Tíminn - 15.06.1989, Qupperneq 19
Fimmtudagur 15. júní 1989
Tíminn 19
lllllllllllllllll IÞRÚTTIR lllllli:ijljlllllllllllllllii:;lTI'IIIIIIIIIIIIIIIIIIBI:íj1'llllllllllllllllllllllil;l.l^^ .............-................III................. ........................................................................ ..................................................II
Körfuknattleikur - NBA-deildin:
Detroit Pistons
NBA-meistarar
Kareem Abdul-Jabbar lék sinn síðasta leik er Lakers töpuðu titlinum
Það fór eins og við spáðum hér á
Tímanum, Detroit Pistons varð
NBA-meistari 1989. í fyrrinótt sigr-
aði liðið meistarana frá því í fyrra,
Los Angeles Lakers, 105-97, á
heimavelli Lakers í Forum-höllinni í
Kaliforníu. Sigurinn var sá fjórði í
röð hjá liðinu, en Lakers-liðið náði
MARGT SMÁTT
Madrid. Real Madrid tryggði
sér um helgina fjórða meistaratitil-
inn í röð, með 3-0 sigri á Espanol.
Liðið hefur nú fjögurra stiga forskot
á Barcelona þegar tveimur umferð-
um er ólokið. Barcelona getur ekki
unnið titilinn þó liðið vinni báða
leikina sem eftir eru og Real Madrid
tapi. Real Madrid hefur sigur og
jafntefli úr innbyrðis viðureignum
liðanna og samkvæmt knattspyrnu-
reglum á Spáni ráða innbyrðisviður-
eignir séu tvö lið jöfn.
Miinchen. Nýorðnir v-þýskir
meistarar í knattspyrnu, Bayern
Múnchen, hafa keypt Skotann Alan
Mclnally frá Aston Villa. Kaupverð-
ið mun vera 1 milljón sterlings-
punda. Mclnally skoraði 22 mörk
fyrir Villa á nýliðnu keppnistímabili.
Houston. Forráðamenn banda-
ríska frjálsíþróttasambandsins hafa
farið fram á það að heimsmet Ben
Johnsons í 100 m hlaupi, 9,83 sek.
sem hann setti í heimsmeistara-
keppninni í Róm 1987, verði dæmt
ógilt. Johnson hefur játað að hafa
neytt steralyfja undanfarin ár, þar á
meðal í júní og júlí 1987, en metið í
Róm féll 30. ágúst. Johnson stóðst
lyfjapróf eftir methlaupið, en ljóst
er að hann hafði engu að síður neytt
lyfja fyrir keppnina. Verði metið
dæmt ógilt, þá mun heimsmetið í
100 m hlaupi verði 9,92 sek. en Carl
Lewis hljóp á þeim tíma í hlaupinu
fræga í Seoul s.l. haust.
London. Wibledon hefur losað
sig við miðjumanninn Vinny Jones.
Það var 2. deildarlið Leeds sem
keypti Jones fyrir 650 þúsund pund.
Jones er ekki í hópi prúðustu leik-
manna Englands, hann náði því
vafasama takmarki með Wibledon
að vera 4 sinnum rekinn af leikvelli
á 22 mánuðum.
Mtpptð hér
ekki að vinna leik og tapaði því
viðureigninni 4-0.
Lakers hafði yfir í fyrri hálfleik,
mest 16 stig og Lakers-liðið var enn
yfir þegar fjórði leikhluti hófst. Sem
fyrr átti Joe Dumars stórleik á
lokamínútunum og varamiðherji
liðsins, James Edwards skoraði öll
sín 13 stig í fjórða leikhlutanum.
Edwards kom Detroit yfir 89-86, er
hann skoraði úr einu vítaskoti eftir
að brotið hafði verið á honum er
hann skoraði 2 stig. Isiah Thomas
var einnig mjög mikilvægur og hann
skoraði 3 mjög mikilvægar körfur á
lokamínútunum.
Lakers tókst ekki að jafna og
Detroit sigraði 105-97 og 4-0 saman-
lagt í viðureign liðanna.
Detroit Pistons vann nú loks
meistaratitilinn, en liðið var mjög
nálægt því í fyrra. Liðið hefur aldrei
áður í rúmlega 40 ára sögu sinni náð
því að sigra í NBA-deildinni.
Joe Dumars, skotbakvörður De-
troit-liðsins, var eftir leikinn út-
nefndur besti leikmaður úrslita-
keppninnar. Dumars átti hvern stór-
leikinn á fætur öðrum, en í fyrrinótt
skoraði hann alls 23 stig.
Lakers-liðið lék aftur án bakvarð-
anna Earvin „Magic" Johnson og
Byron Scott, en þeir eru báðir
meiddir á ökkla. James Worthy setti
persónulegt stigamet í leiknum, er
hann varð stigahæstur í Lakers-lið-
inu með 40 stig.
Síðasti leikur Jabbars
Maðurinn sem gjarnan er nefndur
besti körfuknattleiksmaður heims
fyrr og síðar, Kareem Abdul-
Jabbar, lék sinn síðasta leik í fyrri-
nótt.
Þegar Jabbar fór af leikvelli og 19
sekúndur voru til leiksloka. risu
áhorfendur úr sætum sínum og hylltu
manninn. sem í 20 ár hefur heillað
körfuknattleiksunnendur með leik
sínum í NBA-deildinni. Jabbar, sem
er 42 ára gamall, á að baki 1.560 leiki
í NBA-deildinni, sem er met. Hann
á ófá metin í deildinni, met sem
sjálfsagt verða aldrei slegin.
Þjálfari Lakers, Pat Riley, er
þeirrar skoðunar að Kareem Abdul-
Jabbar sé mesti íþróttamaður sög-
unnar. Nánar verður sagt frá ferli
Jabbars síðar. BL
Mjólkurbikarkeppnin:
Víðismenn til
Grindavíkur
Viðureign Suðurnesjaliðanna
Víðis úr Garði og Grindvíkinga,
verður stórleikur 3. umferðar
Mjólkurbikarkeppninnar í knatt-
spyrnu/Bikarkeppni KSÍ. Leikur-
inn verður háður í Grindavík, þar
sem 2. deildarlið Breiðabliks mátti
þola ósigur í 2. umfcrðinni.
Grindavíkurliðið leikur sem kunn-
ugt er í 3. deild, en er til alls líklegt
í sumar. Víðismenn leika í 2. deild.
En drátturinn í 3. umferð fór
þannig:
Augnablik-ÍBV
Grindavík-Víðir
Stjarnan-Selfoss
Þróttur R.-Víkverji
Tindastóll-Völsungur
Leiknir F.-Huginn
Þegar 3. umferð er lokið, bætast
1. deildarliðin inní dráttinn fyrir 4.
umferð, þar sem 6 neðrideildarlið
úr 3. umferðinni verða einnig.
Leikur Þróttar og Víkverja verð-
ur mánudaginn 19. júní kl 20.00.
og leikur Grindvíkinga og Víðis-
manna verður þriðjudaginn 20.
júní kl. 20.00. Hinir leikirnir verða
allir miðvikudaginn 21. júní kl.
20.00.
I meistaraflokki kvenna fór
drátturinn þannig, 8-liða úrslit:
Valur-KR
Dalvík/Þór-FH
KA-Stjarnan
ÍA-UBK
Leikirnir verða allir leiknir
mánudaginn 10. júlí kl. 20.00.
BL
Byron Scott og Magic Johnson léku
ekki með Lakers í fyrrinótt er De-
troit Piston tryggði sér NB A-titilinn.
A myndinni að ofan er Rick
Mahorn, leikmaður Pistons í baráttu
við Magic Johnson. Á innfelldu
myndinni er gamli maöurinn Ka-
reem Abdul-Jabbar í sveifluskoti.
faÍB i ==t=-_L |
MARGT SMÁTT
Osló. Norðmenn töpuðu 1-2 fyrir
Júgóslövum í 5. riðli undankeppni
HM í gærkvöld. Júkkarnir komust í
2-0 með mörkum Stojkovic og Vujo-
vic sitt í hvorum hálfleik, en Fjörtovt
minnkaði muninn fyrir Norðmenn
undir lokin.
Kaupmannahöfn. Danir
rúlluðu Svíum upp í vináttulandsleik
á gærkvöld 6-0. Lars Elstrup gerði 2
mörk, en þeir Flemming Povlsen,
Henrik Andersen, Jan Bartram og
Michael Laudrup gerðu eitt mark
hver.
Pula, Júgóslavíu. Sam-
kvæmt fréttum frá Júgóslavíu er
ekki víst að heimsmeistarakeppnin í
körfuknattleik fari fram í Argentínu
á næsta ári eins og ráð var fyrir gert.
Ástæðan er sú að Argentínumönn-
um gengur illa að safna fé til móts-
haldsins og vegna stjórnarskipta í
landinu er óvíst hvort undirbúnings-
nefnd keppninnar er enn starfandi.
Litlar upplýsingar um keppnina er
að fá hjá Argentínumönnum og því
er FIBÁ viðbúið því að halda keppn-
ina annars staðar. Líklegir staðir eru
Bandaríkin, Kanada og Puerto
Rico.
IESTUNAR A/ULUN
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Árhus:
Alla þriðjudaga
Svendborg:
Annan hvern þriðjudag
Kaupmannahöfn:
Alla miðvikudaga
Varberg:
Alla fimmtudaga
Moss:
Alla laugardaga
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Tímiim
□ ER ÁSKRIFANDI
□ NÝR ÁSKRIFANDI
Dags.:
VfSA
□
□
Kortnr.:
□□□□□□□□□□□□□□□□
Gildir út: 1111 Í
Nafnnr.: 1 1'T.l.J - 1 ITI 1
ÁSKRIFANDI:.............................
HEIMILI:.................................
PÓSTNR. - STAÐUR:.................. SÍMI:
MILUFÆRSLU
ÁSKRIFTARGJ ALDS
Ég undirrituö/aður óska þess að áskriftar-
gjald Tfmans verði mánaðarlega skuld-
fært á greiðslukort mitt.
UNDIRSKRIFT.
SENDIST AFGREIÐSLU BLAÐSINS
LYNGHÁLSI 9. 130 REYKJAVÍK
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Hvassafell.........22/6
Gloucester/Boston:
Alla þriðjudaga
New York:
Alla föstudaga
Portsmouth/Norfolk:
Alla sunnudaga
SKIPADEILD
T&kSAMBAND&NS
Sambandshúsinu, Kirkjusantii
105, Reykjavík, sími 698300
1ÍÁ.Í.1Í 1 L .
!AKN TRAt JSIRA 1 LUININGA