Tíminn - 17.05.1990, Blaðsíða 1
ríniinn
Borgaryfirvöld bregðast í forystuhIutverki í stríðinu við fíkniefnin:
Stöðugt fleiri ungir
falla í vímuvalinn
Fíkniefnavandinn breiðist hægt
og sígandi út í höfuðborginni, og
virðist sem borgaryfirvöld í
Reykjavík hafi brugðist í því for-
ystuhlutverki sem þeim ber að
vera.
í viðtali Tímans við Amar Jens-
son hjá fíkniefnalögreglunni
segir hann að vandinn sé vax-
andi, hægt og rólega, en áríð-
andi sé að taka á vandamálinu
hið fyrsta. Amar fullyrðir að
hundmð unglinga á höfuðborg-
arsvæðinu hafi neytt eða neyti
fíkniefna.
Jafnframt því sem neysla hefur
aukist er áberandi hversu yngri
neytendum hefurfjölgað. Það er
skoðun Amars Jenssonar að
eigi að taka á þessum vanda
þurfi að koma til samstarf fjöl-
margra aðila og það verði tíma-
frekt og kostnaðarsamt.
• Blaðsíða 5
tbt—
m
G
I -
:
Um flögur hundruð manns mættu í Sjallann til að ræða mál málanna.
Fjölmennur fundur í Sjallanum dregur upp dökka mynd komi ekki störiðja í Eyjafjörð:
Þeir treysta á álver
til biargar Akureyri
A fjölmennum fundi í Sjallanum kom
fram sú skoöun hjá mörgum fundar-
manni að álver í Eyjafirði sé spurning
um líf eða dauða fýrir Akureyri. Sigfús
Jónsson bæjarstjóri hvatti menn til að
herða sig á endasprettinum því fljót-
lega lægi fyrir ákvörðun um staðsetn-
ingu og álver yrði að nást norður yfir
heiðar.
Þóra Hjaltadóttir, formaður Alþýðu-
sambands Norðurlands, tók í sama
streng og benti hún á að yfirvofandi
væri fólksflótti frá Akureyri ef álveri yrði
ekki valinn staður nyrðra. Hún sagði
fjölmarga iðnaðarmenn tilbúna til að
taka sig upp með fjölskyldur sínar og
flytjast búferlum suður ef ekki fengist
álver norður. • OPNAN