Tíminn - 18.03.1989, Qupperneq 15
Laugardagur 18. mars 1989
Tíminn 15
lllllllllllllllllllllll MINNINfi . ... .... ... '■|i|l||||||l|;h :i;||||||ih; II1!||||||||||,|: ■■t;i|||||||
Theódór
Kristjánsson
rafverktaki
Fæddur 15. mars 1942
Dáinn 13. mars 1989
Er kveðja skal einhvern af sínum
betri kunningjum með nokkrum lín-
um er maðurinn með ljáinn skilur
samskiptatímann á þessu tilveru-
stigi, þá er eins og skriftarhöndin sé
svo stöð að fá og þung orð verða til
á því blaði sem dregið er til stafs á.
En þessari líðan lenti ég í er ég kveð
með þessum fátæklegu orðum raf-
virkjameistarann minn hann Tedda,
en hann var aldrei kallaður annað af
sínum kunningjum.
Thcódór Kr. í>. Kristjánsson var
Patreksfirðingur, fæddur þann 15.
mars 1942 og ólst þar upp. Snemma
fer hann að stunda vinnu eins og þá
var títt með ungt fólk, og er hann
mest megnis til sjós, en um tvítugs-
aldur fer hann að læra rafvirkjun
sem hann eyddi síðan sinni starfsævi
við. Fyrst starfaði hann á Akureyri,
síðan í Reykjavík en síðastliðin
tuttugu ár í Borgarnesi. Til að byrja
með vann hann hjá öðrum meistur-
um, en síðastliðin 15 ár sem sjálf-
stæður rafvirki og rak fyrirtækið
Rafafl, fyrstu árin með öðrum meist-
ara. Fyrir rúmu ári er sá sjúkdómur
sem hefur bugað hann að lokum
gerði vart við sig þá hætti hann
rafvirkjastörfum að mestu, en réðst
til K.B. í starf sem fólst í því að sjá
um viðhald og rekstur fasteigna
þess. Átti þetta starf einkar vel við
hann og var hann mjög ánægður í
því og einsetti sér að sinna því vel.
Það sést best á því að á síðustu
klukkustundunum sem hann er í
vinnu áður en hann fer inn á spítala
í síðasta sinn, sárþjáður, var hann
að afhenda lyklana að nýbyggingu
sem hann sá um framkvæmd á. Eg
vissi að hann lagði metnað sinn í að
skila þessu verki á áætluðum tíma og
einnig eins ódýrt og mögulegt var.
Okkar kynni hefjast ekki fyrr en
ég geng til liðs við J.C. Borgarnes á
mínum námsárum fyrir hartnær 15
árum. Var hann þá í forsæti fyrir því
félagi og fórst vel úr hendi. Áttum
við samveru í félaginu í um 4 ár eða
þar til ég flyst aftur heim að námi
loknu. Var sóst eftir hans kröftum til
annarra félagsmála, en hann gaf sér
ekki tíma til þess frá fjölskyldu sinni
utan þess að í fjöldamörg ár var
hann í stjórn fyrir félag rafverktaka
á Vesturlandi. Síðan lágu leiðir okk-
ar aftur saman er ég fer að sinna
smíðum á Hvanneyri, en þá er hann
rafvirki staðarins þar að miklu leyti.
Urðu okkar samskipti það góð að úr
varð kunningsskapur sem náði út
fyrir vinnu og vinnutíma sem ég met
mikils nú að leiðarlokum. Pannig
var að þegar ég fór að byggja nýtt
íbúðarhús þá kom það af sjálfu sér
að hann tæki að sér rafmagnsvinn-
una í því. Síðan hefur hann séð um
öll rafmagnsmál á mínu heimili, og
eitt af hans síðustu verkum fyrir mig
var að leggja og tengja í trésmiðju
sem ég kom mér upp ásamt því að
teikna og leggja línurnar um raflögn
í sumarhús sem ég hóf framleiðslu á
á síðastliðnu ári, en hann var einmitt
búinn að hvetja mig mjög til að snúa
mér að því á síðastliðnum árum
Hans vinsældir sem fagmanns lýsa
sér best í því að cftir að hann kemur
til starfa að Hvanneyri þá fékk hann
flest öll verk sem unnin voru í næsta
nágrenni ásamt verkum annarsstað-
ar í héraðinu. Ekki mun ég rekja
ættir hans, því mig skortir vitneskju
um þær, en hans eiginkona Gígja
Karelsdóttir og synir þeirra hafa
verið hans styrkur í veikindunum
ásamt dætrunum tveim sem hann
átti fyrir hjónaband ásamt þeirra
mökum og börnum.
Sárt finnst manni að sjá á bak
manni yfir móðuna miklu á besta
aldri og sem átti svo margt eftir að
maður hélt, en sárastur er þó söknu-
ðurinn hjá hans nánustu. En þá
kemur það sem linar söknuðinn að
mestu leyti, allar góðu minningarnar
sem eftir lifa, en þar sést best það
fornkveðnaað enginn veit ævina fyrr
en öll er, sem betur fer.
Umleiðogég og mitt heimilisfólk
vottum ástvinum hans okkar dýpstu
samúð og biðjum þann sem öllu
ræður að styrkja þau á þessari erfiðu
stundu, vil ég fyrir mína hönd,
móður minnar, systur og systursona,
en þeir héldu mikið upp á hann,
þakka fyrir þær stundir sem við
áttum saman.
Blessuð sé minning hans.
Far þú í friði
friður guðs þig blessi
bafðu þökk fyrir allt og allt.
(Vald. Briem.)
Pálmi Ingólfsson.
TÖLVUNOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu hönnum, setjum og prentum allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu.
PKENTSMIOI AN
n / /
C^ddu
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000
, FINNSK SÓFASETT
í SÉRFLOKKI — Fallegir litir
Ennfremur
ÍTÖLSK SÓFASETT
HAGSTÆTT VERÐ
HÚSGÖGN OG *
INNRÉTTINGAR co Cft O
.SUÐURLANDSBRAUT 32 OO OÍJ V
Samvinnuskólinn
Bifröst
Undirbúningsnám á Bifröst
Frumgreinadeild Samvinnuskólans
veitir undirbúning fyrir rekstrar-
fræðanám á háskólastigi.
Inntökuskilyrði: Þriggja ára nám áframhaldsskólastigi
án tillits til námsbrautar t.d. í iön-, vél-, verkmennta-,
fjölbrauta-, mennta-, fiskvinnslu-, búnaðar-, sjómanna-
eöa verslunarskóla o.s.frv.
Viðfangsefni: Bókfærsla, hagfræöi, tölvugreinar,
enska, íslenska, stæröfræöi, lögfræði, félagsmálafræði
og samvinnumál.
Námslýsing: Áhersla lögö á sjálfstæö raunhæf verk-
efni auk fyrirlestra og viðtalstíma o.fl.
Námstími: Einn vetur frá september til maí.
Aðstaða: Heimavist, fjölskyldubústaðir, skólaheimili,
félagsaöstaöa og mötuneyti á Bifröst í Borgarfirði
ásamt vinnustofum, bókasafni, tölvubúnaöi o.s.frv.
Barnagæsla á staönum.
Kostnaður: Fæöi, húsnæöi, þjónusta og fræðsla
áætluð um 27.000,- kr á mánuöi fyrir einstakling næsta
vetur.
Umsóknir: Með persónulegu bréfi til skólastjóra Sam-
vinnuskólans á Bifröst. Umsókn á aö sýna persónuupp-
lýsingar, upplýsingar um fyrri skólagöngu með afriti
skírteina og upplýsingar um fyrri störf.
Ekki sérstök umsóknareyðublöð.
Veitt er innganga umsækjendum af öllu landinu. Þeir
umsækjendur ganga fyrir sem orðnir eru eldri en 20 ára
og hafa öðlast starfsreynslu í atvinnulífinu. Námiö
hentar jafnt konum sem körlum.
Allt aö 20 umsækjendur hljóta skólavist í Frumgreina-
deild. Umsóknir verða afgreidar 25. apríl og síðan eftir
því sem skólarými leyfir.
Miðað er m.a. við reglur um námslán.
Samvinnuskólinn á Bifröst,
311 Borgarnesi,
sími 93-50000
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Vonarstræti 4 - Sími 25500
Félagsráðgjafar
Lausar eru til umsóknar eftirfarandi stööur félags-
ráögjafa hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkurborg-
ar.
1. Staða félagsráðgjafa í móttökuhópi viö hverf-
isskrifstofu fjölskyldudeildar í Breiðholti, Álfa-
bakka 12.
Um er að ræða nýja stöðu.
Verksvið er móttaka og greining á nýjum
erindum og vinnsla á beiðnum um fjárhagsað-
stoð.
Upplýsingar veitir yfirfélagsráðgjafi, Gunnar
Klængur í síma 74544.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl n.k.
2. Laus er 50% staða yfirfélagsráðgjafa í með-
ferðarhópi við hverfisskrifstofu fjölskyldudeildar
í Breiðholti, Álfabakka 12.
Verksvið er vinnsla og meðferð í barnaverndar-
málum og langtímastuðningur við barnafjöl-
skyldur.
Upplýsingar veitir yfirfélagsráðgjafi, Gunnar
Klængur í síma 74544.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl n.k.
3. Félagsráðgjafa vantar til sumarafleysinga við
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.
Upplýsingar veitir yfirmaður fjölskyldudeildar í
síma 25500.
Umsóknum skal skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á eyðublöð-
um sem þar fást.