Tíminn - 18.03.1989, Qupperneq 16
16 Tíminn
Laugardagur 18. mars 1989
Júlíana Svcinsdóltir llslmálan (1889-1966).
Listasafn íslands:
Fyríriesturum
Júlíönu Sveinsdóttur
1 dag, laugard. 18. mars kl. 15.IX) flytur
Hrafnhildur Schram fyrirlestur með lit-
skyggnum, um Júlíönu Sveinsdóttur listmál-
ara í Listasafni fslands. Yfirskrift fyrirlestrar-
ins er „í leit að cinfaldlcika".
Fyrirlesturinn er fiuttur í tengslum við
sýningu á landslagsverkum Júlíönu, sem
haldin er í minningu aldarafmælis lista-
mannsinsogstendurhún í safninu til 2. apríl.
Fyrirlesturinn verður haldinn í Listasafn-
inu í sal 5 og er öllum opinn og aðgangur
ókeypis.
Kanna, rauðvínsglas og kampavínsglös eftir Ingu Elínu.
Glerlist í EPAL
Inga Elín, glerlistar- og keramik-
hönnuður, er komin heim eftir framhalds-
nám við danskan nytjaháskóla. Hún vann
í Kaupmannahöfn til margra verðlauna
og viðurkenninga, m.a. „Kunsthaand-
værkprisen". Hún hefur hlotið verðlaun
m.a. fyrir bolla sem hitna ekki, vatnslös
og bjórglös.
Nú heldur Inga Elín cinkasýningu í
EPAL, Faxafeni 7 í Reykjavík, dagana
17. mars til 1. apríl. Á sýningunni verða
margir fallcgir munir, m.a. vasar, sem
Hadelandverksmiðjan í Noregi hefur tek-
ið til framleiðslu, en þeim er hægt að raða
upp á ýmsa vegu. Vasarnir verða til sölu
framvegis í EPAL. Sýningin er jafnframt
sölusýning.
Inga Elín mun opna keramikverkstæði
í bakhúsi við Laugaveg 55 1. apríl nk.
Danski rithöfundurinn
Bjarne Reuter í Norræna húsinu
í dag, laugard. 18. mars kl. 16:00
verður fjórða og síðasta bókmenntakynn-
ingin í Norræna húsinu á þessu vori. Nú
eru það danskar bækur, gefnar út á sl. ári
sem verða kynntar og annast Keld Gall
Jörgensen sendikennari kynninguna.
Danski rithöfundurinn Bjarne Reuter
er gestur að þessu sinni og ætlar að lesa
úr bókum sínum og segja frá sjálfum sér.
Bjarne Reuterer fæddur 1950, kennari
að mennt. Hann sendi frá sér fyrstu
bókina 1975. Hann hefur aðallega skrifað
barna- og unglingabækur, sem hafa náð
miklum vinsældum víða um heim. Tvær
bóka hans, „Vcröld Busters" og „Kysstu
stjörnurnar" hafa komið út í íslenskri
þýðingu. Verkaskrá Reuters telur nú hátt
í 30 bækur. Hann hefur skrifað kvik-
myndahandrit, leikrit fyrir svið, útvarp
og sjónvarp. Hann skrifar einnig vikuleg-
an þátt -Fréttastofu Reuters- í dagblaðið
Det Fri Aktuelt, þar sem hann skopast að
fréttum líðandi stundar.
Bókmenntakynningin hefst kl. 16:00
og allir eru velkomnir.
Fyrirlestur í Norræna húsinu:
Finnska konungsævintýrið 1918
Sendiherra Finnlands á íslandi, Anders
Huldén, sendi frá sér bók í vetur sem vakið
hefur mikla athygli. 1 bókinni, sem heitir
„Finlands kungaaventyr 1918“ segir frá því
hvernig Finnland eignaðist konung árið
1918. Anders Huldén heldur fyrirlestur í
Norræna húsinu sunnudaginn 19. mars kl.
16:00 unt þetta efni. Fyrirlesturinn verður
fluttur á sænsku.
„Er landsbyggðin baggi
á höfuðborginni?1
Samfélagið, félag þjóðfélagsfræðinema við
Háskóla íslands, heldur sína árlegu náms-
stefnu í dag, laugard. 18. mars. Yfirskrift
námsstefnunnar er: „Er landsbyggðin baggi
á höfuðborginni?"
Frummælcndur verða Sigurður Guð-
mundsson, skipulagsfræðingur á Byggða-
stofnun, Bjami Harðarson, ritstjóri Bænda-
blaðsins, Baldur Hermannsson eðlisfræðing-
ur, Ásgeir Magnússon, bæjarstjóri á Nes-
kaupstað og Ólafur Hannibalsson blaðamað-
ur. Á eftir ffamsöguerindum verða leyfðar
fyrirspumir úr sal og umræður.
Námsstefnan fer fram í Odda, hugvísind-
ahúsi Háskólans, stofú 101 kl. 14:00 og er
aðgangur ókeypis. I hléi verða seldar kaffi-
veitingar. Allir áhugasamir em boðnir vel-
komnir.
AðaHundur
Kvenfélags Óháða safnaðarins
Kvenfélag Óháða safnaðarins heldur
aðalfund sinn laugardaginn 18. mars í safhað-
arheimilinu Kirkjubæ og hefst hann kl. 15:00.
Kaffi verður borið fram að loknum fundar-
störfum.
Félag eldri borgara
Opið hús fellur niður í dag, laugardag í
Tónabæ.
Opið hús verður á morgun, sunnudag, í
Goðheimum, Sigtúni 3.
Kl. 14:00 - frjálst spil og tafl.
Kl. 20:00-dansað.
Opið hús á mánudag í Tónabæ frá kl.
13:30. Kl. 14:00 - félagsvist.
Basar Kvenfélags Fríkirkjunnar
Laugardaginn 18. mars heldur Kvenfélag
Fríkirkjunnar basar að Laufásvegi 13. Basar-
inn hefst kl. 14:00.
Verkakvemafélagið Framsókn:
Fræðslufundur um húsnæðismál
Verkakvennafélagið Framsókn heldur
fræðslufund um húsnæðismál mánudaginn
20. mars kl. 20:30 í húsnæði félagsins,
Skipholti 50A.
Ingi Valur Jóhannesson, frá Félagsmála-
ráðuneytinu og Ásmundur Hilmarsson frá
ASÍ hafa ffamsögu.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú
verður í dag, laugard. 18. mars. Lagt
af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10:00.
„Markmið laugardagsgöngunnar er:
Samvera, súrefni, hreyfing. Allir Kópa-
vogsbúar eru velkomnir í bæjarrölt Hana
nú og bæjarröltið og nýlagað molakaffi er
góð byrjun á góðri helgi í skemmtilegum
félagsskap," segir í fréttatilkynningu frá
Frístundahópnum „Hana nú“ í Kópa-
vogi.
„Bigband“-tónleikar
á Akureyri og Húsavík
Léttsveit Tónmenntaskóla Reykjavikur
heimsækir Akureyri og Húsavík um næstu
helgi. Hljómsveitin er skipuð 18 nemendum
á aldrinum 14-17 ára og er Sæbjöm Jónsson
stjómandi hljómsveitarinnar. Léttsveit Tón-
menntaskóla Reykjavíkur var stofriuð fyrir
þremur áram og hefur komið allvíða fram í
Reykjavík að undanfömu og lék m.a. í
sjónvarpsútsendingu á Stöð 2 nýverið.
Á Akureyri heldur Léttsveit Tónmennta-
skólans sameiginlega tónleika með Stórsveit
tónlistarskólans á Akureyri, laugard. 18.
mars kl. 17:00 í Möðravallakjallara Mennta-
skólans á Akureyri. Stjómandi Stórsveitar
Tónlistarskólans á Akureyri er Robert C.
Thomas.
Sunnudaginn 19. mars heldur hljómsveitin
til Húsavíkur og leikur þar ásamt Léttsveit
Húsavikur á tónleikum kl. 15:00. Stjómandi
Léttsveitar Húsavíkur er Keith R. Miles.
Málvericasýning á Akranesi
Sigríður Elfa Sigurðardóttir og Cheo Cruz
opna málverkasýningu í Bókhlöðunni á
Akrancsi í dag, laugard. 18. mars kl.
16:00-18:00.
Sýningin verður opin til 27. mars og er
opnunartími dagana 19.-27. mars kl. 14:00-
20:00.
Kvikmyndasýning MÍR:
Sovétmenn á íslandi,
íslendingar í Sovét
30 ára afmælis Félagsins Sovétríkin-Island
og stofndags Menningartengsla (slands og
Ráðstjómarríkjanna verður minnst á kvik-
myndasýningu í bíósal MlR, Vatnsstíg 10,
sunnud. 19. mars kl. 16:00 með því að sýndar
verða nokkrar frétta- og heimildarkvikmynd-
ir.
Ein myndanna var tekin árið 1955, er
hópur Sovétmanna ferðaðist um fsland.
Önnur segir frá för scndinefndar íslenskra
mennta- og vísindamanna til Sovétríkjanna
1954.
Þá vcrða enn sýndar tvær kvikmyndir
teknar í Sovétríkjunum á áttunda áratugn-
um; önnur lýsir opinbcrri heimsókn Geirs
Hallgrímssonar, þáverandi forsætisráðherra,
til Sovétríkjanna, en hin segir frá ferð
sendinefndar Alþingis sem heimsótti Sovét-
ríkin í boði Æðsta ráðsins.
Aðgangur að kvikmyndasýningunni er
ókeypis og öllum heimill.
Jazzklúbburinn
HEITIPOTTURINN
Jazzklúbburinn Heiti potturinn gengst
fyrir tónleikum hvert sunnudagskvöld í
Duus-húsi við Fischersund. Allir tón-
leikarnir hefjast kl. 21:30 og standa fram
yfir miðnætti.
Sunnudagskvöldið 19. mars koma fram
á tónlcikunum söngkonan Ellen Krist-
jánsdóttir og Eyþór Gunnarsson ásamt
aðstoðarmönnum.
ÚTVARP/SJÓNVARP
llllll
0
Rás I
FM 92,4/93,5
Laugardagur
18. mars
6.45 Veðurfregnir. Bœn, dr. Bjarni Sigurðsson
flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 „Góðan dag, góðir hlustendur". Pétur
Pétursson sér um þáttinn. Fréttir sagðar kl.
8.00, þá lesin dagskrá og veðurfregnir sagðar
kl. 8.15. Að þeim loknum heldur Pétur Pétursson
áfram að kynna morgunlögin.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Litli barnatíminn: „Litla lambið“ eftir Jón
Kr. (sfeld. Sigríður Eyþórsdóttir les, sögulok.
(Einnig útvarpað um kvöldið kl. 20.00).
9.20 Hlustendaþlónustan. Sigrún Bjömsdóttir
leitar svara við fyrirspumum hlustenda um
dagskrá Ríkisútvarpsins,
9.30 Fréttir og þingmál. Innlent fréttayfirlit vik-
unnar og þingmálaþáttur endurtekinn frá kvöld-
inu áður.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Sígildir morguntónar. - Píanósónata í B-
dúr eftir Franz Schubert. Clifford Curzon leikur.
(Af hljómdiski).
11.00 Tilkynningar.
11.03 í liðinni viku. Atburðir vikunnar á innlendum
og erlendum vettvangi vegnir og metnir.
Umsjón: Páll Heiðar Jónsson.
12.00 Tilkynningar. Dagskrá.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
13.00 Hér og nú. Fróttaþáttur í vikulokin.
14.00 Tilkynningar.
14.02 Sinna. Þáttur um listir og menningarmál.
Umsjón: Þorgeir ólafsson og Friðrik Rafnsson.
15.00 Tónspegill. Þáttur um tónlist og tónmenntir
á líðandi stund. Umsjón: Bergþóra Jónsdóttir.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskra.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 íslenskt mál. Guðrún Kvaran flytur þáttinn.
(Einnig útvarpað á mánudag kl. 15.45).
16.30 Ópera mánaðarins: „Faust“ eftir Charles
Gounod. Kiri Te Kanawa, Francisco Araiza,
Evgeny Nesterenko og Andreas Schmidt syngja
með Sinfóníuhljómsveit og kór Útvarpsins í
Bæjaralandi. Sir Colin Davis stjórnar. Jóhannes
Jónasson kynnir.
18.00 Gagn og gaman. Umsjón: Gunnvör Braga.
Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.31 Smáskammtar. Jón Hjartarson, Emil Gunn-
ar Guðmundsson og öm Árnason fara með
gamanmál.
20.00 Litli barnatímin: „Litia lambið“ eftir Jón
Kr. ísfeld. Sigríður Eyþórsdóttir les, sögulok.
(Endurtekinn frá morgni).
20.15 Vísur og þjóðlög.
20.45 Gestastofan. Gunnar Finnsson ræðir við
Júlíus Þórðarson á Skorrastað í Norðfirði. (Frá
Egilstöðum)
21.30 íslenskir einsöngvarar. Kristinn Sigmunds-
son syngur lög eftir Christoph Willibald Gluck,
Johannes Brahms og Richard Strauss. Jónas
Ingimundarson leikur með á píanó. (Hljóðritanir
Útvarpsins og af hljómplötu).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Dansað með harmoníkuunnendum.
Saumastofudansleikur í Útvarpshúsinu. Kynnir:
Hermann Ragnar Stefánsson.
23.00 Nær dregur miðnætti. Kvöldskemmtun Út-
va.psins á laugardagskvöldi. Stjórnandi: Hanna
G. Sigurðardóttir.
24.00 Fréttir.
00.10 Svolítið af og um tónlist undir svefninn.
„Barn á okkar dögum“ (A Child of our Time),
óratoría eftir Michael Tippett. Jón Örn Marinós-
son kynnir.
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
&
FM 91,1
03.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Fréttir kl. 4.00 og sagðar fréttir af veðri,
færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
8.10 Á nýjum degi. Þorbjörg Þórisdóttir gluggar í
helgarblöðin og leikur bandaríska sveitatónlist.
10.05 Nú er lag. Gunnar Salvarsson leikur tónlist
og kynnirdagskrá Útvarpsins og Sjónvarpsins.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Dagbók Þorsteins Joð. - Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson.
15.00 Laugardagspósturinn. Skúli Helgason sér
um þáttinn.
16.30 Valur-Magdeburg. Bein lýsing á síðari leik
Vals og Magdeburg í 8-liða úrslitum Evrópu-
keppni meistaraliða. Samúel Örn Erlingsson
lýsir
18.00 Fyrirmyndarfólk. Lísa Pálsdóttir tekur á
móti gestum og bregður lögum á fóninn. Gestur
henar að þessu sinni er Haraldur Ingi Haralds-
son.
19.00 Kvöldfréttir.
19.31 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 Út á lífið. Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir ber
kveðjur milli hlustenda og leikur óskalög.
02.05 Eftirlætislögin. Gestur þáttarins er Sigur-
björg Pétursdóttir. Umsjón: Svanhildur Jak-
obsdóttir. (Endurtekinn þáttur frá þriðjudegi).
03.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Fréttir kl.'4.00 og sagðar fréttir
af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og
6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofukl. 4.30.
SJÖNVARPIÐ
Laugardagur
18. mars
11.00 Fræðsluvarp. Endursýnt efni frá 13. og 15.
mars sl. Bakþankar (14 mín), Algebra (14 mín),
Málið og meðferð þess (22 mín), Þýskukennsla
(15 mín), Siðaskiptin (13 min), Umræðan (35
mín), Þýskukennsla (15 mín).
14.00 íþróttaþátturinn. Kl. 14.55 verður bein út-
sending frá leik Manchester United og Nott-
ingham Forest í ensku bikarkeppninni, og lýsir
Bjarni þeim leik. Einnig verður fylgst með öðrum
úrslitum frá Englandi, og þau birt á skjánum
jafnóðum og þau berast. Þá verður bein útsend-
ing frá íslandsmótinu í sundi sem fram fer i
Sundhöll Reykjavikur. Umsjón Arnar Björnsson.
18.00 íkorninn Brúskur (12). Teiknimyndaflokkur
í 26 þáttum. Leikraddir Aðalsteinn Bergdal.
Þýðandi Veturliði Guðnason.
18.25 Smellir. Umsjón Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir
og Úlfar Snær Arnarson.
18.50 Táknmálsfréttir.
19.00 Áframabraut. (Fame). Bandarískurmynda-
flokkur. Þýðandi Gauti Kristmannsson.
19.54 Ævintýri Tinna.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Lottó.
20.35 ’89 á stöðinni. Spaugstofumenn fást við
fréttir líðandi stundar. Leikstjóri Karl Ágúst
Úlfsson. Stjórn upptöku Tage Ámmendrup.
20.50 Fyrirmyndarfaðir. (The Cosby Show).
Bandarískur gamanmyndaflokkur um fyrir-
myndarföðurinn Cliff Huxtable og fjölskyldu
hans. Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
21.15 Maður vikunnar.
21.30 Ofurmærin. (Supergirl). Bandarískbíómynd
frá 1984. Leikstjóri Jeannot Szwarc. Aðalhlut-
verk Helen Slayter, Faye Dunaway, Peter
O’Toole og Mia Farrow. Æviritýramynd sem
byggir á samnefndum myndasögum um Köru
sem kemur til jarðar til að bjarga jarðarbúum frá
tortímingu. Þýðandi Kristrún Þórðardóttir.
23.20 Peningar. (L’Argent). Frönsk/svissnesk
bíómynd frá 1983. Leikstjóri Robert Bresson.
Aðalhlutverk Christian Patey, Silvie Van den
Elsen, Michel Briguet og Caroline Lang. Myndin
er byggð á smásögu Tolstojs og segir frá manni
sem þiggur peninga sem reynast falsaðir. Hann
lendir i höndum lögreglunnar og eftir það fer að
halla undan fæti hjá honum. Þýðandi Pálmi
Jóhannesson.
00.45 Útvarpsfréttir i dagskrárlok.
srm
Laugardagur
18. mars
08.00 Kum, Kum. Teiknimynd. Þýðandi: Sigrún
Þorvarðardóttir. Paramount.
08.20 Hetjur himingeimsins. He-man. Teikni-
mynd. Þýðandi: Sigrún Þorvarðardóttir. Filma-
tion.
08.45 Jakari. Teiknimynd með íslensku tali. Leik-
raddir: Júlíus Brjánsson.
8.50 Rasmus klumpur. Petzi. Teiknimynd með
íslensku tali. Leikraddir: Elfa Gísladóttir, Guð-
rún Þórðardóttir og Júlíus Brjánsson.
09.00 Með afa. Afi er alltaf á sínum stað fyrir ykkur
á laugardagsmorgnum, segir sögur, fer í lát-
bragðsleik og margt fleira. Myndirnar sem þið
fáið að sjá eru Skeljavík, Skófólkið, Glóálfarnir,
Sögustund með Janusi, Popparnir og margt
fleira. Afi sýnir ykkur eingöngu myndir með
islensku tali. Leikraddir: Árni PéturGuðjónsson,
Elfa Gísladóttir, Guðmundur Ólafsson, Guðrún
Þórðardóttir, Jóhann Sigurðarson, Randver Þor-
láksson, Saga Jónsdóttir. Umsjón: Guðrún
Þórðardóttir. Stöð 2.
10.30 Hinir umbreyttu. Transformers. Teikni-
mynd. Þýðandi: Björn Baldursson. Sunbow
Productions.
10.55 Klementina. Clementine. Teiknimynd með
íslensku tali um litlu stúlkuna Klementínu sem
lendir í hinum ótrúlegustu ævintýrum. Leikradd-
ir: Elfa Gísladóttir, Guðrún Þórðardóttir, Júlíus
Brjánsson og Saga Jónsdóttir. Antenne 2.
11.25 Fálkaeyjan. Falcon Island. Ævintýramynd í
13 hlutum fyrir börn og unglinga. 3. hluti.
Þýðandi: Björgvin Þórisson. RPTA.
11.55 Pepsí popp. Við endursýnum þennan vin-
sæla tónlistarþátt frá því í gær. Stöð 2.
12.45 Fullkomin. Perfect. Lífleg mynd um blaða-
mann sem fær þaö verkefni að skrifa um
heilsuræktarstöðvar. Aðalhlutverk: John Tra-
volta og Jamie Lee Curtis. Leikstjóri: James
Bridges. Framleiðandi: Kim Kurumada. Þýð-
andi: Ingunn Ingólfsdóttir. Columbia 1985. Sýn-
ingartími 115 min. Lokasýning.
14.40 Ættarveldið. Dynasty. Bandarískur fram-
haldsþáttur. Þýðandi: Snjólaug Bragadóttir.
20th Century Fox.
15.30 Þræðir II. Lace II. Bandarísk sjónvarpsmynd
í tveimur hlutum. Fyrri hluti. Unga klámdrottn-
ingin Lili er tilbúin að leggja allt í sölurnar til þess
að fá vitneskju um uppruna sinn. Aðalhlutverk:
Phoebe Cates, Brooke Adams, Deborah Raffin
og Arielle Dombasle. Leikstjóri: Billy Hale.
Framleiðandi: Gary Adelson. Lorimar 1985.
Síðari hluti verður á dagskrá á morgun.
17.00 íþróttir á laugardegi. Meðal annars verður
litið yfir íþróttir helgarinnar og úrslit dagsins
kynnt o.fl. Umsjón: Heimir Karlsson.
19.19 19.19 Fréttir og fréttatengt efni ásamt veður-
og íþróttafréttum.
20.30 Laugardagur til lukku. Fjörugur getrauna-
leikur sem unninn er í samvinnu við björgunar-
sveitirnar. í þættinum verður dregið í lukkutríói
björgunarsveitanna en miðar, sérstaklega
merktir Stöð 2, eru gjaldgengir í þessum leik og
mega þeir heppnu eiga von á glæsilegum
vinningum. Kynnir: Magnús Axelsson. Stöð 2.
21.30 Steini og Olli. Laurel og Hardy. Þeir
félagarnir fara á kostum. Aðalhlutverk: Stan
Laurel og Oliver Hardy. Framleiðandi: Hal
Roach. Beta Film.
21.50Kisulórur. What’s New Pussycat? Tísku-
blaðaútgefanda reynist erfitt að halda sér að
vinkonu sinni vegna þeirrar almennu kvenhylli
sem hann nýtur. Vinur útgefandans ráðleggur
honum að leita aðstoðar hjá sálfræðingi. Sál-
fræðingurinn reynist eiga við mun stærra vanda-
mál að glíma en útgefandinn og gerir málin enn
flóknari. Aðalhlutverk: Peter O’TooL Peter
Sellers, Woody Allen, Ursula Andress og Romy
Schneider. Leikstjóri: Clive Donner. Framleið-
andi: Charles K. Feldman. United Artists 1965.
Sýningartími 110 min. Aukasýning 26. apríl.
23.40 Magnum P.l. Spennumyndaflokkur. Aðal-
hlutverk: Tom Selleck. MCA 1988.
00.30 Lifi Knievel. Viva Knievel. Evel Knievel, sem
leikur sjálfan sig í myndinni, og eiginkona hans
eru komin til Kaliforniu. Það hyggst hann reyna
nýtt heimsmet í mótorhjólastökki. Aðalhlutverk:
Evel Knievel, Gene Kelly, Lauren Hutton og
Leslie Nielson. Leikstjóri: Gordon Douglas.
Framleiðandi: Sherrill Corwin. Warner 1977.
Sýningartimi 105 mín. Ekki við hæfi barna.
02.15 Merki Zorro. The Mark of Zorro. Sagan
hermir að Zorro hafi verið ungur aðalsmaður og
vopnfimasti maðurinn í hinum konunglega
spænska her þegar hann ákveður að halda
aftur á heimaslóðir. Aðalhlutverk: Frank Lang-
ella, Ricardo Montalban, Gilbert Roland og
Yvonne de Carlo. Leikstjóri: Don McDougall.
20th Century Fox 1974. Sýningartími 80 mín.
03.35 Dagskrárlok.