Tíminn - 14.12.1989, Blaðsíða 17

Tíminn - 14.12.1989, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 14. desember 1989 Tíminn 17 BÆKUR SPEGILL Maríuhænan - Gestur í garðinum eftir Jóhönnu Á. Steingrímsdóttur Maríuhænan hefur borist með jólagreninu í blómagarð á íslandi þar sem hún hefur tekið sér bólfestu í stóru öspinni ásamt gullsmið, hunangsflugu og ótal smádýrum. Þarna mynda þau dálítið samfélag þar sem ýmis átök verða. Ógnvaldur þessa samfélags er þrösturinn sem á sér hreiður í öspinni og lítur á aðra íbúa hennar sem gómsæta bita. Skemmtilegt, fallega myndskreytt ævintýri úr íslenskri náttúru. Bókin er myndskreytt af Hólmfríði Bjartmársdóttur. Prentun og bókband: Prentsmiðjan Oddi hf. MARIUHÆNAN gestur i garðinum rLVí\i\og i Mnr Akranes BASAR - BASAR Basarinn sem féll niður á laugardaginn vegna óviðráðanlegra orsaka verður haldinn fimmtudaginn 14. desember kl. 16.30 til 20.00 í framsóknarhúsinu við Sunnubraut. Mikið úrval fallegra jólamuna. LFK. Freyjukonur - Hörpukonur Jólafundur Freyju í Kópavogi verður haldinn að Hamraborg 5,3. hæð fimmtudaginn 14. desember n.k. kl. 20.30. Hörpukonur í Hafnarfirði eru boðnar á fundinn. Verið allar velkomnar. Stjórnin. m Suðurland Skrifstofa kjördæmissambands framsóknarfélaganna, Eyrarvegi 15, Selfossi er opin mánudaga og f immtudaga kl. 15-17, sími 98-22547. Lítið inn, kaffi á könnunni. Stjórn KSFS. Reykjanes Skrifstofa kjördæmissambandsins, Hamraborg 5, Kópavogi, 43222, er opin mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga, kl. '7-19. K.F.R. s. Kópavogur - Opið hús Framsóknarfélögin í Kópavogi hafa opið hús á miðvikudögum kl. 17.30 til 19.00. Framsóknarfólk Norðurlandi vestra Skrifstofur Framsóknarflokksins og Einherja, Suðurgötu 3 á Sauðár- króki, verða fyrst um sinn opnar mánudaga kl. 13-17 og þriðjudaga og miðvikudaga kl. 9-12, sími 36757. Jólahappdrætti Framsóknarflokksins Dregið verður 23. desember n.k. Velunnarar flokksins eru hvattir til að greiða heimsenda gíróseðla fyrir þann tíma. Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eða í síma 91-24480. Framsóknarflokkurinn. Jólaalmanak S.U.F. 1989 Gerið skil og leggið baráttunni lið. Allar frekari upplýsingar í síma 91-24480 eða 91-21379 og á skrifstofunni, Nóatúni 21, Reykjavík. Velunnarar, látið ekki happ úr hendi sleppa. 1. des. 1. vinningur nr. 5505. 9.des. 17. 2. vinningur nr. 579 18. 2. des. 3. vinningur nr. 4348 10.des. 19. 4. vinningur nr. 2638 20. 3. des. 5. vinningur nr. 2656 11.des. 21. 6. vinningur nr. 2536 22. 4. des. 7. vinningur nr. 4947 12.des. 23. 8. vinningur nr. 1740 24. 5. des. 9. vinningur nr. 1341 13.des. 25. 10. vinningur nr. 4997 26. 6. des. 11. vinningur nr. 5839 14.des. 27. 12. vinningur nr. 5839 28. 7. des. 13. vinningur nr. 1937 14. vinningur nr. 3035 8. des. 15. vinningur nr. 1996 16. vinningur nr. 3860 Samband ungra framsóknarmanna. vinnmgur nr. vinningúr nr. vinningur nr. vinningur nr. vinningur nr. vinningur nr. vinningur nr. vinningur nr. vinningur nr. vinningur nr. vinningur nr. vinningur nr. 1840 4217 3935 5514 546 1164 5442 3569 5943 4362 1617 3647 Brigitte Bardot með nokkra af hundum sínum meðan allt Iék í lyndi í húsi hennar í St. Tropez, en nú eru hundar bannaðir á ströndinni, svo hún flutti burt með dýrin. Brigitte Bardot á „litla hvíta tjaldinu“ í Frakklandi: „Guðmóðir dýranna“ - er titillinn sem börn í Frakklandi hafa gefið Brigitte Bardot eftir sjónvarpsþætti hennar Fyrir tuttugu árum var Brigitte Bardot það fyrsta sem kom í hug- ann ef minnst var á kynbombu, - en tímarnir breytast, og nú er það dýravernd sem almennt er sett í samband við nafn hinnar frægu kvikmyndastjörnu. Sjálf segist Brigitte hlæja að frama sínum í kvikmyndunum. Hún segist vera búin að gleyma út á hvað myndirnar gengu og hún geti ómögulega sett myndirnar í samband við daglegt líf sitt í dag. Brigitte flytur frá St. Tropez Brigitte hefur í 31 ár átt heima í St. Tropez, en er nú að flytja þaðan. Leikkonan fór úr húsi sínu 4. júní í sumar, því henni þótti miður þegar bannað var að vera með hunda á baðströndinni í St. Tropez. Hún hafði byggt sér þarna hús, átti stóran garð þar sem allt var fullt af dýrum og hafði búið vel um sig. Faðir hennar og móðir eru jarðsett í St. Tropez og Brigitte segist alltaf hafa litið á þennan stað sem heimili sitt, þar sem hún myndi eyða ævinni. Hún kemur þó öðru hverju til St. Tropez til að ganga frá sínum málum. Brigitte í franska sjónvarpinu Þær myndir, sem hafa á undan- förnum árum sést í blöðum af Brigitte Bardot, hafa sýnt ómálaða og lítt snyrtilega miðaldra konu, en þetta hefur breyst síðan Bardot fór að koma fram í sjónvarpinu. Hún byrjaði á þætti um fíla. Þátturinn var kallaður „SOS Ele- phants" (Neyðarkall fíla). Þáttur- inn fjallar um þessi stóru dýr, hversu þau eru varnarlaus fyrir veiðiþjófum sem vilja drepa fílana og safna fílstönnum, því fílabein hefur verið talið svo dýrmætt. Nú hafa bæði Evrópulönd og Síðan Brigitte Bardot fór að koma fram í sjónvarpi hcfur hún á ný sést greidd og snyrtileg og hér er ein alveg ný mynd af henni, þar sem hún er snyrt fyrir sjónvarpsþátt. Japan bannað innflutning á fíla- beini, og segir Brigitte að það sé mikið sér og samstarfsfólki sínu að þakka. í haust hefur Brigitte snúið sér að því að kynna „sportveiðimenn“ fyrir almenningi og sýna fram á miskunnarleysi þess að siga hund- um eftir refum og kanínum. Síðan koma veiðimennimir skrautklædd- ir, þeysandi á fallegum hestum til að vinna þá „hetjudáð" að drepa þessi dýr, ef hundamir hafa ekki tekið af þeim ómakið. Brigitte kallar veiðimennina „Sunnudags- morðingjana".

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.