Tíminn - 21.09.1989, Page 6

Tíminn - 21.09.1989, Page 6
6 Tíminn Fimmtudagur 21. september 1989 Timinn MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og _____Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Aöstoðarritstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason Indriði G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason OddurÓlafsson BirgirGuðmundsson Eggert Skúlason Steingrímur Glslason Skrifstofur: Lyngháls 9, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Frá og með 1. ágúst hækkar: Mánaðaráskrift i kr. 1000,-, verð i lausasölu i 90,- kr. og 110,- kr. um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 660,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Spurning um lýðræðishugsun Hvað á að nota sterk orð í pólitískum skrifum dagblaða? Svo vandasamri spurningu mætti svara með því að segja: Ekki sterkari en þörf gerist. Petta svar er ekki út í hött, heldur felst í því hvort tveggja, að menn fari ekki að venja sig á stóryrði stóryrðanna vegna, en séu þó menn til að nefna hlutina réttum nöfnum þegar tilefni er til þess. Morgunblaðið flutti um síðustu helgi ritstjórnarskrif, sem hlutu að vekja andúð lýðræðissinnaðs fólks. Blaðið er þar að fjalla um fjárhagserfiðleika samvinnu- hreyfingarinnar. Það sem frá eigin brjósti blaðsins kemur eru að vísu frekar meiningarlausar vangaveltur eins og þegar tvílráða maður er að reyna að komast að einhverri niðurstöðu. Það sem óhug vekur hjá lýðræðislega sinnuðu fólki er sú upplýsing Morgunblaðsins, að innan Sjálfstæðis- flokksins eigi sú skoðun umtalsverðan hljómgrunn að flokkurinn eigi að beita áhrifum sínum til þess að lama samvinnuhreyfinguna sem rækilegast. Tíminn „leyfði sér“ í ritstjórnargrein sl. þriðjudag að vekja athygli lesenda sinna á alvöru þessara pólitísku upplýsinga. í grein Tímans eru hlutirnir vissulega nefndir „réttum nöfnum“ í tilefni þess, hversu óprúttin og andlýðræðisleg sú hugsun er sem Morgunblaðið upplýsir að sjálfstæðismenn ali með sér í garð andstæðinga sinna. Reyndar verður það ekki skilið, hvers vegna sjálf- stæðismenn líta samvinnuhreyfinguna slíku heiftar- auga sem þeir gera, miðað við þá frasa sem oftast eru á vörum þeirra um hollustu flokksins við frjálslyndi og fjölhyggju. Um þessa þverstæðu í lýðræðishugsun margra sjálfstæðismanna verður ekki fjallað hér frekar að sinni, enda nægilegt að benda lesendum á hana til umhugsunar. Hvað felst í lýðræðis- og fjölhyggjustefnu Sjálfstæðisflokksins? „That’s the question“, sagði Hamlet. Steinullarverksmiðjan Steinullarverksmiðjan hf. á Sauðárkróki hefur starf- að nokkur ár. Þrátt fyrir ýmsan rekstrarvanda og byrjunarerfiðleika eru miklar vonir bundnar við fram- tíð fyrirtækisins. Eignaraðilar að Steinullarverksmiðjunni eru margir, þ. á m. ríkissjóður, Sauðárkróksbær og samvinnu- hreyfingin. Einn erlendur aðili á hlut í verksmiðjunni, finnska fyrirtækið Partek. Þessi erlendi eignaraðili hefur aukið hlutafjáreign sína í fyrirtækinu úr 8% í 28% í sambandi við hlutafjárhækkun sem stjórn Steinullarverksmiðjunnar stendur nú fyrir. Samstarfið við finnska fyrirtækið er Steinullarverk- smiðjunni afar mikilvægt, bæði í fjárhags-, tækni- og markaðsmálum. Partek ræður yfir góðum steinullar- mörkuðum, sem nú opnast Steinullarverksmiðjunni frekar en áður. Hlutafjáraukning Finna í fyrirtækinu er auk þess siðferðilegur styrkur og vísbending um að hér er um lífvænlega atvinnustarfsemi að ræða. Skynsamlegt samstarf við útlend fyrirtæki um rekstur og markaðsmál er íslenskum fyrirtækjum oft mikið hagsmunamál eins og ýmis dæmi sanna. Illlllllllllllllllllllll GARRI llllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll Ferill byltingarmanns í fyrrakvöld gat að líta í sjón- varpi athyglisveröa fræðslumynd um Kúbu, þar sem stiklað var á stærstu atburðum í sögu þessa eyríkis frá því er Fiedel Castro gerði byltingu sína 1958, hratt úr valdastóli einvaldinum Batista og hóf að reyna að koma á því ríki fríðar og lýðræðis sem hann hafði boðað. Þeir sem muna þessa tíma geta borið um að valdatöku Castro var fagnað víðast hvar í heiminum. Undirrítaður minnist þess til dæmis vel er Alþýðublaðið birti stóra mynd af hinum nýja leiðtoga Kúbu undir yfirskriftinni „Castro - tákn hinna lýðræðissinnuðu og hug- djörfú“. Það var heldur ekki ástæða til annars en dást að þessum unga og hugumstóra byltingarforingja. Sú stjórn er frá hrökklaðist var samsett af grimmlyndum þýjum, sem sóuðu bandarískri fjárhagsað- stoð í skrauthallir og annan munað. Helstu tekjulindir aðrar, auk syk- ursins, sem ólæs og undirokaður landslýðurínn sáði til og uppskar fyrir nær enga umbun, var stór- felldur bílífisiðnaður Havana. Þar gátu efnamenn hvaðanæva að velt sér í öllum hugsanlegum lystisemd- um og spilavíti og vændi dafnaði sem hvergi annars staðar. Þetta var stjórnarfar, sem í flestu minnti á ríki Papa Doc á granneyjunni Haiti. Það voru því engin undur að aUir sæmilegir menn litu Castro og fyrírætlanir hans með velvild. En eitt var að gera byltingu og annað að ráða fram úr gífurlegum vandamálum sem við blöstu, er rétta skyldi efnahaginn af og bæta hag almennings. Því miður tóku stjórnvöld í Washington Castro með fyrirvara, enda talsmenn fyrri stjómar áhrifamildir þar á bæ, og fyrr en varði dró í sundur og tók að skerast í odda. Því hefur verið haldið margsinnis fram að það hafl í rauninni veríð Bandaríkin sjálf, sem hröktu Kúbu í fang Sovétríkj- anna og það er aUs ekki tilhæfú- laust. Með tregðu og fyrirvörum Bandaríkjanna um viðskipti við landið kom senn að því að Castro varð að leita í aðrar áttir og því fór sem fór. Sovétmenn sáu sér færi á að ná fótfestu við strönd erkióvinar síns og buðu Castro útrétta hönd. Bandaríkjaforseti brá á óviturleg ráð með stuðningi við hina mis- heppnuðu innrás við Svínaflóa og ijandskapur með löndunum gerðist fullur. Sú freisting að notfæra sér sovéska efnahagsaðstoð fór vax- andi og leiddi senn til fullkominnar þjónkunar við Sovétríkin af hálfu Castro, svo sem þá er hann tók þá áhættu að Ijá Sovétríkjunum að- stöðu fyrír árásareldflaugar ■ landi sínu. Þótt framkvæmd þeirrar fyrírætlunar yrði afstýrt munaði minnstu að hún steypti heiminum út í þríðju heimsstyrjöldina og hefur hætta á slíku aldrei orðið meiri en þá. Kúbumenn tóku nú upp þá stefnu að feta veginn til kommún- isma að sovéskri fyrirmynd, enda höfðu þeir ekki annað að bjóða til endurgjalds fyrír þá aðstoð sem þeir hlutu og fór æ vaxandi, en fullkomna fylgispekt. Efnahagur- inn stóð enda á brauðfótum, er engir kaupendur þjóðarafurðanna buðust á Vesturlöndum lengur. Er freistandi að hugsa sér þann mögu- leika að Bandaríkin hefðu tekið kúbönsku byltingunni af meirí víð- sýni og að þróun mála hefði orðið gæfulegrí fyrir þá sjálfa fyrir vikið, en þó einkum kúbönsku þjóðina. Lítil ástæða er til að ætla að Fiedel Castro hafl ætlað sér að Kúba héldi þá leið sem raun varð á í upphafi, og sjálfsagt hafa marx- iskar kenningar ekki skipað mikið rúm í huga hans í byrjun. Hann hefúr vafalaust aldrei séð land sitt fyrir sér sem „sovétríki“, með öllum þess iUleysanlegu ágöUum - vöruskorti, biðröðum og fábreyttu og gleðisnauðu mannlífi, sem glöggt gat að líta í umræddri heim- ildamynd og var á engan hátt gerð tíl þess að draga úr áUti Castro. Þeim framförum sem orðið hafa voru gerð góð skU, en þær felast m. a. í vel skipulagðri heilbrigðisþjón- ustu og því að ungbarnadauði er minni á Kúbu en í mörgum þróuð- um ríkjum. Þarna er vissulega um merkUegan árangur að ræða. Fram eftir árum var Kúba eigi að síður hið fyrirheitna land margra byltingarhópa í S-Ameríku og kempur úr kúbönsku byltingunni eins og Che Guevara urðu dýrUng- ar róttækra hópa víða um heim, ekki síst á dögum ’68 kynslóðarinn- ar svonefndu. Einnig um hann gerist nú hljótt og byltingarfyrír- mynd sú er Kúbanir voru hefur vatnast út ■ vel búnum herflokkum, sem þeir lána út og suður um S - Ameríku og eru ekki til þess fallnir að kveikja hugsjónaelda í brjóstun um lengur. Enda sýndi heimUda myndin annan Castro í dag en á sjötta áratugnum: þreyttan og tor trygginn alvald, sem löngu er svipt ur öUum rómantískum draumsýn um. Garrí VÍTT OG BREITT Fjaðrafok og f ramkvæmdir { sögunni hans H. C. Anderse um kjaftaganginn varð ein fjöðu að fimm hænum, eða urðu þa níu? Sú ágæta saga hefst með þ^ að hæna sem var að snyrta sig upj á priki í hænsnakofanum miss fjöður, sem sveif niður á kofagól ið. Upp kom sá kvittur að púta væri að reyta af sér fjaðrirnar til a ganga í augun á hananum. Saga gekk á meðal hænsnanna og eft því sem fleiri sögðu hana magnað- ist hún svo að loks lágu margar hænur í valnum eftir að hafa reytt af sér allar fjaðrirnar til að vekja athygli hanans. Snyrtingin sem hófst svo settlega varð að óttaleg- um harmleik í meðförum allra þeirra sem börnuðu söguna æ ofan í æ. Þessi ágæta dæmisaga H.C. Andersen er klassísk, eins og önn- ur verk snillingsins og er heimfærð upp á ýkjur og misskilning og er ávallt eins tímabær og þegar hún var fyrst sögð. Opinberar byggingafram- kvæmdir á íslandi eru famar að draga dám af sögunni um fjöðrina sem varð að fímm hænum, eða eru þær níu? Það er byggt eitthvað allt annað og margfalt meira en upphaflega stóð til. Áætlanagerð Leikfangageymslan á barnaleik- vellinum við Barónsborg er hroll- vekjandi dæmi um hvernig bygg- ingarlistin leysir úr læðingi stór- huga framkvæmdasemi og flott- ræfilshátt þeirra sem trúað er fyrir að byggja eða framkvæma fyrir opinbert fé. Tíminn skýrði frá byggingarsög- unni í gær. í meðförum allra hlut- aðeigandi varð einföld leikfanga- geymsla, sem lítið átti að leggja í, að allreisulegu húsi, sem þolir alla vinda og veður, einangrað og upp- hitað og kostar á aðra milljón. Trésmiður hjá Reykjavíkurborg sagði blaðinu, að vinnubrögðin við útileikfangageymsluna væru hin sömu og flugstövðarskrímslið á Keflavíkurflugvelli. Allan tímann á maðan á framkvæmdum stóð var breytt og bætt, rifið niður og byggt upp aftur og var engu líkara en að engar teikningar væru til af húsinu né áætlanir um hvemig gera átti það úr garði. Öllu því bandóða liði sem þar vélaði um í sambandi við Leifsstöð tókst að koma kostnaði á annan milljarð fram úr áætlunum og hefur aldrei getað gefið neinar viðhlít- andi skýringar á allri þeirri hand- vömm sem einkenndi áætlanagerð og framkvæmdir. Það virðist sama hvort byggja á einfalda geymslu fyrir útileikföng á barnavelli eða flugstöð á alþjóðleg- um flugvelli, engar áætlanir stand- Ýkjur og verktök Fjármálaráðherrann okkar var nýverið að þyrla upp einhverju fjaðrafoki vegna flugstöðvarinnar og tilkynnti þjóðinni að sjálfsagt væri að flugfarþegar og fyrirtæki á vellinum borguðu allt óhófið, því fjárhagsáætlanirnar eru enn vit- lausari en byggingaáætlunin á sín- um tíma. Vill Ólafur Ragnar að allur óviðráðanlegi fjármagns- kostnaðurinn verði greiddur af fyrrnefndum aðilum. Ríkið á ekk- ert aflögu til þeirra hluta. Þetta er auðvitað rétt hjá fjár- málaráðherra og ágætur áróður fyrir markaðsbúskap, þar sem hver þáttur efnahags- og athafnalífs á að skila hagnaði, eða að minnsta kosti standa undir sér. En ekki dettur fjármálaráð- herra, fremur en öðrum í hug, að inna þá sem í stórræðunum stóðu eftir hvort þeir séu ekki aflögufærir að borga eitthvað upp í allan þann kostnað sem þeir hlóðu á flug- stöðvarbygginguna. Auðvitað eru þeir ekki ábyrgir fremur en neinir aðrir í þessu þjóðfélagi. Um fáráðlingana sem hvorki kunna að byggja leikfanga- geymslu né flugstöð er ekki hægt að segja annað en að þeim sé fyrirgefið, því þeir vita ekki hvað þeir gjöra. Sá er munurinn á dæmisögunni um hvemig ein fjöður verður að mörgum hænum og verklagni opin- berra byggingameistara á íslandi, að í sögunni ágætu er það aðeins orðrómurinn sem magnast, en hér verður að búa við að það eru klyfjarnar á skattborgarana sem aukast þegar ýkjurnar milli opin- berra trúnaðarmanna og verktaka magnast. OÓ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.