Tíminn - 18.03.1989, Blaðsíða 20
AUGLÝSINGASÍMAR :630001 — 686300
„LÍFSBJÖRG I' NORDURHÓFUM"
RÍKISSKIP VERÐ3RÉFAVIÐSKJPH Útvegsbankinn Seltj. Gíró-1990 ÞRðSTUR 685060
NÚTÍMA FLUTNINGAR Hofnarhúsinu v/Tryggvagötu, SAMVINNUBANKANS Gegn náttúruvernd á villigötum VANIR MENN
S 28822 SUÐURLANDSBRAUT 18. SfMI: 688568
Jón Sæmundur Sigurjónsson fær sannleikann frá forráðamönnum þýska fyrirtækisins Aldi sem hætti lagmetiskaupum
,Græna rækjan" söku
dólgur ekki hvalir
Það voru „grænar rækjur“ en ekki hvalveiðar íslend-
inga sem urðu til þess að þýska lagmetisfyrirtækið Aldi
hætti kaupum á íslenskum rækjum. Að þessu komst Jón
Sæmundur Sigurjónsson alþingismaður í viðræðum við
forráðamenn Aldi, en Jón Sæmundur er nú á ferð um
Þýskaland á vegum utanríkisráðuneytisins og iðnaðar-
ráðuneytisins til þess að ræða við forráðamenn fyrirtækja
sem verslað hafa við íslendinga.
Jón Sæmundur sagði í samtali hafi fyrirtækið ákveðið að hætta
við Tímann í gærkveldi að Seuthe
innkaupastjóri Aldi fyrirtækisins
hefði tjáð sér að rækjurnar frá
íslandi hefðu ítrekað ekki náð
lágmarksgæðum og að sending-
arnar frá því í ágúst fram í október
hafi meira og minna verið endur-
sendar. Steininn hefði tekið úr
þegar fyrirtækið neyddist til að
endursenda tvo gáma af niðursoð-
inni rækju þar sem græn slikja
hefði verið á rækjunni. Eftir það
kaupum á íslensku lagmeti.
Innkaupastjóri Aldi skýrði Jóni
Sæmundi frá því að samkeppnin
við Tengelmann keðjuna hefði
ráðið mestu um að Aldi notaði
hvalamálið sem ástæðu þess að
hætta kaupum á íslenskum
rækjum. Fyrirtækið hefði fengið
um tvöhundruð bréf frá viðskipta-
vinum sínum þar sem hvatt var til
þess að Aldi hætti kaupum á
íslenskum afurðum. Því hefðu
forráðamenn Aldi ákveðið að slá
tvær flugur í einu höggi, hætta að
kaupa rækju sem ekki væri nógu
góð og slá sér upp meðal umhverf-
isverndarsinna með því að fela sig
á bak við hvalamálið.
Jón Sæmundur innti innkaupa-
stjóra Aldi eftir því hvort fyrirtæk-
ið myndi kaupa íslenska rækju
fram í maímánuð eins og samning-
ar kveða á um. Suethe tjáði hon-
um að Aldi hefði keypt tvo gáma
af niðursoðinni íslenskri rækju í
febrúarmánuði og með því fest
kaup á því magni sem samið var
um og talið var að myndi endast
fram í maí.
Þegar Jón Sæmundur grennsl-
aðist fyrir um það hvort Aldi
myndi kaupa íslenska rækju ef
gæðamálin yrðu í lagi var svarið
nei. Forráðamenn Aldi hefðu í
síðustu viku tekið þá ákvörðun að
hætta sölu á niðursoðnum rækjum
þar sem neytendur vilji sjá þá
vöru sem þeir kaupa. Þess í stað
ætlar fyrirtækið að hefja sölu á
ferskri rækju í saltupplausn sem
pakkað er í gegnsæjar plastdósir
sem geymast fjórar vikur í kæli.
Þeir fái hráefni í þessa nýju afurð
fryst frá Grænlandi og að rækjan
sé unnin í Danmörku.
Jón Sæmundur sagði hins vegar
að innkaupastjórinn hefði tjáð sér
að ekkert væri því til fyrirstöðu að
kaupa slíka rækju af Islendingum
svo fremi sem gæði rækjunnar og
verð sé viðunandi.
Ekki náðist í Theódór S. Hall-
dórsson framkvæmdastjóra Sölu-
stofnunar lagmetis í gærkveldi til
að spyrja hann um gæði íslensku
rækjunnar. -HM
Jón Sæmundur Sigurjónsson.
lagsins getur kostað frá 150 krónum og allt uppi í 395 krónur.
I
Verðlagsstofnun kannar verð á fjölmörgum veitingahúsum:
Verulegur verðmunur
milli veitingastaða
Gosdrykkir kosta frá 75 og allt upp í 140 kr., pilsner frá 90
og upp í 180 kr. og kaffibolli frá (0 með mat) 50 kr. og allt
upp í 140 krónur samkvæmt verðkönnun sem Verðlagsstofn-
un gerði á um hálfu hundraði matsölustaða með vínveitinga-
leyfi - að vísu fyrir lok verðstöðvunar. Má því Ijóst vera að
ýmisskonar drykkjarvörur geta haft veruleg áhrif á reikning
matargesta, ekki síður en verð aðalréttarins.
Verðlagsstofnun tekur fram að
ekki sé reynt að leggja neitt mat á
magn og/eða gæði veitinganna, né
þjónustu og umhverfi á veitingahús-
unum. Könnunin sé einungis gerð í
þeim tilgangi að upplýsa um verðlag
á þessum stöðum - og sem slík
virðist hún geta gefið væntanlegum
matargestum athygliverðar upplýs-
ingar.
Könnunin leiðir t.d. í ljós að það
er alls ekki sjálfgefið að verð sé hæst
á „fínustu" veitingastöðunum, t.d.
stærstu hótelunum. Pilsner kostar
t.d. jafn mikið á Holiday Inn eins og
Kaffi Hressó og Eldvagninum og
síðan 40-50% meira í Fógetanum og
Lækjarbrekku. Og gosið kostar ekki
meira á Grilli og Holti heldur en á
Gauknum, Ítalíu og Sælkeranum og
er síðan enn dýrara t.d. í E1 Som-
brero, Peking og Torfunni. Þá kem-
ur og fram að verð á drykkj arföngum
virðist ekki hærra og jafnvel oft ívið
lægra á hótelum og veitingastöðum
úti á landi heldur en á höfuðborgar-
svæðinu.
Raunar leiðir þessi könnun ekki
hvað síst í ljós að vandasamt getur
verið að gera „góð kaup" þegar farið
er út að borða. Verð aðalrétta segir
oft ekki nema lítinn hluta sögunnar.
Súpa er t.d. stundum innifalin en
getur í öðrum tilvikum kostað allt
upp í 580 krónur. Svipað má segja
um kaffibolla eftir matinn. Og app-
elsínusafi fyrir „vísitölufjölskyld-
una" getur hækkað reikninginn allt
frá 160 og upp í 600 krónur.
Hvað kostar svo að fara út að
borða? Súpa, ódýrasti fiskréttur
dagsins í hádegi ásamt gosdrykk
virðist lang algengast að kosti ein-
hversstaðar á milli 700 og 900 krónur
á mann. Ódýrust var þessi máltíð
485 kr. á Óðinsvéi, en dýrust 1.180
kr. á Holti.
Hádegisverður af sérréttaseðli;
ódýrasta súpa og kjötréttur ásamt
pilsner, ís í eftirrétt og kaffi á eftir
er algengt að kosti á bilinu 1.500 til
1.800 krónur samtals á mann. Þar af
kostar aðalréturinn oft öðru hvoru
megin við 900 krónu. Þannig samsett
máltíð gat þó kostað allt upp í 2.825
kr. í Fjörunni í Hafnarfirði ogsömu-
leiðis yfir tvö þúsund krónur á meira
en þriðjungi veitingastaða í könnun-
inni.
Þegar litið er á hvern rétt út af
fyrir sig er verðmunur milli staða oft
miklu nteiri. Þannig kostaði ódýrasti
fiskréttur dagsins allt frá 370 kr.
(Laugavegi 22) upp í 890 (í Nausti)
og ódýrasti kjötréttur dagsins allt frá
420 kr. (Óðinsvéi) og upp í 1.270 kr.
(Hard Rock Café). Álíka mun var
að finna á mat á sérréttaseðli. sem á
forréttúm og eftirréttum.
Fyrir þá sem líkar fjölbreytni
virðist hlaðborð geta verið nokkuð
góður kostur. Hlaðborð í hádegi
fann Verðlagsstofnun á sjö stöðum
-ódýrast á 490 kr. (áFógetanum)og
dýrast 1.190 kr. (Skrúð Hótel Sögu),
þ.e. álíka verð og verðmunureins og
á kjötréttum dagsins.
Allar framangreindar tölur sýna
þó fyrst og fremst hve margs er að
gæta fyrir þá sem ætla að kaupa sér
sem bestan mat á sem hagkvæmustu
verði í þægilegu umhverfi.
-HEI