Tíminn - 21.06.1990, Side 11
10 Tíminn
Fimmtudagur 21. júní 1990
Fimmtudagur 21. júní 1990
Tíminn 11
innan mótssvæðisins. Miðaverðið lækkar
að kvöldi laugardags, um það leyti sem
kvöldvaka hefst, en þá kostar miðinn 2500
krónur. Okeypis er fyrir böm yngri en 12
ára og engin gjaldtaka er fyrir tjaldsvæði
eða hjólhýsi.
Mikill fjöldi hrossa
Þórarinn Sólmundsson sagði að skráning á
mótið væri mjög góð. „Sérstaklega er
skráning í skeiðið góð, enda vegleg verð-
laun í boði. Það er ljóst að þama verða öll
fljótustu hross landsins saman komin“.
Lágmarkstímar til skráningar hafa aldrei
verið strangari og alls er keppt í 6 hlaupa-
greinum. í A- og B-flokki verða samtals
182 hross og sami fjöldi er í báðum ung-
lingaflokkum. Keppnishross og sýningar-
hross verða um 750.
Ljóst er að um 150 kynbótahross verða
dæmd á landsmótinu, auk þeirra hrossa
sem ræktunarbú sýna. Kristinn Hugason
frá Akureyri er í dómnefndinni sem dæma
á kynbótahrossin á landsmótinu. Hann hef-
ur ásamt öðmm ferðast um landið og dæmt
mikinn Qölda kynbótahrossa. Kristinn
sagði að útkoman væri góð, bæði hvað
varðar kynbótahross almennt og þau hross
sem fara á Iandsmót. „Mér líst mjög vel á
þau kynbótahross sem fara á landsmót og
vænti afar mikils af þeim sýningum á
landsmótinu. Það er sjáanlegur stórárangur
í hrossarækt á Islandi“. Kristinn sagði jafh-
framt að stóðhestaframboðið yrði glæsilegt
eftir landsmót.
Ríöandi á landsmót
Búist við miklum fjölda ríðandi manna á
mótið, bæði sem koma í skipulögðum ferð-
um á mótið og frá því. „Við erum búnir
Eftir
Hermann
Svein-
bjömsson
undir að taka á móti allt að 3000 ferða-
hrossum. Til viðbótar verða keppnishross á
mótinu nærri 800“, sagði Þórarinn. Keppn-
ishross verða í sérhólfúm í landi Vind-
heima, sem er næsti bær við mótssvæðið.
Þórarinn sagði að sjálft mótssvæðið yrði
opnað að morgni föstudagsins 29. júní
þannig að keppendur og gestir geti komið
hrossum sínum tímanlega fýrir.
Þórarinn taldi að þeir væru ekki færri en
400 útlendingamir sem fæm í skipulögð-
um hestaferðum á mótið og frá því aftur.
Ljóst er að þessir helstu fjallvegir verða
orðnir vel færir fyrir mótstímann, þ.e.
Kaldidalur, Sprengisandsleið og Kjalveg-
ur. Þegar er búið að opna leiðina yfir Kjöl
og Sprengisandsleið verður opr.uð um
mánaðamótin.
„Þreytt og syfjuð höfuð lögð á hnakka
hestabit og traðk við fljótsins bakka“
Landsmót hestamanna verður haldið á
Vindheimamelum í Skagafírði dagana 3. til
8. júli. Mikill fjöldi fólks mun leggja leið
sína að Vindheimamelum þessa viku og
áætla mótshaldarar að gestir verði á bilinu
13 til 15 þúsund. Það er Landssamband
hestamanna sem heldur mótið, en 13 félög
á Norðurlandi bera ábyrgð á framkvæmd
þess. Þórarinn Sólmundsson, starfsmaður
framkvæmdamefndar mótsins, sagði í
samtali við Tímann að tungl verði fjærst
jörðu sjálfa landsmótshelgina, sem veit á
gott veður í Skagafirði, sól og blíðu eins og
hún gerist best.
Landsmótið hefst þriðjudaginn 3. júlí og
því lýkur sunnudaginn 8. júlí og er því
lengra en áður hefur verið. Skipulögð dag-
skrá verður alla þessa daga frá morgni til
kvölds. Mótið hefst með dómum kynbóta-
hrossa og afkvæmahrossa. Þeim dómum
verður haldið áfram á miðvikudegi, en þá
hefst einnig keppni í B-flokki gæðinga.
Dómar kynbótahrossa er fyrirferðarmikið
dagskráratriði og verður fímmtudagurinn
einnig notaður til þess, en samhliða verður
keppt í A-flokki gæðinga og eldri flokki
unglinga.
Mótið verður sett formlega kl. 9 á fostu-
dagsmorgun. Eftir setninguna verða kyn-
bótahross sýnd og kynnt. Þá hefjast undan-
rásir kappreiða og um kvöldið verður al-
þjóðleg keppni. Búið er að skrá þátttakend-
ur frá 13 þjóðlöndum í þá keppni og fer
hún þannig fram, að bestu knapar landanna
draga um hesta og etja síðan kapp í nokkr-
um greinum.
Laugardagurinn byrjar með kynningu á
keppendum i A- og B-flokki og unglinga-
keppi. Þá verður dómum kynbótahrossa
lýst, úrslit kappreiða fara fram og einnig
úrslit í alþjóðlegri töltkeppni.
Allt gerist
á sunnudegi
A sunnudegi verður mikið um að vera.
Dagskráin þennan lokadag hefst með hóp-
reið og helgistund. Frú Vigdís Finnboga-
dóttir forseti verður viðstödd og tekur þátt
í þessum lið dagskrárinnar. Væntanlega
verður Vigdís með í hópreiðinni og eftir
hana gróðursetur hún plöntur í tilefni
mótsins. Eftir þessa athöfn verður sýnt úr-
val kynbótahrossa og sýning ræktunarbúa í
beinu framhaldi af því. Mótinu lýkur síðan
með úrslitum í A- og B-flokki gæðinga og
keppni unglinga í eldri og yngri flokkum.
Stefnt er að mótsslitum um kvöldmatar-
leytið á sunnudag.
Mikið verður um skemmtanir á meðan á
mótinu stendur, stiginn verður dans og
sungið „meðan dagur í austrinu rís“.
Kvöldvaka verður á laugardagskvöldið og
dansað við undirleik harmonikku bæði
fóstudags- og laugardagskvöld á sérstök-
um danspalli sem er á mótssvæðinu. Þá
verða einnig dansleikir í Miðgarði og Ár-
garði þessa helgi, en þau félagsheimili eru
í nágrenni við mótssvæðið. Einnig er fyrir-
huguð sérstök dagskrá fyrir unglinga.
Aðgangseyrir á mótið verður 4500 krónur
og gildir sá miði fyrir allt það sem fram fer
ur útvarpsstöð á staðnum og þar verður
gerð grein fyrir þvi sem er að gerast á
svæðinu. Utvarpið verður beintengt dóm-
pöllum og þannig er hægt að fylgjast með j
öllu sem fram fer samtímis. Utvarpið verð-
ur einnig notað til þess að miðla ýmsum
gagnlegum upplýsingum til útlendinga og
hugsanlega verður sérstakur útsendingar- :
tími á erlendum málum, en einnig verður j
mótsskráin með erlendum textum.
30 lögregluþjónar
í tengslum viö mótiö
Þrettán hestamannafelög sjá um Lands-
mót hestamanna að þessu sinni og bera þau
öll ábyrgð á því rekstrarlega. Það eru öll
félögin á Norðurlandi að eyfirsku félögun-
um undanskildum. Búið er að skipuleggja \
vaktavinnu, 950 vaktir verða staðnar yfir
mótsdagana sem gera um 74 vaktir á félag.
Til viðbótar við það eru um 120 til 130
menn í föstu starfi í sólarhringsvinnu.
Björgunarsveitir í Skagafírði annast alla
öryggisgæslu ásamt lögreglunni á Sauðár-
króki, sem sér um skipulag löggæslu. Þá
verða læknar og hjúkrunarfólk á staðnum
svo og dýralæknir.
Bjöm Mikkaelsson, yfirlögregluþjónn á
Sauðárkróki, sagðist þurfa að fá menn víða
að til löggæslustarfa á mótinu. Hann sagði
að 30 lögreglumenn þyrfti þá daga sem
mótið stæði yfir, sjálfúr hefur Bjöm 13
lögregluþjóna og þarf því 17 annars staðar
frá, flestir koma frá Akureyri. Bjöm hefur
tekið þátt í skipulagningu umferðar á mót-
inu. „Ef það koma 15 þúsund manns á mót-
ið, þá má gera ráð fýrir um 5000 ökutækj-
um. Það þarf þó nokkuð svæði fýrir svo
marga bíla.“
Sérstök bamagæsla verður síðustu þrjá
mótsdagana. Þetta er hugsað þannig að
fólk geti sett böm sín í pössun í nokkrar
klukkustundir á dag. Þá sagði Þórarinn að
komið yrði fýrir Ieiklækjum víðar.
Gistirými pantaö
meö árs fyrirvara
Allt gistirými í nágrenni Vindheimamela
er löngu upppantað, en ljóst er að útlend-
ingar verða ekki færri en 3000. Samkvæmt
upplýsingum frá Flugleiðum er reiknað
með nærri 4000 útlendingum gagngert á
landsmótið. Á hótelinu í Varmahlíð var allt
gistirými þar pantað með árs fyrirvara og
svo var einnig í Steinstaðaskóla. Nokkrir
bæir em með ferðaþjónustu bænda og þar í
var svipaða sögu að segja, allt upp pantað
með löngum fýrirvara. Sögur hafa borist af
því að svimandi háar upphæðir hafi verið
boðnar fýrir laust húsnæði nálægt móts-
svæðinu.
Tungl fjærst frá jöröu
„Við höfúm leitað veðurfregna hjá veður-
stofum erlendis og útlitið fýrir landsmóts-
helgina er mjög gott. Þeir segja að tungl sé
fjærst frá jörðu og það þýði sól í Skaga-
firði. Við trúum því bara“, sagði Þórarinn
að lokum.
Sveinbjöm Sævar Ragnarsson, hestamaður, á Gáska.
Einar Bollason hjá íshestum sagði að um
250 ferðamenn fæm ríðandi áleiðis á
landsmót á vegum fýrirtækisins, ýmist fýr-
ir eða eftir. Hann sagði að fýrstu pantanir
hefðu farið að berast í þessar ferðir í mars í
fyrra og fýrsta Kjalarferðin seldist upp í
maí fýrir rúmu ári.
Einar óttaðist ekki of mikla umferð ríð-
andi manna yfir hálendið á þessum tíma.
Hann greindi frá því að í vetur hafi Náttúr-
vemdarráð, Landgræðslan, Landssamband
hestamanna og Ishestar sett nefnd á lagg-
imar til þess að skipuleggja hestaferðir um
hálendið og koma á fót nauðsynlegri þjón-
ustu. Nú fyrir landsmótið hefur nefndjn
náð samkomulagi við aðila, sem ráða
mannvirkjum og löndum á þessum Ieiðum,
um að vera með fóðursölu og leigja út að-
stöðu til gistingar og vörslu hrossa. Búið er
að kortleggja leiðina yfir Kjöl og Kaldadal
með tilliti til þarfa hestamanna og heysala
á þessum leiðum verður stóraukin.
Hagagjöld fýrir ferðahross á landsmóts-
svæðinu em 100 krónur á hestinn á sólar-
hring. Þórarinn Sólmundsson sagðist ekki
hafa áhyggjur af því að það væsi um ferða-
hrossin. „Við emm búnir að taka á leigu
velgróið land af Lýtingsstaðahreppi þar
sem þau verða geymd yfir mótið“.
Stærsti veitingasalur
noröan Alpafjalla
Mikill undirbúningur hefur átt sér stað á
Vindheimamelum, enda að mörgu að
hyggja þegar búist er við öllum þeim fjölda
gesta sem um er rætt. Hreinlætisaðstaða
hefúr verið stórefld frá því sem verið hefúr.
Vatnssalemum verður fjölgað mjög mikið,
bæði á mótssvæðinu og á tjaldsvæði. Þór-
arinn sagði að unnið væri að því að koma
rennandi vatni á öll tjaldsvæði, ásamt því
að skipuleggja þau.
„Við emm sennilega komin með stærsta
veitingahús norðan AlpaQalla", sagði Þór-
arinn, en veitingasalurinn á Vindheima-
melum hefúr verið stækkaður og nú er
hægt að taka í mat í senn um 450 manns.
Þá hafa áhorfendabrekkur verið stækkaðar
vemlega og er aðstaða fýrir áhorfendur
góð að mati Þórarins.
Á mótsstaðnum verður rekin umfangs-
mikil nýlenduvömverslun á vegum Kaup-
félags Skagfirðinga, þar sem seldar verða
vömr með tilliti til þarfa tjaldbúðafólks.
Einnig verður útibú frá Búnaðarbankanum
og margir aðilar verða með kynningu á
sínu starfi eða vömm. Framleiddir hafa
verið plattar, könnur og fleiri minjagripir
sem verða til sölu. „Öll þessi þjónusta
Timamynd; Gunnar
verður í einu stóm tjaldi, sem er u.þ.b. 150
fermetrar að stærð. Einnig verða minni
verslanir víða, sem selja pylsur og gos og
svoleiðis", sagði Þórarinn.
Búið er að byggja nýtt stóðhestahús,
þannig að nú er hægt að taka um 50 stóð-
hesta á hús. Þá er búið að laga hlaupabraut-
ir og byggja nýjan völl fýrir kynbótasýn-
ingamar, sem er staðsettur á melunum fyr-
ir norðan aðalsýningarsvæðið.
Yfir mótsdagana verður mjög öflug
fréttaþjónusta. Gefið verður út fréttabréf,
þar sem gerð verður grein fýrir öllum þeim
úrslitum sem liggja fýrir, ásamt gagnlegum
upplýsingum fýrir mótsgesti. Einnig verð-