Tíminn - 30.12.1989, Blaðsíða 16
16 Tíminn
STORHAPPDRÆTTI
FLUGBJORGUNARSVEITANNA
Vinningaskrá 1989:
Sómi 660 sportbátur:
42479
Toyota 4Runner:
4241 -41457
Heimilispakkar:
21300-31817-55058-84386
142251 - 151523
EchoStar gervihnattadiskar:
55-2948-8566- 14838- 18605
42675-46258-49144-51458
52999 - 60009 - 66576 - 69202
71371 - 108795 - 124637 - 146009
150665- 151094- 155951
Mitsubishi farsímar:
808-3060-9242- 17466
20165-31080-33698-56150
73724-79351 -90133 -93616
98731 - 109281 - 116787 - 123836
129340 - 129482 - 134824 - 143112
157020- 157140
Macintosh Plus tölvur:
3433- 16142- 16858-26225
29438-32609-41620-55730
57951 - 59731 - 67980 - 72283
74335-86364-98780- 110174
110645 - 115669 - 120164 - 137742
140258-155912
Nordmende MS-3001
hljómflutningstæki:
5388 - 8509 - 11367 - 35841 - 41354
43860-48006-57804-75018
75695 - 77044 - 77760 - 80979
81519 - 95208 - 105240 - 107333
114630 - 115650 - 129167 - 132705
139366- 141670
Nordmende 20” Galaxy 51
sjónvarpstæki:
2775- 17692-27753-29905
31254-31418-39901 -40191
41209-42130-42716-57433
71036-74876-77518- 116442
120498 - 125440 - 126452 - 130411
134507- 140401
(Birt án ábyrgðar)
Gleðilegt nýtt ár,
þökkum veittan stuðning!
Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík
' Flugbjörgunarsveitin á Hellu
Flugbjörgunarsveitin á Skógum
Flugbjörgunarsveitin áAkureyri
Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð
Flugbjörgunarsveitin í Vestur-Húnavatnssýslu
Laugardagur 30. desember 1989
INNLENDUR
ANNÁLL
1989
Páfinn í Róm kom í fyrsta skipti í sögunni í
heimsókn til íslands þann 3. og 4. júní. Heimsókn hans tókst
í alla staði vel og söng hann samkirkjulega messu með
biskupnum yfir íslandi á Þingvöllum á laugardeginum og sótti
þessa messu fjöldi manns. Á sunnudagsmorgni messaði
páfinn á Landakotstúni í heldur leiðinlegu veðri en messan
var þó fjölsótt. Páfinn hitti alla helstu ráðamenn þjóðarinnar
á þessari stuttu yfirreið sinni þó svo að hann væri hér
formlega á vegum kaþólska safnaðarins en ekki á vegum
íslenska ríkisins. Á meðfylgjandi mynd má sjá páfa og biskup
íslands við messuna á Þingvöllum.
sínum málflutningi að augljóst væri
að einhver af fimm nafngreindum
aðilum sem borið höfðu vitni í
málinu hefðu logið í framburði sín-
um og trúlegast væri að sá sem það
hefði gert væri Ólafur Ragnar
Grímsson, fjármálaráðherra. í frétt
þar sem þetta var borið undir Ólaf
Ragnar Grímsson gagnrýnir hann
lögmanninn harðlega og segir hann
vera kominn í einhvers konar kjána-
legan „Matlock" leik í málsvörn
sinni enda hafi hann ekki verið
maður til að bera upp á hann
ósannindi þegar þeir stóðu augliti til
auglitis. Þetta var þó ekki eina
atriðið í málsvörn Jóns Steinar sem
vakti athygli því Tíminn greindi líka
frá því í byrjun mánaðarins að
Höskuldur Jónsson taldi fullsannað
að málsskjölum sem Jón Steinar
hafði undir höndum hafði verið
stolið af skrifstofum ÁTVR. Hann
taldi enn fremur líkur á að einhver
innan stofnunarinnar hefði stolið
þessum skjölum með því að ljósrita
þau á laun.
Afangasigur í hvalamáli
Á fundi Vfsindanefndar Alþjóða-
hvalveiðiráðsins sem haldinn var um
miðjan júní unnu íslendingar
áfangasigur í hvalamálinu því þar
var samþykkt tililaga sem fór fögrum
orðum um framlag íslendinga til
hvalarannsókna. í þessari ályktunar-
tillögu var fslendingum selt sjálf-
dæmi varðandi veiðar á langreyð.
Eftir samþykkt þessarar tillögu voru
Grænfriðungar komnir í mótsögn
við samþykktir Hvalveiðiráðsins og
undu þeir því mjög illa.
Umdeild bankasala
Þann 12 júní undirritaði viðskipta-
ráðherra og formenn bankaráða Iðn-
aðar-, Verslunar-, og Alþýðubanka,
bráðabirðgðasamkokmulag um sölu
á hlut ríkisins í Útvegsbankanum hf.
Verðið á hlut ríkisins í bankanum
var um 1 milljarður og þótti fjöl-
mörgum það lítið. M.a. hafði for-
maður bankaráðs Búnaðarbanka
sagt að raunverð fyrir bankann ætti
að vera nálægt 1,7 og 1,8 milljarðar.
Undir lok mánaðarins var þessu
bráðabirgðasamningur þó staðfest-
ur.
Sviljabanki
f heigarviðtali við Veiðimálastjóra
var greint frá hugmyndum um að
koma á fót sviljabanka til að vernda
erfðafræðilega eiginleika íslenskra
laxastofna.
Vinnuþrælkun
Vinnutími aðstoðarlækna var f
fréttum í júlímánuði. Tíminn greindi
frá því að vaktafyrirkomulag aðstoð-
arlækna á sjúkrahúsum, sem felur í
sér að þeir vinni allt upp í tvo
sólarhringa í einni lotu, væri lögleysa
að mati Vinnueftirlits.
Kjötútsala
Söluátakið „Lambakjöt á lág-
marksverði“ hófst í júlfmánuði og
var neytendum boðið kjöt í sér-
merktum pokum á 25% lægra verði
en ella.
Kirkjan „kælivara“
var yfirskrift fréttar um lélegt ástand ,
Bjarnarneskirkju sem er 13 ára óein-
angruð steinkirja. Kirkjan er kæld
niður eftir guðsþjónustur til að forða
rakamyndun.
Tekjuhalli
Efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar-
innar spáði 3-4 milljarða tekjuhalla
á árinu. Lýsti hann bjartsýni á mögu-
leika til að afla innlends lánsfjár til
að rétta af hallann.
Vandi loðdýraræktar
Erfiðleikar loðdýrabænda voru
Juan Carlos Spánarkonungur og
Soffía drottning komu í opinoera heimsókn til íslands 5. júlí.
Á myndinni sést Spánarkonungur kyssa hönd forseta íslands
við komuna til landsins. Tímamynd: Pjetur