Tíminn - 18.03.1989, Side 13
Laugardagur 18. mars 1989
Tíminn 13
illlllllllllllllllllllllllll MINNING lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Skarphéðinn Rúnar
Ólafsson
Kveöja
í dag er til moldar borinn frá
Njarðvíkurkirkju, Skarphéðinn
Rúnar Ólafsson, sem lést af slysför-
um, ásamt Gunnari Bjarka Vest-
fjörð, í snjóflóði sem féll á Óshlíðar-
veginn þann 8. mars s.l.
Skarphéðinn var fæddur í Kefla-
vík þann 8. nóv. 1963. Foreldrar
hans eru Ólafur Eiríkur Þórðarson,
Jörgenssonar og Sveinbjargar Svein-
björnsdóttur, Fagrahvammi í Garði
og Álfheiðúr Skarphéðinsdóttir, Jó-
hannssonar og Guðrúnar Guð-
mundsdóttur í Njarðvíkum. Hann
var elstur fjögurra sona þeirra hjóna,
en hinir eru Þórður Jörgen, Björn
Árni og Ástmar.
Skarphéðinn átti heima í Njarð-
víkunum allt þar til hann flutti,
ásamt sambýliskonu sinni, Emilíu
Þórðardóttur, ættaðri frá Djúpuvík,
til Bolungarvíkur árið 1986. Fyrst
starfaði hann vestra hjá Vélsmiðju
Bolungarvíkur, en hóf héraðslög-
reglumannsstörf þar í júní 1987, en
í okt. sama ár gerðist hann lögreglu-
maður á fsafirði og starfaði við það
uns hann féll frá.
í heimabæ sínum átti Skarphéðinn
sína góðu daga. Ungur gekk hann í
Hjálparsveit skáta í Njarðvíkum og
lagði sig mjög fram um að verða
liðtækur í þeim hópi, enda fórnfús
að eðlisfari og vildi rétta öðrum
hjálparhönd. Hann var líkamlega
hraustur og þolinn, sem snemma
kom í ljós er hann reyndist öðrum
fremri í hlaupakeppnum, þótt hann
æfði þau ekki sérstaklega. Skarphéð-
inn var þægilegur og ljúfur í viðkynn-
ingu og ávann sér traust í starfi.
Rúmlega 20 ára varð hann verkstjóri
í Sjöstjörnunni í Njarðvík, nýbúinn
að ljúka þriggja ára verklegu námi í
rennismíði í Dráttarbraut Njarðvík-
ur.
ísland og náttúra þess voru hans
aðaláhugamál, ásamt farkostum til
að skoða landið. Ferðir hans til að
kynnast því voru orðnar margar,
bæði að sumar- og vetrarlagi og í
þeim fékk hann góða þjálfun, sem
kom að notum í hjálparsveitastarf-
inu, bæði í Njarðvík og eins fyrir
vestan í hjálparsveitinni Ernir á
Bolungarvík, sem hann gekk fljót-
lega í eftir að hann flutti þangað.
Skarphéðinn var mjög lagtækur
og gat unnið hin ólíkustu störf.
Hann var trygglyndur og í tengslum
við ættfólk sitt þótt hann flytti í
annan landshluta. Foreldrar hans og
bræður voru aufúsugestir ásamt öðr-
um ættingjum og vinum á heimilið á
Bolungarvík. Einn bróðirinn var
væntanlegur vestur um páskana, sem
var mikið tilhlökkunarefni, - en
veður skipuðust skyndilega í lofti,
svo að af þeirri för verður ekki.
Reynsla Skarphéðins í að ferðast
við erfiðar aðstæður var orðin mikil.
Hann var aðgætinn, vildi þó komast
leiðar sinnar, ef þess var nokkur
kostur. í>að var hans eðli í lífinu.
Atvikin hinn örlagaríka dag 8. mars,
voru dæmigerð fyrir Skarphéðin.
Hann var að kanna ásamt félaga
sínum hvort hægt væri að komast
yfir snjóskriðuna, sem hafði fallið
yfir veginn og hefti för þeirra í
vinnuna, þegar það óvænta gerðist.
Önnur skriða féll á sama stað. Slíku
óraði þá ekki fyrir, enda sjaldgæft.
Skriðan hreif þá með sér með þeim
afleiðingum að tveir menn í blóma
lífsins hurfu yfir móðuna miklu.
Skarphéðinn undi hag sínum vel á
Bolungarvík, ásamt Emilíu og syni
hennar Kristni fsak, sem hann gekk
í föður stað. Fyrir vestan hugðist
hann setjast að og festa kaup á íbúð,
en örlög ráða.
Um leið og við frændsystkinin
kveðjum Skarphéðin, vottum við
Emilíu og Kristni ísak samúð okkar,
svo og foreldrum hans Ólafi og
Álfheiði, ásamt bræðrum hans og
öðrum skyldmennum.
Föðursystkini og
fjölskyldur
Bárður Magnússon
frá Steinum
Fæddur 10. október 1911
Dáinn 13. mars 1989
Mig langar með nokkrum orðum
að minnast frænda míns sem lést í
Landspítalanum 13. mars s.l., eftir
erfitt stríð við sjúkdóm sem að
lokum hafði betur.
Hann var fæddur að Steinum und-
ir Eyjafjöllum 10. október 1911.
Sonur hjónanna Elínar Bárðardótt-
ur og Magnúsar Tómassonar. Þar
ólst hann upp í stórum systkinahópi.
Það var líkt með hann og aðra
unglinga á þessum árum, hann vand-
ist fljótt á vinnu og þótti þá strax
sýna ótrúlega mikla vinnusemi. Á
yngri árum fór Bárður á vertíð á
vetrum, en á sumrin vann hann við
almenn sveitastörf, vegagerð og aðra
vinnu sem til féll í héraði.
Árið 1941 giftist hann Önnu Sig-
urgeirsdóttur frá Hlíð undir Eyja-
fjöllum, þau byrjuðu búskap í Hlíð.
Árið 1943 fluttu þau að Berjanes-
koti og búa þar til 1955, en þá
losnaði ein jörðin í Steinum. Það er
trú mín að það hafi verið ánægður
bóndi sem flutti það ár upp að
Steinum, svo mjög sem hann unni
Steinahverfinu. Strax á fyrstu árun-
um í Steinum byggði hann upp öll
fénaðarhús og íbúðarhús rúmum
áratug síðar.
Árið 1985 hættu Anna og Bárður
sveitabúskap og fluttu í Hvolsvöll.
Bárður stundaði ekki fasta vinnu
eftir það, en greip í ýmis störf sem
til féllu þar.
Anna og Bárður eignuðust fjögur
böm. Þau eru: Ólöf, f. 1940, bóndi
í Steinum; andvana drengur, f. 1942;
Sigurgeir, f. 1943, járnsmiður í
Hvolsvelli, og Magnús, f. 1944,
jámsmiður á Selfossi.
Það voru ákveðnir eiginleikar í
fari Bárðar sem vöktu hjá mér
mikinn áhuga og verða alla tíð
afskaplega minnisstæðir.
Hann hafði mikinn áhuga fyrir
varðveislu gamalla heimilda og er
t.d. uppgröfturog lagfæring á kirkju-
garðinum í Steinum glöggt vitni um
það. Án Bárðar hefði það ekki verið
gert og garðurinn algjörlega gleymst
innan fárra ára.
Það var gaman á síðastliðnu hausti
að keyra með Bárði meðfram Steina-
fjalli og fræðast um öll þau ömefni
sem til em í fjallinu og undirlendinu
alveg til sjávar. Hann þekkti allan
þann aragrúa af örnefnum, sem
þarna em og oft á tíðum vegna hvers
staðurinn ber þetta nafn.
Ég hygg að sveitungarnir muni
minnast hans fyrst og fremst fyrir
sína miklu hjálpsemi, því það var
ríkt í Bárði að sælla sé að gefa en
Þiggja.
Þeir eru margir grjótveggirnir sem
hann hlóð en Bárður var annálaður
hleðslumaður. Einnig var hann oft
við byggingu á timbur- og steinhús-
um.
Ég held að það skemmtilegasta
sem Bárður gerði hafi verið að klifra
í fjöllum og hefur hann bjargað
margri kindinni úr svelti. Mér er
minnisstætt í fyrsta skipti sem ég fór
með Bárði að taka úr svelti, þá var
ég um fermingu. Við fómm ásamt
þremur öðrum mönnum. Þegar á
staðinn var komið var ljóst að það
þurfti að sitja undir á tveimur
stöðum, en til þess vomm við of fáir.
Það verður úr að ég er látinn sitja
einn undir uppi á brún en hinir fóru
niður. Þarna sat ég og heyrði ekkert
í þeim, vegna þess að það var
svolítið rok. Eftir rúmlega tveggja
tíma bið, birtist Bárður á brúninni,
kominn laus upp. Hann hafði reynt
að kalla en ég ekki heyrt, svo þeir
þorðu ekki að treysta á vaðinn hjá
óvönum unglingi, enda hefur það
ekki verið vandamál hjá honum að
fara laus upp, svo góður fjallamaður
sem hann var. Það var stundum sagt
að það sem Bárður færi ekki í
fjöllum, færi ekki nema fuglinn fljúg-
andi.
Það var gaman nú seinni ár að
heimsækja Bárð og ræða við hann
um búskapinn, ættfræði eða fjallið
sem honum var svo kært.
Ég sendi Önnu, börnum, tengda-
börnum og barnabörnum samúðar-
kveðjur.
Að lokum vil ég þakka Bárði þann
mikla lærdóm sem ég öðlaðist af
honum gegnum árin.
Bergur Pálsson.
HR HEILSUVERNDARSTÖÐ REYKJAVÍKUR
^ jj Barónsstíg 47
Heilbrigðisráð Reykjavíkur óskar eftir að ráða
eftirtalið starfsfólk:
Við heilsugæslustöðina Breiðholti III, Asparfelli
12, Reykjavík.
Sjúkraliða í 50% starf - vegna heimahjúkrunar.
Upplýsingargefurhjúkrunarforstjóri í síma75100.
Við heilsugæslustöðina í Fossvogi.
Sjúkraliða í 50% starf - vegna heimahjúkrunar.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
696780.
Umsóknum skal skila til skrifstofu Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur á eyðublöðum sem þar fást,
fyrir kl. 16.00 þriðjudaginn 28. mars n.k.
REYKJKfÍKURBORG
Lausar stöður
Þjónustuíbúðir aldraðra Dalbraut 27.
Starfsfólk vantar í eftirtalin störf:
ELDHÚS 75% starf. Vinnutími frá kl. 8.00-14.00.
Unnið aðra hverja helgi.
DAGDEILD 50% starf við ræstingu. Vinnutími frá
kl. 15.00-19.00 virka daga.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 685377 á
milli kl. 10.00-14.00.
\ Útboð - Malbikun
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í malbikun gatna
sumarið 1989.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjarverk-
fræðings, Strandgötu 6, Hafnarfirði, gegn 10
þúsund kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 30.
mars kl. 11.00.
Bæjarverkfræðingur.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
Þorgeir Þorleifsson
frá Þverlæk
Byggðarholti 21, Mosfellsbæ
verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju þriðjudaginn 21. mars kl. 14.00.
Þorgerður Jónsdóttir
Jón Þorgeirsson Sigurbjörg Runólfsdóttir
Vilborg Þorgeirsdóttir Gunnar Þórisson
Friðgeir Þór Þorgeirsson Anna Davíðsdóttir
Guðmundur Skúli Þorgeirsson Rósa Dagbjört Hilmarsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
Skarphéðins Þorsteinssonar
frá Þuriöarstöðum
Sunnugerði, Reyðarfirði
Einnig hlýhug og hjálp í veikindum hans undanfarin ár.
Guð blessi ykkur öll.
Vandamenn.