Tíminn - 14.12.1989, Qupperneq 12
12 Tíminn
Fimmtudagur 14. desember 1989
BÆKUR
Ástandið -
Mannlíf á
hernámsárum
Út er komin bókin Ástandið —
Mannlíf á hernámsárum eftir
Bjarna Guðmarsson sagnfræðing
og Hrafn Jökulsson blaðamann.
Ástandið er leiftrandi fjörug og
sannferðug lýsing á samskiptum
íslendinga við erlent herlið á
stríðsárum; dregnar eruupp hinar
ýmsu myndir sem þessi samskipti
tóku á sig, s.s. Bretavinnu, brask
og sprúttsölu, skemmtanalíf og
þjóðrembu svo fátt eitt sé nefnt.
Fyrst og fremst greinir bókin þó
frá ástum íslenskra kvenna og
hermanna, umraeðum um slík
sambönd og opinberum
viðbrögðum gegn „ástandinu".
Aragrúi fólks er leiddur til
sögunnar og kennir þar margra
grasa: kenningaglaðir ráðherrar,
áhyggjufullur landlæknir,
stórhuga lögreglumenn, lausmáll
bóksali, þjóðhollir fylliraftar,
vonsviknir karlmenn, lifsþyrstir
dátar og góðhjartaðar drósir. Þá
segir frá Tom Beldon sem lærði á
sex vikum að bera fram orðið
„súkkulaði", Drífu Höddu sem
vildi verða Ameríkani, Tarsan sem
hrelldi ibúa Sjafnargötunnar og
Wise höfuðsmanni sem óttaðist
að missa af heimsstyrjöldinni.
Við samningu bókarinnar
studdust höfundar við bækur og .
blöð, skýrslur og ýmis skjöl. Þá
ræddu þeir við fjölda fólks sem
man þessa tíma og verður ekki
annað sagt en að sínum augum líti
hver á málin. „Ástandið" er
mörgum viðkvæmt, en hér er
tekinn sá kostur að segja frá á
gamansaman og hispurslausan
hátt. Víst er að Ástandið - Mannlíf
á hernámsárunum mun verkja
umtal, einkum fyrir það að í
bókinni er tekið á ýmsum þáttum
sem enn þykja feimnismál í
íslensku samfélagi. Öllum mun þó
bera saman um að hér er á ferðinni
bæði heiðarleg og lifandi lýsing á
umróti stríðsáranna. Bókin er
prýdd fjölda ljósmynda og
teikninga sem margar hverjar
hafa ekki birst fyrr; eykur það enn
á gildi hennar.
Bókaforlagið Tákn gefur út.
Dulmál
dódófuglsins
Minningaþættir Jóhönnu
Kristjónsdóttur
Vaka-Helgafell hefur gefið út
bókina Dulmál dódófuglsins eftir
Jóhönnu Kristjónsdóttur. Bókin
ber undirtitilinn Á ferð með
augnabUkinu um f ramandi lönd.
Hér eru nýjar og á köflum mjög
ævintýralegar minningar
Jóhönnu Kristjónsdóttur frá
ferðalögum um framandi lönd, en
sama forlag gaf á síðasta ári út
ferðaminningar af svipuðu tagi
undir nafninu Fíladans og
framandi fólk. Sú bók hlaut mjög
lofsamlega dóma.
í kynningu Vöku-Helgafells á
þessari nýjustu bók Jóhönnu
Kristjánsdóttur segir meðal
annars:
1 Dulmáli dódófuglsins lýsir
Jóhanna ferðum sinum til tíu
fjarlægra landa. Hún kemur meðal
annars við í Rúanda, á Marítíus og
Malawi, í írak, ísrael og Túnis og
ræðir þar jafnt við höfðingja,
hirðingja og hjákonur og nálgast
fólkið af varfæmi en jafnframt
glettni þannig að frásögnin verður
í senn Úfleg og sönn.
Lesandinn upplifir atburði sem
allt eins gætu átt heima í
spennusögu þvi oft er tvísýnt um
það hvort Jóhönnu tekst að
sleppa úr ýmiss konar háska sem
hún lendir í. 1 bókinni Dulmál
dódófuglsins er umfram allt
einlæg og næm frásögn af lifi í
framandi löndum en um leið
ævintýraleg ferðasaga.
Jóhanna Krístjónsdóttir er
þjóðkunn fyrir ritstörf sín og
blaðamennsku undanfama tvo
áratugi. Hún starfar hjá
Morgunblaðinu en ver flestum
sínum frístundum til ferðalaga um
framandi slóðir.
„Það er forvitni sem rekur mig
áfram — undursamlega forvitin
forvitni, “ segir Jóhanna í
inngangskafla Dulmáls
dódófuglsins. „Hún eykst við
hvert ferðalag. Ég hef þörf fyrir
nýja staði, nýtt fólk, nýja siði.“
Ennfremur segir hún; „Ferðalög
em mér alltaf ævintýri og
litbrigðin verða fjölþættari eftir
þvi sem víðar er farið."
Dulmál dódófuglsins skiptist í
ellefu kafla og er í bókinni fjöldi
mynda frá þeim löndum sem leið
Jóhönnu hefur legið til. Aftast í
bókinni em kort sem Gunnar H.
Ingimundarson hefur gert og
fróðlegar upplýsingar um löndin
sem koma fyrir í bókinni sem geta
nýst þeim sem eiga eftir að fara á
þessar slóðir.
Prentsmiðjan Oddi annaðist
prentvinnslu en GBB-
Auglýsingaþjónustan hannaði
kápu.
Jakinn í blíðu
og stríðu
Vaka-Helgafell hefur gefið út
bókina Jakinn í blíðu og stríðu
eftir Ómar Valdimarsson. Hér er
um að ræða þætti af æviferli
verkalýðsforingjans Guðmundar
J. Guðmundssonar en um fáa
íslenska menn hefur staðið
jafnmikill styr síðustu áratugi.
Bókin um jakann er á þriðja
hundrað síður og skiptist efni
hennar 124 kafla en auk frásagna
Guðmundar er þar að finna kafla
þar sem Elín Torfadóttir,
eiginkona Guðmundar, rifjar upp
ýmislegt úr endingargóðu
hjónabandi þeirra.
Guðmundur J. Guðmundsson
hefur staðið í fylkingarbrjósti
íslenskrar verkalýðshreyfingar
allt frá lokum seinni
heimsstyrjaldar. Sömuleiðis hefur
hann verið málsvari hennar á
Alþingi. Alla tíð hefur gustað um
jakann og flestir lslendingar hafa
orðið að taka afstöðu til hans.
í bókinni Jakinn í bliðu og stríðu
fjallar Guðmundur um opinber
samskipti sín og lesandinn fær að
gægjast á vak við tjöldin og gerir
Guðmundur upp málin við ýmsa
pólitíska andstæðinga og
samherja sína. En jafnframt segir
hann sögu sina og margra
annarra. Fjöldamargar persónur
koma upp á yfirborðið með
jakanum.
í kynningu Vöku-Helgafells
segir meðal annars:
Frásagnargleði Guðmundar
skín ávallt í gegnum textann,
sömuleiðis samúð hans með þeim
sem minna mega sín. Djúpur
þjóðfélagsskilningur ásamt
mannlegri hlýju og kimni eru
undirtónar bókarinnar.
Ómar Valdimarsson
blaðamaður, sem er þjóðinni að
góðu kunnur, hefur fært sögu
jakans á bók. Honum tekst að lýsa
persónu Guðmundar svo vel að
hann birtist lesendum sínum
ljóslifandi á síðum bókarinnar.
Jakinn er athyglisverð bók um
óvenjulegan mann, einn
stórbrotnasta verkalýðsleiðtoga
sem íslendingar hafa eignast.
Þetta er í senn hressileg bók og
notaleg lesning.
Prentstofa G. Benediktssonar
annaðist prentvinnslu og
Amarfell sá um bókband. GBB-
Auglýsingaþjónustan hannaði
kápu en Magnús Hjörleifsson tók
kápumynd.
/ ' R\RH,\RA |
®artland
Auðug og ófrjáls
Fjötrar
auðsins
Bókaútgáfan Skuggsjá hefur
sent frá sér nýja skáldsögu eftir
Barböru Cartland sem nefnist
Auðug og ófrjáls.
Til þess að bjarga föður sínum
frá skuldafangelsi giftist Crisa
Silas P. Vanderhault. Nokkrum
mánuðum síðar er Crisa orðin
ekkja eftir einn auðugasta mann
Ameríku. En hvað stoða auðævi
þegar Vanderhault-fjölskyldan
heldur henni eins og fanga í gylltu
búri? Hún flýr og á leiðinni til
Englands gerast óvæntir og
örlagaríkir atburðir.
Sigurður Steinsson þýddi.
Skýjaborgir
unglings-
áranna
Út er komin bókin
Hversdagsskór og skýjaborgir
eftir Björgúlf Ólafsson. Þetta er
bráðskemmtileg og fyndin saga
um unglingsárin og lýsir hún
daglegu lífi unglinga, væntingum
þeirra, sorgum og gleði á hlýlegan
og sannfærandi hátt.
Björgúlfur hefur áður birt
smásögur en þetta er hans fyrsta
skáldsaga.
Hversdagsskór og skýjaborgir
er 206 blaðsíður og er hún gefin
út innbundin. Þórhedlur Þráinsson
hannaði kápu, prentsmiðjan
Viðey prentaði. Prentþjónustan
Metrí gefur bókina út í samráði við
höfund.
I.................Illll DAGÐÓK illlll'' ■ 1!!!l:|:|lllllllllllllllllllllllllllll!lIi! ..illlllillllllllllllllllllll
Ruth Hansen við eitt verk sitt á
sýningunni.
Listkynning á Akureyri
Menningarsamtök Norðlendinga og
Alþýðubankinn hf. kynna að þessu sinni
listakonuna Ruth Hansen. Hún er fædd á
Akureyri 1944.
Á árunum 1974-’81 sótti Ruth nám-
skeið í Myndlistarskólanum á Akureyri.
Ruth er ein þeirra sem staðið hafa að
Myndhópnum og hefur tekið þátt í sam-
sýningum hópsins allt frá 1979.
Ruth hefur haldið 2 einkasýningar í
Gamla Lundi á Akureyri 1985 og á
Selfossi sama ár. Þá hefur hún tekið þátt
í fjölda samsýninga víðar á Norðurlandi.
Á listkynningunni eru 9 málverk unnin
með olíu á striga og eru 2 verkanna frá
1985 en önnur frá árinu 1989.
Kynningin er í útibúi Alþýðubankans
hf. á Akureyri, Skipagötu 13, og er opin
á afgreiðslutíma. Henni lýkur 2. febrúar
1990.
i
Jólatónleikar
Kirkjukórs Akraness
Hinir árlegu jólatónleikar Kirkjukórs
Akraness verða sunnud. 17. des. kl, 17:00
í safnaðarheimilinu Vinaminni.
Flutt verður fjölbreytt dagskrá og tón-
list frá hinum ýmsu tímaskeiðum tónlist-
arinnar.
Með kórnum koma fram einsöngvar-
arnir Guðrún Ellertsdóttir, Helga Aðal-
steinsdóttir, Unnur Arnardóttir og Dröfn
Gunnarsdóttir.
Hljóðfæraleikarar eru: Fríða Lárus-
dóttir píanó, Guðjón Magnússon 1. fiðla,
Guðlaugur Ingi Hauksson 2. fiðla, Bryn-
dís Bragadóttir lágfiðla, Ásdís Arnardótt-
ir knéfiðla og Eðvarð Lárusson gítar.
Stjórnandi er organleikari kirkjunnar,
Einar Öm Einarsson.
Frá Félagi eldri borgara
.{dag er opið hús í Goðheimum, Sigtúni
3. Kl. 14:00 er frjáls spilamennska, kl.
19:30 félagsvist og kl. 21:00 dansað.
Lokað verður í Goðheimum vegna
jólaleyfis frá og með 18. des. n.k. Opnað
verður aftur 7. janúar.
Göngu-Hrólfar hittast laugardaginn 16.
des. kl. 11:00 að Nóatúni 17. Farið verður
í Kringluna 4 og borðað á Kringlukránni.
Að loknum hádegisverði verður farið í
Útvarpshúsið á Saumastofudansleik.
Síðastu gönguferð ársins er þá lokið
með fyrrgreindum hætti, en gengið verður
mót hækkandi sól laugardaginn 6. janúar
1990.
Tónlistarvika Laugarneskirkju
Fimmtudaginn 14. desember verða
stuttir hádegistónleikar og kyrrðarstund í
Laugarneskirkju kl. 12:00. Auk orgel-
leiks verður altarisanga og fyrirbænir, en
eftir stundina í kirkjunni er boðið upp á
heita súpu og brauð í safnaðarheimilinu.
Mótcttukór Hallgrímskirkju syngur Id.
20:30 í kirkjunni. Stjómandi er Hörður
Áskelsson. Kórinn flytur m.a. mótettu
eftir J.S. Bach „Jesus, meine Freude" og
enska jólasöngva.
Sölustaðir minningar-
korta HJARTAVERNDAR
Reykjavík:
Skrifstofa Hjartaverndar, Lágmúla 9, 3.
hæð, sími 83755 (Gíró)
Reykjavíkur Apótek, Austurstr. 16
Dvalarheimili aldraðra, Lönguhlíð,
Garðs Apótek, Sogavegi 108
Bókabúðin Embla, Völvufelli 21
Árbæjar Apótek, Hraunbæ 102A
Bókabúð Glæsibæjar, Álfheimum 74
Kirkjuhúsið, Klapparstig 27
Vesturbæjar Apótek, Melhaga 20-22.
Kópavogur:
Kópavogs Apótek, Hamraborg 11
HafnarQörður:
Bókabúð Olivers Steins, Strandg.31
Sparisjóður Hafnarfjarðar
Kefluvík:
Rammar og gler, Sólvallag. 11
Apótek Keflavíkur, Suðurg. 2
Gunnar R. Bjamason sýnir
í Bókasafni Kópavogs
Nú stendur yfir sýning á 13 myndum
Gunnars R. Bjamasonar í Bókasafni
Kópavogs. Myndirnar em allar málaðar
með olíupastellitum á pappír.
Gunnar lærði lciktjaldamálun og vann
árum saman sem slíkur við Þjóðleikhúsið
en hefur nú tekið við starfi yfirleikmynda-
teiknara Þjóðleikhússins. Hann á að baki
gerð mikils fjölda leikmynda fyrir Þjóð-
leikhúsið og önnur leikhús. Hann hefur
einnig verið hönnuður fjölda vömsýn-
inga, svo sem iðnsýninga, búvöm- og
landbúnaðarsýninga og margs konar sér-
sýninga.
Gunnar hefur haldið þrjár einkasýning-
ar á myndverkum í Ásmundarsal, Nor-
ræna húsinu og í sl. september í Hafnar-
borg í Hafnarfirði. Hann hefur einnig
tekið þátt í samsýningum myndlistar-
manna og leikmyndateiknara í Reykjavík
og Kaupmannahöfn.
Gunnar hefur hlotið margs konar
viðurkenningar fyrir list sína, m.a. verð-
laun úr Menningarsjóði Þjóðleikhússins,
styrk frá Alþjóðasamtökum leikhúsfólks
(ITI) til námsdvalar erlendis, starfslaun
listamanna og viðurkenningar fyrir hönn-
un sýningarbása.
Sýningin verður opin á sama tíma og
Bókasafnið til áramóta. Mánudaga til
föstudaga kl. 10:00-21:00 og laugardaga
kl. 11:00-14:00.
Sýning Gríms Marinós
ÍB0RGUM
Nýlega var opnuð sýning á verkum
Gríms Marinós Steindórssonar í Safnað-
arheimili Kársnessóknar, Borgum, vestan
Kópavogskirkju. Sýningin er opin virka
daga kl. 17:00-19:00 og um helgar kl.
15:00-19:00 og stendur til 29. desember.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Grímur Marinó er fæddur í Vest-
mannaeyjum 1933. Hann stundaði mynd-
listarnám hjá Kjartani Guðjónssyni og
Ásmundi Sveinssyni 1950-'52. Einnig hef-
ur hann notið tilsagnar hjá listmálurunum
Pétri Friðrik og Veturliða. Tvívegis hefur
hann farið í námsferðir til Bandaríkj-
anna.
Grímur lauk námi í járniðnaðargrein-
um 1978 og hefur einkum fengist við slík
störf, en auk þess gegnt vitavarðarstörf-
um við Galtarvita og Hombjarg og gætir
veru hans á þessum stöðum víða í verkum
hans. Grímur Marínó hefur haldið marg-
arsýningar og tekið þátt í samsýningum.
Á sýningunni í Borgum em klippi-
myndir og verk úr málmum og steinum.
Mexíkanskur dagur í
Háskóla íslands
Föstudaginn 15. desember stendur
Spænskudeild Háskóla íslands og Félag
spænskunema fyrir „Mexíkönskum
degii’.
Hátíðin'nc.r_ með fyrirlestri um Mex-
íkó í dag. Fyrirleyjj.er Luis Comez doc.
pht. frá Sorbonne háskóla og lektor
FélagsfræðideildarMexflkyiúriíú)a..Hon-
um til aðstoðar verður Sigurður Hjartar-
son. Fyrirlesturinn verður í stofu 422 í
Ámagarði U. 16:00-18:00.
Kl. 19:30 hefst mexíkönsk veisla í
Stúdentakjallaranum undir nafninu „Pos-
ada Mexicana". Þar verður á boðstólum
mexikanskur matur og drykkir.
Allir sem áhuga hafa em velkomnir.
Miðaverð á matinn er kr. 1500. Frekari
upplýsingar hjá Sigrúnu í síma 78896.
Félag spsenskunema