Tíminn - 15.06.1989, Page 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 15. júní 1989
Áskoranir um að skilja bílinn eftir heima virðast hafa misst marks:
„Bensínsala var
yfir meðallagi“
Áskoranir verkalýðsfélaganna til almennings um að skilja
bílinn eftir heima í gær og fyrradag, virðast meira og minna
hafa farið fyrir ofan garð og neðan.
„Sala á bensíni hjá okkur í gær var
mjög eðlileg og við urðum ekki vör
við að fólk keypti minna bensín en
venjulega. í fyrradag var salan síðan
heldur yfir meðallagi, sérstaklega
um morguninn" sagði starfsmaður á
bensínafgreiðslustöð í samtali við
Tímann. Á annarri bensínstöð feng-
ust þær upplýsingar að sala á bensíni,
virtist hafa minnkað nokkuð eftir
hækkunina, en ekkert umfram það í
gær og fyrradag.
Lögreglan í Reykjavík varð held-
ur ekki mikið vör við að fleiri en
venjulega hefðu skilið bílinn eftir
heima. „Á þriðjudaginn, á milli sjö
og átta um morguninn, var umferðin
. lítil svo jókst hún þegar dró að
hádegi. Um miðjan dag var umferð-
in orðin eins og á venjulegum þriðju-
degi. í gær var aftur á móti ekki hægt
að merkja að bíllinn hefði verið
skilinn eftir heima. Umferðin var
alveg eins og hún venjulega er á
miðvikudögum" sagði lögreglu-
þjónn hjá umferðardeild lögreglunn-
ar í Reykjavík þegar Tíminn hafði
samband við hann.
Sama var uppi á teningnum þegar
Tíminn leitaði upplýsinga hjá Stræti-
svögnum Reykjavíkur. „Ég held að
aukning farþegafjölda hjá okkur hafi
verið ákaflega lítil. Hún var alls ekki
merkjanleg í gær og það var mjög
lítið spurt um ferðir vagnanna. Við
hefðum vel getað annað þessu án
þess að grípa til sérstakra ráðstafana
varðandi aukavagna. Ég held að
fólk sem var að fara til vinnu og
hefur yfir bíl að ráða hafi almennt
ekki skilið hann eftir heima“ sagði
vagnstjóri hjá SVR.
Fræðslusamtök um ísland og EB:
Þrjátíu kjörnir í
stefnumarkandi ráð
Fyrir skömmu var haldinn stofnfundur Fræðslusamtaka um
ísland og Evrópubandalagið. Á fundinum voru samþykktar
starfsreglur samtakanna og kosnir tuttugu af þjátíu í ráð sem
markar meginstefnu samtakanna. Þá tíu sem á eftir að skipa
mun ráðið sjá um að velja.
Stefnt er að því að ráðið endurnýi
sig sjálft, það er að segja kveðji til
fólk í stað þeirra sem hætta störfum
og skulu kyn valin innan markanna
40:60%. Pví er ætiað að halda ekki
Skólastjórar Tjarnarskóla,
þær Margrét Theodórsdóttir
og María Sólveig Héðins-
dóttir, hafa sent frá sér til-
kynningu þar sem samskipti
þeirra við föður nemanda
sem greint hefur verið frá í
fjölmiðlum eru rakin. Þar
segja þær umræddan föður
ekki hafa verið tilbúinn til
samstarfs og hafa dregið
greiðslu skólagjalda, oft
langt fram yfir eindaga.
f niðurlagi tilkynningarinnar
segir; „í hita og þunga dagsins
reynist oft erfitt að sjá fram á
veginn. Við trúðum því aldrei að
faðirinn tæki þá ákvörðun að láta
nemandann mæta eins og ekkert
hefði í skorist. Við erum vanar því
að tekið sé mark á orðum okkar og
reynsla okkar er sú að foreldrar séu
dæmalaust gott fólk og jafnan tilbún-
ir til samstarfs.“
Skólastjórarnir vilja einnig koma
eftirfarandi á framfæri til nemand-
ans: „Okkur þykir leiðast að hafa
verið þátttakendur í deilum sem
hafa valdið þér óhamingju. Síst af
öllu áttir þú skilið að ljúka skólaferli
þínum með þessum hætti og hörm-
um við það svo sannarlega." jkb
færri en sex fundi á ári og koma
saman ef sjórn eða þriðji hluti
ráðsmanna óskar þess. Ráðið til-
nefnir tvo fulltrúa til setu í „Samar-
beidsudvalget for nordiske alterna-
tive til EF“.
Auk þess sér ráðið um kosningu
sjö manna stjórnar, til setu eitt ár í
senn. Stjórnin mun að jafnaði koma
saman tvisvar í mánuði og sjá um
fjárreiður samtakanna, skrifstofu-
hald og mannaráðningar eftir því
sem aðstæður leyfa. Jafnframt því
sem henni er ætlað að koma sér upp
tengiliðum sem víðast á landinu
vegna fræðslufunda og annars starfs.
Ákveðið var að í upphafi yrðu
fjórir vinnuhópar settir á fót en
áætlað er að þeim fjölgi eftir áhuga
og þörfum. Stjórninni er ætlað að
annast tengsl vinnuhópa sem sinna
afmörkuðum verkefnum svo sem
útgáfu fréttabréfs og fleira.
Aðild að samtökunum er öllum
heimil og fá félagar sent fréttabréf
og annað fræðsluefni. Meðlimir geta
tekið þátt í vinnuhópum og öðru
starfi samkvæmt eigin vali.
jkb
Tilkynning skólastjóra Tjarnarskóla:
Harma óverðskulduð
lok skólaferilsins
Sigursveinn K. Magnússon, hljómsveitarstjóri.
Frá kynningu á gjaldskrárbreytingum. F.v. Bergþór Halldórsson, yfir-
verkfræðingur Pósts og síma, Steingrímur J. Sigfússon, samgönguráð-
hcrra, Ólafur Steinar Valdimarsson, ráðuneytisstjóri.
Tímamynd: Arni Bjarna.
Breytingar á
símagjaldskrá
Samgönguráðherra hefur ákveðið að breytingar á upp-
byggingu gjaldskrár fyrir símaþjónustu verði gerðar l.júlí
nk. Breytingin felur í sér lækkun á gjöldum fyrir langlínu-
samtöl og hækkun á staðarsímtölum. Með þessu á að jafna
aðstöðu þeirra sem hringja lengra og þeirra sem hringja
staðarsímtöl og er þetta jafnvel fyrsta skrefið í að gera
landið að einu gjaldsvæði.
f langlínusímtölum á lengri leið-
um fölgar sekúndum í skrefi úr 16
í 24, á kvöldin, virka daga, úr 24 í
36 og um nætur og helgar úr 32 í
48 sek. í skrefi.
Sekúndum í langlínusamtölum á
styttri leiðum fjölgar úr 24 í 36
skrefið. Á kvöldin virka daga leng-
ist skrefið úr 36 í 54 sek. og um
nætur og helgar úr 48 í 72 sekúnd-
ur.
í staðarsímtölum að degi til
fækkar sekúndum í skrefi úr 360 í
240. Að kvöldi, nætur og helgar
fækkar þeim úr 720 í 480. Breyting-
in hefur sömu árif á verð staðarsím-
tala um land allt.
Við þessar breytingar er áætlað
að skrefum til innheimtu fækki um
16%. Til þess að vega upp á móti
tekjutapi af þeim ástæðum verður
skrefaverð hækkað úr kr. 2.75 í kr.
3.00. Einnig mun ársfjórðungs-
gjald fyrir síma hækka úr kr. 1.125
í kr. 1.250 hjá heimilum og úr kr.
1.526,25 í kr. 2.500 hjá fyrirtækj-
um. Áætlað er að þessar breytingar
hafi engin áhrif á tekjur Pósts og
síma við óbreytta símanotkun.
Svo dæmi sé tekið um áhrif
þessara breytinga mun þrjátíu mín-
útna staðarsímtal á ódýrasta tíma
hækka úr 9,66 kr. í 14,25 kr.
Þrjátíu mínútna langlínusímtal,
lengsta leið á ódýrasta tíma lækkar
úr 158,01 kr. í 115,50 kr. GS
Ný hljómsveit á
Seltjarnarnesi
Fyrstu tónleikar Kammersveitar
Seltjarnarness verða haldnir mánu-
dagskvöldið 19. júní kl. 20:30 í
Seltjarnarneskirkju.
Kammersveit Seltjarnarness var
stofnuð nú í vor af þeim Einari
Jóhannessyni klarinettuleikara,
Hlíf Sigurjónsdóttur fiðluleikara,
Hróðmari Inga Sigurbjörnssyni
tónskáldi, Sigrúnu Valgerði Gests-
dóttur söngkonu, Sigursveini K.
Magnússyni skólastjóra og Erni
Magnússyni píanóleikara. Mark-
mið Kammersveitarinnar er að
standa fyrir flutningi æðri tónlistar
á Seltjarnarnesi og hafa Seltjarn-
arneskaupstaður og Menntamála-
ráðuneytið styrkt Kammersveitina
fjárhagslega til að halda þessa
tónleika.
Á efnisskránni eru Nyári Este
(Sumarkvöld) eftir Zoltán Kodály,
Lied der Waldtaube (Söngur
skógardúfunnar) úr „Gurre
Lieder“ eftir Arnold Schönberg,
Tilbrigði fyrir píanó eftir Hróðmar
Inga Sigurbjörnsson og Le Boef
sur la toit op.58 (Nautið á þakinu),
balletttónlist eftir Darius Milhaud.
Einsöngvari með Kammersveit-
inni er Sigrún Valgerður Gests-
dóttir sem syngur Söng skógardúf-
unnar, en Örn Magnússon píanó-
leikari frumflytur nýtt verk eftir
Hróðmar Inga Sigurbjörnsson, Til-
brigði fyrir píanó. Kammersveit
Seltjarnarness skipa að þessu sinni
37 hljóðfæraleikarar, Konsert-
meistari er Hlíf Sigurjónsdóttir og
stjórnandi sveitarinnar er Sigur-
sveinn K. Magnússon.
-LDH