Tíminn - 15.06.1989, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 15. júní 1989
Tíminn 5
'
Von bráðar hefja íslendingar sínar árlegu veiðar á hvölum í vísindaskyni og þegar hefur verið tekið til við að undirbúa skipin. Eitt þeirra er Hvalur 8
sem sést hér á siglingu í Reykjavíkurhöfn. Tímamynd:Pje*ur
Ársfundur Alþjóöahvalveiðiráösins í San Diego:
AFANGASIGURI
HVALASTRÍÐINU
í gær var samþykkt ályktunartillaga varðandi hvalveiðar
íslendinga í vísindaskyni á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins. Líta má samþykkt tillögunnar sem vissan sigur fyrir
íslendinga þar sem í henni kemur fram viðurkenning á
hvalarannsóknunum og hvað varðar fyrirhugaðar veiðar á
langreyði fá íslendingar sjálfdæmi varðandi það hve mörg
dýr skulu veidd.
að veiða í sumar en áætlunin gerir
ráð fyrir að veidd verði 80 dýr.
Ályktunartillagan var flutt af
ellefu aðildarríkjum hvalveiðiráðs-
ins þar á meðal Bandaríkjunum,
Vestur-Þýskalandi, Sviss og Sví-
þjóð sem hingað til hafa gagnrýnt
vísindaveiðarnar harðlega.
í ályktuninni segir að hvalataln-
ingar lslendinga hafi verið mikil-
vægt framlag til vitneskju um
hvalastofna í Norður-Atlantshafi
og að rannsóknir íslendinga hafi
verið framkvæmdar af vísindalegri
nákvæmni.
í ályktuninni kemur einnig fram
að íslendingar hafi uppfyllt fyrir-
heit um það að leggja fram sérstaka
skýrslu um niðurstöður vísindaá-
ætlunarinnar frá 1988. Þá hafi ís-
lenska sendinefndin skýrt frá því
að fallið hafi verið frá veiði á tíu
sandreyðum sem fyrirhugaðar voru
í sumar. Þá er mælst til þess við
íslendinga að þeir endurskoði þann
fjölda langreyða sem fyrirhugað er
í tilkynningu frá utanríkisráðu-
neytinu sem send var fjölmiðlum í
gær segir að ályktunartillagan sé
viðsættanleg fyrir íslendinga og
samráð hafi verið haft um frágang
hennar við íslensku sendinefndina.
Þar segir einnig að tillaga þessi beri
vott um vaxandi vilja til samstarfs
milli aðildarríkja Alþjóðahval-
veiðiráðsins og aukins skilnings á
vísindarannsóknum íslendinga.
Á fundi ráðsins í gær bauð
talsmaður íslensku sendinefndar-
innar að aðalfundur ráðsins árið
1991 yrði haldinn í Reykjavík. Var
það boð þegið með lófataki.
Þess má að lokum geta að tölu-
verður fjöldi meðlima í samtökum
Grænfriðunga og annarra samtaka
sem berjast gegn vísindaveiðun-
um, söfnuðust saman fyrir utan
fundarstað hvalveiðiráðsins í San
Diego í gær til að krefjast þess að
hvalveiðum í vísindaskyni verði
hætt. SSH
Benedikt
biður um
lausn frá
störfum
Benedikt Gröndal sendiherra hef-
ur farið þess á leit við forseta íslands
að honum verði veitt lausn frá em-
bætti. Ástæða beiðninnar er ágrein-
ingur milli Benedikts og Jóns Bald-
vins Hannibalssonar utanríkisráð-
herra, m.a. um ferðalög sendiherr-
ans til þeirra landa er hann starfar
fyrir.
Benedikt hefur að undanförnu
starfað sem svokallaður heimasendi-
herra. Hann hefur verið sendiherra
fjölmargra fjarlægra ríkja, eins og
Japan, Kína og Tælands og Ástralíu
en hefur haft aðsetur og skrifstofur
í utnaríkisráðuneytinu í Reykjavík.
Ágreiningur sendiherrans og
utanríkisráðherra snýst um það að
hingað til hefur það tíðkast að
heimasendiherrar heimsæki einu
sinni á ári þau lönd er þeir starfa
fyrir. Eftir að Jón Baldvin Hanni-
balsson tók við starfi utanríkisráð-
herra hafa þessi ferðalög verið skor-
in niður og hefur Benedikt m.a.
verið í ferðabanni allt þetta ár.
Benedikt hefur farið fram á að
verða leystur frá störfum frá og með
1. september. SSH
Atvinnulaus-
ir 2.500
í maílok
Skráð atvinnuleysi minnkaði ekk-
ert frá april til maí. f stað þeirra sem
fengu vinnu kom atvinnulaust skóla-
fólk á skrá. Atvinnuleysi í maí
svaraði til þess að 1.800 manns hafi
að meðaltali vantað starf allan maí-
mánuð, sem er rúmlega þrefalt fleiri
en í maí i fyrra. Þann 31. maí s.l.
voru 2.510 manns skráðir atvinnu-
lausir á landinu öllu. Þar af voru
1.600 á skrá í Reykjavík, hvar af
námsmenn töldu 660 manns.
Ekki aðeins eru atvinnuleysistölur
fyrir maí svo að segja óbreyttar frá
aprílmánuði yfir landið í heild. Þær
eru einnig nær óbreyttar í hverjum
landshluta fyrir sig og sömuleiðis á
nær öllum stöðum innan landshlut-
anna.
Einu verulegu breytingarnar eru
að atvinnulausum fjölgaði úr engum
í 12 í Stykkishólmi, úr 14 í 20 á
Fáskrúðsfírði og úr 45 í 65 atvinnu-
lausa allan maímánuð á Stöðvar-
firði, sem er hlutfallslega mjög há
tala. Aftur á móti fækkaði þeim úr
38 í 6 á Vopnafirði og úr 10 niður í
5 í Breiðdalsvík.
Af öllum atvinnulausum voru
55% konur og 45% karlar. - HEI
Heildargrálúðuaflmn
orðinn 41 þúsund tonn
Heildargrálúðuaflinn það sem af
er árinu er orðinn 41.731 tonn,
samkvæmt bráðabirgðatölum Fiski-
félags íslands, en á sama tímabili í
fyrra var grálúðuaflinn 34.235 tonn.
Meginhluti grálúðuaflans veiddist í
maí, en þá voru veidd samtals 29.794
tonn. Þorskafli sem af er árinu var
frá janúar til maí samtals 187.115
tonn en var í fyrra á sama tímabili
180.914 tonn, en ef miðað er við
þorskafla í maí, þá veiddust 25.423
tonn í maí á þessu ári, en í fyrra á
sama tíma veiddust 29.262 tonn.
Heildarafli allra skipa í maí nam
76.482 tonnum, þar af var afli togara
45.878 tonn og vó grálúðan um 28
þúsund tonn og þorskur 8.127 tonn.
Afli báta á sama tíma var 25.807
tonn, þar af var þorskur 13.174 tonn
og afli smábátá var 4.797 tonn, þar
af var þorskur 4.122 tonn.
Frá janúar til loka maí, hafa
945.440 tonn borist á land og eru þá
allar tegundir taldar saman, það er
réttum 2000 tonnum minni afli en á
sama tímabili í fyrra. Heildarafli
togara á þessu tímabili var 168.794
tonn, báta 759.625 tonn, munar þar
mestu um loðnuna og afli smábáta
var rúm 17 tonn.
Af einstökum löndunarstöðum
barst mest á land í Vestmannaeyj-
um, eða 6.974 tonn, en í sama
mánuði í fyrra bárust 5.857 tonn á
land. Næst kemur Hafnarfjörður
með 6.935 tonn, þá Reykjavík með
5.999 tonn, Akureyri með 3.803
tonn, Grindavík með 3.563 tonn,
Sandgerði með 3.389 tonn og í
sjöunda sæti er ísafjörður með
3.155 -ABÓ
Átak í landgræðslu gengur vonum framar:
Tugir milljóna renna
í landgrædsluátakið
íslenska þjóðin hefur tekið mjög vel í söfnun Átaks í
landgræðslu og hafa þegar selst happdrættismiðar fyrir á
þriðja tug milljóna króna. Enn eru nokkrir dagar eftir því
dregið verður þann átjánda júní. Fram að því hefur verið
dregin út ein bifreið á degi hverjum síðan á laugardag, án
þess þó að nokkur hafi enn gefið sig fram sem vinningshafi.
Grétar Bergmann, fram-
kvæmdastjóri söfnunarinnar, sagði
í samtali við Tímann í gær að það
væri greinilegt að þegar samdráttur
væri mikill í þjóðfélaginu væru
draumar þjóðarinnar hvað stærstir.
„Við búum í hrjóstrugu landi og
það er greinlegt að þjóðin veit að
okkur ber skylda til að berjast fyrir
uppgræðslu þess,“ sagði Grétar.
Hann segist aldrei hafa unnið að
söfnun eða happdrætti sem náð
hefur jafn víðtækum undirtektum
og þessi. Nefndi hann sem dæmi að
bjartsýnir menn hefðu gert sér
vonir um að fá 16-17 milljónir
króna til landgræðslu með þessu
happdrætti.
Sveinn Runólfsson, land-
græðslustjóri, sagði í samtali við
Tímann, að hann væri afar ánægð-
.ur með framtaksemi þessa hóps
sem stendu að Átaki til land-
græðslu. Allurágóði söfnunarinnar
núna mun renna til forgangsverk-
efna víða um land á vegum Land-
græðslunnar. Landgræðslusvæði
við Mývatn, og í uppsveitum Rang-
árvalla-, Ámes- og Skaftafellssýsl-
um eru efst á blaði en vfða um land
em minni eða stærri forgangsverk-
efni. - KB