Tíminn - 02.09.1989, Síða 3

Tíminn - 02.09.1989, Síða 3
Laugardagur 2. september 1989 Tíminn 3 Hundarækt í 20 ár Hundaræktarfélag íslands verður 20 ára nk. mánudag, en það var stofnað í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að íslenska fjárhundinum yrði útrýmt hér á landi. í tilefni afmælis- ins verður efnt til hundasýningar 22. október nk., en um sama leyti verður haldið hér á landi þing norrænna hundaræktarfélaga og verða dómar- ar á sýningunni fulltrúar á þessu Þingi' ... Starfsemi félagsins hefur vaxið mikið frá því félagið var stofnað, en nú eru skráðir félagar 1700 talsins. Markmið félagsins er að stuðla að ræktun og varðveislu íslenska fjár- hundsins, beita sér fyrir hreinræktun og kynbótum hundakynja, sem viðurkennd eru af Alþjóðasambandi hundaræktarfélaga. Þá er einnig markmið þess að stuðla að góðri meðferð og aðbúnaði hunda. Félögum og velunnurum er boðið að koma í félagsheimili HRFÍ að Súðarvogi 7, milli kl. 17 og 21 á afmælisdaginn og þiggja veitingar. Einn stærsti sjóbirtingur síðari tíma: 22ja punda sjó- birtingur í net Einhver stærsti sjóbirtingur síðari ára veiddist í net í Kúðafljóti, um miðjan ágústmánuð. Fiskurinn vó 22 pund og var það Loftur Runólfs- son, bóndi á Strönd í Meðallandi, sem veiddi sjóbirtinginn í ádráttar- net fyrir landi sínu. Loftur sagði í samtali við Tímann i gær að þetta væri stærsti sjóbirting- ur sem hann hefði fengið í net. Fyrir nokkrum árum fékk hann 21 punds fisk á sömu slóðum. í því tilfelli var um að ræða hrygnu sem mældist 100 sentimetrar. Stórfiskurinn nú reynd- ist vera hængur og mældist 96,5 sentimetrar. „Ég hugsa að þetta hafi ekki verið gamall fiskur. Krókurinn á neðri skolti var ekki svo stór. Þegar maður hefur veitt þessa gömlu hænga er krókurinn oft við það að fara í gegnum efri skoltinn," sagði Loftur í samtali við Tímann. Hann sagði að vissulega hefðu verið læti þegar hann fékk fiskinn í netið en hann hefði flækt sig svo rækilega að hann hefði náðst um leið. Móðir Lofts, Guðlaug Loftsdóttir, hefur búið í nábýli við Kúðafljót x 83 ár. Hún minnist þess ekki að hafa séð áður svo stóran sjóbirting. „Þetta var gríðarmikil skepna og Loftur sagði það hreint ótrúlegt að hann hefði fest í netstubbanum. Við geymum hann í frystikistu þar til tími gefst að fara með hann í reyk- ingu,“ sagði Guðlaug í samtali við Tímann í gær. Guðlaug sem er betur þekkt undir nafninu „Lauga gamla á Strönd" sagðist giska á að hausinn einn og sér væri eitt kíló. Sjóbirtingsveiðin í Kúðafljóti hef- ur ekki verið upp á það besta sem af er og sagði Guðlaug að ekki væru nema nokkrir fiskar komnir á land til þessa. Flestir væru á bilinu 4 til 14 pund. -ES ÍIÉKM SUNNY Opið: laugardag sunnudag 3K9 kl. 14-17 MICRA 3ja ára ábyrgð. Greiðslukjör í allt að 3 ár með venjulegum lánskjörum banka. Gamla bílinn upp í nýjan. Verið velkomin. JUSTY Ingvar Helgason hf. Sævarhöfða 2 - Sími 67-4000 § yfe ... mm fttiis

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.