Tíminn - 30.12.1989, Qupperneq 21

Tíminn - 30.12.1989, Qupperneq 21
Laugardagur 30. desember 1989 Með borun holu 8 fundu Hvergerðingar orkustöð í miðjum bænum sem gefur vonir um að hægt verði að hefja rafOrkuframleÍÖSlU Tlmamynd: Pjetur Desember Alþjóðlegt hneyksli Á fullveldisdaginn flutti Tíminn frétt þess efnis að íhaidið hafi valdið alþjóðlegu hneyksli með vantrausts- tillögu sinni á ríkisstjórnina. Ástæð- an var sú að mikill titringur skapaðist meðal embættismanna EFTA vegna tillögunnar og þess að utanríkisráð- herra, formaður ráðherranefndar EFTA, gat ekki mætt á til ráðherra- fundar sem boðaður hafði verið vegna fyrmefndrar tillögu. SS henti hausum Sláturfélagið ákvað að henda 10 þúsund sviðahausum í kjölfar salm- onellusýkingar sem fannst í sviða- hausum frá einu sláturhúsa félagsins. Var þetta í fyrsta sinn sem salmon- ella finnst í sauðfjárafurðum hér á landi. Orkustöð í miðjum bæ Hola sem boruð var á hverasvæð- inu í Hveragerði reyndist kröftugri en björtustu vonir gerðu ráð fyrir. Þessi orkustöð sem Hvergerðingar komu niður á færði heimamönnum vonir um að mögulegt sé að virkja gufuafl til raforkuframleiðslu og hef- ur verið gerður samningur við Orku- stofnun um að kanna möguleika á raforkuframleiðslu. Sveppir í hrossaskít Um 400 tonn af rotmassa hafa verið flutt til landsins á þessu ári. Rotmassinn er notaður til sveppa- ræktar og telja margir innflutninginn varhugaverðan þar sem uppistaða massans er hálmur og hrossaskítur og því hugsanleg hætta á smiti. Magnús dæmdur Hæstiréttur úrskurðaði í máli Magnúsar Thoroddsen og staðfesti í meginatriðum dóm undirréttar um að Magnús skyldi víkja úr embætti. Gjaldþrota Gullskip Landsbankinn fór fram á að hluta- félagið Gullskip verði tekið til gjald- þrotaskipta. Ævintýralegu leitinni að gullskipinu á Skeiðarársandi virð- ist því endanlega lokið. Á árinu 1983 veitti Alþingi Gullskipi ríkisábyrgð fyrir 12 milljón króna láni sem í dag telst vera 80 milljónir króna. Rætt um komandi samninga Upp úr miðjum desember hófust viðræður flestra aðila vinnumarkað- arins vegna komandi samninga. Þar virtust VSÍ, Vinnumálasambandið, bændasamtökin, ASÍ og VSÍ og vera sammála um að leita útfærslu á leið sem Einar Oddur Kristjánsson segir að muni gagnast jafnt fátækum launþegum og fjárvana framleiðslu- atvinnuvegum. Hafís lokaði siglingaleiðum um miðjan desember og eru tuttugu ár síðan siglingaleiðir hafa lokast vegna íss á þessum árstíma. Ekki eru dæmi um jafn mikinn ís á þessum árstíma síðan Frostaveturinn mikla. Tímamynd: pjotur Tíminn 21 Sendum bestu óskir um gleðilegt nýtt ár til starfsfólks, viðskiptavina, svo og landsmanna allra, með þökk fyrir samstarf og viðskipti á liðnu ári. Gunnar hf. - Snæfugl hf. Skipaklettur hf. Reyðarfirði Auglýsing frá ríkisskattstjóra HÚSNÆÐiSSPARNAÐAR- REIKNjNGUR Samkvæmt ákvæðum 3. málsl. 7. gr. laga nr. 49/1985 um húsnæðissparnaðarreikninga hefur ríkisskattstjóri reiknað út þær fjárhæðir er um ræðir í 2. mgr. 2. gr. laganna og gilda vegna innborgana á árinu 1990. Lágmarksfjárhæð skv. 2. málsl. 2. mgr. 2. gr. laganna verður kr. 36.092 og hámarksfjárhæð kr. 360.920. Lágmarksfjárhæð skv. 3. málsl. 2. mgr. 2. gr. laganna verður kr. 9.023 og hámarksfjárhæð kr. 90.230. Reykjavík 18. desember 1989 RSK RÍKISSKATTSTJÓRI ÖRYGGISHJALMAR FRA YAMAHA Hagstætt verð. BUNADARDEILD ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900 Úrval varahluta á lager fyrir YAMAHA vélsleða.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.