Tíminn - 06.04.1991, Qupperneq 4
4 Tíminn
t’CjO V A v inchicm ir !
Laugardagur 6. apríl 1991
UTLOND
Um tvær milljónir Kúrda á flótta:
Iraksstjórn býður
Kúrdum sakaruppgjöf
Um tvær milljónir Kúrda flýja nú her Saddams Hussein, en íraskir Kúrdar eru ekki nema um 3,5 milljónir.
írösk stjórnvöld sögðust í gær
ætla að veita öllum uppreisnar-
mönnum Kúrda sakaruppgjöf. í
opinberri tilkynningu frá Bylt-
ingarráði Baathflokksins sagði
að þeir Kúrdar sem enn séu í Ir-
ak fái viku frest til að taka þessu
tilboði, en þeir Kúrdar sem hafa
flúið land fái tvær vikur. f til-
kynningunni, sem var birt af
opinberu fréttastofunni INA í
írak, sagði að sakaruppgjöfin
næði til allra Kúrda nema þeirra
sem hefðu notfært sér upp-
lausnarástandið til morða,
nauðgana og þjófnaðar.
Talsmenn kúrdískra uppreisnar-
manna sögðust ekki trúa þessari yfir-
lýsingu og sögðu hana vera „sjúkleg-
an brandara". „Kúrdísku flóttamenn-
irnir hafa séð slátrunina með eigin
augum í Kirkuk, Altin Kopru ..."
sagði einn þeirra. Þeir sögðu að
Kúrdarnir mundu ekki snúa aftur
fyrr en búið væri að koma Saddam frá
og ákveðið hefði verið að halda frjáls-
ar kosningar í landinu undir eftirliti
Sameinuðu þjóðanna.
Samkvæmt fréttum, sem borist hafa
frá Týrklandi og íran, þá eru um tvær
milljónir Kúrda á flótta undan her
Saddams Hussein, en íraskir Kúrdar
eru samtals ekki nema 3,5 milljónir.
Tyrknesk yfirvöld sögðu um miðjan
dag í gær að tæplega 250 þúsund
íraskir Kúrdar hefðu komið yfir
landamærin til Tyrklands.
Búist var við því í gær að Öryggisráð
S.Þ. mundi greiða atkvæði um álykt-
un gegn íraksstjóm um að hætta taf-
arlaust ofsóknunum gegn Kúrdum
og leyfa alþjóðlegum hjálparstofnun-
um að koma Kúrdum til hjálpar.
Atlanthafsbandalagið (NATO) sakaði
íraksstjóm í gær um að þverbrjóta öll
mannréttindi og sagði að hún yrði að
stöðva árásimar á Kúrdana. „NATO
fordæmir harðlega þessi grimmdar-
verk... og lýsir íraksstjóm ábyrga fyr-
ir þessum mannréttindabrotum,"
sagði talsmaður samtakanna eftir
fundinn, sem Bretar boðuðu til.
Fundarmenn voru sammála um að
veita þyrfti tafarlausa neyðaraðstoð
og alþjóðleg hjálparsamtök ættu að
hafa yfimmsjón með henni.
George Bush, forseti Bandaríkjanna,
varði í gær þá stefnu sína að veita
Kúrdum ekki hernaðaraðstoð með
því að segja að bandarískir hermenn
væm mikilvægari en svo að þeim yrði
fórnað í borgarastyrjöld í írak. Hann
hefur hins vegar varað íraksstjóm við
Sumir sem fara snemma að sofa
eiga í erflðleikum með svefninn og
vakna oft upp um miðjar nætur og
geta ekki sofið lengur. Þetta er sér-
staklega algengt hjá eldra fólki.
Ástralskir vísindamenn telja að
ástæðan fyrir þessu sé að hin svo-
nefnda líkamsklukka sé komin úr
jafnvægi við gang jarðar og þeir
telja sig hafa fundið leið til þess að
samræma hana aftur að honum.
Dr. Leon Lack, sem stjórnar geð-
rannsóknarhópi við Flindersháskól-
ann í Ástralíu, segir að hægt sé að
koma í veg fyrir þetta vandamál með
því að láta sterkt ljós skína á sig
snemma kvölds.
• Laík segir að líkami manna taki
náttúrlegum breytingum í sveiflum
sem miðist við gang jarðar. Góður
mælikvarði á þessa líkamsklukku er
líkamshitinn, sem undir venjuleg-
um kringumstæðum er lægstur um
kl. 5 f.h. og hæstur um kl. 6 e.h.
Lack segir að líkamshitinn hjá þeim,
sem glími við það vandamál að
því að viðskiptaþvingunum gegn írak
verði kannski ekki aflétt ef drápunum
á Kúrdum og öðrum uppreisnar-
mönnum linnir ekki. Bush hefur ver-
ið gagnrýndur af m.a. demókrötum
og fjölmiðlum fyrir að láta herinn
ekki koma uppreisnarmönnum til
hjálpar. Gagnrýnendur hafa vitnað í
Norman Schwarzkopf, yfirmann
Bandaríkjahers við Persaflóa, en
hann sagðist hafa viljað halda áffam
og eyðileggja íraska herinn algjör-
lega, en Bush stöðvaði hann 17.
febrúar. Hins vegar hafa skoðana-
kannanir í Bandaríkjunum sýnt að
tæplega 70% Bandaríkjamanna
styðja stefnu forsetans í írak .
vakna of snemma, sé lægstur um
miðnætti, en það veldur því að þeir
vakna á milli kl. tvö til fjögur um
nóttina. Lack segir að ekki sé hægt
að leysa þetta vandamál með því að
fara seinna að sofa. í rannsóknum,
sem gerðar voru við Flinderháskól-
ann, kom í ljós að þetta svefnleysi
lagaðist þegar mjög sterkt leiftrandi
Ijós var látið skína á fólkið snemma
kvölds. Líkaminn eða líkamsklukk-
an telur þá að enn sé dagur og seink-
ar þá líkamssveiflunni þannig að
lágmarkslíkamshita er náð mun
seinna og svefninn lengist. Líkams-
klukkunni er þannig seinkað og
samræmd við gang jarðar.
Niðurstöður rannsóknarinnar
leiddu í ljós að eftir tveggja daga
meðferð var svefninn að jafnaði 90
mínútum lengri. Þetta er ekki krón-
ískt vandamál, þ.e.a.s. meðferðin
þarf eingöngu að vera tímabundin.
Lack sagðist ekki geta skýrt af
hverju líkamsklukkan afstilltist í
upphafi. Reuter-SÞJ
Fréttayfirlit
NIKÖSlA - Saddam Hussein, for-
seti (raks, bauð ( gær kúrdiskum
uppreisnarmönnum sakarupp-
gjöf, en talsmenn þeirra sögðust
ekki trúa honum og sögðu að
boð hans væri „sjúklegur brand-
ari“ með hliðsjón að grimmdar-
verkum (raska stjómarhersins.
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR -
Frakkland, Bretland ogBandarík-
in reyndu í gær að fá Óryggisráð
S.Þ. til að krefjast þess að frösk
stjómvöld hætti ofsóknunum
gegn Kúrdum
KAUFORNlA, Bandankjunum -
George Bush, forseti Bandaríkj-
anna, varði i gær þá ákvörðun
s(na að koma uppreísnarmönn-
um Kúrda ekki til hjálpar með
þeim rökum að bandarískir her-
menn séu mikilvægari en svo að
hægt sé að fóma þeim F borgara-
styrjötd I írak. Skoðanakannanir f
Bandarikjunum sýna að tóeplega
70% Bandaríkjamanna styðja
stefnu forsetans i (rak.
BRUSSEL - Atlantshafsbanda-
lagið (NATO) sakaði i gær (raks-
stjórn um að þverbrjóta öll mann-
réttindí og sagði að hún yrðí að
hætta árásunum gegn Kúrdum
strax. Þetta er harðasta yfírfýsing
aiþjóðlegra samtaka um aðfarír
(raksstjómar að Kúrdum til
þessa.
LONDON - Kúrdískir mótmæl-
endur tóku sendiráð (raka f Lond-
on á sitt vald í gær og rústuðu
því, til að mótmæla grimmdar-
verkum Iraksstjómar gegn kúr-
dfsku þjóðinni f Irak. Þeir héldu
sendiráðinu f þrjár klst áður en
þeir gáfust upp fyrir óeiröalög-
reglu.
MOSKVA - Boris Jeltsin, forseti
Rússlands, vann stóran sigur
þegar honum var veitt vald til að
stjórna Rússlandi með tilskipun-
um — svipað vald og Mikhail
Gorbatsjov Sovétforseti hefúr
tryggt sér — og boðað var til
beinna forsetakosninga 12.júní.
MOSKVA - Verkfall námamanna
I Sovétríkjunum heldur áfram að
breiðast út og verkamenn f öðr-
um mlkilvægum iðngrelnum eru
famir að iáta í sér heyra og lík-
umar á allsheijarverkfalli hafa
aukist, en það gæti leitttil afsagn-
ar Gorbatsjovs Sovétforseta.
BONN - Helmut Kohl, kanslari
Þýskalands, ætlar að fara í opin-
bera heimsókn til Austur-Þýska-
lands um heigina, en hann hefur
ekki komið þangað í fjóra mán-
uði. Kohl var mjög vinsæll í Aust-
ur-Þýskaiandi um það leyti sem
sameining landanna fórfram, en
vinsældir hans hafa dvfnað eftir
þvi sem efnahagsástandið (
Austur-Þýskalandi hefur versrv
að.
UMA, Perú - Harður jarðskjálfti
varð f norðausturhluta Perú I gær
með þeim afleiðlngum að a.m.k.
35 létust og 750 slösuðust.
Skjátftinn mældist 6,2 á Richter
og fylgdi f kjölfar minni skjálfta
sem mældist 5,5 á Richter.
HELSINKI - Mauno Koivisto, for-
seti Finnlands, sagði í opnunar-
ræðu sinni á finnska þinginu í
gær að hann tetdi að auðvelt
verði að mynda samsteypu-
stjórn, en margar erfiðar ákvarð-
anir biöu hennar. Þingkosningar
voru haldnar i Finnlandi f síðasta
mánuði og forsetinn mun kalla til
sfn formenn flokkanna á mánu-
dag til sijómarmyndunar.
RÓM - Francesco Cossiga, for-
seti ftalfu, veitti Giulio Andreotti,
sem er forsætisráöherra til
bráðabirgða, heimild í gær til að
reyna myndun nýrrar ríkisstjóm-
ar. Þetta er í fimmtugasta skipti
sem reynt er að mynda nýja rfkis-
stjórn á Ítalíu eftir seinni heims-
styijöfdina. Reuter-SÞJ
Tyrkland:
Iraskir dipló-
matar drepa
1 og særa 2
Einn maöur lést og tveir særöust
þegar skotiö var frá íraska ræöis-
mannssetrinu í Tyrklandi á hóp
mótmælenda í gær,
Um 40 manns höföu safnast sam-
an fyrir framan íraska ræöismanns-
sctriö í lstanbúl til aö mótmæia
árásum íraska hersins á Kúrda og
köstuöu mótmælendur gijðti í átt
aö setrinu. Þá hófst skothríö frá
íyrstu og þriöju hæð hússins meö
fyrrgreindum afkiöingum.
Talsmaður tyrkneska utanrílds-
ráöuneytisins sagði að friðhelgi
stjómarerindreka kæmi f veg fyrfr
að lögreglan btytist inn í ræöis-
mannssetriö. En ef hægt værí að
sanna fullkomlega að skotin hefðu
komiö frá ræðismannssetrinu væri
hægt aö griþa til ákveðinna ráðstaf-
ana, en hann nefndi ekld hveijar
þær væru.
Svipaö atvik ótti sér stað í London
árið 1984.þegar lögreglukona lést
eftir að hún hafði orðið fyrir skot-
um sem komu frá sendiráði Lýbíu,
Breska lögreglan umkringdi sendi-
ráðið, en réðst ekki inn í það vegna
friðhelginnar og þannig var staðan í
eDefu daga eða allt þar til sfjóm-
máiatengslum var slitiö við Lýbíu
Og scndiráðsstarfsmönnunum vís-
að úr landi,
í gær tóku flórtán kúrdískir mót-
mælendur sendiráð Jraka í London
á sitt vald og oll u miklum skcmmd-
um á því. Þeir gáfust friðsamlega
upp fyrir bresku iögregiunni eftir
þriggja idsL veru í sendiráðinu.
Reauter-Sþj
Framsóknarflokkurínn
Kosningaskrífstofa á Höfn í Homafirði
Framsóknarflokkurinn opnar kosningaskrifstofu í
nýju húsnæði að Álaugareyjarvegi 7 á Höfn í
Hornafirði sunnudaginn 7. apríl kl. 14.
Skrifstofan verður opin virka daga frá ki. 20-22 og
laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-22. Kaffi og
meðlæti á boðstólum. Allir velkomnir. Sími 97-
81992 Framsóknarflokkurinn.
Svefnleysi:
Líkamsklukk-
an löguð að
gangi jarðar