn.
Stjórn K.F.N.V.
Kópavogur
Skrifstofan í Hamraborg 5 er opin þriöjudaga og miðvikudaga kl. 9-13.
Sími 41590. Heitt á könnunni.
Opið hús alla miðvikudaga kl.17-19. Félagsmenn eru hvattir til að
líta inn og taka með sér gesti. Eflum flokksstarfið.
Framsóknarfélögin í Kópavogi.
Kaupfélagsstjóri
óskast
Starf kaupfélagsstjóra við Kaupfélag Héraðsbúa á
Egilsstöðum er laust til umsóknar. Umsóknir um
starfið ásamt upplýsingum um starfsreynslu og
menntun, sendist til formanns félagsstjórnar Jóns
Kristjánssonar, Asparfelli 12, 6a, Reykjavík, fyrir
10. apríl næstkomandi.
Stjórn Kaupfélags Héraðsbúa.
LEKUR ER HEDDIÐ
BLOKKIN? SPRUNGIÐ?
Viðgerðir á öllum heddum og blokkum.
Plönum hedd og blokkir - rennum ventla.
Eigum oft skiptihedd í ýmsar gerðir bifreiða.
Viðhald og viðgerðir á iðnaðarvélum - járnsmíði.
Vélsmiðja Hauks B. Guðjónssonar
Súðarvogi 34, Kænuvogsmegin - Sími 84110
Sumarstörf 1989
Skráning er hafin í sumarstörf hjá Kópavogs-
kaupstað fyrir sumarið 1989.
Um er að ræða eftirtalin störf:
1. Verkamenn í almenn garðyrkjustörf, malbikun-
arvinnu, gangstéttagerð, almenna jarðvinnu og
viðhaldsstörf.
2. Flokksstjóra við garðyrkjustörf og gangstétta-
gerð.
3. Afleysingamenn á vinnuvélar (með starfsrétt-
indi).
4. Flokksstjóra hjá Vinnuskóla Kópavogs.
5. Flokksstjóra og aðstoðarmenn á íþróttavelli.
6. Leiðbeinendur í skólagarða og starfsvelli.
7. Aðstoðarmenn á leikvelli.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá atvinnumála-
fulltrúa Kópavogs að Digranesvegi 12. Sími
45700.
Umsóknum skal skila á sama stað fyrir 14. apríl
1989.
Vinnumiðlun Kópavogs.
Handknattleiksdómarar leggja flautur sínar unnvörpum á hilluna!
Kreppa í dómaramálum
í vetur hefur hvað eftir
annað soðið uppúr í sam-
skiptum handknattleiks-
dómara við leikmenn og
þjálfara. Nú er svo komið
að 7 dómarar af þeim 16,
sem hófu störf sem 1.
deildardómarar, eru
hættir. Þetta hefur gert
það að verkum að dóm-
arapörin eru ýmist
tvístruð, annar hættur en
hinn enn að, eða jafnvel
báðir dómararnir eru
hættir. Tíminn ræddi við
nokkra menn sem koma
við sögu í þessu máli og
skoðanir þeirra eru mjög
misjafnar.
Sigurður Baldursson er einn þeirra
dómara sem hafa lagt flautuna á hill-
una.
Hvernig lýsir hann ástandinu í dóm-
aramálum í dag?
„Þegar aðeins 2-3 heil dómarapör
eru eftir af þeim 9 efstu sem dæma áttu
í 1. deild, þá gefur það augaleið að
ástandið er alvarlegt. Ástæðurnar fyrir
þessu hjá mönnum eru mismunandi,
en gegnum gangandi virðist ástæðan
vera sú að menn hafa hreinlega misst
áhugann og þykir orðið leiðinlegt að
standa í dómgæslu. Aðrir hafa ekki
haft tíma til þes að standa í þessu eins
og það er og snúið sér að öðru.
Stjórnunin á dómaramálunum er nán-
ast engin, dómaranefnd HSf hefur
ekki tekið af skarið og kallað menn
saman til þess að spyrja þá hvað sé að
gerast.
Dómarar eru alvanir því að fá skít-
kast frá áhorfendum og í blöðum og
einnig vanist því í gegnum árin að
kolbrjálaðir stjórnarmenn hafi ráðist á
þá eftir leiki. Vandamálið í vetur hefur
verið það að það hefur líka verið
leiðinlegur „mórall" frá leikmönnum
og það hefur í raun og veru verið það
alvarlegasta í þessu. Þegar áður en
dómarar flauta til leiks eru allir farnir
í fýlu. Leikmenn hafa fyrirfram gefið
sér það að allt verði ómögulegt, alveg
sama hvernig dómararnir dæma. Ég
hef sjálfur sem áhorfandi orðið vitni að
virkilegri ósanngirni leikmanna."
Af hverju kemur þessi óánægja
leikmanna fram núna?
„Ég veit það ekki, það er eflaust
mjög djúpstætt af hverju þetta brýst
svona mikið meira fram núna en verið
hefur. Það er ákveðinn hópur leik-
manna sem er farinn að líta mjög stórt
á sig og vita allaf allt betur en þeir sem
eru búnir að stunda þetta í 10-20 ár.“
Hefur eitthvað verið gert til þess að
ræða út um málin, þannig að ástandið
lagist?
„Það hefur ekkert verið gert. Sem
dæmi má nefna að mér skilst að
Guðmundur Kolbeinsson og Þorgeir
Pálsson, dómarar, hafi beðið um að fá
frí í fyrstu úthlutun á dómurum og eitt
símtal til þeirra dugi til þess að þeir fari
að dæma aftur. En það hefur aldrei
verið hring til þeirra. Sambandsleysið
er svona algjört. Dómaranefndin virð-
ist vera alveg óvirk.“
Af hverju hættir þú að dæma?
„Mín persónulega ástæða er sú að ég
nennti þessu ekki lengur, þetta var
orðið leiðinlegt."
Eru dómarar hér nokkuð lakari nú
en þeir hafa verið?
„Það held ég ekki, það er erfitt að
segja til um það. Dómarar eru auðvitað
alltaf gagnrýndir það verður ekkert hjá
því komist, en okkur hefur fundist að
það vanti faglegan flöt á það mál,
þannig að gagnrýnin verði ekki bara
skítkast. Leikmenn og íþróttafréttarit-
arar hafa oft takmarkað vit á reglunum
og eru því ekki í stakk búnir til þess að
leggja rétt mat á þeirra störf.
fslandsmótið var opnað í vetur með
því að kalla menn öllum illum nöfnum
í Dagblaðinu og það hleypti slæmu
máli af stað. Mér fannst það fyrir
neðan allar hellur af blaði sem kannski
vill vera vant að virðingu sinni. Ég tók
þetta virkilega nærri mér þó ég hefði
ekki verið að dæma þennan dag.“
Hvað er til úrbóta í dómaramálunum?
„Ég veit það ekki, ég hef að vísu
ákveðna hugmynd um hvernig hægt er
að gera þetta. Hún er sú að þjálfarar
1. deildarfélaganna komi saman 2var-
3var á keppnistímabili og velji 6 pör til
að dæma í 1. deildinni. Þá hefðu þeir
valið þá og gætu ekki verið með
stríðsfyrirsagnir. Síðan er allt annað
mál hvort þeir komi fram með umræðu
um hvort dómgæslan sé ekki nógu góð
eða það þurfi fleiri dómara og svo
framvegis. Sú umræða þarf þó að fara
fram á faglegum grundvelli.“
Ert þú endanlega hættur að dæma?
„Maður á aldrei að segja aldrei, ég
hef engan áhuga á því að byrja aftur
eins og er. Ég er búinn að vera í þessu
meira og minna stanslaust í 12 ár og
það er ágætt að fá hlé. Síðan getur vel
verið síðar meir að ég fái þörf fyrir að
láta öllum illum látum og hlaupa um
völlinn með flautuna og sveifla rauðum
kortum. Hvenær það verður veit
enginn. Ekki ég.“
Hvernig er útlitið í dómaramálun-
um?
„Það er ljóst að nýir menn verða
einfaldlega að taka við dómgæslunni
og það þarf líka nýja menn í dómara-
nefndina, enda held ég að þeir ætli
ekki að halda áfram.“
Viggó Sigurðsson þjálfari FH er einn
þeirra þjálfara sem hvað harðast hafa
gagnrýnt störf dómara. Hvernig lýst
honum á ástandið í dag?
„Síðan umræðan fór af stað um
dómaramálin í haust þá hefur þetta
hríðversnað. Það sýndi
sig best í síðustu um-
ferð íslandsmótsins að
menn eru farnir að
dæma sitt á hvað.
Hvert dómaraparið af
öðru virðist vera skilið
og það lýsir ástandinu.
Ég veit nú ekki alveg
hvað er að gerast í
þessu,
það
Sala getraunaseðla lokar á laugardögum
kl. 14:45.
11. LEIKVIKA- 18. MARS 1989
Leikur 1 Liverpool - Brentford
Leikur 2
Man. Utd
- Nott. For.
Leikur 3
West Ham
Norwich
Leikur 4
Coventry
Tottenham
Leikur 5 Luton
Sheff. Wed.
Leikur 6
Middlesbro
Leikur 7
Millwall
- Derby
- Aston Villa
Leikur 8 Bournemouth - Swindon
Leikur 9
Bradford
Watford
Leikur 10 C. Palace
Sunderland
LeikurH Man. City
- Chelsea
Leikur 12 Portsmouth - Stoke
Símsvari
kl,
hjá getraunum á laugardögum eftir
17:15 er 91-84590 og -84464.
ÞREFALDUR POTTUR
wm«
'
1 f # * É
virðist allt vera að fara uppí loft. Það
er óskaplega lítið gert fyrir dómarana
og framfarirnar hjá dómurunum í vetur
eru engar. Það er mikill losarabragur á
dómaramálunum og dómarar farnir að
dæma í 1. deildinni sem áttu alls ekki
að gera það. Þeir eru ennþá æfingalaus-
ari en hinir sem fyrir voru, þannig að
það er ekki von á góðu.“
Nú segja sumir dómarar að þeir hafi
i misst áhugann á að dæma vegna mikill-
ar ósanngirni í gagnrýni og þeir hafi allt
annað við tímann að gera en að taka
við sífelldu skítkasti. Hvað vilt þú
segja um það?
“Ég er alveg sammála þeim í því að
snúa sér að einhverju öðru vegna þess
að sumir þeirra gátu alls ekki dæmt.
Það er mjög snjallt hjá þeim að finna
sér önnur áhugamál. Hins vegar er líka
kominn tími fyrir félögin að taka sjálf
á þessum málum og menn verða að
finna einhvern flöt á þessu. Mér finnst
þetta farið að há handboltanum á
fslandi.
Það hlýtur að vera töluvert áfall fyrir
íslenska handknattleiksdómara að sjá
FH og Val spila í 8-liða úrslitum í
Evrópukeppni með hollenska dómara
í báðum leikjunum. Holland er varla
boðlegt í C-keppni. Þeir voru lélegir
en ekkert lélegri en þeir sem dæma í 1.
deildinni hér á íslandi.
Það má ekki varpa allri sökinni á
þessa menn sem standa í þessu, þeir
þurfa að fá aðhald og setja þarf upp
hvetjandi kerfi fyrir þá. Ég vil deilda-
skipta dómurum þannig að þeir bestu
dæmi í efstu deild og þeir lélegustu falli
niður um deild ef þeir standa sig ekki. “
Hver á að meta frammistöðu þeirra?
„Það þarf að finna einhvern sann-
gjarnan flöt á því máli. Dómaranefnd
þarf að vera starfandi og leikmenn og
þjálfarar gætu hugsanlega komið einnig
þar inní. Síðan þurfa dómararnir
hreinlega að vera á launum, það er
krafist mikils af þeim og þetta er þeirra
áhugamál. Dómarar eru að skemma
fyrir okkur sem erum að æfa eins og
atvinnumenn, félögin eru með dýra
þjálfara og við viljum fá gæði í dóm-
gæsluna.“
Egill Már Markússon er einn þeirra
1 dómara sem enn eru með flautuna í
i munnvikinu og hann hefur sínar
1 skoðanir á ástandinu.
„Það eru allir dómarar orðnir þreytt-
ir á þessu sífellda nöldri. Mönnum
finnst eins og þeir séu notaðir eins og
blórabögglar í íþróttinni. Ég skil vel
þessa menn sem eru hættir. Manni
finnst stundum að það skipti engu máli
hvort maður dæmi rétt eða rangt.
Alltaf er óánægja og ástandið er alltaf
að verða verra og verra.
1 upphafi keppnistímabilsins þegar
ég dæmdi nokkra leiki í 2. deild var
aldrei neitt röfl í leikmönnum. Ástand-
ið hefur stigversnað og er nú orðið
slæmt, jafnvel í yngri flokkunum eru
leikmenn farnir að rífa kjaft þótt þeir
drífi varla á markið. Mín skoðun er sú
að handknattleiksdómarar hérlendis
séu jafn góðir og dómarar erlendis."
En hver er ástæðan fyrir þessu?
„Þetta byrjaði auðvitað ekki gæfu-
lega í vetur, skrif DV um Viggó-málið
hleyptu illu blóði í dómara og dómarar
urðu ósáttir. Þá má um kenna fámenni,
allir þekkja alla og sömu dómararnir
eru alltaf að dæma hjá sömu leik-
mönnunum. Nú er þetta orðið svo
óaðlaðandi starfi að enginn fæst til þess
að taka það að sér. Síðan er jafnvel til
í dæminu að sumir líta jafnvel niður á
dómara. Aðrir leikmenn líta aðeins
svo á að eitt par sé til á landinu
boðlegt. Aðrir fá ekki virðingu leik-
manna."
Hvað er til úrbóta?
„Ég held að greiðslur einar sér séu
ekki lausn, það þarf að gera störf
dómaranna meira aðlaðandi og gagn-
rýni þarf að vera sanngjörn, það má
gagnrýna dómarana við erum alls ekki
heilagir, gagnrýnin verður einungis að
vera sanngjörn. Það verður fyrst og
fremst að koma á virku eftirlitsdómara-
kerfi þar sem yfirstjórn er á þessum
málum og störf manna eru metin. Það
þarf að vera hreyfing og tröppugangur
á þessu. Síðan gæti komið til greina
eins og gert hefur verið í körfuboltan-
um að fá hingað erlenda dómara til
þess að dæma og halda námskeið. Þeir
gætu samræmt túlkunaratriði og haldið
fundi, ekki einungis með dómurum,
heldur einnig með leikmönnum og
þjálfurum.
Dómaranefnd þarf að vera virk og
standa að þolprófun dómara og raða
dómurum niður á æfingaleiki á sumrin,
þannig ættu dómarar að koma betur
undirbúnir til leiks á haustin."
Nú ert þú einn þeirra dómara sem
enn eru að dæma leiki. Verður breyt-
ing þar á?
„Maður spyr sig stundum að því af
hverju maður sé að standa í þessu. Ég
hef ekki dæmt lengi, en ég hef dæmt
marga leiki á hverju keppnistímabili.
Ég skil vel þá dómara sem hafa hætt að
dæma. Ég reyni að þrauka, en það þarf
stjórn á dómaramálunum. Nú eru
dómarar að dæma saman sem jafnvel
hafa ekki dæmt saman áður og það
býður uppá gagnrýni.“
Hvernig er útlitið í dómaramálun-
um?
“Það er hrikalegt og verður slæmt
næstu 2-3 árin, ef ekkert verður að
gert. Dómarar vilja gera vel og standa
sig í sínu starfi."
Guðmundur Guðmundsson landsliðs-
maður úr Víkingi hefur staðið í eldlín-
unni ■ mörg ár, hvernig eru viðhorf
leikmanna til dómarakreppunnar?
„I sjálfu sér hefur maður ekki orðið
mjög var við þetta, en hins vegar sér
maður að það eru farnir að dæma
saman dómarar sem áður hafa ekki
dæmt saman og það er ekki gott því
dómgæslan byggist mjög á samstarfi
dómaranna. Mér finnst það mjög
slæmt að vita til þess að þessi mál skuli
vera í svona slæmum farvegi."
Hvað fínnst þér um það sem dómar-
ar segja, að þeir séu orðir þreyttir á
eilífri gagnrýni leikmanna?
„Já, ég get alveg tekið undir það.
Mér finnst að leikmenn röfli alltof
mikð í dómurum og stundum hefur
alveg gengið fram af manni. Mér finnst
að það eigi að greiða dómurum fyrir þá
leiki sem þeir dæma með upphæð sem
raunverulega skiptir máli. Þannig held
ég að við gætum náð upp vandaðri
vinnubrögðum og þá er hægt að gera
meiri kröfur til þeirra."
Getur verið að leikmenn líti of stórt
á sig og jafnvel niður á dómarana?
„Það er nú mjög einstaklingsbundið
og ég lít alls ekki niður á dómara. Ég
veit ekki hvernig aðrir líta á þá. Það
þarf að skapa dómurunum fleiri verk-
efni erlendis og gera þarf þetta hlut-
verk þeirra í handboltanum eftirsókn-
arverðara og þá held ég að gagnkvæm
virðing skapist. Dómarar hér á íslandi
eru mjög mismunandi, allt frá því að
vera mjög lélegir og uppí það að vera
mjög frambærilegir. Það þarf að reyna
að koma fleiri dómurum upp í það að
vera góðir dómarar. Síðan hefur verið
vandamál að hér er samfélagið lítið og
menn þekkjast mjög vel. Til dæmis
finnst mér að dómarar séu fyrirfram
búnir að mynda sér skoðanir um
ákveðna leikmenn, þessi er með
leikaraskap og þessi er of grófur og svo
framvegis. Þetta er þó ekki einhlítt.
Síðan getur þetta verið gagnkvæmt hjá
leikmönnum gagnvart dómurunum.“
Gnimar Gunnarsson er formaður dóm-
aranefúdar. Hvemig líst honum á
ástandið í málefnum dómara í dag?
„Það er ekki nema um 1 mánuður
eftir af keppnistímabilinu og aðalatrið-
ið frá okkar bæjardyrum séð, í dómara-
nefnd, er að klára þetta keppnistímabil
á þann besta máta sem við getum og
síðan held ég að við verðum að setjast
niður, forystumenn HSÍ, félaga og
dómarar og athuga hvað hægt er að
gera til þess að bæta úr.“
Af hverju er svona komið?
„Ég held að það séu margar ástæður
fyrir því, margir sem hafa hætt hafa
borið við tímaskorti og þeim hefur
ekki þótt þetta nógu áhugavert. Þá er
Ijóst að Viggó-málið í upphafi keppn-
istímabilsins og öll þau skrif sem voru
kringum það hafa farið mjög illa í
dómara. Menn eru mjög ósáttir við
skrif ýmissa blaða um dómara og
dómgæslu. Ég skil þau sjónarmið mjög
vel, því ákaflega margir blaðamenn
sem eru að skrifa um handknattleik,
hafa litla innsýn í dómgæslu í hand-
bolta.“
Eru íslenskir dómarar jafn góðir og
dómarar í nágrannalöndunum?
„Ég er ekki í minnsta vafa að þeir
standa að minnsta kosti jafn framar-
lega ef ekki framar í mörgum tilfellum.
Ég hef kynnst dómgæslu bæði í Dan-
mörku og Þýskalandi og hún er alls
ekki betri en hér. Hitt er annað mál að
dómarar eru misjafnir og undirbúning-
ur íslenskra dómara fyrir leiki er annar
en t.d. erlendra dómara sem hingað
koma til að dæma í Evrópukeppni.
Þeir geta undirbúið sig saman, en
íslenskir dómarar eru í mörgum tilvik-
um að koma beint úr vinnu til að
dæma.“
Nú hefur heyrst gagnrýni á störf
dómaranefndar, hén sé óvirk og eftir-
litsdómarakerfi vanti alfarið. Hvað
viltu segja um það?
„Eftirlitsdómarakerfi var starfrækt í
ein 2 ár en féll niður núna og er það
miður. Það er kannski mest mér að
kenna að það var ekki. En þótt eigin-
legt kerfi hafi ekki verið á, þá hefur
mikið verið horft á dómara, þ.e.a.s.
efstu pörin, þó að eiginlegt kerfi hafi
ekki verið á. Með yfirstjórn á dómara-
málum þá er það ljóst að dómarasam-
bandið hefur ekki verið nógu virkt.
Auðvitað má deilda á störf dómara-
nefndar. Ég hef hreinlega ekki haft
nægan tíma til þess að eyða í þetta, en
samt myndi ég ekki telja að það væri
megin vandamálið."
Hvað er hægt að gera til þess að
koma þessum málum í viðunandi horf?
„Ég get hreinlega ekki svarað því á
þessari stundu. Það þarf að skoða
málin rækilega. Þetta er ekki í fyrsta
sinn sem svona vandamál kemur upp.
Annars hef ég velt þessum málum
mikið fyrir mér, en ekki fundið neina
eina lausn. Blaðamenn verða að vera
sanngjarnir og gagnrýna dómara til
jafns við leikmenn. Þar á ég við að það
er ekki alltaf talað um ef þokkalegur
leikmaður er lélegur, því er oft sleppt,
en sé dómari slakur er það fréttaefni. “
SMURT BRAUÐ
SMURT BRAUÐ - BRAUÐTERTUR -
SNITTUR OG VEISLUBRAUÐ VIÐ ÖLL
TÆKIFÆRI
KOMIÐ OG SJÁIÐ ÚRVALIÐ
ÁÐUR EN PANTAÐ ER.
PANTIÐ TÍMANLEGA
19775
BRAUÐSTOFAN BARÓNSSTÍG 20/
Örbylgj uofnaeigendur
gerir matinn Ijúffengan og gefur fallegan
brúningarlit á læri, kjúklinga og svínakjöt
Góðar íslenskar leiðbeiningar fylgja ásamt
uppskriftum
3 STÆRÐIR
Einar Farestveit&Co.hf.
BORQARTÚN 28, SÍMAR: (91) 16995 OQ 622900 - NÆC BÍLASTÆOI
GEMINI
ITROOPER
Traustur og sterkbyggður
dugnaðarforkur, sem sam-
einar kosti sportjeppa og
fólksbíls.
Frábær ferðabíll með allt að
því ótakmörkuðu rými fyrir
fólk og farangur, 4ra dyra
með 2,3 I eða 2,6 I benstn-
vél.
Verð frá kr. 1.743.000.-.
Imoimza
Rúmgóður og sterkbyggður
bíll, sérsmíðaður fyrir
íslenskar aðstæður.
Mjög vandaður og þægi-
legur fjölskyldubíll á verði
sem fæstir geta keppt við.
Verð frá kr. 725.000,-.
Ert þú í bílahugleiðingum?
Reyndu þá bíl frá General
Motors og finndu muninn!
HÖFÐABAKKA 9 5IMI 687300
•MS0NV9WVS OHKM3M<AlOnv f
Nýr og spennandi fólksbfll
frá Isuzu í Japan.
Sérstaklega rúmgóður og
lipur í akstri, framhjóladrif-
inn með aflstýri, útvarpi og
segulbandi sem og öðrum
lúxusbúnaði.
Verð frá kr. 638.000,-.
| Ert þú í bílahugleiðingum?
|Reyndu þá bíl frá General
Motors og finndu muninn!
muNir!
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
7"-.-... —......P
Ert þú í bílahugleiðingum?
Reyndu þá bíl frá General
> Motors og finndu muninn!
BíLVANGURsfP
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300