Tíminn - 21.09.1989, Qupperneq 18
18 Tíminn
Fimmtudagur 21. september 1989
Handboltapunktar
(slandsmótiö
.hefst senn
Senn líður að því að keppni á
íslandsmótinu í handknattleik
1989-1990 hefjist. Mótið verður
sett föstudaginn 29. september, en
keppni í 1. deild karla hefst ekki
fyrr en laugardaginn 7. október. í
vetur muna allir leikir fara fram á
laugardögum kl. 16.30 og verður
heil umferð leikin samtímis. Helm-
ingur mótsins í I. deild verður
leikinn fyrir jól og síðan 3 umferðir
í janúar. Þá verður gert hlé vegna
heimsmeistarakeppninnar. Síð-
ustu umferðirnar verða síðan
ieiknar í mars og apríl. Síðasti
leikdagur í 1. deild verður 21.
apríl, en viku síðar verður leikið til
úrslita í bikarkeppninni.
Hákon og Guöjón
dæmdu í Svíþjóö
Hákon Sigurjónsson og Guðjón
L. Sigurðsson B-alþjóðadómarar
dæmdu í sumar á Nordic Open í
Svíþjóð, en mótið fór fram í byrjun
júlí. Alls dæmdu þeir félagar 7
leiki á mótinu.
Haustfundur
dómara 1989
Dómaranefnd HSÍ hefur boðað
alla landsdómara í handknattleik
til fundar á Hótel Selfossi 30.
september til 1. október n.k. Á
fundinum verður farið yfir nýjar
reglur og nýjar túlkanir rækilega
kynntar. Ennfremur munu dómar-
ar gangast undir skrifleg og líkam-
leg próf.
Stefán og Rögnvald
dæma á Spáni
Tveir íslenskir dómarar, þeir
Stefán Arnaldsson og Rögnvald
Erlingsson dæma þessa dagana á
heimsmeistarakeppni landsliða 21
árs og yngri á Spáni.
Dómarar tryggðir
Handknattlciksdómarar verða í
vetur tryggðir gegn hvers konar
siysum eða skakkaföllum í leikjum
og í ferðum til og frá leik innan
lands sem utan. Tryggingar þessar
cru hluti af samningi Hanknatt-
leiksdómarasambands íslands og
Vátryggingafélags íslands.
Dómaralistinn
Hér á eftir fer listi yfir þau
dómarapör sem dæma munu leiki í
efstu deildum í vetur. Hér er ekki
um endanlegan lista að ræða.
Pörunum er hér ekki endilega
raðað eftir styrkleika.
1. Rögnvald Erlingsson
Stefán Arnaldsson
2. Gunnar Kjartansson
Óli Ólsen
3. Guðjón L. Sigurðsson
Hákon Sigurjónsson
4. Egill Már Markússon
Kristján Sveinsson
5. Gunnar Viðarsson
Gunnlaugur Hjálmarsson
6. Þórður Sigurðsson
Þorsteinn Einarsson
7. Guðmundur Stefánsson
Guðmundur Lárusson
8. Gísli Jóhannsson
Hafsteinn Ingibergsson
9. Kjartar. Steinbach
Einar Sveinsson
10. Guðmundur S. Stefánsson
Birgir Ottósson
11. Erlendur Sigurðsson
Runólfur Sveinsson
12. Davíð B. Gíslason
Jón Ö. Kristinsson
13. Örn Markússon
Guðmundur Sigfússon
14. Þórir Sandholt
Marinó Njálsson
15. Guðmundur Kolbeinsson
Þorgeir Pálsson
16. Arnar Guðlaugsson
Pálmi Pálmasön
17. Guðmundur Sigurbjörnsson
Þorlákur Kjartansson
18. Árni Sverrisson
Aðalsteinn Örnólfsson
Handknattleikur:
Enn reynast sænskir
markverðir erfiðir
Veggtennis:
ÍÞRÓTTIR
* 7K
Samkeppni um
íslenskt nafn!
Tillögum skal skila
á skrifstofu (þrótta- og tómstundaráðs
Fríkirkjuvegi 11
fyrir 15. október n.k.
merkt (TR - hugmyndasamkeppni.
Tillögur afhendist í lokuðu umslagi
undir dulnefni og me§ fylgi annað umslag
með nafni höfundar.
(þrótta- og tómstundaráð skipar fimm manna
dómnefnd með fulltrúum frá ÍTR og unglingum.
Veitt verða ein verðlaun kr! 50.000,-fyrir bestu
tillöguna. Ef fleiri en ein tillaaa með sama nafni
berst verður dregið á milli höfunqa um 1. verðlaunin.
Niðurstöður i samkeppninni verða kynhtar í nóvember.
íþrótta- og tómstundaráð óskar einnig eftir tillögum og
hugmyndum barna, unglinga og foreldra um starfsemi í
húsinu fyrir börn og unglinga. ^
Tillögur sendist (TR
Fríkirkjuvegi 11
merkt - starfsemi ~ fyrir 15. október.
Þeir aðilar sem óska eftir afnotum af húsnæðinu fyrir
fundi, ráðstefnur og skemmtanir er bent á að hafa
samband við skrifstofu ÍTR í síma 622215.
lNÖTTA-0a 1ÖMSTUaOA«AB
REYKJAVlKUR
Eins og kunnugt er hefur Reykjavíkurborg
veitingahúsið „Broadway" við Álfabakka í Reykjavík.
íþrótta- og tómstundaráð mun taka við rekstri
hússins frá og með 1. nóvember n.k.
Hér með er auglýst eftir tillögum um
íslenskt nafn á staðinn.
ísland varö enn einu sinni aö láta í minni pokann fyrir Svíum
íslenska liðið er nú í 3. sæti í mótinu.
sínum milliriðli með 4 stig, en liðið
á frí í kvöld. Á morgun verður leikið
gegn Pólverjunr, sem eru neðstir í
riðlinum og nægir íslenska liðinu
líklega að vinna þá með 3-4 mörkum
til þess að leika um 5-6 sætið í
Það ætlar að ganga erfiðlega fyrir
íslensk landslið að sigrast á frændum
okkar Svíum. Einkum hefur það
reynst erfitt í handknattleiksíþrótt-
inni og ■ gærkvöld varð íslenska 21
árs landsliðið að gera sér 5 marka
tap að góðu þegar leikið var gegn
Svíum í milliriðli heimsmeistara-
mótsins á Spáni. Svíar sigruðu 23-18
eftir að hafa verið yfír í hálfleik.
íslenska liðið hóf leikinn af krafti
og náði 3-0 forystu. Svíar jöfnuðu og
leiddu síðan lengst af fyrri hálfleiks
og voru eins og áður segir 11-9 yfir í
hálfleik.
Síðari hálfleikur var íslendingum
erfiður. Héðinn Gilsson fékk að líta
rauða spjaldið hjá dómurunum og
Sigurður Bjarnason varð fyrir smá
meiðslum og gat ekki leikið. Yngri
og óreyndari leikmennirnir tóku við,
léki mjög góða vörn, en illa gekk að
koma knettinum framhjá sænska
markverðinum, en hann varði ein 27
skot í leiknunt oft úr dauðafærum.
Að sögn Stefán Carlssonar læknis
íslenska liðsins var leikurinn ágæt-
lega leikinn að beggja hálfu, en
markvarslan gerði gæfumuninn.
Okkar markverðir fundu sig ekki í
leiknum, meðan sá sænski var í
banastuði. Stefán ver allt annað en
hress með dómgæsluna í lciknum og
taldi að Svíar hafi hagnast veruleg á
henni.
Mörkin: Konráð Olavson 4, Þor-
steinn Guðjónsson 4, Einar Sigurðs-
son 2, Halldór Ingólfsson 2, Héðinn
Gilsson 2, Davíð Gíslason 1, Júlíus
Gunnarsson 1, Árni Friðleifsson 1
og Sigurður Bjarnason 1. BL
Knattspyrna:
Ætlar að höfða mál
gegn félaga sínum
Fyrir ruddaskap á æfingum
Toni Kubos framherji franska
liðsins Nice, hyggur á málsókn
gegn félaga sínum í Nice-liðinu,
Fabien Piveteau markverði.
Ástæðan er sú að markvörðurinn
sparkaði í andlit framherjans á
æfíngu í síðustu viku.
Kobos varð að fara á sjúkrahús
eftir atvikið, þar sem saumuð voru
nokkur spor inní munn hans, en
einnig hlaut hann vægan heilahrist-
ing.
Piveteau þessi mun víst ekkert
lamb að leika sér við, því í fyrsta
leik Nice á keppnistímabilinu í júlí
s.l. var hann rekinn af leikvelli
fyrir að hrínda dómaranum. í kjöl-
farið hlaut hann 7 leikja bann. Nú
hefur Nice-liðið sett hann í ótíma-
sett bann og dæmt hann í sektir og
hótað honum að samningur hans
við félagið yrði ógiltur. Þá var
Piveteau einnig dæmdur í sektir
fyrír að móðga félaga sinn í liðinu.
Þá er komið ráð gegn grófum
leikmönnum á æfíngum. Nú höfða
menn einfaldlega mál gegn þeim
sem ganga of langt. BL
Sex nýir salir teknir
í notkun við Gullinbrú
Þar af eini löglegi racketball salurinn á landinu
Tekið hefur verið í notkun að
Stórhöfða 17 á Reykjavík eina sér-
hannaða veggtennishús landsins.
Það er Squash-Klúbburínn sem
starfrækir 6 sali í húsinu, 5 squash
sali og 1 racketball sal. Sá salur er sá
eini löglegi hér á landi, ef frá eru
skildir tveir salir hersins á Keflavík-
urflugvelli.
Húsið er allt hið glæsilegasta enda
sérhannað með þessa starfsemi í
huga. í sölunum sjálfum eru veggir
úr steypu með sérstakri harðri múr-
húð sem þolir 650 kg högg á fersenti-
metra. Sérfræðingar frá Bretlandi
önnuðust múrunina á þessari hörðu
steypu og einnig lögðu þeir parket-
gólfið í sölunum sex.
Búningsklefar eru rúmgóðir og
hægt er að bregða sér í „sauna“ að
tennisleiknum loknum. Öll hrein-
lætisaðstaða er til fyrirmyndar og
sérstök salerni eru fyrir fatlaða eins
og lög gera ráð fyrir.
Squash-Klúbburinn er opinn alla
virka daga frá kl. 11-23 og 11-20 um
helgar. Verð á einstökum tímum er
1.050 kr. en fastir vikulegir tímar
kosta 900 kr. Skólanemar njóta
sérstakra vildarkjara, því þeir greiða
aðeins 500 kr. fyrir tímann. BL
Þorvaldur Olafsson starfsmaður Squash-Klúbbsins fyrir framan hina nýju og glæsilegu sali að Stórhöfða 17.
Tímamynd Pjetur