Tíminn - 02.09.1989, Page 14
26 Tíminn
Laugardagur 2. september 1989
DAGBÓK II
Frá Félagi eldri borgara
Opnað verður aftur eftir sumarfríið í
Goðheimum, Sigtúni 3, á morgun, sunn-
udaginn 3. september.
KI. 14:00 er frjálst spil og tafl og kl. 20:00
verður dansað.
Hafnarfjarðarkirkja
Guðsþjónusta kl. 11:00. Organisti
Helgi Bragason.
Sr. Gunnþór lngason.
Háskólafyrirlestur:
„Þýskaland og tildrög
síðari heimsstyrjaldar“
í tilefni af því, að sunnudaginn 3.
september verður liðin hálf öld frá því að
síðari heimsstyrjöld hófst, flytur dr.
Bernd Wegner, sagnfræðingur frá Hern-
aðarsögustofnuninni í Freiburg í Vestur-
Þýskalandi, opinberan fyrirlestur í boði
Heimspekideildar Háskóla Islands.
Fyrirlesturinn verður haldinn kl. 15:00
sunnudaginn 3. september í stofu 101 í
Odda og nefnist „Þýskaland og tildrög
síðari heimsstyrjaldar" („Germany and
the Origins of the Second World War“).
Hann verður fluttur á ensku og er öllum
opinn.
Dr. Bernd Wegner hefur einkum getið
sér orð fyrir rit sitt um Waffen SS, þ.e.
hersveitir SS-liðsins þýska, en hann vinn-
ur nú að fjölbindaverki um sögu heims-
styrjaldarinnar á vegum Hemaðarsögu-
stofnunarinnar. Auk ritstarfa kennir dr.
Wegner við Háskólann í Freiburg. Hann
hefur flutt fjölda fyrirlestra um rannsókn-
ir sínar víða um lönd, m.a. í Bandaríkjun-
um og Finnlandi.
Sýningar í Norræna húsinu
-helgina 2. og3. sept.
Tvær sýningar verða opnaðar í Norr-
æna húsinu laugardaginn 2. september kl.
14:00.
í anddyri hússins sýnir Nanna Bisp
Búchert Ijósmyndir. Á sýningunni eru 28
myndir sem er skipt í fjórar myndraðir,
og em allflestar teknar hér á landi.
Nanna fæddist í Kaupmannahöfn árið
1937, en var búsett á íslandi um skeið og
lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1957. Hún hefur starfað
við ljósmyndun í tæpa tvo áratugi. List-
ræn og persónuleg sjónarmið hafa ávallt
setið í fyrirrúmi í myndum hennar.
Nanna Bisp Búchert hefur tekið þátt í
fjölmörgum sýningum í Danmörku auk
þess sem hún hefur haldið einkasýningar.
Sýningin í Norræna húsinu er önnur
einkasýning hennar í íslandi. Sýningin
stendur til 20. september.
1 sýningarsölum Norræna hússins opnar
Elías B. Halldórsson sýningu á olíumál-
verkum. Á sýningunni eru 50 verk máluð
1988 og 1989. Sýningin verður opin
daglega kl. 14:00-19:00 og stendur fram
til 17. september.
Hörður Ágústsson
sýnir í Nýhöfn
Laugardaginn 2. september opnar
Hörður Ágústssort sýningu í listasalnum
Nýhöfn, Hafnarstræti 18, kl. 14:00-16:00.
Á sýningunni eru portrett frá París,
teikningar unnar á ámnum 1947-’49.
Sýningin, sem er sölusýning, er opin
virka daga kl. 10:00-18:00 og um helgar
kl. 14:00-18:00. Henni lýkur 13. septem-
ber.
SKIPARADÍÓ hf. með
sýningarbíl um landið
Skiparadíó hf. verður á næstunni á ferð
um landið með sýningarbíl frá Dan-
mörku, sem hlaðinn er nýjustu siglinga-
og fiskileitartækjum frá FURUNO,
SKANTI o.fl.
2. sept. e.h. í Vestmannaeyjum
3. sept. e.h. í Grindavík
4. sept. e.h. í Sandgerði
5. sept. e.h. á Höfn Hornafirði .
6. sept. e.h. á Fáskrúðsftrði
7. sept. e.h. á Eskifirði
8. sept. e.h. á Neskaupstað
9. sept. e.h. á Neskaupstað
10. sept. e.h. á Seyðisfirði
11. sept. e.h. á Húsavík
12. sept. f.h. á Dalvík
12. sept. e.h. á Ólafsfirði
13. sept. e.h. á Siglufirði
14. sept. e.h. á Akureyri
15. sept. f.h. á Skagaströnd
15. sept. e.h. á Hvammstanga
16. sept. e.h. á lsafirði
17. sept. f.h. á ísafirði
17. sept. e.h. í Bolungarvík
18. sept. e.h. Grandagarður í Rvík
Tónleikar í Listasafni Sigurjóns
Þriðjudaginn 5. september kl. 20:30
halda Signý Sæmundsdóttir söngkona og
j'óra Fríða Sæmundsdóttir píanóleikari
tónleika í Listasafni Sigurjóns Ólafsson-
ar, Laugarnestanga 70. Fyrst á efniskkrá
er konsertaría eftir W.A. Mozart, en þá
verða flutt ljóð eftir Fr. Schubert, Ric-
hard Strauss og nokkur nútímaljóð eftir
Atla Heimi Sveinsson.
Signý Sæmundsdóttir lauk einsöngvar-
aprófi frá Tónlistarháskólanum í Vínar-
borg árið 1988. Hún hefur m.a. tekið þátt
í óperuflutningi hér heima og erlendis. Sl.
vetur fór hún með hlutverk í Ævintýri
Hoffmanns á sviði Þjóðleikhússins og
hún fer einnig með hlutverk í óperunni
Vikivaka, sem tekin var upp í Kaup-
mannahöfn í maí sl. á vegum norrænu
sjónvarpsstöðvanna.
Þóra Fríða Sæmundsdóttir lauk námi
frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið
1978 og stundaði framhaldsnám í Frei-
burg og Stuttgart. Frá árinu 1984 hefur
hún starfað sem píanóleikari og kennari í
Reykjavík og tekið þátt í ýmiss konar
tónlistarflutningi. Þóra Fríða er félagi í
Islensku Hljómsveitinni.
„Tvær konur“, svarthvít mynd frá árinu
1979 eftir Alfreð Flóka, er meðal verka
sem boðin verða upp á Hótel Borg á
sunnudaginn.
Listmunauppboð á Hótel Borg
21. Iistmunauppboð Gallerí Borgar ■
samvinnu viö Listmunauppboð Sigurðar
Benediktssonar h/f verður haldið sunnud.
3. sept. að Hótel Borg kl. 16:30.
Að þessu sinni verða boðin upp 76
verk, flest vatnslita- og olíumyndir. Með-
al verka sem boðin verða upp eru fjórar
Kjarvals-myndir, stórt olíumálverk eftir
Júlíönu Sveinsdóttur, vatnslitamynd eftir
Ásgrím Jónsson, gömul vatnslitamynd
frá París eftir Þorvald Skúlason, þrjár
myndir eftir Alfreð Flóka, gömul ab-
straktmynd eftir Eirík Smith, Heklumynd
frá 1934 eftir Gretu Björnsson, gvass-
mynd eftir Karl Kvaran, nokkrar myndir
eftir Eyjólf J. Eyfells, Ólaf Túbals og
Svein Þórarinsson.
Uppboðsmyndirnar verða sýndar í
Gallerí Borg, Pósthússtræti 9, fimmtudag
og föstudag kl. 10:00-18:00 og laugardag
kl. 14:00-18:00.
Sjóminjasafn íslands
í Hafnarfirði
Sjóminjasafn Islands er til húsa í
Brydepakkhúsi í Hafnarfirði, sem var
byggt um 1865, en hefur nú verið
endurbyggt og sniðið að kröfum safna-
húss.
Auk fastra safnmuna eru sérstakar
sýningar í safninu um tiltekin efni, t.d.
áraskipatímabilið á lslandi. Myndasýn-
ingar (myndbönd, litskyggnur og kvik-
myndir) og fyrirlestrar eru einnig hluti af
starfsemi safnsins og eru auglýst sérstak-
lega.
Elsta hús Hafnarfjarðar, hús Bjama
Sívertsen, byggt um 1803, er í næsta
nágrenni. Þar er til húsa byggðasafn
Hafnarfjarðar.
Opnunartímar Sjóminjasafnsins er yfir
sumarmánuðina (júní-sept.): Þriðjudaga-
sunnudaga kl. 14:00- 18:00.
Ég er með kveðju til ykkar frá
Child-Care International. Þessi fé-
lagsskapur er að hjálpa bömum um
allan heim sem eiga mjög erfitt. Þau
eru því miður mörg. Þau sofa á
götum úti. Ef þau geta ekki betlað
sér mat, þá reyna þau að stela.
Barnaheimilum hefur verið komið
upp víðsvegar í löndum þessum. Þar
vinnur fólk af hreinni miskunnsemi.
Þetta fólk sýnir börnunum kærleika
og góðvild og reynir að kenna þeim
mannasiði.
Góðir landar. Eigum við ekki að
taka höndum saman og borga með
einu bami 450 kr. (50 kr. danskar) á
mánuði svo að það geti fengið hús til
að sofa í og mat að borða. Væri það
ekki þökk til guðs fyrir hvað við
búum í góðu landi og höfum það
gott?
Sýning Eggerts Péturssonar
í Galleríi Sævars Karls
í Galleríi Sævars Karls, Bankastræti 9
stendur yfir sýning Eggerts Péturssonar.
Á sýningunni eru 6 málverk unnin á þessu
ári.
Eggert stundaði nám í Myndlista- og
handíðaskóla Islands 1976-’79 og við Jan
Van Eyck listaháskólann í Maastricht
1979-’8Í. Hann hefur haldið einkasýning-
ar heima og erlendis, auk þess hefur
Eggert myndskreytt bækur um plöntur og
náttúrufræði.
Sýningin stendur til 8. september og er
opin á sama tíma og verslunin í Banka-
stræti 9.
Grafíksýning Ástu Guðrúnar
á Mokka
Ásta Guðrún Eyvindardóttir sýnir graf-
íkverk á Mokka-Expresso-Kaffi, Skóla-
vörðustíg 3a, 18. ágúst til 12. september.
Ásta Guðrún lærði myndlist í Mynd-
lista- og handíðaskólanum og í Central
School of Art and Design í London, en
grafíkverkin eru frá lokaári hennar þar.
Ásta Guðrún hefur áður haldið sýning-
ar á olíuverkum í Hafnargalleríi, Hótel
íslandi og á Mokkakaffi.
Ljósmyndasýning í Slunkaríki
Sýning á ljósmyndaverkum Arthurs
Bell verður opnuð laugardaginn 2. sept-
ember í Slunkaríki á Isafirði.
Arthur Bell er Bandaríkjamaður og
stundaði nám í ljósmyndun við Listahá-
skóla Chicagóborgar og var m.a. undir
leiðsögn hins heimsfræga ljósmyndara
Aaron Siskind.
Bell hefur sýnt myndir sínar víða í
Bandaríkjunum og Mið-Ameríku, en
sýningin í Slunkaríki er sú fyrsta hérna
megin Atlantshafs.
Sýningin stendur til 17. september og
er opin fimmtudaga-sunnudaga kl. 16:00-
18:00.
Merkjasöluhelgi
Krabbameinsfélags Tslands
1.-3. september
Krabbameinsfélag Islands efnir til fjár-
söfnunar til styrktar starfsemi sinnar með
merkjasölu um allt land helgina 1.-3.
september.
Hvert merki, sem er hnappnæla, verður
selt á 200 kr. Aðildarfélög Krabbameins-
félagsins, sem eru 29 að tölu, fá um
helming af andvirði hvers selds merkis til
eigin ráðstöfunar, en hinn hlutinn rennur
. til Krabbameinsfélags íslands, sem rekur
umfangsmikla starfsemi, svo sem leitar-
starf og rannsóknir.
1 Reykjavík verður sölunni hagað
þannig, að stuðningshópar sjúklinga
standa fyrir sölu þar, en þeir hópar eru
aðilar að félaginu.
Utan Reykjavíkur munu Krabba-
meinsfélög á viðkomandi stöðum sjá um
söluna.
Stefnt er að því að sala merkja fari fram
á sjálfboðaliðagrundvelli.
Dagsferðir F.í. sunnud. 3. sept.
Kl. 10:00 Botnssúlur (1095 m) Gengið
frá Svartagili í Þingvallasveit og komið
niður í Brynjudal (1000 kr.)
Kl. 13:00 Brynjudalur. Gengið frá
Ingunnarstöðum oginndalinn. (1000kr.)
KI. 08:00 Þórsmörk-Dagsferð. (2000
kr.)
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin. Farmiðar við bíl.
Ferðafélag íslands.
Sunnudagsferðir
Útivistar 3. sept.
Kl. 08:00 Þórsmörk-Goðaland.
Stansað í 3-4 klst. í Mörkinni. (1500 kr.)
Kl. 10:30 Landnámsgangan. Leggja-
brjótur-Svartagil. Göngu-ferð um gömlu
þjóðleiðina úr Hvalfirði til Þingvalla.
Kl. 13:00 Kjósarheiði-Stíflisdalsvatn-
Brúsastaðir. Ný og skemmtileg ferð.
Brottför frá BSI, bensínsölu.
Þeir sem hafa áhuga á þessu, skrifi
á dönsku eða ensku til
Child-Care International
CCCI Rolighedsvej 17
D.K. 3500 Værlpse
Danmark
Með kveðju og þökk,
Elsa Kristjánsdóttir
Sálu þína helgi há
hugsjón líf í vömum
sendu yl frá innstu þrá
öllum sorgar börnum
Hreinni þinni haltu trú
hjartans eyddu klaka
sofðu aldrei þegar þú
þarft og átt að vaka
Jón Einarsson frá Leynimýrl
Ólafur Þ.
Þórðarson
GuðmundurG.
Þórarlnsson
Bíldælingar athugið
Ólafur Þ. Þórðarson og Guðmundur G. Þórarinsson mæta á
almennum stjórnmálafundi á Bíldudal mánudaginn 4. september kl.
21.00.
Allir velkomnir.
Ólafur Þ.
Þórðarson
GuðmundurG.
Þórarinsson
Þétur
Bjarnason
Tálknfirðingar athugið
Ólafur Þ. Þórðarson, Guðmundur G. Þórarinsson og Pétur Bjarnason
mæta á almennum stjórnmálafundi á Tálknafirði þriðjudaginn 5.
september kl. 21.00.
Allir velkomnir.
Patreksfirðingar og
nágrannar athugið
Ólafur Þ. Þórðarson, Guðmundur G. Þórarinsson og Pétur Bjarnason
mæta á almennum stjórnmálafundi á Patreksfirði miðvikudaginn 6.
september kl. 21.00.
Allir velkomnir.
Dýrfirðingar athugið
Ólafur Þ. Þórðarson, Guðmundur G. Þórarinsson og Pétur Bjarnason
mæta á almennum stjórnmálafundi á Þingeyri fimmtudaginn 7.
september kl. 21.00.
Allir velkomnir.
Konur Suðurlandi
Landsþing LFK verður haldið að
Hvanneyri dagana 8.-10. sept-
ember n.k.
Félag framsóknarkvenna í Árnes-
sýslu gengst fyrir rútuferð á þingið
frá Eyrarvegi 15, Selfossi kl. 17.00
föstudaginn 8. september og til
baka að loknu þingi.
Þær konur sem vilja vera með,
tilkynni þátttöku í síma 63388,
sem fyrst.
Ath. þingið er opið öllum konum.
Fjölmennum.
Félag framsóknarkvenna
(Árnessýslu.
LFK
\
\
ijif
Kjördæmisþing
Kjördæmisþing framsóknarmanna á Vestfjörðum verður haldið í
Félagsheimili Patreksfjarðar þann 15. september n.k. og hefst kl. 17.
Dagskrá samkvæmt samþykktum. Nánar auglýst síðar.
Stjórn K.F.V.
Sumartími:
Skrifstofa Framsóknarflokksins, að Nóatúni 21 í Reykjavík, er opin
alla virka daga frá kl. 8.00-16.00.
Framsóknarflokkurinn.
Kópavogur - Opið hús
Kópavogi hafa opið hús á miðvikudögum kl.
Framsóknarfélögin
17.30 til 19.00.
GODIRISLENDINGAR!