Tíminn - 18.03.1989, Qupperneq 12
12 Tíminn
Laugardagur 18. mars 1989
ÚTLÖND
FRÉTTAYFIRLIT
WASHINGTON - Öld
ungadeild Bandaríkjaþings
samþykkti samhljóöa Dick
Cheney sem varnarmálaráö-
herra Bandaríkjanna í at-
kvæöagreiðslu sem fór fram
átta dögum eftir að deildin
hafnaði John Tower sem Ge-
orge Bush forseti útnefndi fyrst
sem varnarmálaráðherra. Litl-
ar umræður urðu um Cheney
og virtust allir himinlifandi með
hann sem varnarmálaráð-
herra. Hans meginverkefni á
þessu ári er að framkvæma
gífurlegan niðurskurð í varnar-
málum í samræmi við fjárlaga-
frumvarp forsetans.
SAN SALVADOR - Raf
magnslaust er í El Salvador
vegna skemmdarverka vinstri-
sinnaðra skæruliða sem gera
nú allt til þess að eyðileggja
forsetakosningar sem fram
eiga að fara á morgun. Herinn
skýrði frá bardögum við skæru-
liða og Rauði krossinn skýrði
frá því að sjúkrabílstjóri á
þeirra vegum hafi særst er
skotið var á sjúkrabifreið hans
úr launsátri í útborg San Salva-
dor.
BÚDAPEST — Ungverjar
eru reiðubúnir að halda alþjóð-
lega friðarráðstefnu er fjalli um
leiðir til að koma á friði í
Mið-Austurlöndum. Yasser
Arafat leiðtogi PLO hafði beðið
Ungverja um að halda ráð-
stefnuna og féllust Ungverjar á
það. Ráðstefnan gæti hafist
eftir sex til níu mánuði. ísraelar
vilja alls enga ráðstefnu, sér-
staklega ekki ef Palestína er
þátttakandi.
MANAGVA - 1900 liðs-
menn hins illræmda Þjóðvarð-
liðs Somoza fyrrum einræðis-
herra í Níkaragva hlutu frelsi
sitt að nýju eftir að hafa dúsað
í fangelsi frá því Sandínistar
komust til valda í byltingunni
1979. Með þessu hefur sand-
ínistastjórnin í Níkaragvastað-
ið við sinn hluta friðarsam-
komulags sem Daníel Ortega
forseti undirritaði ásamt fjórum
forsetum Mið-Ameríkuríkja í
síðasta mánuði. Frjálsar kosn-
ingar verða haldnar í landinu í
haust.
Ellcfu mcnn hafa verið ákærðir fyrir að standa á bak við uppþotin í Venezúela sem kostuðu 276 manns lífið.
Eftirmálar átakanna í Venezúela:
Ellefu sakaðir
um undirróður
Hátt í fjörutíu manns voru
yfirheyrðir af herdómstóln-
um í Venezúela vegna gruns
um að hafa staðið á bak við
óeirðirnar í landinu fyrir
tveimur vikum. Ellefu manns
hafa verið ákærðir fyrir að
stofna til óeirðanna.
Samkvæmt fréttum ríkissjón-
varpsins í Vcnezúela telja heryfir-
völd að fyrsta dag óeirðanna í Cara-
cas hafi almenningur haldið út á
göturnar af sjálfsdáðum til að mót-
Dana vísaö úr landi í Kína:
Smitaði konu af
samræðissjúkdómi
Dönskum karlmanni var vísað úr landi ■ Kína ú dögunum fyrir að
hafa smitað kínverska konu afsamræðissjúkdómi. Frá þessu varskýrt
i Shanghai Xinmin kvöldtíðindum í gær.
Blaðið sagði að maðurinn hefði komið til Shanghai 4. mars og brotið
gegn hótelreglum með því að bjóða kínverskri konu að samrekkja sér.
Starfsfólk hótelsins hafði samband við lögregluna og eftir nána
rannsókn kom ■ Ijós að Daninn hafði smitað hina kínversku konu af
samræðissjúkdómi.
Daninn var rekinn úr landi 8. mars. Danska sendiráðið í Peking
veit ekkcrt um málið.
mæla verðhækkunum. Hins vegar
hafi hópar stjórnarandstæðinga
skipulagt óeirðir dagana á eftir.
Að minnsta kosti 276 manns létust
og 1800 slösuðust í átökunum, en
óeirðirnar sem brutust út 27. febrúar
eru þær mestu frá því lýðræði var
endurreist í Venezúela fyrir þrjátíu
og einu ári.
Mannréttindahópar eins og til
dæmis Amnesty International hafa
farið fram á það við Carlos Andres
Perez forseta landsins að hann sjái
til þess að sannleiksgildi frétta af
morðum og pyntingum öryggissveita
á meðan og í kjölfar óeirðanna verði
rannsakað af óháðum aðilum. Ríkis-
stjórn hans hefur vísað ásökunum
þessa efnis á bug, en lofað að
rannsaka málið opinberlcga.
Bangladesh:
Barist
fyrir
próf-
svindli
Hörð átök brutust út í skóla í
Bangladesh þegar óánægðir stúd-
entar réðust að kennurum og
lögreglu mcð heimatilhúnum
sprengjum, hnífum og steinum í
upphafi strangra inntökuprófa í
menntaskóla sem vanalega
standa í mánaðartíma. Hundrað
manns slösuðust í slagnum sem
braust út þegar skólayfirvöld
hófu harkaiegar aðgerðir gegn
prófsvindli. Hátt á þrjú þúsund
stúdentum var vikið úr skóla eftir
að slagurinn fjaraði út seint í
gærkveldi.
Lögreglan neyddist til að grípa
til skotvopna gegn stúdentunum
sem ásamt vinum 6ínum og ætt-
ingjum lögðu prófsali mennta-
skólans í Baidyerhazar í rúst.
Annars staðar beitti lögregla
túragasi og kylfum til að koma á
reglu eftir að nemendureltu uppi
kennara og eyðilögðu prófgögn
og úrlausnir.
Víðtækt svindl í inntökupróf-
um hefur verið landlægt í Bangla-
desh þrátt fyrir viðleitni yfirvalda
menntamála að spyrna fótum við
svindlinu. Er algengt að vinir eða
ættingjar, eða þá vel gefnir nienn
sem taka borgun komi í próf og
hjálpi nemendunum. Þá hafa
nemendur óspart ráðfært sig við
næsta mann í pófum.
Til að koma í veg fyrir vand-
ræði og átök höfðu yfirvöld í
Bangladesh bannað fjórum eða
fleirum að safnast saman við
skólana á meðan á prófum
stendur. Það dugði ekki til.
Italía:
Argentína:
Klukkuturn hrundi
á vegfarendur
Enn ráðist
herbúðir
Enn er gerð árás á herbúð-
ir argentínska hersins, en í
fyrrinótt gerðu óþekktir
byssumenn skotárás á bóðir
hermanna í óthverfi Buenos
Aires. Þeir flóðu hins vegar
ót í myrkrið þegar hermenn
svöruðu skothríðinni.
Nærri þrjúhundruð lögreglumenn
og liðsforingjar leituðu að árásar-
mönnunum á svæðinu kringum
bækistöðvar Ciudadela loftvarnar-
sveitanna en fundu hvorki tangur né
tetur af árásarmönnunum átta.
Árásir á herstöðvar Argentínu-
hers hófust 23. janúar þegar öfgafull-
ir vinstrimenn réðust inn í La Tabl-
ada herbúöirnar í Buenos Aires. í
bardögum sem stóðu þar í þrjátíu
klukkustundir féllu þrjátíu og níu
manns, þar af tuttugu og átta skæru-
liðar.
Nokkrar minniháttar árásir hafa
verið gerðar á herbúðir síðan.
Þrír létust þegar klukkuturn frá
miðöldum hrundi ofan á íbúðarhús
og verslanir í bænum Pavia á Norð-
ur-ítalíu. Talsmaður fornminjaráð-
uneytisins sagði að björgunarsveitir
hefðu fundið þrjú lík, en áfram verði
grafið í rústunum. Sérþjálfaðir leit-
arhundar eru notaðir við leitina, en
talið er að tveir í viðbót hafi grafist
undir turninum.
Nokkrir vegfarendur voru fluttir á
sjúkrahús eftir að hafa orðið fyrir
grjóti úr turninum. Margir forðuðu
sér á hlaupum undan turninum þar
sem styttur féllu til jarðar áður en
hinn 50 metra hái turn hrundi alger-
lega.
Slæmt veður hefur verið á þessum
slóðum að undanförnu og er talið að
slagviðrið hafi skekkt uppistöður
turnsins.
Turn þessum hafði verið lokað í
júlí þar sem steinar höfðu tekið að
falla úr honum.
Bardagar réna í Líbanon:
Mannskaði í bíla-
sprengju í Beirút
Gífurlega öflug sprengja var
sprcngd í bakaríi í fjölfarinni versl-
unargötu í Beirút í gær. Að
minnsta kosti tólf manns létust og
hundrað og fimmtíu siösuðust í
sprcngingunni.
- Þetta var eins og jarðskjálfti,
sagði sjónarvottur að sprenging-
unni. Fóik og bílar köstuðust í
allar áttir.
Sprengjusérfræðingar telja að
sprcngjan sem sprakk í 50 metra
fjarlægð frá breska sendiráðinu
hafi verið samansett af 50 kg af
öflugu sprengiefni.
Sprenging þessi varð þegar al-
menningur var farinn á stjá á ný
eftir harða bardaga milli kristinna
manna og múslíma.
í þeim bardögum iétust að
minnsta kosti 43 menn og 140
særðust í bardögunum sem rénuðu
á fimmtudagskvöldið.