Tíminn - 09.08.1990, Side 12
12 Tíminn
Fimmtudagur 9. ágúst 1990
Fjölbreytt tónlistardagskrá í
Listasafni Sigurjóns
Á þriðjudagstónleikum í Listasafni Sig-
uijóns Olafssonar næstkomandi þriðjudag
14. ágúst kl. 20.30 ætla fjórar ungar tón-
listarkonur að flytja fjölbreytta dagskrá.
Þær cru Signý Sæmundsdóttir söngkona,
Hlff Siguijónsdóttir fiðlulcikari, Nora
IComblueh sellóleikari og Þóra Friða Sæ-
mundsdóttir píanóleikari, en þær eru allar
þekktar úr tónlistarlífi Reykjavíkur.
Á cfnisskránni eru ariur cffir Bach og
Handcl fyrir sópran, fiðlu og bassa cont-
inuo, Konscrtaría cflir Mozart, Söngvar
fyrir fiðlu og sópran eftir Vaughan Willi-
ams og nokkur þckkt sönglög cftir
Brahms. Þar að auki mun Nora Kom-
bluch leika Sarabanda úr einleikssvítu nr.
5 cffir Bach og Hlif Siguijónsdóttir flytur
einlciksvcrk eftir pólska tónskáldið
Grazyna Bacewicz.
Að vcnju munu tónleikamir standa í um
það bil klukkustund og verður kafFistofa
safnsins opin að þeim loknum.
LITAÐ JARN A
PÖK OG VEGGI
Einnig galvaníseraö
þakjárn
Gott verö.
Söluaðilar:
Málmiöjan hf.
Salan sf.
Sími
91-680640
✓
Útivist
Helgarferðir 10.-12. ágúst.
Þórsmörk-Básar. Fjölskyldufcrð. Hin ár-
lcga fjölskylduferð Útivistar í Bása á
Goðalandi. Skemmtileg bamadagskrá,
m.a. ratlcikur, pylsugrill og varðcldur.
Verð kr. 4.500.-/5.000,-
Sumar að Fjallabaki. Álftavatn - Hólms-
árlón - Strútslaug - Brytalækir - Eldgjá -
Landmannalaugar. Gist í húsum, lcttar
göngur, náttúmundur norðan Mýrdalsjök-
uls. Rúta fylgir hópnum. Upplýsingar og
leiðarlýsing á skrifstofú Útivistar, Gróf-
inni 1.
Sunnudagur 12. ágústkl. 08.00. Athugið
brcyttan brottfarartíma. Þórsmcrkurgang-
an. Móciðarhvolsalda - Lambey. Gcngin
vcrður áfram gamla þjóðleiðin um Hvol-
hrcpp mcð viðkomu á Stórólfshvoli. Síð-
an um Dufþakskot (Dufþckju) út í Lamb-
cy og inn cftir henni. í Lambey er citt fcg-
ursta útsýnið í Fljótshlíðinni. Staðfróðir
Rangæingar vcrða fylgdarmcnn. Missið
ckki af göngu í Þórsmerkurgöngunni,
þcssari cinstæðu fcrðaröð. Farið vcrður
frá BSI, bcnsínsölu, Árbæjarsafni og frá
Fossncsti kl. 08.00, á Sclfossi kl. 09.00 og
Grillskálanum á Hcllu kl. 09.30. Fargjald
er kr. 1.500,- frá Reykjavík, kr. 750,- ffá
Annast dreifingu
á matvörum og
hvers konar
kælivöru um land
allt. Er með
frystigeymslu
fyrir lager.
KÆLIBÍLL
Sími 985-24597
Heima 91-24685
Sclfossi og Hcllu. Frítt fyrir böm í fylgd
mcð fúllorðnum.
Skálafell á Hcllisheiði kl. 13.00. Létt
ganga á Skálafell. Af fellinu er fagurt út-
sýni. Brpttfor frá BSÍ, bensínsölu, stansað
við Árbæjarsafn. Verð kr. 1.000.-. Frítt
fyrir böm í fylgd með fúllorðnum. Sjá-
umst! Útivist
Norræna húsiö:
Fyrirlcstur um leiðangur til íslands 1772
Olof Kaijser, fyrrvcrandi scndiherra Sví-
þjóðar á Islandi, hcldur fyrirlcstur í fúnd-
arsal Norræna hússins sunnudaginn 12.
ágúst kl. 16.00.
Fyrirlesturinn fjallar um leiðangur vís-
indamanna til Islands 1772, en í þcirri för
vom mcðal annarra Svíamir Daniel Karl
Solandcr og Uno von Troil. Uno von Tro-
il ritaði bókina „Bréf frá Islandi", að leið-
angrinum loknum, og hefúr hún komið út
í íslenskri þýðingu Haraldar Sigurðsson-
ar.
Olof Kaijscr (f. 1914) var scndihcrra á
íslandi á ámnum 1972- 1978. Hann ferð-
aðist mikið um landið og eignaðist hér
marga vini og kunningja. Hann starfaði í
sænsku utanríkisþjónustunni frá 1939 til
1980 er hann lét af störfúm.
Allir em hjartanlega velkomnir á fyrir-
lesturinn.
Frá Félagi eldri borgara
Farin vcrður 2 daga ferð um Snæfellsncs
12. ágúst nk. Upplýsingar á skrifstofú fé-
lagsins.
Einnig vcrður ferð á vegum Péturs H.
Ólafssonar 18. ágúst nk. um Fjallabak
syðri og nyrðri. Upplýsingar á skrifstofu
félagsins.
SkálhoHskirkja.
Sumartónleikar í Skálholtskirkju
15 ára afmælishátíð
Önnur tónleikahelgi Sumartónleika
í Skálholtskirkju verður helguð verk-
um eftir Johann Sebastian Bach og
ættmenni hans. Bachsveitin í Skál-
holti mun leika á öllum tónleikum
helgarinnar en hljóðfæraleikarar í
sveitinni leika einungis á gömul bar-
okkhljóðfæri. Þrennir tónleikar eru
haldnir hverja tónleikahelgi; tvennir
á laugardag kl. 15:00 og 17:00 og
einir á sunnudag og hefjast þeir kl.
15:00. Dagskrá seinni laugardagstón-
leikanna verður svo endurtekin ld.
15:00 á sunnudaginn. Kl. 17:00 er
messa. Prestur er Guðmundur Óli Ól-
afsson og organisti Hilmar Öm Agn-
arsson. í messunni verður flutt kant-
ata úr dagskrá laugardagsins. Að-
gangur að tónleikunum er ókeypis.
Tónleikar í Kjallara Keisarans
Rokk-klúbbur Geisla mun halda tónleika
í Kjallara Keisarans fimmtudaginn 9. ág-
úst í tilefni af hópferð til Donington í
Englandi, sem klúbburinn skipulcggur í
samráði við Ferðaskrifstofúna Átlantic.
Þar munu koma fram hljómsvcitimar
Exizt og Boneyard. Sérstakir gestir verða
hljómsveitin Leynivínsalamir. Húsið
verður opnað fyrir Doningtonfara kl.
21.00 og fyrir aðra gesti kl. 22.30. Tón-
leikunum lýkur kl. 01.00. Miðavcrð er
500 kr. Aldurstakmark er 18 ár.
Tekiö er á móti tilkynn-
ingum og fréttum í Dag-
bók Tímans á morgnana á
milli kL 10 og 12 í sfma
68 63 OO. Einnig er tekiö
viö tilkynningum í
póstfaxi númer 68 76 91.
ÖLL VINNSLA
PRENTVERKEFNA
MINNING
Valný Bened i ktsdótti r
frá Brandaskarði
Fædd 27. desember 1898
Dáin 1. ágúst 1990
Þegar langt er liðið á hlýtt og sólríkt
sumar, kveður okkur elskuleg
frænka og ömmusystir mín.
Mér finnst tíminn dæmigerður, því
alltaf var hlýtt og bjart í kringum
hana. Hún unni því sem fallegt var,
þó lífið hafi ekki alltaf farið mildum
höndum um hana, frekar en marga
aðra af þessari kynslóð. Það er erfitt
til að hugsa að hún sé horfin okkur,
en Guð ræður.
Árin hennar voru orðnin býsna
mörg, bráðum 92. Við sem þekktum
hana náið, fannst hún aldrei gömul.
Það var eins og léki um hana ungur
og ferskur blær til hinstu stundar.
Ekki er mér grunlaust um að hún
hefði getað og viljað lifa lengur, ef
ekki hefði komið til illskeyttur sjúk-
dómur, sem enn í dag er erfitt að ráða
við.
Hún var komin í góða og þægilega
íbúð að Álfaskeiði 64 í Hafharfirði
og undi þar hag sínum vel. Ég á
margar góðar minningar ffá ferðum
mínum til Valnýjar, ffá bamsaldri til
fullorðinsára. Hún var höfðingi heim
að sækja; þó ekki væri alltaf úr
miklu að spila, fór enginn svangur
eða leiður úr hennar húsum.
Frænku minni var margt gott gefið,
sem vert er að þakka að leiðarlokum.
Hún var bráðgreind og dugleg við
allt sem hún fékkst við. Mikil og fal-
leg handavinna er til eftir hana, en
þær systur Valný og Málfffður amma
mín vom einstakar hannyrðakonur.
Ég man ekki eftir þeim öðmvísi en
með handavinnu.
Þeirra samband var gott og náið alla
tíð, en amma lést 3. janúar 1984.
Blessuð sé minning hennar.
Bókhneigð og ljóðelsk var ffænka
min í meira lagi, og átti létt með að
koma saman stöku og gerði töluvert
af því, alveg fram á þessa síðustu
vordaga.
Fjölskyldutengsl rækti hún af alúð,
og fylgdist vel með öllu sem var að
gerast. Við eigum elskulegri ffænku
mikið að þakka.
Valný átti sitt heimili fyrir norðan í
mörg ár í Skagafirði og á Akureyri.
Hún eignaðist fjögur böm og bjó
lengst af með þeim, síðustu ár með
Valdimar elsta syni sínum í Hafnar-
firði, þar til hann lést fyrir rúmu einu
ári síðan. Það var henni þungt áfall
sem hún var ekki búin að jafna sig á.
Já, ffænka var einstök hetja og fékk
að halda sinni reisn til lokadags. Val-
ný var fædd að Króki á Skagaströnd.
Foreldrar hennar vom Margrét Frið-
geirsdóttir og Benedikt Sigvaldason,
er lengst bjuggu á Brandaskarði.
Valný og systkini hennar kenndu sig
ávallt við þann stað. Þar býr nú bróð-
ursonur hennar, Jón Vilhjálmsson.
Um tíma bjó Valný með Guðmundi
Jóhannessyni og eignaðist með hon-
um þrjú böm. Þau eru Margeir Bragi,
Friðgeir Hreinn og Ástheiður Fjóla.
Áður átti hún Valdimar Eyberg Ingi-
marsson. Hún stóð að mestu ein að
uppeldi bama sinna og var þeim
ffamúrskarandi ástrik og góð móðir.
Ég og fjölskylda mín sendum böm-
um hennar, tengdabömum, bama- og
langömmubömum innilegar samúð-
arkveðjur. Hennar minning lifir.
Far þú i friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(Vald. Briem)
Inga Björk Hólmsteinsdóttir.
Bognar aldrei, brotnar í
bylnum stóra seinast.
Þessar hendingar Stephans G.
Stephanssonar duttu mér í hug, þeg-
ar elskuleg móðursystir mín, Valný
Benediktsdóttir, kvaddi þennan
heim. Hún andaðist á St. Jósefsspít-
ala þann 1. þessa mánaðar eftir
nokkurra vikna legu. Hún var orðin
altekin illvígum sjúkdómi þegar hún
loks fór í rannsókn og ekkert hægt að
gera nema lina þrautimar. Það var
hennar eiginleiki að standa á meðan
stætt var og alla tíð að huga meira að
öðmm en sjálfri sér. Hún frænka mín
var gerð úr góðum efniviði til sálar
og líkama, heilsteypt og æðmlaus á
hverju sem gekk. Hún sigldi ekki
alltaf lygnan sjó í gegnum þetta líf,
en stóð af sér stormana og hretin
með mikilli prýði og virtist koma
heil og óskemmd út úr boðafollunum
og jafnvel rismeiri eftir en áður. En
hún átti líka sínar glöðu og góðu
stundir. Bömin hennar fjögur vom
henni öll sérlega góð og umhyggju-
söm og bama- og bamabamabömin
henni til mikillar gleði. Hún breiddi
sig líka út yfir allt sitt fólk af fádæma
góðvild og umhyggjusemi. Hún bjó i
Hafnarfirði nú síðustu árin og hélt þá
heimili með elsta syni sínum, en
varð fyrir þeirri raun að missa hann
fyrir einu og hálfú ári síðan. Þá flutti
hún í litla, notalega íbúð á vegum
Sólvangs í Hafnarfirði. Þar leið
henni vel og átti gott samband við
nábýlisfólkið.
Ég ætla ekki að rekja lífsferil þess-
arar frænku minnar neitt náið en
minnast hennar, vegna þess hve hún
var mér kær.
Hún var meira og minna á heimili
foreldra minna ffá því ég man fyrst
eftir mér og var i miklu uppáhaldi
hjá okkur Hólmsteini bróður mínum.
Hún lék við okkur lítil, las fyrir okk-
ur sögur og kenndi okkur fyrstu ljóð-
in sem við lærðum. Hún vár mjög
ljóðelsk, enda vel hagmælt og hélt
því ffam í háa elli, eins og öllu sínu
andlega atgervi. Mamma mín og hún
voru afar samrýndar systur og varla
annarrar minnst svo hinnar sé ekki
getið. Á seinni árum eftir að mamma
fór að vera hér fyrir sunnan að vetr-
inum, áttu þær því láni að fagna að
búa í nágrenni hvor við aðra. Hittust
þær þá oft og gistu gjaman nokkrar
nætur hvor hjá annarri. Ég sé fyrir
mér gleðina á andliti mömmu minn-
ar þegar hún e.t.v. óvænt sá systur
sína koma í heimsókn. „Ó, kemur nú
elsku systir mín,“ var viðkvæðið og
svo var faðmast, hlegið og spjallað.
Alltaf var nóg að starfa hjá þeim, því
báðar voru mikið fyrir handavinn-
una. Þær saumuðu út, hekluðu og
pijónuðu og svo var gefið á báða
bóga. Já, hún ffænka mín var búin að
ylja mörgum höndum og fótum, stór-
um og smáum. Það var meira en yl-
urinn úr ullinni sem vermdi mann,
það var líka hlýjan ffá þeim góða
hug sem lagður var í verkið. Valný
mín safnaði sér ekki veraldar auði í
þessu lífi. Hún átti aldrei sitt eigið
húsnæði eða blett til að rækta, var þó
í eðli sínu mikil ræktunarmanneskja.
Ef hún eignaðist eitthvað ffam yfir
brýnar þarfir, þá var alltaf einhver
sem henni fannst betur komin að því
en hún sjálf.
Með góðu og kristilegu lífemi í
þessum heimi er talað um að maður
safhi sér auði á himnum sem mölur
og ryð fái ekki grandað. Ef svo er,
hef ég þá trú að hún ffænka min hafi
að góðu að hverfa hjá Guði sínum.
Við systkinin og allt okkar fólk
söknum ffænku okkar, en eitt sinn
skal hver deyja. Við þökkum fyrir
allar góðu stundimar, sem við höfúm
átt með henni, og minnumst hennar
ætíð með gleði í huga.
Hólmfríður J. Jóhannesdóttir.