Tíminn - 19.05.1990, Side 5

Tíminn - 19.05.1990, Side 5
LáDíjardágur 19. ffiáí t99Ö ' Tíminn 5 Könnun Félagsvísindastofnuna gjörbyltir niðurstöðum fyrri kannana um fylgi Sjálfstæðisflokksins: Skoðanakönnunin róar taugar Morgunblaðsins Félagsvísindastofnun hefur gert könnun fyrir Morgunblaðið um fýlgi flokkanna í borgarstjómarkosningunum í Reykjavík. Síðast þegar spáð var fékk Sjálfstæðisflokkurinn eina flórtán fulltrúa kjöma. Eitt- hvað hefur dregið úr fylginu síðan, því nú er flokknum aðeins spáð níu fulltrúum. Athygli vekur að sameiginlegt framboð komma og krata, H-listinn, fær þijá fulltrúa kjöma, en hinir kommamir, Alþýðu- bandalagið, fá einn. Kvennalisti og Framsókn fá einn fulltrúa hvor. Það merkilega við þessa skoðana- könnun, fyrir utan hvað hún dregur af Sjálfstæðisflokknum, sem virðist vera hagstætt fyrir Morgunblaðið en það óttast mjög andvaraleysi kjós- enda, er að samanlagðar niðurstöður H-lista og G-lista, sem báðir eru að mestum hluta komma-listar, fá líkt fylgi og kommar og kratar höfðu árið 1986. I ljósi þeirrar staðreyndar, að allsstaðar er verið að leggja flokka tengda kommúnistum niður, eða þá að þeir standa uppi fylgislausir, má segja að björgunaraðgerð kommún- ista ætlar að heppnast. Þeir börðust manna mest fyrir því að koma upp H- listanum og láta sem Alþýðubanda- lagið liggi klofið eftir. En þetta jafnar sig allt eftir kosningamar. Sam- kvæmt könnuninni situr fulltrúi krata áfram í borgarstjóm eins og hann gerði, en þrír fúlltrúar sitja þar áffam á snærum kommúnista eins og var. Könnunin bendir til þess, að það unga fólk sem ætlar nú að kjósa H- listann í von um breytingu, hafí verið platað. Að öðra leyti er lítið um þessa skoð- anakönnun að segja annað en það, að hún var gerð fyrir Morgunblaðið sem verst nú af öllum mætti því andvara- leysi sem það ásakar kjósendur Sjálf- stæðisflokksins um og þurfti því bók- staflega á að halda spá um níu full- trúa. Það getur hver sem vill trúað því að fylgi flokksins hafi hrapað úr því sem svarar fjórtán fúlltrúum í borgarstjóm niður í níu. Æskilegt væri að hrunið héldi áffam með sama hraða og að Morgunblaðið geti innan tíðar glaðst yfir því að meirihlutinn sé tapaður. Þá þarf það ekki að óttast andvaraleysi kjósenda vegna mikils fylgis. Ætti Morgunblaðið af þeim sökum að ffamreikna þá viku sem eftir er til kosninga svo bægt sé ffá hættunni um að íhaldsforystan kafni í fylgi. Hringrots verður vart hjá lykil- útsæðisræktanda kartaflna í Eyjafirði: Stórslys varð í sjúkdómavörnum Kartöflusjúkdómurinn hringrot hefur komið upp á bæ í Grýtu- bakkahreppi í Eyjafirði. Svo illa vill til að um er aö ræða að bóndinn er stofnræktandi, þannig að tilfeilið er alvarlegt áfall fyrir kartöflusjúkdómavam- ir í landinu. Árið 1987 var sett reglugerð um kartöfluútsæði. Reglugerðinni var ætlað að hefta frekari útbreiðslu hringrots og kartöfluhnúðorms. Samkvæmt henni voru gefín út sérstök leyfi til bænda sem rækt- uðu útsæði og seldu. Leyfi var veitt eftir að tekin höfðu verið jarðvegssýni hjá bændunum og litlar eða engar líkur taldar á að smit gætí boríst um iandið með út- sæði frá þeim. Þeir sem nú hafa útsæðisleyfi eru 60 talsins en 43 þeirra eru í Eyja- firði. Tíu ræktendur af þeim 43 stunda auk þess ræktun ákveð- inna stofna undir sérstöku eftirlití svonefndrar útsæðisnefndar. Það er hjá einum þessara stofnrækt- enda sem hringrotssmit hefur nú greinst hjá. „Það sem þarna hefur fariö úr- skeiðis er það að stofn af Premier sem við töidum lausan við smit hefur reynst vera smitaður. Stofn- inn kom frá ákveðnum bæ þannig að útsæði var flutt til ræktunar á annan bæ og síðan til þess þriðja - bæjar stofnræktandans um- rædda. Teklð var sýni á upphafs- bænum og annað sýni á bæ nr. 2 sem send voru til greiningar í Nor- egi. Smit fannst í hvorugt skiptíð. Þegar smitíð fannst um daginn, röktum við okkur tíl baka og fundum smit á þeim bæ sem út- sæðið kom upphaflega frá,“ sagði Sigurgeir Óiafsson plöntusjúk- dóraasérfræölngur hjá Rann- sóknastofnun landbúnaðarins. Hann sagði að þetta atvik kenndi mönnum það, að eftírlit verður að efla og taka verður sýni árlega á stofnræktarbæjunum af öllum af- brigðum sem þar eru ræktuð. Hriagrotsbakterían getur dulist I útsæði og smit getur verið til stað- ar jafnvel árum saman án þess að cinkenni komi fram. Þvl þarf að finna smitið áður en einkenni koma í ijós. Hringrot er bakteríu- sjúkdómur sem veldur þvi að kartöflurnar geymast mjög tak- markað og verða gersamlega ónýtar fyrir miðjan vetur. Sigurgeir Ólafsson sagði að vegna smitsins í Eyjafirði nú, teldi útsæðisnefnd að stokka verði upp allt fyrirkomuiag kartöflusjúk- dómavarna. Heíja verði nýja stofnrækt frá grunni og byggja hana upp á stofnum sem ræktaðir hafa verið upp á Rannsóknastofn- un landbúnaöarins m.a. með svo- nefndri vefjaræktunaraðferð, og eru gersamlega lausir við sjúk- dóma, Fjármagn hefði stofnunin hins vegar ekki haft hingað tíl, tíi að Qölga þessum hreinu stofnum. Leitað hefðí verið leiða tíl að út- vega það en ekld tekist enn. Vegna smitsins nú teldi nefndin að fella þyrfti útsæðisreglugerðina úr gildi tímabundiö og afturkalla öll útsæðisleyfi. Flýta þyrfti fjölg- un hreinu stofnanna sem tíl eru og jafnframt Ieita uppi hringrotssmit um allt land. Þessu þyrftí að verða lokið fyrir næsta vor þegar nýtt kerfi yrði tekið í notkun. Með þessu mótí yrði framvegis hægt að ábyrgjast að þeir sem fái ieyfi til að selja útsæði séu óyggjandi laus- ir við smit Hringrot kom fyrst upp hérlend- is veturinn 1984-1985 í Þykkva- bænum. Sigurgeir sagði að heita mætti að komist heföi verið fyrir það í matarkartöflum þaöan á einu ári. Það hefði verið gert með því að keypt var heilbrigt útsæði og þar með hefði vandinn verið úr sögunnl Hríngrots hefur mest orðið vart á Suðurlandi en verið sjaldgæft norðanlands. Það hefur frá upp- hafi tengst hollenska kartöfluaf- brigðinu Premier sem er mjög næmt fyrir sjúkdóminum. íslensk afbrigði eins og guUauga, Helga og rauðar íslenskar eru mikiu síður næm fyrir hringroti —sá Þessa sjón eru útlendingar tilbúnir að greiða fýrir háar upphæðir Útsýnisferöir á hvalamið? Áhugi Bandaríkjamanna og fleiri þjóða á hvölum er mikill eins og ís- lendingar hafa fengið að reyna. Nokkrir Islendingar hafa velt því fyr- ir sér hvort ekki sé hægt að selja þess- um hvalavinum ferðir til íslands þar sem aðalinntak ferðarinnar væri hvalaskoðun. Með því móti væri Þingflokkur Kvennalistans spyrst fyrir um fundaferðir fjármálaráðherra, sem segir: SÉRKENNILEG FYRIRSPURN Þingflokkur samtaka um kvenna- lista hefúr sent fyrirspum til Stein- grims Hermannssonar forsætisráð- herra vegna fúndarherferðar fjár- málaráðherra. í fyrirspuminni leita kvennalistakonur eftir því hver borgi brúsann við fundaferðir ráðherrans. Ólafur Ragnar Grímsson fjármála- ráðherra sagðist í samtali við Tímann telja þetta sérkennilega fyrirspum. ,Jlér er ekki um flokksfúndi að ræða á vegum Alþýðubandalagsins heldur fúndi um málefni fjármála- ráðuneytisins. Það hefúr verið talið eðlilegt árum saman að ráðherrar sem bera ábyrgð á verkefnum fari í heimsóknir í byggðarlög úti um land og skapi opinn vettvang fyrir lýðræð- islega umræðu um þeirra málefni," sagði Ólafúr Ragnar. Hann minnti á að sjávarútvegsráðherra hafi á síð- ustu misserum haldið fúndi um sjáv- arútvegsmál, svo og landbúnaðarráð- herra bæði núverandi og fyrrverandi, hafi haldið fúndi um landbúnaðar- mál. „Þannig mætti lengi telja,“ sagði fjármálaráðherra. Hann sagði að það væri langur listi, ekki bara í núverandi rikisstjóm heldur einnig fyrrverandi rikisstjóm- um, að ráðherrum finnst rétt að gefa almenningi í landinu kost á að ræða við þá um þau verkefni sem þeir bera ábyrgð á. „Fjármálastjóm ríkisins og tengsl þeirra við efnahagsmál em á mínu verkefnasviði," sagði Ólafúr Ragnar. Hann sagði að fúndimir hafi tekist mjög vel og fólk ánægt að fá upplýsingamar og þakkað fyrir þær. í bréfi þingflokks kvennalistans kemur fram að í aðdraganda þessara fúnda hafi ráðherrann gefið út sér- stakan áróðursbækling til dreifingar. Ennffemur segir að svo virðist sem efnt sé til tilkostnaðar sem að líkind- um hlaupi á milljónum króna, ekki til hlutlægrar ffæðslu heldur til að koma á ffamfæri einlitum áróðri. „Það rit sem þær nefna er ekki áróðursbæk- lingur heldur tölulegar staðreyndir, þar sem birt eru um tíu línu- og súlu- rit yfir þróun mála á íslandi og í öðr- um löndum byggðar á réttum töl- ffæðilegum upplýsingum," sagði Ól- afúr Ragnar. Þá sagði hann að á fúnd- unum hafi fólki gefist tækifæri til að koma með fjölmargar fyrirspumir um margt sem snýr að verkefúum fjármálaráðuneytisins og þeim mál- um sem ráðuneytið fer með. „Eg tel sjálfsagt og eðlileg í okkar lýðræðislega landi að ráðherrar starfi þannig að almenningur, ekki bara í Reykjavík þar sem ráðherramir eru á skrifstofúm, heldur almenningur úti um allt land hafi taekifæri til að hitta þá að máli,“ sagði Ólafúr Ragnar. —ABÓ áfram hægt að gera sér pening úr hvölunum, en sem kunnugt er hefúr hvalveiðum við Island verið hætt. Áhugi útlendinga á hvölum er mikill og margir era tilbúnir til að borga há- ar fjárhæðir fyrir að sjá hval blása. Enn sem komið er hefúr engin Is- lendingur lagt í að reyna að selja þeim hvalaskoðunarferðir. Það sem menn setja einkum fyrir sig er að erf- itt getur verið að finna hvalina. Þó að hvalir komi oft mjög nálægt landinu geta menn ekki verið öraggir með að hitta á þá nema að fara langt út í ball- arhaf. Óvíst er hvort útlendingar era tilbúnir til að leggja á sig margra klukkutíma siglingu í misjöfnum veðram í von um að sjá hval. Líkum- ar á að fmna hval nær landi era þó allnokkrar. Hægt er að finna hrefnu nálægt landi, en útlendingar hafa takmarkaðan áhuga á henni. Þeir einblína fyrst og fremst á stórhvelin. Norðmönnum hefúr þó tekist að selja útiendingum hvalaskoðunarferðir þar sem megin- áherslan hefúr verið á hrefúu. Hægt er að kaupa miða i sérstakar hvalaskoðunarferðir við strendur Bandaríkjanna. Þar eru aðstæður allt aðrar en hér við land. Við strendur Kalifomíu þurfa menn t.d. ekki að fara nema um eina sjómílu frá landi til að sjá hvali. Veðrið er líka allt ann- að og betra en hér við land. -EÓ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.