Tíminn - 02.09.1989, Síða 19
Laugardagur 2. september 1989
Tíminn 31
S!™ KA manna
Það verður hart barist í þeim leikjum sem eftir eru í 1. deild. Þessi mynd er úr leik Fylkis og Víkings
á dögunum. Tímamynd Árni Bjama.
Islandsmótið í knattspyrnu:
er mjög vænleg
— Þrjár umferðir eftir í 1. deild Islandsmótsins
— Fer íslandsmeistaratitillinn í fyrsta sinn norður?
Um helgina verður 16. umferð
íslandsmótsins í knattspyrnu leikin.
Staðan er mjög jöfn og spennandi
bæði á botni og toppi deildarinnar.
Fimm Uð geta orðið Islandsmeistarar
og fimm Uð geta falUð í 2. deild. Um
næstu helgi verður síðan 17. umferð-
in leikin og 18. og síðasta umferðin
fer fram laugardaginn 16. septem-
ber.
Varla verður ljóst fyrr en í síðustu
umferð hvaða lið hreppir titilinn að
þessu sinni. Baráttan stendur milli
fjögurra liða, KA, KR, FH og Fram,
en Skagamenn eiga einnig mögu-
leika á titlinum.
Prjú lið berjast við að verða ekki
í tveimur neðstu sætum deildarinnar
og þar með falla í 2. deild. Víkingar
og Valsmenn geta einnig fallið en
líkurnar á því eru mjög litlar.
Ekki er úr vegi að spá í þá leiki
sem eftir eru.
KA: KA-liðið stendur mjög vel að
vígi. Liðið leikur í dag gegn Fylki á
heimavelli og á síðan eftir leiki gegn
vængbrotnum Valsmönnum á
heimavelli og Keflvíkingum á úti-
velli í síðustu umferðinni. Mjög
líklegt er að Keflvíkingar verði þeg-
ar fallnir í 2. deild þegar sá leikur fer
fram. Liðið ætti því að geta unnið
alla þessa leiki eða jafnvel gert
jafntefli í einum þeirra, þar sem hin
toppliðin eiga öll eftir innbyrðis
leiki. Par að auki hefur KA eins stig
forystu í deildinni.
KR: Á morgun þurfa KR-ingar að
mæta Frömurum á Laugardalsvelli,
tæpri viku eftir að hafa beðið lægri
hlut fyrir liðið í úrslitum bikarkeppn-
innar. KR-ingar hafa því harma að
hefna í leiknum í dag og kemur það
þeim til góða. Síðan eiga KR-ingar
eftir heimaleik gegn Þór og loks
útileik gegn Val. Ólíklegt er annað
en KR tapi stigi eða stigum úr
þessum leikjum, en hafa ber í huga
að liðið er á uppleið um þessar
niundir.
FH: FH-ingar leika í dag gegn
Skagamönnum á Kaplakrika, en þar
töpuðu þeir einmitt stórt í bikar-
keppninni fyrr í sumar. FH-ingar
hafa því harma að hefna í dag. Síðan
eiga FH-ingar eftir útileik gegn Vík-
ingi og heimaleik gegn Fylki. Vinni
Hafnfirðingarnir í dag getur allt
gerst, en síðasti leikur þeirra gegn
Fylki gæti orðið erfiður verði staða
Fylkis þannig að þeir geti bjargað
sér frá falli með því að sigra í
leiknum. Nokkuð erfiðir leikir fram-
undan hjá FH-liðinu og leikurinn í
dag líklega sá erfiðasti.
Fram: Möguleikar Fram eru fyrst
og fremst fólgnir í því að KA tapi
stigi eða stigum. Fram leikur á
morgun gegn KR á Laugardalsvelli,
en sá leikur er sálfræðilega mjög
erfiður. Þá eiga Framarar eftir úti-
leik gegn Skagamönnum og gegn
Víkingum. Erfiðir leikir og mun
erfiðari en þeir leikir sem KA á eftir.
Geri Framarar jafntefli við KR á
morgun eru möguleikar beggja liða
á titlinum orðnir hverfandi.
ÍA: Skagamenn eiga enn mögu-
leika á titlinum. Þeir eiga eftirerfiða
leiki, gegn FH á útivelli í dag og
síðan heimaleik gegn Fram og útileik
gegn Þór í síðustu umferðinni. Þórs-
arar gætu orðið erfiðir í þeim leik, ef
þeir gætu bjargað sér frá falli með
því að sigra. Vinni Skagamenn alla
þessa leiki og Fram og KR gera
jafntefli á morgun, þurfa KR-ingar
og FH-ingar að gera annað jafntefli
til og KA að tapa og gera jafntefli.
Nokkuð langsótt leið fyrir ÍA að
tryggja sér titilinn en engu að síður
möguleg.
Valur: Valsmenn geta hugsanlega
bæði fallið og orðið Islandsmeistarar
sé dæmið grannt skoðað. Til þess að
svo mætti verða þyrftu úrslit leikja
að verða í meira lagi óvænt og
hagstæð. Valsmenn eiga eftir heima-
leik gegn Þór í dag, útileik gegn efsta
liðinu KA og heimaleik gegn KR.
Líklegt er að Valsliðið haldi sig við
miðju deildarinnar úr því sem komið
er, enda varla til stórræðanna úr
þessu.
Víkingur: Víkingar eru mjög lík-
lega búnir að bjarga sér frá falli.
Liðið á eftir að leika gegn Keflvík-
ingum mjög erfiðan leik í dag og
síðan heimaleik gegn FH og útileik
gegn Fram. Eitt stig til viðbótar úr
þessum leikjum og þá er liðið mjög
líklega öruggt um sæti sitt í deildinni
að ári.
Þór: Þórsarar eiga mjög erfiða
leiki eftir í deildinni. Útileik í dag
gegn Val, útileik gegn KR og heima-
leik gegn Skagamönnum. Ef liðið
fær ekki stig úr þessum leikjum og
Fylkir vinnur Keflavík í næst síðustu
umferðinni, þá blasir 2. deildin við
liðinu. Eitt stig til viðbótar gæti
verið nóg fyrir liðið, sem hefur mun
betri markatölu en Fylkir.
Fylkir: Fylkismenn eru í erfiðri
aðstöðu. Þeir eiga eftir að leika gegn
KA nyrðra í dag og varla geta þeir
talist líklegir til sigurs í þeim leik,
síðan eiga þeir eftir að leika gegn
Keflavík á útivelli og FH á heima-
velli. Sigur gegn Keflavík gæti orðið
liðinu til bjargar ef Þór nær ekki að
gera jafntefli eða hvað þá sigra.
Keflavík: Keflvíkingar eru svo til
fallnir í 2. deild. Aðeins kraftaverk
getur bjargað liðinu úr þessu. ÍBK á
eftir að leika gegn Víkingum heima
í dag, Fylki á útivelli og KA á
útivelli. Liðið þarf að vinna Fylki og
gera jafntefli við Víking til þess að
eiga möguleika og þá má Þór ekki fá
stig og Fylkir aðeins fá eitt stig til
viðbótar. BL
Staðan í
1. deild:
KA . 15 7 6 2 24-13 27
. 15 7 5 3 24-17 26
FH . 15 7 5 3 20-13 26
Fram .... . 15 8 2 5 19-13 26
Akranes.. . 15 7 2 6 15-16 23
Valur . . . . . 15 6 3 6 16-14 21
Víkingur . . 15 4 5 6 22-24 17
Þór . 15 3 6 6 16-23 15
Fylkir .. . . . 15 4 1 9 15-28 13
Keflavik . . . 15 2 5 8 15-25 11
Landsþing LFK
4. landsþing Landssambands framsóknarkvenna haldið á Hvanneyri
8.-10. september 1989
Fyrirlesarar:
Atvinnumal framtíðarinnar
Sigrún Magnúsdóttir
borgarfulltrúi
Lilja Mósesdóttir
hagfræðingur ASÍ
Martha Jensdóttir
verkefni.sstjóri
Umhverfis- og samgöngumál:
Karin Starrin
varaform. Miðflokks
kvenna i Sviþjóð
ísland og Evrópubandalagið:
Hermann Sveinbjörnss.
umhverfisfræðingur
Magdalena Sigurðard.
landsstjórnarkona
Páll Pétursson GerðurSteinþórsdóttir
form. þingflokks fulltrúi í fræðslunefnd
framsóknarmanna umíslandog
Evrópubandalagið
Dagskrá:
Föstudagur 8. sept. 1989
Kl. 17.30 Rútuferð frá Reykjavík.
Kl. 19.30 Komið að Hvanneyri.
Kl. 20.00 Létt máltíö.
Afhending gagna.
Kl.22.00 Samverustund í umsjón Félags framsóknarkvenna
Árnessýslu.
Laugardagur 9. sept. 1989
Kl. 07.00 Sund - morgunganga - teygjur.
Kl. 07.45 Morgunverður.
Kl. 09.00 Þingsetning.
Unnur Stefánsdóttir formaður LFK.
Kjör embættismanna þingsins.
Skýrsla stjórnar.
a) Formanns LFK, Unnar Stefánsdóttur
b) Gjaldkera LFK, Ingu Þyríar Kjartansdóttur
Umræður um skýrslu stjórnar.
Kl. 10.15 Kaffihlé.
Kl. 10.35 Ávörpgesta
Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir, vararitari Framsóknar-
flokksins.
Gissur Pétursson, formaður SUF.
SigurðurGeirdal, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins.
Kl. 11.00 Atvinnumál framtíðarinnar:
a) Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi.
b) Lilja Mósesdóttir, hagfræðingur.
c) Martha Jensdóttir, verkefnisstjóri.
Pallborðsumræður.
Kl. 12.30 Matarhlé.
Kl. 14.00 Ræða Steingríms Hermannssonar, formanns Framsókn-
arflokksins.
Fyrirspurnir til formannsins.
Kl. 15.00 Umhverfis og samgöngumál:
a) Karin Starrin, varaform., Miðflokks kvenna í Svíþjóð.
b) Hermann Sveinbjörnsson, umhverfisfræðingur.
c) Magdalena Sigurðardóttir, landsstjórnarkona.
Pallborðsumræður.
Kl. 16.15 Miðdegishressing.
Kl. 16.35 Lagabreytingar - Sigrún Sturludóttir.
Umræður um lagabreytingar - afgreiðsla.
Kl. 17.00 Stjórnmálaályktun lögð fram - Valgerður Sverrisdóttir.
Kl. 17.10 Umræðuhópar starfa.
Kl. 18.30 Útivist - ganga - skokk - sund o.fl.
Kl. 20.00 Kvöldverður - ávörp gesta.
Fulltrúi frá Noregi
Fulltrúi frá Finnlandi
Valgerður Sverrisdóttir, alþ.m.
Kvöldvaka í umsjón kvenna á Vesturlandi.
Háttatími óákveðinn.
Sunnudagur 10. sept. 1989.
Kl. 08.00 Sund - morgunleikfimi.
Kl. 08.30 Morgunverður.
Kl. 09.30 Kosningar.
Kl. 10.00 fsland og Evrópubandalagið:
a) Páll Pétursson, formaður þingflokks
Framsóknarflokksins.
b) Gerður Steinþórsdóttir, fulltrúi í fræðslunefnd um fsland
og Evrópubandalagið.
Fyrirspurnir.
Kl. 11.00 Umræðuhópar skila áliti - umræður.
Kl. 12.00 Rútuferð til Borgarness.
Bærinn skoðaður og heimsókn í Kaupfélag Borgfirðinga.
Kl. 14.00 Umræður um framhaldið og afgreiðsla mála.
Kl. 16.30 Þingslit.
Kl. 16.40 Síðdegiskaffi í boði Kjördæmissambands Vesturlands.
Heimferð þingfulltrúa.