Tíminn - 02.08.1989, Qupperneq 1
Hefur boðað frjálslyndi og framfarir í sjö tugi ára
MIÐVIKUDAGUR 2. AGUST 1989 - 150. TBL. 73. ÁRG. - VERÐ í LAUSASÖLU KR. 80,-
Verslunin í landinu hangir á horriminni og fataverslanir um allt land í mikilii sölukreppu:
Laugavegurinn
allur á útsölu
Almennur samdráttur í þjóðfélaginu, ekki
hvað síst í kaupmætti, veldur því að
kreppuástand blasir við vel flestum versl-
unarrekstri. Formaður Kaupmannasam-
takanna telur að áframhaldandi samdrátt-
ar muni gæta fram á mitt næsta ár og að
fjöldi fyrirtækja muni heltast úr lestinni.
Astandið er mjög slæmt í matvöruverslun
en í fataverslun er ástandið einnig orðið
slæmt því kaupmenn virðast hafa keypt
inn of mikið af sumarfatnaði sem þeir nú
sitja uppi með óseldan. Því eru útsölur
miklu fyrr á ferðinni og kaupmaður við
Laugaveginn sagði umfang og stærðar-
gráðu verðlækkana með ólíkindum. Hann
sagði einnig að ástandið við Laugaveginn,
þar sem útsala er í vel flestum verslunum,
væri slæmt, fólkfæri ekki gangandi lengur
í verslunarleiðangra og bílastæðamálin í
miðbænum væru í ólestri.
• Blaðsíða 5
Tímamynd: Ámi Bjarna
Grænfriðungar jDakka sér að hvalveiðum okkar er lokið í bili og breiða slíkt út um
heimsbyggðina. Sjávarútvegsráðherra gefur lítið fyrir slíka mannkynssögu:
Grænir réðu engu um
lok vísindaveiðanna
Forystumenn grænfriðunga tilkynntu á blaða- svínbeygt Islendinga og að vísindaveiðar hafi
mannafundi í Reykjavík í gær að öllum árásum verið aflagðar vegna þrýstings frá herferð þeirra.
þeirra á íslenska viðskiptahagsmuni væri nú lokið Halldór Ásgrímsson segir það fjarstæðu að græn-
þar sem sýnt væri að íslendingar myndu ekki veiða friðungar hafi einhverju ráðið um rannsóknaráætl-
hvali á næsta ári. Hafa grænir reynt að sannfæra un Hafrannsóknarstofnunar.
fjölmiðla og fyrirtæki erlendis um að þeir hafí • Opnan