Tíminn - 23.08.1990, Page 12
12 Tíminn
Fimmtudagur 23. ágúst 1990
Ingólfur Benediktsson
málarameistari frá Dal
Fœddur 25. september 1908
Dáinn 6. maí 1990
Til afa i Dal.
í húsi sem að nú er orðið hljótt
við háa brekku og lœk með fagran söng
bjóst þu, og vegna þln var ekkert Ijótt
I lífinu sem hló þar dœgrin löng.
Og hvlldin þar var hverjum manni náð
sem hvarf þar inn i litla konungshöll.
Þar alltaffengu afadrengir gáð
I œvintýrahéim við álfa og tröll.
Og pottormum sem geystust þar um gólf
var gefið meira en nokkur maður veit.
Þœr gjafir jylla hjarta og sálarhólf
afhlátri sem að bjó þar uppi l sveit.
Svo þó að hlátur hljóðni nú um sinn
og húsið grátiþegar enginn sér
þá býrþin gjöfhjá okkur, afi minn,
og öllum þeim sem fengu að kynnast þér.
Sigurður og Benedikt Ingólfssynir.
DAGBÓK
Söngtónleikar
Kári Friðriksson og Ulrik Ólafsson halda
söngtónleika á Húsavík 1. september nk. i
samkomusal Bamaskóla Húsavikur kl. 15
og á Akureyri 2. sept nk. i sal Tónlistar-
skóla Akureyrar kl. 15.
Á efhisskrá eru meðal annars lög eftir
Áma Thorsteinsson, Sigfús Halldórsson
og Sigvalda Kaldalóns. Einnig eru lög
eftir ítölsku tónskáldin Francesko Cilea
og Giacomo Puccini.
Úlrif Ólafsson er 37 ára gamall. Hann
hlaut menntun á Akranesi og í Reykjavfk
og framhaldsnámi lauk hann f Rcginsburg
í Vestur-Þýskalandi. Aðalnámsgreinar
voru orgelleikur, kór- og hljómsveitar-
stjóm með sérstakri áherslu á kirkjulegar
tónbókmenntir.
Að námi loknu starfaði á Akranesi f 1 ár
og á Húsavik f 6 ár, þar sem hann var org-
anisti við Húsavíkurkirkju, skólastjóri
tónlistarskólans og stjómandi blandaðs
kórs á Húsavík og Karlakórsins Hreims í
Aðaldal. Ulrik er organisti við Krists-
kirkju í Landakoti síðan 1987, kennir org-
elleik og kórstjóm við Tónlistarskóla
þjóðkirkjunnar f Reykjavík og er stjóm-
andi söngsveitarinnar Fflharmóniu sfðan
haustið 1988. Hann hefur spilað undirhjá
fjölda einleikara.
Kári Friðriksson er 29 ára gamall. Hann
I \ í- Wm JR
i m
hefúr stundað söngnám um margra ára
skeið, meðal kennara hans vom Magnús
Jónsson og Sigurður Demetz. Kári út-
skrifaðist sem tónmcnntakennari ftá Tón-
listarskólanum 1 Reykjavík 1988 og tók
einnig 8. stigs söngpróf þaðan ári síðar.
Var söngkennari hans þar Halldór Vil-
helmsson.
Veturinn 1989-90 var Kári á Ítalíu hjá Pi-
er Miranda Ferraro í Milano f ffekara
framhaldsnámi í söng. Þetta em 'fyrstu
einsöngstónleikar Kára.
Til sölu fjölhnífavagn
DEUTZ FAHR K550 árg. 1985. Upplýsingar í síma
93-41475.
Fiat Uno 45 árg. ’84
til sölu, í góðu standi. Selst gegn staðgreiðslu á
110 þúsund. Upplýsingar í síma 91 -41224 eftir kl.
18.
% |v Kransar, krossar, kistu- skreytingar, samúðarvendir og samúðarskreytingar. Sendum um allt land á opnunartíma ^)frá kl. 10-21 alla daga vikunnar I MMiLfa
í Miklubraut 68 @13630
Þriðjudagstónleikar
Á þriðiudagstónleikum f Listasafni Sig-
uijóns Ólafssonar nk. þriðjudag, 28. ág-
úst, kl. 20.30 mun Jónas Ingimundarson
pfanisti leika verk eftir Chopin. Jónas er
tónlcikagestum Listasafhs Siguijóns Ól-
afssonar vel kunnur, því í fyrrasumar hélt
hann cinleikstónlcika og fýrr f sumar lék
hann undir söng Sólrúnar Bragadóttur f
sal safnsins. Er skemmst frá þvf að segja
að cndurtaka þurfli báða tónleikana vegna
mikillar aðsóknar og urðu samt margir frá
að hverfa. Jónas er nýkominn frá Eng-
landi þar sem hann hélt tónleika með
Kristni Sigmundssyni á Listahátíð í Strat-
ford upon Avon.
Að venju munu tónleikamir standa f um
það bil klukkustund og verður kaffistofa
safnsins opin að þeim loknum.
Nessöfnuður
Sfðsumarferð um Borgarfjörð nk. laug-
ardag. Lagt af stað kl. 10 frá Neskirkju.
Veitingar í Reykholti. Beijasprettan könn-
uð. Nánari upplýsingar hjá kirkjuverði f
síma 16783.
Guðmundur Óskar Ólafsson
Félag eldri borgara
Gönguhrólfar hittast nk. laugardagkl. 10
að Nóatúni 17. Þingvallaferð 1. septem-
ber. Nánari upplýsingar 1 sfma 28812.
Félag eldri borgara
Nokkur sæti laus f ferð 28.8 um Fjalla-
bak syðra, Lakagfgar, Skaftafell og Breið-
amerkurlón. Til baka verður farið um
Fjallabak nyrðra, Eldgjá og Landmanna-
laugar. Lagt verður af stað þriðjudaginn
28. ágúst kl. 9.00 ffá B.S.Í. Fararstjóri er
Pétur Ólafsson. Frekari upplýsingar má fá
ísímum 28812 og 623320.
Pennavinir óskast
Tímanum hefúr borist bréf ffá 23 ára
gamalli sænskri stúlku sem vill skrifast á
við íslendinga á aldrinum 23-26 ár, karla
eða konur. Áhugamál hennar em tónlist,
fþróttir og islenskir hestar o.fl. Hún segir
að þeim sem svara sé í sjálfsvald sett
hvort þeir senda mynd eða ekki. Hún
skrifar bæði sænsku og ensku og heimilis-
fangið er:
Kicki Mikaelsson
Lundavagen 8a
S 90249 Umea
Sviþjóð
Septem á Kjarvalsstööum
Laugardaginn 25. ágúst verður opnuð að
Kjarvalsstöðum sýningin „September —
Septem". Sýnd em verk félaga úr Sept-
emberhópnum ffá árunum 1948 til 1952
og félaga úr Septemhópnum ffá árinu
1974.
Sýningin verður f öllu húsinu og lýkur 9.
september.
Kjarvalsstaðir em opnir daglega ffá kl.
11.00-18.00 og er veitingabúðin opin á
sama tíma.
Sumarsýning í Hafnarborg
Laugardaginn 28. júlí sl. var opnaður nýr
sýningarsalur i húsakynnum Hafharborg-
ar. Salurinn hefúr hlotið nafhið Sverris-
salur f virðingarskyni við dr. Sverri
Magnússon, lyfsala í Hafnarfirði, en hann
lést 22. júni s.l. Sverrir var, ásamt konu
sinni Ingibjörgu Siguijónsdóttur, er lést
1986, ffumkvöðull að stofnun Hafhar-
borgar, menningar- og listastofhunar
Hafnarfjarðar.
Af þessu tilefhi hcfúr nú verið sett upp
sýning í sýningarsölum Hafnarborgar á
hluta listasafns þeirra hjóna sem þau af-
hentu stofnuninni með gjafabréfi hinn 1.
júní 1983 í tilefni af 75 ára afmæli Hafn-
arfjarðarbæjar.
í Sverrissal em sýnd um þijátíu listaverk
er Svenir Magnússon afhenti stofhuninni
til eignar f nóvcmber á sfðasta ári.
SÍÐASTA SÝNINGARHELGI
Sýningarsalir em opnir alla daga nema
þriðjudaga ffá kl. 14:00- 19:00.
Kaffistofa Hafnarborgar er opin alla
dagaftákl. 11:00-19:00.
Ertu hættulegur
IUMFERÐINNI 0
án þess að vita það?
Mörg lyf hafa svipuö áhrif
og áfengi
Kynntu þér vel lyfiö
sem þú notar.
il®
Sjáum um erfidrykkjur
RISIÐ
Borgartúni 32
Upplýsingar í síma 29670
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför
Páls Þorsteinssonar
á Hnappavöllum
Guðrún og Sigurður,
Ásdís, Gunnþóra og fjölskyldur.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi
Guðjón Jónsson
Kirkjuhvoll, Hvolsvelli
verður jarðsunginn frá Breiðabólstaðarkirkju (Fljótshlíð laugardaginn
25. ágúst kl. 14.00.
Rúnar Guðjónsson Auður Svala Guðjónsdóttir
Ingi Guðjónsson
Erna Hanna Guðjónsdóttir
Margrét Guðjónsdóttir Kjartan Óskarsson
og barnabörn
' í i ‘
• . i I 8 IÉI
’i
11 1 * ' V: ; ^ » f Jl Ls.
Vetrarstarf
Langholtskórsins að hefjast
Kór Langholtskirkju hefhr vetrarstarfið
nú f byrjun september. Fyrsta verkefhi
vetrarins verður að æfa fýrir FinnlandsfÖr
kórsins f október nk., en kómum var boð-
ið að taka þátt f íslandsviku'sem haldin er
1 tilefni vigslu nýrrar tónleikahallar f
Tampere. Kórinn syngur við biskups-
messu i Dómkirkjunni i Tampere, þar sem
biskup íslands, herra Ólafhr Skúlason,
mcssar ásamt finnskum starfsbróður sfn-
um. Auk þess heldur kórinn sjálfstæða
tónlcika í Tampere, Helsinki og Borga. Á
efhisskránni verða fslensk verk, gömul og
ný, en höfuðáherslan lögð á kirkjutónlist.
Þá mun kórinn koma fram við athöfh er
forseti íslands, frú Vigdfs Finnbogadóttir,
verður sæmd heiðursdoktorsnafnbót.
Jólasöngvar kórsins verða að vanda sein-
asta föstudag fýrir jól, hinn 21. desember.
Á þeim tónleikum verða flutt lög og verk
tengd jólum og aðventu. Þessir tónleikar
em árlegur viðburður og jafhan húsfýllir.
Um jólin verður flutt JÓLAÓRATOR-
ÍAN eftir J.S. Bach, en flutningur þessa
stórvirkis hefhr verið fastur liður annað
hvert ár frá 1981, en féll niður s.l. ár
vegna flutnings kórsins á Sköpuninni eft-
ir Haydn með Sinfóniuhljómsveit íslands.
Eftir jól verður tekið til við æfingar á JÓ-
HANNESARPASSÍUNNI eftir J.S. Bach,
sem flutt verður i vor. Hugmyndin er að
sviðsetja verkið, en Jóhannesarpassían er
sérlega leikrænt verk með hraðri atburða-
rás scm nálgast mjög ópemformið. Þetta
er þó háð því að fjármagn fáist, þvi slík
uppfærsla yrði afar dýr.
Raddþjálfari verður eins og undanfarin
ár Ólöf Kolbrún Harðardóttir og stjóm-
andi kórsins er Jón Stefánsson.
Hægt er að bæta við nokkmm félögum f
allar raddir. Þeir sem áhuga hafa, þurfa að
hafa góðar raddir og cinhver tónlistar-
þckking er æskileg, en ekki skilyrði.
Sækja þarf um fýrir 26. ágúst i síma
71089 (Sigrún Stefánsdóttir) eða 84523
(Ema Þórarinsdóttir).