Tíminn - 01.03.1990, Síða 20
AUGLYSIN*
680001 —686300
RÍKISSKIP
NUTIMA FLUTNINGAR
Hafnarhusinu v/Tryggvagötu,
S 28822
SAMVINNUBANKINN
í BYGGDUM LANDSINS
PÓSTFAX
TÍMANS
687691
Tíniiiin
FIMMTUOAGUR 1. MARS 1990
t gær var gengið frá samkomulagi miUi stjórnar Arnar-
flugs og Svavars Egilssonar um 200 miUjón kr. hlutafjár-
aukningu í Amarflugi h.f. Svavar Egilsson og umbjóðend-
ur hans skuldbinda sig tíl að leggja þessar 200 miUjónir í
Arnarflug að því tUskyldu að samkomulag náist við
lánardrottna félagsins um greiðslu á skuldum þess. Þeim
samningum skal verða lokið innan næstu sex mánaða.
Gunnar Þorvaldsson, sem hefur
undanfarna tvo mánuði verið for-
maður sérstakrar þriggja manna
framkvæmdastjómar Amarflugs,
sagði að nú liti út fyrir að félagið
gæti rétt úr kútnum. Skuldir félags-
ins væm kringum 350-400 milljón-
ir. Það er mun betri staða en fram
kom í 9 mánaða uppgjöri síðasta
árs þegar heildarskuldimar námu
um milljarði kr. Að sögn Gunnars
lagast eiginfjárstaða fyrirtækisins
vemlega þegar hlutafé verður nú
aukið um 200 milljónir. Hann sagði
að með samningunum í gær við
nýja hluthafa væri tímabundnu
starfi hans hjá félaginu lokið og að
hann hyrfi nú af vettvangi.
Verði af þessari hlutafjáraukn-
ingu munu hinir nýju hluthafar fá
meirihluta atkvæða í félaginu, en
hugmyndin er að ganga þannig frá
að atkvæðamagnið sem 200 millj-
óna kr. nýtt hlutafé stendur að
baki verði hlutfallslega meira en
atkvæðamagnið að baki því 360
milljóna kr. hlutafé sem þegar er í
félaginu.
Þær skuldir sem semja þarf um
em að sögn kunnugra fjölmargar
mis stórar skuldir við marga aðila,
auk þess að 150 milljón kr. skuid
við ríkissjóð sem forráðamenn
Amarflugs vonast til að verði felld
niður að stómm hluta eða breytt í
víkjandi lán er enn ekki endaníega
frágengið mál.
Amarflugsmenn vom í gær
bjartsýnir á að takast mætti að ná
samningum um þær þannig að
greiðslufrestur þeirra yrði ýmist
lengdur eða þær felldar niður að
hluta eða að öllu leyti. Þannig væri
nú gott útlit með að Amarflugi
mætti að takast að komast á flug
aftur. -sá
Það var mikil stemning á heimili Rúnu Kristinsdóttur og Einars Þorvarðarsonar í Reykjavík í gær, en þar vora
eiginkonur landsliðsmanna okkar í handknattleik saman komnar tii að fylgjast með beinni útsendingu frá
Tékkóslóvakíu. ísland sigraði nokkuð auðveldlega í leiknum gegn Kúbu, 27:23 og því var létt yfir konunum.
Sjá umfjöllun um leikinn á bls. 19. Tfmamynd: Pjetur
Stéttarsamband bænda:
Loðdýrabændum boðið
upp á lögfræðiaðstoð
Talið er að nokkur hópur loðdýra-
bænda sé þannig staddur fjárhags-
lega að hann þurfi að leita nauða-
samninga við lánadrottna eða verði
jafnvel gjaldþrota. Stéttarsamband
bænda hefur ákveðið að bjóða þess-
um bændum upp á lögfræðiaðstoð.
Það vom Samtök loðdýrabænda sem
óskuðu eftir því að Stéttarsamband-
ið veitti þessa þjónustu.
„Svona mál þurfa að fara í gegnum
ákveðna meðferð sem er venjulegu
fólki, sem betur fer, ákaflega lítið
kunnug. Þarna er um að ræða tækni-
lega atriði sem sérfræðingar einir
ráða við,“ sagði Hákon Sigurgríms-
son framkvæmdastjóri Stéttarsam-
bandsins í samtali við Tímann.
Óvíst er hversu stór hópur hér er
um að ræða, en talað hefur verið um
30-40 manns.
Fjárhagsstaða loðdýrabænda er
mjög slæm og hefur verið það lengi.
Loðdýrum hefur fækkað mikið í
Evrópu að undanförnu. Það hefur
gefið íslenskum bændum vissar vonir
um að offramboð á skinnum minnki
og verð þar af leiðandi hækki.
Nú eru starfandi um 200 loðdýra-
bændur á landinu, en þeir voru
flestir um 260. - EÓ
Um 16% verðlækkun
á nýju lambakjöti
í dag tekur gildi um 16% verð-
lækkun á lambakjöti á lágmarks-
verði og vinnslukjöti úr 5. og 6.
verðflokki. Verðlækkunin tekur til
um 1000 tonna og stendur í þrjá
mánuði eða til 31. maí.
Eftir verðlækkun kostar kflóið af
lambakjöti á lágmarksverði (DI-
úrval) 437 kr sem er lækkun um
66.25 kr. Kjöt í DI-A kostar eftir
verðlækkun 417 kr kflóið. Seljist allt
kjötið geta neytendur sparað rúm-
lega 60 milljónir króna.
Frá áramótum hefur smásöluverð
á lambakjöti á lágmarksverði lækk-
að um 26%. Skýringin á þessu eru
breytingar vegna virðisaukaskatts og
afskurðar og svo lækkunin nú.
Hér er eingöngu um að ræða nýtt
kjöt úr hæsta gæðaflokki, þar sem
öllu eldra kjöti hefur þegar verið
ráðstafað. Kjötið verður rækilega
merkt þannig að neytandinn þarf
ekki að vera í vafa um aldur og
gæðaflokk þess. Sérstakt gæðaátak
er í gangi til að tryggja samræmda
niðurhlutun.
Fram að grilltíma verða í boði
tveir valkostir fyrir neytendur hvað
varðar niðurhlutun lambakjöts.
Annars vegar er súpukjöt, kótilett-
ur, grUlrif og heil læri og hins vegar
súpukjöt, hálfúr hryggur (heill eftir
endUöngu) og heil læri. Kjötið verð-
ur snyrt með því að fjarlægja 9,7%
af upphaflegri þyngd skrokksins, en
þar er um að ræða fitu, skanka,
hupp af síðu og fleira. Þá er kjötsag
og umbúðir ekki reiknaðar með í
verði kjötsins. Heildarrýrnun er því
12,9% frá upphaflegri þyngd
skrokksins. - EÓ
Öskudagurinn var í gær og var þá Litluhlíð í Reykjavík era engin
mikið um dýrðir hjá böraum undantekning en þar var kötturinn
landsins, sem flest klæðast þá sleginn úr tunninni í gærmorgun og
furðufötum og taka þátt í því að slá heitir tunnudrottningin Þóra. Var
köttinn úr tunnunni. Börnin á hún krýnd með pompi og prakt.
Tímamynd Pjetur