Tíminn - 01.02.1990, Blaðsíða 20
—
------—----------------
AUGLYSINGASIMAR: 680001
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hofnorhúsinu v/Tryggvagötu,
_______« aaa__________
PÓSTFAX
TÍMANS
687691
;Ho'B|LAsr0
ÞRÖSTUR
68 50 60
VANIR MENN
Tíminii
FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1990
Víðtækar breytingar í nýjum frumvarpsdrögum um Þjóðleikhúsið:
Yfirstjórn leikhússins
óháð stjórnmálaflokkum
Menntamálaráðherra hefur nú komið fram með ný
frumvarpsdrög um lög um Þjóðleikhúsið. í þessum drögum
er gert ráð fyrir veigamiklum breytingum á rekstri
Þjóðleikhússins. Meðal annars á að leggja niður ævi-
ráðningar, þjóðleikhúsráð verður ekki skipað fulltrúum
stjórnmálaflokka og völd þess verða jafnframt aukin. Þá
verður skipuð þjóðleikhúsnefnd sem verður tengiliður við
fjármálayfírvöld og annast eftirlit og ráðgjöf varðandi
fjármál Þjóðleikhússins.
Frumvarpsdrögin hafa verið
send þingflokkum stjórnarflokk-
anna og nýlega fékk menntamáia-
ráðherra nokkrum hagsmunaaðil-
um frumvarpið til umsagnar m.a. í
Þjóðleikhúsinu. Þeir aðilar sem
Tíminn leitaði til þar vildu ekki tjá
sig um frumvarpsdrögin að svo
stöddu.
Listrænt og
fjárhagslegt sjálfstæði
Meginmarkmiðið með frum-
varpinu mun vera að stuðla að því
að Þjóðleikhúsinu sé stjórnað af
ábyrgð, framsýni og listrænum
metnaði. Þá á frumvarpið einnig
að efla listrænt og fjárhagslegt
sjálfstæði. Einnig á það að stuðla
að því að Þjóðleikhúsið hagi fjár-
málastefnu sinni innan ramma fjár-
laga og hafi ekki lengur möguleika
á að kalla á aukafjárveitingar um-
fram þann samning sem gera á í
upphafi hvers árs milli þjóðleikhús-
stjóra og menntamála- og fjármála-
ráðherra.
Æviráðningar verða sem fyrr
segir afnumdar og verða starfs-
menn ráðnir til takmarkaðs tíma í
senn. Þá er gert ráð fyrir því að
leikhúsið sjálft annist allar greiðsl-
ur til starfsmanna sinna en ekki
launaskrifstofa ríkisins.
Pólitíkina burt
Áhrif Þjóðleikhússráðs á stjórn-
un og rekstur leikhússins verða
aukin verulega. Er í frumvarpinu
lagt til að stjórnmálaflokkarnir
skipi ekki framar í ráðið, heldur
verði meirihluti fulltrúa þess kjörn-
ir af ýmsum samtökum listafólks.
Einnig mun menntamálaráðuneyt-
ið skipa einn fulltrúa í ráðið.
Þá verða þjóðleikhússtjóranum
gefnar frjálsari hendur en verið
hefur varðandi val á samstarfsfólki
og er stefnt að því að enginn
starfsmaður leikhússins sé ráðinn
til lengri tíma en leikhússtjórinn
sjálfur.
Lagt er til að þriggja manna
nefnd, þjóðleikhúsnefnd, starfi
með stjórn leikhússins til að treysta
reksturinn og fjárhagsgrundvöll.
Nefndin á að vera skipuð fulltrúum
fjármálaráðuneytis, menntamála-
ráðuneytis og þjóðleikhúsráði. Á
nefndin að vera tengiliður við
fjármálayfirvöld og annast eftirlit
og ráðgjöf varðandi fjármál leik-
hússins.
Til að efla íslenska leikritun er
lagt til að aldrei starfi færri en tveir
leikritahöfundar við Þjóðleikhús-
ið. -SSH
Samningamir ekki komnir í hús. Ríkisstjórn gefur frekari
tryggingar og lausir endar milli samningsaöila:
Samningar ekki
komnir í hús
áherslu í viðræðunum að kosið verði
um væntanlega samninga í allsherj-
aratkvæðagreiðslu. Umtalsverð
andstaða er gegn slíku innan ASÍ og
forystumaður í hreyfingunni sagði í
gær að slíkt þýddi stórkostlega eftir-
gjöf á lýðréttindum og ætti ekki að
eiga sér stað.
Hann sagði að þótt samningar
tækjust fljótlega þá hlyti að vera
eftir að koma samningunum gegn
um félögin til samþykktar en and-
staða væri talsverð gegn þeim línum
sem lagðar hafa verið enda skiptu
þær hækkanir sem um væri talað þá
lægst launuðu nánast engu máli.
Andstaðan væri þó misjöfn eftir
félögum. Það væri því alls óvíst um
að hugsanlegir samningar taki gildi.
Ríkisstjórnin ræddi í gær á löngum
fundi kröfur um óbreytt búvöruverð
og gaf síðan út skriflega yfirlýsingu
sem lögð var fyrir samningamenn.
Þeir hófu þegar að fjalla um hana í
starfshópum en stóru samninga-
nefndirnar settust síðan á formlegan
fund kl. 23 í gærkvöldi og var búist
við að hann stæði fram á dag.
í gærkvöldi var eftir að ganga frá
ýmsum sérmálum. Þar á meðal var
greiðsla desemberuppbótar en ASÍ
vill að ef fólk hætti störfum, fái það
greidda uppbótina í hlutfalli við
þann mánaðafjölda sem það hefur
unnið á sama vinnustað, en missi
hana ekki alveg, eins og nú er
raunin, ef það hættir á vinnustað
fyrir jól. -sá
Vaxtabreytingar bankanna taka gildi í dag:
Starfshópur í varanlega vaxtalækkun
Viðskiptaráðherra skipaði í gær í
starfshóp sem ætlað er að athuga um
mögulegar aðgerðir bankakerfisins
og ríkisstjórnarinnar sem leiða munu
til þess að vaxtalækkanir samfara
lækkandi verðbólgu verði varanleg-
ar.
Skipað var í starfshópinn að til-
mælum Sambands ísl. viðskipta-
banka og Sambands ísl. sparísjóða.
Eftirtaldir menn ciga sæti í hópnum:
Björn Friðfinnsson frá viðskipta-
ráðuneytinu formaður, Eiríkur
Guðnason Seðlabankanum, Hall-
grímur Jónsson Sambandi ísl. spari-
sjóða, Ólafur Örn Ingólfsson Lands-
bankanum, Pétur Erlendsson Sam-
vinnubankanum, Ragnar Önundar-
son íslandsbanka og Sveinn Jónsson
Búnaðarbankanum.
Vextir breytast í dag í bönkum og
sparisjóðum. Vextir af útlánum
lækka í flestum tilfellum og er þetta
gert að sögn bankamanna í þeirri
von að verðlagsþróun á fslandi geti
orðið sambærileg við það sem gerist
í heistu viðskiptalöndunum.
Hjá Landsbankanum verða for-
vextir víxla frá deginum í dag 22%
og af viðskiptavíxlum 23%. Af al-
mennum skuldabréfum verða kjör-
vextir 21,5%. Það verður þó ekki
fyrr en 11. febrúar en hæstu skulda-
bréfavextir með skuldbreytingar-
álagi verða 23,5%. Skuldabréfavext-
ir voru þann 11. þ.m. 30,5% þannig
að lækkunin verður9%. Yfirdráttar-
vextir eru nú 26,5% en voru áður
29% Innlánsvextir verða óbreyttir
hjá Landsbankanum.
Yfirdráttarvextir eru frá í dag
25% hjá Búnaðarbankanum. Víxla-
vextir 21,5%, vextir af viðskiptavíxl-
um 22,5%, af almennum skuldabréf-
um verða vextir 22%. Innlánsvextir
breytast einnig hjá Búnaðarbankan-
um. Af sparisjóðsbókum verða þeir
7% (voru 9%) Gullbók 16%
(óbreytt), metbók 17,5% (var 18%)
Hjá íslandsbanka verða víxilvext-
ir 21% (voru 26,5%) Kjörvextir af
almennum skuldabréfum verða
19,75% (voru 28%), yfirdráttarvext-
ir verða 25% (voru 32%).
Innlánsvextir íslandsbanka munu
hins vegar lækka talsvert af flestum
tegundum innlána. Af venjulegum
sparisjóðsbókum verða greiddir 5%
vextir en var áður 9%. Af bundnum
innlánsreikningum lækka vextir úr
19-19,5% í 14%. —sá
84 ara gömul kona slasaðist alvarlega og tvö stálpuð börn slösuðust minna, annað skarst á höfði og andliti en
hitt kvartaði um eymsli í mjöðm, þegar Subaru skutbfll og Bens sendiferðabfll skullu harkalega saman á
gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Laugavcgs rétt eftir kl. 20 í gærkvöldi. Sendiferðabifreiðinni var ekið suður
Kringlumýrarbraut. Skutbflnum var ekið austur eftir Laugavegi og skall sendiferðabíllinn harkalega á hægri hlið
skutbflsins við framhurð. Bflstjórinn var einn í sendiferðabílnum en auk ökumanns skutbflsins var þar í
framsætinu konan sem slasaðist mest, en börnin voru aftur í. Allir voru í beltum. Lögreglan lýsir eftir
sjónarvottum að þessu slysi. -BG/iímaniynd Pjeiur
Samningafundir héldu áfram í gær
eftir að hafa strandað í fyrrinótt á
því að aðilar vinnumarkaðarins
töldu tryggingar ríkisins ónógar fyrir
því að búvöruverði yrði haldið
óbreyttu út árið.
Ekki var því skrifað undir neina
samninga í fyrrinótt eins og margir
bjuggust við. I gær sögðu samninga-
menn sem Tíminn hafði tal af að
bjartsýni á að samningar væru að
takast hefði verið full mikil og að
ekki væri víst að tækist að semja fyrr
en í fyrsta lagi um helgina.
Atvinnurekendur hafa lagt á það