Tíminn - 06.04.1991, Blaðsíða 19

Tíminn - 06.04.1991, Blaðsíða 19
Laugardagur 6. apríl 1991 Tíminn 31 ÍÞRÓTTIR (þróttir helgarinnar: Urslitakeppni bæði í körfu og handbolta — auk bikarúrslitaleiks kvenna í handbolta um helgina Mikið verður um að vera í iþróttalífí landsmanna um helgina. Senn verða krýndir íslandsmeistarar í þeim tveim greinum sem mest áberandi eru yfir veturinn, körfubolta og handbolta. Auk þess verða um helg- ina krýndir meistarar kvenna í þess- um greinum kvenna, þ.e.a.s. ís- landsmeistarar kvenna í körfubolta og bikarmeistarar kvenna í hand- bolta. Körfubolti Þriðji úrslitaleikur Njarðvíkinga og Keflvíkinga um íslandsmeistaratitil- inn í körfubolta verður í Njarðvík í dag kl. 16.00. Fyrir þá sem ekki fá miða á leikinn, má geta þess að sjón- varpað verður beint frá leiknum í Ríkissjónvarpinu. Fjórði leikur lið- anna verður í Keflavík á mánudags- kvöld kl. 20.00. Staðan nú í vinning- um er jöfn 1-1. Það lið, sem fyrr sigrar í þremur leikjum, verður meistari. Mjög þýðingarmikill leikur verður í 1. deild kvenna í dag. ÍBK og Hauk- ar leika í Keflavík kl. 18.00. Sigri Haukar verður félagið meistari, en sigri ÍBK verður ÍS meistari. Handbolti Úrslitaleikur bikarkeppni kvenna verður á morgun í Laugardalshöll og hefst hann kl. 15.00. Til úrslita leika Fram og Stjarnan. Leikurinn verður sýndur beint í Ríkissjónvarp- inu. Úrslitakeppni í 1. deild karla verður framhaldið um helgina. í dag mæt- ast Stjarnan og FH í Garðabæ og Grótta og ÍR á Seltjarnarnesi kl. 16.30. Á morgun leika Fram og KA í Laugardalshöll kl. 20.00. Umferð- inni lýkur með leik KR og Selfoss í Laugardalshöll á þriðjudag kl. 20.00. í gærkvöld léku ÍBV og Valur í Eyjum og Víkingur og Haukar í Höllinni. Skýrt verður frá úrslitum í öllum Ieikjum helgarinnar í þriðju- dagsblaðinu. Blak Um helgina verður íslandsbikar karla og kvenna afhentur nýjum ís- landsmeisturum. KA-karlar fá sinn bikar afhentan í Hagaskóla eftir leik sinn gegn Fram, en leikurinn hefst kl. 10.00 í dag. Víkingsstúlkur fá bikarinn á sama stað eftir leik sinn gegn KA, en leikurinn hefst kl. 11.15. í Digranesi verða þrír leikir í dag. UBK og Völsungur í kvennaflokki leika kl. 14.00. Síðan leika HK og Þróttur N. í kvennafl. kl. 15.15 og sömu félög karla kl. 16.30. Karate íslandsmótið í karate (kata) verður haldið í dag í íþróttahúsi Vals að Hlíðarenda. Keppni hefst kl. 19.15, en úrslit hefjast kl. 20.00. í hléi sýn- ir George Andrews 5. dan frá Eng- landi, ásamt tveimur enskum nem- endum sínum. Skíði Skíðalandsmótinu verður framhald- ið á ísafirði um helgina. Mótinu lýk- ur á sunnudag. BL EM unglinga í badminton: Elsa komst í 4. umferð Sex íslenskir unglingar tóku þátt í Evrópumeistaramóti unglinga sem haldið var í Búdapest í Ungveija- Iandi. Elsa Nielsen náði bestum ár- angri þeirra, komst í 4. umferð þar sem hún beið lægri hlut fyrir danskri stúlku. Sexmenningarnir voru þau Krist- Ftjálsar íþróttir Sigurður og Vésteinn til alls líklegir Siguröur Einarsson spjótkaítari og Vésteinn Hafstcinsson, fslandsmct- hafi í kringlukasti, keppa um helgina á opnu bandarísku háskólamóti í Tuscaloosa í Alabamafylki í Banda- ríkjunum. Þar hafa þeir báðhr verið við aefingar { vctur og hefur undir- búningur þeirra gengið mjög vei og vænta má góðs árangurs af þeim á þessu móti. Að sögn Sigurðar hafur hann verið að kasta mjög vei á æfingum að und- anfömu og allt er að smelia saman hjá honum. „Ef aiit gengur upp, þá á ég jafnvel von á því að bæta minn besta árangur, sem er 82,82m.“ Vésteinn segist vera að kasta mjög nálægt íslandsmeti sínu, sem er 67,64m, á æfingum og á móti fýrir tveimur vikum kastaði hann taepa 63m. „Ég á von á því að bæta mig fljótlega, en það má segja að við sé- um að binda endahnútmn á vetrar- æfingamar og ef við erum að kasta vel núna, þá er það mjög jákvætt fyr- ir það sem koma skai í sumar.“ Þess má geta að á þessu sama móti kemur Calvin Smith, fyrrum Óiymp- íumeistari og heimsmeistari í sprett- hiaupum, tii með að keppa, svo og Keith Taiiey, sem er 5.-6. besti iang- stökkvari heims. Það er mjög algengt að fijálsíþrótta- menn á heimsmælikvarða, sem æfa í Bandaríkjunum á vetuma, keppi á þessum opnu háskólamótum tii þess að undirbúa sig fyrir keppnistímabii- ið t Evrópu á sumrin og verður sá hátturinn hafður á hjá þeim Sigurðl og Vésteini i vor. CÞ/BL ján Daníelsson, Tryggvi Nielsen, Gunnar Petersen, Áslaug Jónasdótt- ir, Elsa Nielsen og Anna Steinsen. Leikar fóru sem hér segir — Ein- liðaleikur: Elsa Nielsen vann Els Baert frá Belg- íu 11-4 og 11-4 í 1. umf. í 2. umf. vann hún Rachel Phipps frá Wales 12-10 og 11-3. í 3. umf. vann hún Viola Rathgeber frá Þýskalandi 9-11, 11-6 og 12-9. í 4. umf. lenti hún á móti Lotte Thomsen frá Danmörku og tapaði 0-11 og 0-11. Anna Steinsen vann Maja Pohar frá Slóveníu 11-7 og 11-8 í 1. umf., en tapaði fyrir Sylwai Bochat frá Póllandi í 2. umf. 3-11 og 4-11. Gunnar Petersen tapaði fyrir Piotr Mazur frá Póllandi í 1. umf. 1-15 og 4-15. Tryggvi Nielsen tapaði fyrir Simon Archer frá Englandi í 1. umf. 2-15 og 1-15. Tvíliðaleikur: Gunnar og Tryggvi töpuðu fyrir Verplaetse og Árgellies frá Frakk- landi í 1. umf. 15-13, 7-15 og 11-15. Kristján og Losgrou frá Kýpur töp- uðu fyrir Eie og Leskovsky frá Nor- egi 11-15 og 6-15 í 1. umf. Áslaug og Karen Wilson frá Eng- landi unnu Frattinger frá Austurríki og Sisseiroth frá Noregi 15-2 og 15- 6 í 1. umf., en töpuðu fyrir Baert og Mampay frá Belgíu í 2. umf. 8-15 og 14-18. Anna og Elsa töpuðu fyrir Thom- sen og Broen frá Danmörku 4-15 og 0-15 í 1. umf. Tvenndarleikur: Gunnar og Anna unnu Kraulitsch og Sailer frá Austurríki 15-12 og 15- 6 í 1. umf. í 2. umf. unnu þau Wilk- inson og Millar frá írlandi 15-7 og 18-17, en í 3. umf. töpuðu þau fyrir Laigle og Lefeure frá Frakklandi 10- 15,15-11 og 14-18. Tryggvi og Áslaug töpuðu fyrir Si- egmund og Rothgeber frá Þýska- landi 5-15 og 1-15. BL Knattspyma: Maradona skoraði 115 mörk í 259 leikjum — samtals með Napólí Dicgo Maradona, knattspyrnu- maðurinn frægi sem á yfir höfði sér tveggja ára leikbann vegna kókaínneyslu, vantaði 4 leiki uppá að slá leikjametiö fyrir er- lenda leikmenn í ítölsku deild- ínni. Maradona er nú kominn heim tíl Argentínu alkominn. Leikjametið eiga þeir Liam Bra- dy frá írlandi og Walter Schac- hner frá Austurríki, en þeir léku 191 leik í 1. deild. Maradona lék 188 leiki í deildinni og skoraði 81 mark, þar af 30 úr vítaspym- um. EF allir leikir Napólí eru taldir til þá Iék Maradona 259 leiki og skoraöi f þeim 115 mörk. Hann varð markakóngur deildar- innar 1988 er hann geröi 15 mörk. Tvívegis leiddi Maradona Napólí tíl sigurs í ítölsku deildinni og einu sinni til sigurs í ítölsku bik- arkeppninni og UEFA-keppninni á árunum 1987-1990. Hann fékk tvívegis á þcssu tímabili aö líta rauða spjaldið. Nú fær hann líklega rautt spjald sem gildir næstu 2 árin. Ólíklegt er að kappinn eigi afturkvæmt að þeim tfma liðnum, hann er 30 ára og þegar farinn að dala verulega. Bröndby féll út ur danska bikarnum Bröndby, sem komið er í undan- úrslit í Evrópukeppni félagsliða, féll út úr dönsku bikarkeppninni í fyrrakvöld, er liðið tapaði síðari leik sínum gegn Álaborg 0-1. Álaborgarliðið sigraði samanlagt 3-2. Það var sjálfsmark Kim Christofte á 56. mín. sem varð BrÖndby að falli. HM 1998: Sex lönd sækja um aö halda keppnina Sex Iönd sækjast eftir því að halda heimsmeistarakeppnina í knattspymu 1998, en umsókn- arfrestur rann út á miðnætti sl. Löndin sex eru Brasilía, Eng- land, Frakkland, Indland, Mar- okkó og Sviss. Óvíst var hvort umsóknum Chile, Nígeríu og Portúgal yrði haldið tíl streitu eða þær aftur- kallaðar. Hoddle stjöri hjá Swindon Glenn Hoddle, fyrrum leikmaður með Tottenham, Monaco og enska landsliðinu, hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri 2. deiidarilðs Svvindon á Engiandi. Hann tekur við af fyrrum félaga sín- um, Osvaldo Ardiies, sem gerst hef- ur stjóri hjá Newcastie. Hoddle, sem ekkert hefur leikið sl. 20 mánuði vegna meiðsla en er nú að ná sér á strik, mun jafnvel leika með liðinu á næsta keppnistímabiii. Bragi og Eyjóifur dæma erlendis Dómaranefnd UEFA hefur tilnefnt þá Braga Bergmann og Eyjóif Ólafs- son til að dæma landsieiki á sínum vegum á uæstunni. Bragi dæmir leflt Svfþjóðar og Kýp- ur í Evrópukeppni 21 árs iandsliða þann 1. maí nk., en þetta er í fyrsta sinn sem Bragi dæmir á vegum UEFA Eyjólfur hefur verið tilnefndur til að díéma í úrslitakeppni Evrópumóts U-16 ára iandsliða, en mótlð verður haldið í Sviss 9.-16. maf nk. Einn dómari verður frá hveiju þátttöku- landi. Dómaranefnd KSÍ hefur tilnefnt þá Óla P. Óben og Gísla Guðmundsson sem línuveröi með Braga Berg- mann. BL VERKAKVENNAFÉLAGIÐ FRAMSÓKN Orlofshús sumaríð 1991 Mánudaginn 8. apríl verður byrjað að taka á móti umsóknum félagsmanna varðandi dvöl í orlofs- húsum félagsins. Þeir sem ekki hafa áður dvalið I húsunum hafa forgang til umsókna vikuna 8.-12. apríl. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu félagsins að Skipholti 50A frá ki. 9-17 alla daga. Ath. að ekki er tekið á móti umsóknum I síma. Vikugjald er kr. 7.000,-. Félagið á 3 hús í Öifusborgum, 1 í Flókalundi, 2 á Húsafelli og 1 I Svignaskarði og íbúð á Akur- eyri, einnig 3 vikur á lllugastöðum. Stjómin. FRÁ SKÓLASKRIFSTOFU REYKJAVÍKUR Innritun skólaskyldra barna og unglinga, sem þurfa að flytjast milli skóla fyrir næsta vetur, fer fram í Skólaskrifstofu Reykjavíkur, Tjarnargötu 12, sími 28544, þriðjudaginn 9. og miðvikudag- inn 10. apríl nk., kl. 10-15 báða dagana. Þetta gildir um þá nemendur sem flytja til Reykjavíkur eða úr borginni, koma úr einkaskól- um eða þurfa að skipta um skóla vegna breyt- inga á búsetu innan borgarinnar. Það er mjög áríðandi vegna nauðsynlegrar skipulagningar og undirbúningsvinnu að öll böm og unglingar, sem svo er ástatt um, verði skráð á ofangreindum tíma. Þá nemendahópa sem flytjast í heild milli skóla að loknum 7. bekk þarf ekki að innrita. Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík, óskar eftir tilboðum í gatnagerð og lagnir á 3 stöðum 1 austurhluta borgarinnar. Helstu magntölur eru: Uppúrtekt u.þ.b. 2.600 m3 Fylling u.þ.b. 2.000 m3 Undirbúningur fyrir malbikun u.þ.b. 10.000 m2. Verkinu skal lokið fyrir 15. ágúst 1991. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 9. apríl nk. gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 23. apríl 1991, kl. 15.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 Samkeppni um hönn- un húsa yfir borholur Hitaveitu Reykjavíkur Sýning á öllum tillögum sem bárust í keppnina stendur yfir í Byggingaþjónustunni, Iðnaðar- mannahúsinu, Hallveigarstíg 1. Sýningin stendurtil mánudagsins 15. apríl og er opin frá kl. 10.00 til 18.00 virka daga og 14.00 til 16.00 laugardaga og sunnudaga. Hitaveita Reykjavíkur Borgarskipulag Reykjavíkur

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.