Tíminn - 01.03.1990, Qupperneq 3
Fimmtudagur 1. mars 1990
Tíminn 3
Verðlagseftirlit verkalýðsfélaganna ber árangur. Ólga innan ASÍ vegna ójafnra
vaxtalækkana bankanna. Björn Gretar Sveinsson, formaður Jökuls a Hornafirði:
BANKAR FA EKKIAÐ
HÁRTOGA SAMNINGANA
„Það er mjög merkilegt fyrirbrigði ef að bankakerfið, sem
maður hefði nú haldið að siglt hefði á fríum sjó að
undanförnu, getur ekki tekið að fúllu þátt í þeirri endurreisn
sem verið er að gera í landinu. Það er ósköp einfalt mál að
þetta framferði bankanna verður ekkert liðið. Það er út af
fyrir sig ekkert meira mál að kalla til útifundar á Lækjartorgi
um vaxtamál bankanna en um verð á mjólkursopa, sagði
Björn Grétar Sveinsson, formaður verkalýðsfélagsins Jökuls
á Höfn í Homafirði, í gær.
Björn Grétar var í þeirri nefnd
ASÍ og VSÍ sem samdi við bankana
í tengslum við kjarasamningana, um
að vextir lækkuðu með lækkandi
verðbólgu. Bankarnir tilkynntu
vaxtabreytingar í gær og þá kom
fram að yfirleitt lækka forvextir
víxla mun minna í dag en vextir af
skuldabréfum.
„Það stendur skýrum stöfum í því
samkomulagi sem gert var við bank-
ana í tengslum við kjarasamningana
að skuldabréfavextir skuli lækka í
ákveðnum tengslum við lækkun
verðbólgu og aðrir vextir skuli jafn-
framt lækka í samræmi við skulda-
bréfavextina miðað við að verð-
bólguspá stæðist.
Það hefur hún gert og bankarnir
hafa nú staðið við að lækka skulda-
bréfavexti en ekki víxilvextina í
samræmi við þá eins og mælt er fyrir
um í samkomulaginu,“ sagði Björn
Grétar Sveinsson, formaður verka-
lýðsfélagsins Jökuls á Hornafirði, í
gær.
Hann sagði að óviðunandi væri að
bankamir hártoguðu með þessum
hætti kjarasamningana og vikju sér
undan sínum hluta þeirra. Með
þessu framferði gæfu þeir til kynna
að þeir þyldu ekki að verðbólga
hjaðnaði og að þeir ætluðu sér að
hanga áfram gamla verðbólgufarinu
og hafa hluta lána sinna dýrari til
þess eins að standa undir illa reknu
bankakerfi.
„Ég vísa í þessu máli til ASÍ og til
ríkisstjórnarinnar að hún grípi í
taumana hj á bönkunum. Ég vara við
hvað gerast mun ef bankarnir standa
ekki við sinn hlut í kjarasamningun-
um. Það er eftir að gera fjölmarga
sérkjarasamninga við einstök félög
og verði ekki staðið að fullu við það
sem um var samið í heildarsamning-
unum, þá munum við ekki virða eitt
eða neitt,“ sagði Björn Grétar.
Verðlagseftirlit Dagsbrúnar,
BSRB og fleiri verkalýðsfélaga hefur
nú starfað í viku og hefur haft nóg
að gera, að sögn Guðmundar J.
Guðmundssonar formanns Dags-
brúnar. Hann sagði í gær að það væri
eftirtektarvert að verðlag hefði
reynst mjög stöðugt á Suðurnesjum.
Neytendafélag verkalýðsfélaganna á
Suðurnesjum hefði greinilega haft
mikil og heillavænleg áhrif. Sömu
sögu væri að segja frá Borgarnesi og
Höfn í Hornafirði. Sömu sögu væri
því miður ekki að segja sums staðar
annars staðar af landinu. T.d. virtist
vöruverð á Vestfjörðum hækka með
hverri sendingu að sunnan.
Guðmundur sagði að síminn hjá
verðlagseftirliti Dagsbrúnar og
verkalýðsfélaganna hefði verið rauð-
glóandi frá því það tók til starfa og
árangur þegar orðinn umtalsverður.
Meðal annars hefðu fyrirhugaðar
hækkanir sem taka áttu gildi í dag í
mötuneytum Mjólkursamsölunnar
og Stöðvar 2 verið dregnar til baka í
gær. Jafnframt hefði Mjólkursamsal-
an sem hafði hækkað matargjöldin
um áramótin nú einnig fellt þá
hækkun niður.
Guðmundur sagði að talsverðrar
tilhneigingar hefði gætt til verð-
hækkana en þegar haft hefði verið
samband við viðkomandi aðila tækju
þeir yfirleitt vel í að draga þær til
baka enda virtist vera vilji hjá þorra
manna að rota verðbólgudrauginn.
Svo virtist sem hluti af þeim
hækkunum sem fram hefðu komið í
vöruverði að undanfömu ættu rót
sína að rekja til heildverslana og
yrði þáttur þeirra athugaður sérstak-
lega næstu daga en þær skýringar
sem heildverslanir hefðu hingað til
gefið væru ekki viðhlítandi. Guð-
mundur sagði að verðlagseftirlit
launþega hefði nána samvinnu við
verðlagsstjóra, Neytendasamtökin.
Jafnframt hefði viðskiptaráðuneytið
boðist til að afla gagna ef þess
gerðist þörf.
Neytendasamtökin ræða nú við
tryggingafélögin um hækkanir þeirra
á iðgjöldum frá síðasta ári sem nema
18,3%. Þá er að sögn Guðmundar
verulegur kurr vegna hækkana Bif-
reiðaskoðunar íslands en skoðunar-
gjöld hækkuðu úr 1.900 kr. í 2.700
kr. um s.l. áramót.
-sá
Páll Pétursson, forseti Norðurlandaráðs, vill að Danir hætti að
segja Norðurlöndunum að ganga í Evrópubandalagið:
„Er 01 rðinn leið ur á
þessu nuddi í Döi ium“
í ræðu sem Poul Schliiter, forsæt-
isráðherra Danmerkur, hélt á þingi
Norðurlandaráðs hvatti hann
Norðurlandaþjóðirnar til að taka
heils hugar þátt í sameiningarþróun-
inni í Evrópu. Schluter sagði að
íbúar Norðurlanda yrðu að þekkja
sinn vitjunartima. Páll Pétursson,
forseti Norðurlandaráðs, segist vera
orðinn þreyttur á eilífu nuddi Dana
um að Norðurlöndin gangi í Evrópu-
bandalagið.
„Danir hafa reynt að gylla þetta
fyrir öðrum Norðurlandaþjóðum í
von um að þær gerist aðilar að
Evrópubandalaginu," sagði Páll í
samtali við Tímann. „Þetta hefur
komið skýrt fram í umræðunum á
þessu þingi eins og reyndar á liðnum
þingum. Þetta er mjög þreytandi.
Ég kvartaði undan því í ræðu minni
á þinginu, að það væri leiðinlegt
fyrir okkur að þurfa að hlusta alltaf
á þetta nudd. En þetta er skiljanlegt
frá þeirra sjónarhomi. Þeir vilja fá
fleiri Norðurlandaþjóðir í þetta sam-
starf svo að norræn viðhorf fái
einhverja vigt í Evrópubandalaginu
sem þau ekki hafa núna.
Þó að Danir séu þarna aðilar þá
em þeir kotríki við hlið hinna þjóð-
anna og lítilsmegnugir. Þeir eru með
16 þingmenn á Evrópuþinginu af
517. Þeirra rödd er því afskaplega
veik. Þegar maður talar við Evrópu-
bandalagsfólk fær maður það á til-
finninguna að Danir séu litnir hálf-
gerðu hornauga. Þeir em með sér-
þarfir. Þeir em vanir að hugsa um
félagslegt öryggi sem á ekki upp á
pallborðið hjá ítölum og fleiri EB-
þjóðum," sagði Páll að lokum.
-EÓ
Danslri forsætisráðherrann snýtir sér
á Norðurlandaráðsþingi. Páll Pét-
ursson er lítið hrifinn af hugmyndum
Schlúters um að Norðurlöndin teng-
ist EB nánari böndum með inn-
gÖngU. Tímamynd: Pjetur
Enn ríkjandi hættuástand á Neskaupstað. Fylgst
reglulega með breytingum á hita, raka og þyngd
snjóalaga. Almannavarnamefnd í viðbragðsstöðu:
Aðstæður svip-
aðar og 1974
Snjóflóðið sem féll á bæinn
Þrastalund í fyrradag var mjög líkt
þeim flóðum sem féllu á Neskaup-
stað fyrir sextán.árum og ollu þá
vemlegu tjóni í bænum. Flóðið
sem féll nú var á að giska 200 metra
breitt, um hálfur metri á dýpt, en
snjórinn sjálfur mjög þurr og léttur
í sér. Snjóflóðið átti upptök sín á
nokkuð stóru svæði í fjallinu fyrir
ofan vesturhluta bæjarins og rann
mjög hratt, þrátt fyrir lítinn halla á
landslaginu undir. Nú er ljóst að
tjón af völdum þess er vemlegt.
Hættuástand ríkir enn á Nes-
kaupstað vegna hugsanlegra snjó-
flóða. Vestasti hluti bæjarins er
lokaður allri umferð og þar er um
að ræða sama svæði og snjóflóðin
féllu á árið 1974. Svæðið er nú
hættumerkt og hafa sex íbúðarhús
þar verið rýmd, en aðal íbúða-
byggðin er utan þess svæðis sem
hefur verið merkt sem hættusvæði.
Mælingar á snjóalögum em gerðar
reglulega nokkmm sinnum á sól-
arhring og fylgst mjög nákvæmlega
með öllum breytingum á hitastigi
og þéttleika snjóalaga í fjallinu
fyrir ofna bæinn. Almannavarnar-
nefnd á staðnum hefur verið í
viðbragðsstöðu síðan á þriðjudag,
en nær allt atvinnulíf á Neskaup-
stað hefur verið lamað frá því að
hættuástandi var lýst yfir í aðal
atvinnuhverfi bæjarins.
Ekki hefur enn verið unnt að
meta nákvæmlega tjón af völdum
flóðsins sem féll á bæinn Þrasta-
lund, en til stóð í gær, að það yrði
gert í dag. Á þessari stundu er þó
ljóst að það er vemlegt og skiptir
jafnvel tugum milljóna. Steindór
Bjamason, sonur bóndans sem á
jörðina Þrastalund, fór tvær ferðir
í gær til þess að kanna ástand mála
á bænum. Hann sagði í samtali við
Tímann að ekki væri unnt að meta
þann skaða sem snjóflóðið olli fyrr
en snjó hefði verið rutt frá bænum
og mannvirkjum í nágrenni hans.
„Flóðið féll beint fyrir ofan bæ-
inn og virtist klofna fyrir ofan
íbúðarhúsið," sagði Steindór í gær.
„Megin hluti þess fór austan við
bæinn og á stóra vélageymslu sem
þar var, en hún var full af tækjum.
Það vom fjórir bílar þar inni,
dráttarvél, tveir bátar og fleira dót.
Flóðið lenti síðan á viðbyggingu,
sem var áföst íbúðarhúsinu, braut
sig inn að norðanverðu og fór í
gegnum hana. Ég var með verk-
stæði fyrir innan húsið og það
hreinlega brotnaði niður, en þar
var einn bíll inni. Auk þess brotn-
aði niður fjárhúsahlaða, sem var
vestast í þessari húsaröð. Hún
hangir reyndar uppi að nafninu til,
en norðurhliðin, sem snýr upp að
fjallinu brotnaði niður og flóðið
braut sig þar í gegn og inn í fjárhús
og inn í annað hús sem var þar
innan við.“
Svo heppilega vildi til að fjöl-
skyldan í Þrastalundi flutti sl. haust
til Neskaupstaðar, til bráðabirgða,
en ætlunin var að gera endurbætur
á íbúðarhúsinu á staðnum í vetur.
Steindór kvaðst hafa verið búinn
að gera heilmiklar breytingar á
húsinu og verið að gera sig kláran
í að mála húsið áður en óhappið
skeði. Engar skepnur vom heldur
á bænum, en þar hafði verið skorið
niður vegna riðuveiki og þess
vegna fjárlaust. -ÁG