Tíminn - 15.08.1991, Blaðsíða 2
Tíminn
Fimmtudagur 15. ágúst 1991
Kjötvinnsla S.S. á Hvolsvelli er að ráða starfsfólk fyrir veturinn. Farandverkafólk vill vinna en:
HEIMAMENN SÆKJA
SÍÐUR UM VINNU
f pylsugerö kjötvinnslu S.S. á Hvolsvelli.
til 3 ár tæki að aðlagast atvinnulífi í
Rangárvallasýslu hvað varðar fram-
boð og eftirspum á mannafla til
starfa.
Frá næstu mánaðamótum verður
boðið upp á ferðir, kvölds og
morgna, með starfsfólk í kjötvinnsl-
una á Hvolsvelli frá Hellu og Hvol-
svelli. Reiknað er með að þaðan
komi 8 til 10 starfsmenn. Einnig
hefur talsvert borist af fyrirspumum
um vinnu hjá S.S. úr öðrum lands-
hlutum en Suðurlandi, s.s. Keflavík,
Reykjavík, Suðureyri Dalvík og Vest-
mannaeyjum. Ef fólk af þessum
stöðum verður ráðið hreiðrar það
um sig í vinnubúðum sem S.S. leig-
ir fyrir starfsfólk sitt sem kemur
lengra að.
„Eg held að þetta bjargist. En mér
finnst heimamenn alls ekki hafa
sýnt sig nóg og vantar svar hvers
vegna svo er. Nú virðast aðrir at-
vinnurekendur á þessu svæði ekki
vera að auglýsa eftir starfsfólki og
þess vegna ætti eftirspurnin eftir
vinnuafli að vera lítil. En hér er næg
Tfmamynd: sbs.
vinna sem er ágætlega borguð og
fólkið gæti þess vegna byrjað strax,“
sagði Leifur Þórsson. -sbs, Selfossi.
.JVIér sýnist þetta ætla að bjargast fyrir veturinn og dæmið gangi
upp. Hins vegar vantar að fólk héðan að austan sæki um vinnu.“
Þetta segir Leifur Þórsson, verksmiðjustjóri Sláturfélags Suður-
lands á Hvolsvelli, en að undanfómu hefur fyrirtækið veríð að aug-
lýsa eftir starfsfólki. Hafa forráðamenn S.S. borið nokkurn kvíð-
boga gagnvart því að ekki takist að ráða nægilegan fjölda starfsfólks
fyrir veturínn.
í vetur þarf um 120 manns til starfa
hjá S.S á Hvolsvelli. Um 130 manns
hafa starfað eystra í sumar og þeim
mun fækka niður í 100 í lok þessa
mánaðar, þegar sumarfólk hættir
störfum. í október - nóvember flytur
síðan enn ein deild S.S. austur á
Hvolsvöll, framleiðslueldhús, og þá
verður heildarfjöldi starfsmanna
orðinn um 120, eins og áður sagði.
Að sögn Leifs Þórssonar fluttu 45
starfsmenn S.S. með starfseminni
austur síðastliðið vor. 80 starfsmenn
nýir voru ráðnir til starfa, flestir frá
Hvolsvelli og nærsveitum, þar af 40
skólanemar sem hætta störfum í lok
mánaðarins. Þannig vantar því nú
um 45 starfsmenn til að brúa bilið
fyrir veturinn. Raunar var alltaf gert
ráð fyrir í áætlunum S.S., þegar fyr-
irtækið ákvað að flytja austur, að 2
Frá lögreglunni:
Fíkniefnasalinn er
landsfrægur lygari
Tímanum hefur boríst eftirfar-
andi fréttatilkynning frá lögregl-
unni í Reykjavík:
„Föstudaginn 9. þ.m. hafði
fréttamaður Stöðvar 2 samband
við yfirmann fíkniefnadeildar lög-
reglunnar í Reykjavík og sagðist
vera að fara að hitta fíkniefnasala
til að heyra frá hverju hann hefði
að segja. Vildi fréttamaðurinn
láta vita af sér ef eitthvað kæmi
fyrir hann.
Síðastliðinn mánudag hafði
sami fréttamaður samband við
fíkniefnadeild lögreglunnar á ný.
Skýrði hann frá því að áðurnefnd-
ur fíkniefnasali, sem hann hefði
rætt við, hefði margoft komið
fíkniefnum til fanga á Litla
Hrauni. Fíkniefnasalinn bauðst
til að leyfa Stöð 2 að mynda slík
viðskipti, með því að koma efni
fyrir við fangelsið og síðan yrði
myndað þegar efnið yrði sótt.
Vildi fréttamaðurinn fá lögregl-
una í lið með sér til að handtaka
þann sem efnið sækti.
Starfsmönnum fíkniefnalögregl-
unnar fór að gruna að hér væri á
ferðinni ákveðinn aðili, sem
margoft hefur í gegnum árin gefið
lögreglunni hér og erlendis upp
rangar og ósannar upplýsingar
um fíkniefnamisferli og yfirleitt
með þeim hætti að hann spili
sjálfur aðalhlutverkið. í framhaldi
af því fóru tveir starfsmenn fíkni-
efnadeildarinnar á fréttastöð
Stöðvar 2, þar sem fréttamaður-
inn staðfesti við þá að hér var um
að ræða þann aðila sem lögreglan
hafði grunað og þekktur er að
ósannindum. Var fréttamannin-
um gerð grein fyrir því að upplýs-
ingar frá þessum aðila væru í
meira lagi ótraustar og skýrt fyrir
honum hvernig viðkomandi hafi í
gegnum árin gefið lögreglu rang-
ar upplýsingar. Fréttamaðurinn
sagðist eftir sem áður myndi birta
viðtal við manninn en viðtalið
birtist á Stöð 2 um kvöldið."
Undir þetta skrifa þeir Guð-
mundur Guðjónsson yfirlög-
regluþjónn og Reynir Kjartans-
son, settur yfirmaður fíkniefna-
deildar.
Alþjóðlegri kvennaráðstefnu á íslandi frestað:
Fjáröflun hefur
gengiö illa
Islenskar konur úr Kvenréttindafé-
lagi íslands og stjómmálaflokkum
og -samtökum sem sæti áttu á Al-
þingi á síðasta kjörtímabili hafa und-
anfárið unnið að undirbúningi al-
þjóðlegrar kvennaráðstefnu hér á
landi. Hugmyndin að ráðstefnunni
kviknaði þegar bandaríska kvenfrels-
iskonan Betty Friedan kom til ís-
lands árið 1990 ásamt hópi banda-
rískra kvenna sem unnið hafa lengi í
kvennabaráttu. Undirbúningur ráð-
stefnunnar hefur verið samvinnu-
verkefni íslenskra og bandarískra
kvenna en fjármögnun hennar var
verkefni bandarísku kvennanna.
Á fundi 16 kvenna víðs vegar að úr
heiminum sem haldinn var um
miðjan júlí í Bandaríkjunum var
staðfest að fjárhagslegur grundvöll-
ur ráðstefnunnar hefur enn ekki ver-
ið tryggður.
Konur í íslensku undirbúnings-
nefndinni em mjög vonsviknar yfir
þessari stöðu mála, en það var ákveð-
ið í samráði við bandarísku undir-
búningsnefndina að ráðstefnan yrði
ekki haldin hér að sinni.
Hugmyndin um alþjóðlega kvenna-
ráðstefnu á enn fylgi að fagna meðal
þeirra reyndu baráttukvenna sem
sóttu undirbúningsfundinn í Banda-
ríkjunum og verður áfram unnið að
því að hún verði að veruleika. -js
I dag verður Óskar Bjart-
marz, fyrrverandl forstöðu-
maður Löggildingarstofunn-
ar, 100 ára. Hann dvelur á
sjúkradeild Seljahlíðar,
Hjallaseli 55. Hann tekur á
móti gestum þar mllll kl. 16
og 18 á afmællsdaglnn.
Krafa dagsins er lengra fæðingarorlof,
segir í grein í tímaritinu Uppeldi:
Tólf mánaöa
fæðingarorlof
Foreldrasamtökin hafa látið gera
könnun á viðhorfum foreldra til
fæðingarorlofs, en á íslandi er það
6 mánuðir. f nýjustu rannsókn fé-
lagsins, sem Sif Einarsdóttir hefur
haft umsjón með, kemur fram að
97% foreldra telja fæðingarorlof of
stutt. Þetta kemur fram í greininni
„Lengra fæðingarorlof* í nýjasta
hefti tímaritsins Uppeldi.
Niðurstöður rannsóknarinnar hafa
ekki verið birtar en þó eru ljós svör
við nokkrum spurningum. Sif segir:
„Reynt var að ná til allra foreldra í
Reykjavík, sem eignuðust böm í
fyrra ef það var þeirra fyrsta barn
eða ef þeir áttu fyrir börn á grunn-
skólaaldri. Foreldrarnir voru spurð-
ir hvort þeim þætti sex mánaða fæð-
ingarorlof vera nógu langt og svör-
uðu 97% þeirri spurningu neitandi.
Þá vom foreldrarnir beðnir að til-
greina hversu langt þeim þætti að
fæðingarorlof þyrfti að vera og svör-
uðu flestir því til að tólf mánuðir
væm heppilegur tími. Það voru um
56% svarenda sem tiltóku tólf mán-
uði, sem er afgerandi meirihluti."
Sif segir að hringt hafi verið í for-
eldrana og náðst hafi í um helming
úrtaksins eða nákvæmlega 533 ein-
staklinga.
Ingibjörg Hafstað, starfsmaður
Kvennalistans, segir að Kvennalist-
inn hafi á sínum tíma lagt fram
frumvarp um 6 mánaða fæðingaror-
lof. Það var fellt, en síðan var það
strax tekið upp af Sjálfstæðisflokkn-
um og gekk þá í gegn þannig. Hún
segir að núna liggi inni fmmvarp
um 9 mánaða fæðingarorlof sem
lagt var fram í febrúar sl. Frumvarp-
ið féll ekki en var sett í nefnd, svo
það fær ef til vill einhverja umfjöll-
un.
Ingibjörg segir að á málinu séu
fleiri hliðar. Margar konur telja það
mjög erfitt að vera frá vinnu í 1 ár,
þær missi hreinlega af lestinni. Jafn-
framt 12 mánaða fæðingarorlofi,
sem er í rauninni lágmark, þarf að
koma til hugarfarsbreyting í þjóðfé-
laginu gagnvart barneignum. Ingi-
björg bendir á að á Norðurlöndun-
um geta konur farið í tveggja ára
fæðingarorlof á þann hátt að þær
ganga inn í sömu vinnu og þær fóru
úr, vinnan bíður eftir þeim. Þannig
að þar er ákveðin trygging fýrir því
að konan komist í sitt fyrra starf.
Þetta er mál sem íslenskar konur
þyrftu að skoða, en það þarf sérstakt
fmmvarp fyrir slíka breytingu, segir
Ingibjörg.
í niðurlagi umræddrar greinar
kemur fram að þeir sem vilja lengra
fæðingarorlof eiga sér nú málsvara í
tímaritinu Uppeldi. Blaðið lítur á
þessa grein sem sína fyrstu hvatn-
ingu í þá veru. -js
Ljóóatón-
leikar
endurteknir
Vegna mikillar aðsóknar að
Brahms tónleikum Jóhönnu
Þórhallsdóttur í Listasafni Sig-
urjóns Ólafssonar sl. þiriðju-
dagskvöld hefur verið ákveðið að
endurtaka tónleikana. Þeir verða
haldnir í Listasafni Sigurjóns í
kvöld, fimmtudagskvöld, kl.
20:30.