Tíminn - 06.04.1991, Síða 17
Laugardagur 6. apríl 1991
Tíminn 29
KVIKMYNDIR
Steven Segal kennir áhorfendum að brjóta bein.
Hver er steifcastur?
Hver er sterkastur?
Marked for Death #1/2
Aðalhlutverk: Steven Segal (Hard to Kill,
Nico), Basil Wallace, Keith David, Jo-
anna Pacula
Framleiðandi: Michael Grais, Mark Vic-
tor
Leikstjóri: Dwight H. Little
Bönnuð innan 16 ára
Sýnd I Bióhöllinni
Kvikmynd á borð við Hart á móti
hörðu (Marked for Death) þarfnast
ekki mikilla skýringa. Þarna er á
ferðinni enn ein formúlumyndin
með Steven Segal í aðalhlutverki
sem segir frá manni sem brýtur
bein í fólki sér til skemmtunar og
rembist við að vera lögregla þess á
milli.
Steven Segal, hinn nýi arftaki
Rambós, er jafnvel sterkari og
klárari heldur en lærimeistarinn
og tekst á við fimm manns án þess
að blikka auga. Þarna á hann í
höggi við Jamaikabúa nokkra sem
hafa hrifsað til sín fíkniefnasölu frá
mafíunni með aðstoð galda og
fremstur í flokki Jamaikabúanna
er geysiöflugur galdrakarl sem
virðist hafa tvö höfuð eftir því sem
sagt er.
Myndin ætti helst að höfða til
unglinga sem eru að sérhæfa sig;
bardagatækni, en fyrir mig, ég segi
nei takk. Það eina sem mér fannst
áhugavert við þessa annars Iítið
spennandi kvikmynd var tónlist og
menning Jamaikabúanna sem
voru gerðir svo einfaldir að leit er
að öðru eins. Þarna er byggt upp á
formúlunni hvítir á móti svörtum
sem á mjög upp á pallborðið í
slagsmálamyndum eins og þessari.
Tæknileg atriði eru vel unnin og
(jöldinn allur af áhættuleikurum
var ráðinn við vinnslu myndarinn-
ar í því skyni að gera hinn mikla
Segal að eins milli hetju og þótti
nauðsynlegt í myndinni.
Robin
OG
dæiur
FRÁ
BENSÍN EÐA DIESEL
Mjög gott verð
Rafst.: 600-5000 W
Dælur: 130-1800 l/mín
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
Traustlr hlekkir
í sveiganlegri keðju
hringinn í kringum landið
Bílaleiga með útibú
allt í kringum landiö,
gera þér mögulcgt að leigja bíl
á cinum staö
og skila honum á öðruni.
Nvjustu
MITSUBISHI
bílarnir alltaf til taks
—iöBKS
Reykjavík: 91-686915
Akureyri: 96-21715
Borgarnes: 93-71618
ísafjöröur: 94-3574
Blönduós: 95-24350
Sauðárkrókur: 95-35828
Egilsstaðir: 97-11623
Vopnafjörður: 97-31145
Höfn í Hornaf.: 97-81303
ÓDÝRIR
IIELGARPAKKAR
SPEGILL
mm
Er Linda Evans loks
búin að finna hina
einu sönnu ást?
Alltaf öðru hverju berast fréttir af
einkalífi Lindu Evans, sem fræg-
ust hefur orðið fyrir leik sinn í
Dynasty-sjónvarpsþáttunum. All-
ar hafa þessar fréttir verið af sama
tagi, aumingja Linda hefur átt í
mesta basli með ástalífið og því
hafa fylgt sífelld vonbrigði.
Nú gerir Linda sér vonir um að
loks hafi hún fundið þann eina
rétta og segir hér aðeins af því.
Um þessar mundir eru liðin
nærri tvö ár síðan hún sat kvöld-
stund í hópi vina og hlustaði á
tónlist gríska tónskáldsins Yanni.
í stundarhrifningu ákvað hún að
hringja í hann og láta hann vita
að hann ætti aðdáendur í Beverly
Hills, sem náttúrlega eru góðar
fréttir fyrir hvem sem er. Fram-
haldið er það að nú tala þau sam-
an í síma klukkustundum saman
á hverjum degi ef þau em að
vinna hvort á sínum stað. En
toppurinn á tilvemnni er auðvit-
að þegar þau geta verið saman á
afskekktum stað þar sem ekkert
truflar þau.
Sá staður bíður þeirra reyndar í
smáþorpi, sem ber nafnið Snoqu-
almie í Washington-ríki og hefur
1600 íbúa. Fáir vissu um tilveru
þessa þorps þar til David Lynch
valdi það sem vettvang Tvídranga,
sjónvarpsþáttanna sem sýndir
hafa verið víða um lönd. Fjöldi
ferðamanna tók að leggja leið sína
til þessa afskekkta þorps til að líta
augum sögunarmylluna, bragða á
kirsuberjapæjunum og horfa á
fjöllin tvö Mount Si og Mount
Teneriffe, sem sjónvarpsþættirnir
bera nafn af.
Þarna í grenndinni fann Linda
það sem hún hafði verið að leita
að, lóð á friðsælum stað við vatn.
Húsið var byggt samkvæmt henn-
ar fyrirsögn og þarna eiga hún og
Yanni nú griðastað, langt frá ys og
þys umheimsins.
Það fér vel um Lindu Evans og Yanni í húsinu þeirra við „Tví-
dranga".
Piper Lauríe blómstrar
- fékk Golden Globe fyrir Tvídranga
Piper Laurie lék sætar og meinlausar stelpur í gamla daga.
Þessa dagana nýtur Piper Laurie
endurvakinna vinsælda á hvíta
tjaldinu, reyndar er það sjón-
varpsskermurinn í þetta sinn
sem er vettvangur hennar.
Hún var nýlega sæmd Golden
Globe verðlaununum fyrir besta
leik konu í aukahlutverki. Það
var hin undirförula og óútreikn-
anlega Catherine Packard Martell
í Tvídröngum sem færði Piper
þessi eftirsóttu verðlaun.
Piper Laurie er fjarri því að vera
nýgræðingur í leiklistinni, þar lét
hún fyrst til sín taka þegar hún
var aðeins þriggja ára.
Kvikmyndaferill hennar hófst
1950 hjá Universal þegar hún lék
í kvikmyndinni Louisa, ásamt
Ronald Reagan, tilvonandi for-
seta Bandaríkjanna, og árin
næstu á eftir lék hún í mörgum
kvikmyndum, þ.á m. Prinsinn
sem var þjófur með Tony Curtis.
Það var þó ekki fyrr en eftir að
hún sagði skilið við stóru kvik-
myndafélögin í Hollywood að
hún fór að blómstra sem leik-
kona. Hún ákvað þá að fara til
New York og þreifa fyrir sér um
alvarlegri hlutverk á leiksviði. Ár-
angurinn varð sá að á næstu ár-
um var hún tilnefnd til fjöl-
margra Emmy- verðlauna.
Á síðari árum hefur hún oftar en
einu sinni verið tilnefnd til Ósk-
arsverðlauna fyrir hlutverk í
kvikmyndum.
Piper Laurie býr nú í Los Ange-
les og er önnum kafin upp fyrir
haus. f þeim fáu tómstundum
sem henni gefast stundar hún
höggmyndalist af mestu alvöru
og hefur byggt sér vinnustofu við
heimili sitt.