Tíminn - 15.09.1990, Síða 3
Laugardagur 15. september 1990
Tíminn 3
Hjartasjúklingar ætla að
mynda stærstu og öflugustu
sjúklingasamtök á íslandi:
Félög hjart*
veikra í Hvert
kjördæmi
Vegna vaxandi verkefna hafa
Landssamtök hjartasjúklinga breytt
skipulagi sinu. Áformað er að félög
hjartasjúklinga verði stofhuð í öllum
kjördæmum landsins fýrir lok nóv-
embermánaðar. Félagsmenn
Landssamtaka hjartasjúklinga eru
nú um 1.700 hvar af 600-700 eru
búsettir utan höfuðborgarsvæðis-
ins. Samtökin telja ástæðu til að fé-
lagafjöldinn muni áfram stóraukast,
því ný tilfelli hjarta- og æðasjúkra
eru talin 400 til 500 á ári. Auk þess
er öllum þeim sem vilja styðja
markmið samtakanna boðið að
gerast félagsmenn.
„Hjarta- og æðasjúkdómar munu vera
ein algengasta veikindaorsök hér á
landi, þannig að hinn fjölmenni hópur
hjartasjúklinga og aðstandenda þeirra
gæti sennilega myndað ein stærstu og
öflugustu sjúklingasamtök landsins,“
segir í írétt frá samtökunum. Sam-
kvæmt hinu nýja skipulagi munu sam-
tökin skiptast í deildir eftir landsvæð-
um. I hverri deild þurfi að vera a.m.k.
30 félagsmenn. Þessi svæðafélög eiga
síðan að kjósa fulltrúa á aðalfundi
landssamtakanna sem haldnir eru ann-
að hvert ár — sá næsti í mars 1991.
Stofnfundir fyrstu félaganna hafa
verið ákveðnir, þann 15. september í
Reykjavík og þann 16. september á
Akureyri. Önnur félög verða stofhuð í
október og nóvember.
Aukið hluta-
fé Eimskip
Samþykkt hefur veríð að auka
hlutafé Eimskips, að nafnverði
um allt að 86 milljónir króna. Til-
lagan var samþykkt einróma á
fundi hluthafa í gær.
Munu hluthafar fá bréf á næstu dög-
um þar sem þeim verður boðið að
skrá sig fyrir nýjum hlutum í réttu
hlutfalli við eign sína. Frestur til
áskriftar rennur út að þremur vikum
liðnum. Um helmingur hlutafjár-
aukningarinnar mun fara á almennan
markað eftir eftir 8. október, undir
umsjón Verðbréfamarkaðs Islands-
banka í samvinnu við Fjárfestingafé-
lag íslands hf. jkb
Evrópustefnu-
nefnd á
fundaferð
vegna EB
Evrópustefriunefrid Alþingis s'rtur
þessa dagana fundi, annars veg-
ar með dönsku Evrópubandalags-
nefndinni og hins vegar með
ráðamönnum EB í Brussel.
í gær var fundað í Kaupmannahöfh
um viðhorf Dana til viðræðna EFTA
og EB, sameiginlegan markað EB og
ýmis önnur málefhi er snerta Island,
Norðurlönd og EB sérstaklega. Þá
mun Evrópustefnunefhd kynna sér
reynslu dönsku EB nefndarinnar af
meðferð mála hjá danska þinginu
samhliða málsmeðferð og ákvarðana-
töku hjá EB.
í Brussel hittir Evrópustefhunefhd
m.a. að máli Henning Christopher-
sen, varaforseta ffamkvæmdastjómar
EB og Robert Cohen, skrifstofustjóra
EFTA málefha við utanrikisvið-
skiptaskrifstofu ffamkvæmdastjómar
EB. Nefndin mun eiga fundi með
þingmönnum úr utanríkisviðskipta-
nefnd, fiskimálanefhd EB og þá er
sérstaklega hafa unnið að pólitísku
samstarfi og vamar- og öryggismál-
um innan EB. Ennffemur heldur Evr-
ópustefhunefnd fund með sendiherr-
um EFTA-ríkja hjá EB. jkb
Apple Macintosh tölvur
á afsláttarverði
Nú er komið að næstu afgreiðslu Apple Macintosh-tölvanna, skv. ríkissamningi Innkaupastofnunar
ríkisins og Apple-umboðsins, sem veitir kennurum, nemendum á háskólastigi, nemendum V.Í.,
ríkisíyrirtækjum, ríkisstofnunum, sveitarfélögum landsins og starfsmönnum þeirra allt að 36% afslátt.
Tilboðsverð Listaverð Afsl. Tilboðsverð: Listaverð: Afsl.
Tölvur: Macintosh n samstæður frh.:
Macintosh Plus lMB/ldrif 67.000 72.000 7% Macintosh IIci 4/40
Macintosh SE 1/40 130.000 150.900 14% Litskjár, skjástandur,st. lyklab. 435.104 618.700 29%
Macintosh SE 1MB/2 FDHD 141.773 198.000 28% Macintosh Ilfx 4/80
Macintosh SE 2/40/1 FDHD 194.291 274.000 29% Litskjár, spjald, skjástand.,st. lyklab. 626.204 892.800 30%
Macintosh SE/30 2/40 209.966 296.000 29%
Macintosh SE/30 4/40 234.231 328.000 29%
Macintosh Portable 1/40 273.534 386.000 29% Prentarar:
Dæmi um Macintosh II samstæður: ImageWriter II 44.042 59.000 25%
Macintosh IIcx 2/40 Personai LaserWriter SC 123.132 162.000 24%
Sv/hv skjár, spjald, skjástand., st. lyklab. 358.945 509.000 29% Personal LaserWriter NT 188.545 254..000 26%
Macintosh IIci 4/40 LaserWriter II NT 253.958 348000 27%
Sv/hv skjár, skjástandur, st. lyklaborð 397.725 565.000 29% LaserWriter IINTX 291.337 402.000 28%
Við vekjum sérstaka athygli á verði Macintosh Plus- og Macintosh SE-tölvanna,
sem gildir aðeins á meðan birgðir endast, en sala á þeim tölvum
hefur verið gífurleg undanfarnar vikur.
PantanirberistBirgiGuðjónssyni 1A •OA
íInnkaupastofnunríkisinsfyrir J. )% ðvUIvllllL/vI J\)
Innkaupastofnun ríkisins Radíóbúðin hf.
Borgartúni 7, sími 26844 sími: (91) 624 soo
Apple-umboðið
Skipholti 21,105 Reykjavík