Tíminn - 15.08.1991, Blaðsíða 8
8 Tíminn
Fimmtudagur 15. ágúst 1991
VEIÐIMÁL 1
MERKILEG GÖGN OG
GÆÐI ÓLAFSFJARÐAR
Það er skemmtileg hringleið fyrir
okkur sem komum að sunnan að
sumariagi og ætlum til Ólafs-
fjaröar, að aka frá Varmahlíð um
lágsveitir Skagafjarðar, inn Fljót
og síðan um Lágheiði. Frá Ólafs-
firði ökum við síðan um jarð-
göngin og inn með Eyjafirði og
um Öxnadalsheiði til Skagafjarð-
ar.
í Ólafsfirði er vinaleg sveit og
bærinn sjálfur er snyrtilegur.
Fjöllin og vatnakerfi Ólafsfjarðar
setja sinn sterka svip á byggðar-
lagið sem lengst af hafði mátt búa
við mikla vetrareinangrun. Þetta
breyttist til batnaðar þegar vegur-
inn um Múlann kom til sögunnar,
þó ekki sé talað um samgöngubót-
ina miklu, göngin um Ólafsfjarð-
armúla, er olli byltingu í sam-
göngum fyrir íbúa Ólafsfjarðar,
sem eru 1.200 talsins. Ágætt hóteí
er í Ólafsfirði og góð aðstaða er til
útivistar.
Forvitnilegt og skemmtilegt er
fyrir ferðalang í Ólafsfirði, sem
getur komist þar í veiði, að skoða
sig um bæði við sjóinn og inni í
sveitinni. Veiðiskapur, bæði
stangaveiði og netaveiði, hefur ve-
reið stundaður í vatninu og ánni
sem í það fellur, en hún er fisk-
geng um 6 km. Það er fyrst og
fremst bleikja, bæði staðbundin
og sjógengin, sem ræður ríkjum í
vatnakerfinu. Þá er hafbeit með
lax starfrækt við Ólafsfjarðarvatn.
Einstætt stöðuvatn
Ólafsfjarðarvatn er nefnilega eitt
merkilegasta stöðuvatnið hér á
landi, ekki fyrir sakir þess hversu
stórt það sé eða djúpt, heldur
vegna sérstæðra efnaeiginleika og
varma sem það býr yfir. Sjór geng-
ur inn í vatnið þegar stórstreymt
er og það er því lagskipt, með að
jafnaði um 2 metra ferskvatnslagi
ofan á sjávarlaginu.
Merkar rannsóknir
ítarlegar rannsóknir fóru fram í
Ólafsfjarðarvatni á árunum 1978-
1983, sem þeir doktorarnir Unn-
steinn Stefánsson og Björn Jó-
hannsson stóðu fyrir og fram-
kvæmdu. Auk þess gerði dr. Tumi
Tómasson hjá Veiðimálastofnun
1986 úttekt á fiskinum í vatna-
kerfinu og fékk í net sem hann
lagði í vatnið, auk bleikju og ufsa,
síld, þorsk og rauðsprettu. Þeir
Unnsteinn og Björn gerði grein
fyrir þessum rannsóknum sínum í
Ægi Í983, er nefnist „Ólafsfjarðar-
vatn — varmahagur þess og efna-
eiginleikar".
Inefndrigreinerfjallaðm.a. um
sögulegar heimildir en þar kemur
fram að Ólafsfjarðarvatn hafi löng-
um þótt forvitnilegt stöðuvatn
vegna sjávarfiska sem í því eru og
menn töldu fyrr meir að gætu lifað
þar í ósöltu vatni, þar sem bæði
þorskur, ýsa, flyðra og skata hafi
tekið sér þar bólfestu. Þá eru þar
raktar heimildir um vatnið, er
varða umsögn í Jarðabók Áma
Magnússonar (1712), íslandslýs-
ing Eggerts Ólafssonar (1772),
hingaðkomu herskips frá Frakk-
landi (1891) til rannsókna á vatn-
inu, og rannsóknir Bjarna Sæ-
mundssonar fiskifræðings um
aldamótin seinustu.
\6ð upphaf rannsókna þeirra
Unnsteins og Bjöms 1978 gerðu
þeir dýptarkort af vatninu sem
ekki var til áður. Þar kemur fram
að vatnið er 3,3 km að lengd og
breiddin er víðast hvar á bilinu 0,5
km til 1,0 km. Mesta dýpi er 10
metrar og meðaldýpt er 3,7 metr-
ar. Flatarmál þess er 225 hektarar.
Eins og fyrr segir er Ólafsfjarðar-
vatn lagskipt og sýndu rannsókn-
imar að endurnýjun á sjávarlagi
þess væri mjög hægfara. Öðru
máli gegndi um ferskvatnslagið,
sem er að jafnaði nálægt 2 m að
þukkt og endurnýjast að meðaltali
á Qómm dögum og viðstöðutími
ferskvatns því mjög stuttur.
Rannsóknimar leiddu í ljós að öll
þau sumur, 1978 til 1983, hafi
hitahámark fúndist efst í salta lag-
inu á þriggja til fjögurra metra
dýpi. Þannig komst hitinn í 20
gráöur á celsíus á rúmlega 4 metra
dýpi sumarið 1980. Telja Unn-
steinn og Björn fullvíst að hitahá-
markið sé tilkomið vegna beinna
áhrifa af geislun sólar ásamt gróð-
urhúsaáhrifum, er verða á skilun-
um milli ferska og salta lagsins.
Það er því mikil varmaorka
geymd í salta laginu undir fersk-
vatnshjálminum á vatninu. Eldis-
stöðin óslax hefur gert tilraunir
meö að nýta þennan hita með því
að setja eldiskvíar með laxaseiði í
mjög djúp net, eins og þeir Unn-
steinn og Björn nefndu í skýrslu
sinni að mögulegt væri að nýta
þessar aðstæður á þann hátt.
Veiðifélag og veiði
Veiðifélag var stofnað á sínum
tíma um vatnakerfið er tekur til
svæðisins frá ósi í sjó í Ólafsfirði
og svo langt upp sem fiskur geng-
ur. Innan vébanda þess eru um 10
jarðir. f stjóm þess eru Kristján H.
Jónsson, Lóni, Gunnar Jóhanns-
son, Hlíð, og Sveinbjörn Árnason,
Kálfsá. Sem fyrr segir er á svæðinu
stunduð netaveiði í vatninu og
stangaveiði í Fjarðará og vatninu.
Ríflega 2.000 bleikjur hafa veiðst á
stöng árlega að meðaltali. Neta-
veiði er leyfð, eins og lög gera ráð
fyrir þar sem um göngusilung er
að ræða. Vitað er að fjöldi laxa
veiddist f net í vatninu sumarið
1990, sem komst í vatnið þrátt fyr-
ir gildru í útrennsli þess.
Hafbeit á iaxi
Stofnað var til hafbeitarstarfsemi
með stofnun Óslax hf. 1984, en
heitt vatn er í Ólafsfirði, er gerði
kleift að ala þar seiði. Þá hefur
Gunnar Jóhannsson í Hlíð verið
með klak og eldi í Hlíð og lagt
áherslu á bleikjueldi hin seinni ár.
Aðilar að hafbeitinni em m.a.
KEA, Veiðifélagið, sem á um 20% í
félaginu, og ólafsfjarðarbær, auk
fjölda einstaklinga.
Öflug starfsemi
Óslax hf. hefur byggt upp öfluga
starfsemi með 540 fermetra vel
búnu eldishúsi, eldistjamir og el-
diskvíar, auk gildrubúnaðar til að
taka á móti laxi úr hafi. Sumarið
1989 gengu í stöðin um 2.700 lax-
ar og 1990 urðu laxarnir 4.526
sem lögðu leið sína í gildruna.
stjórnarformaður Óslax er Sigurð-
ur Jóhannesson, Akureyri, en
framkvæmdastjóri Ármann Þórð-
arson.
í sumar hafa til þessa (7. ágúst)
2.700 laxar skilað sér úr hafi inn í
gildru stöðvarinnar, en stærstu
laxarnir hafa verið um 16 pund að
þyngd. í sumar var sleppt tæplega
300 þúsund gönguseiðum til sjáv-
ar, sem öll voru alin í eldisstöðinni
sem var fullnýtt. Allri bleikju, sem
í gildruna kemur, er sleppt aftur
lifandi í ána, en mestu hluti bleikj-
unnar kemst gegnum rimla gildr-
unnar. eh.
Eldishús Öslax hf. ásamt útikerjum. Olafsfjaröarvatn í baksýn.
Ármann Þórðarson framkv.stj. Eldisker hjá Óslaxi hf. Kaupstaðurinn í baksýn.
heldur hér á vænum laxi.
Olíufundur í Kólumbíu
British Petroleum (BP) og Ecop-
etrol tilkynntu snemma í júlí 1991
olíufund og jarðgass í Kólumbíu, í
Cuisana, um 100 mflur norðaust-
an Bogota (en næsti bær við fund-
arstaðinn er Yopal). Olía í jörðu
þarna er sögð öllu meiri en í Cano
Limon, þar sem olía fannst 1983-
84 og nú eru numdar 220.000
tunnur á dag. í félagi við kólumb-
íska ríkisolíufélagið Ecopetral hafa
þrjú félög staðið að olíuleit á
svæðinu og á móti Ecopetral hafa
þau vinnslurétt í þessum hlutföll-
um, BP 40%, Total 40% og Triton
20%, en að auki fær Ecopetral
söluþóknun.
Á miðju ári 1991 nam olíunám í
Kólumbíu 440.00 tunnum á dag.
Og stjórnvöld hyggjast auka nýt-
ingu jarðgass í landinu.
ATVINNULEYSI í HELSTU
IÐNAÐARLÖNDUM
Efnahags- og framfarastofnunin í
París hefur birt álitsgerð um at-
vinnuleysi í hinum 24 aðildarlönd-
um sínum á liðnum árum og horf-
ur í atvinnumálum, OECD Employ-
ment Outlook, OECD Publications,
2 rue André Pascal, 75775 Paris,
Cedex 16, France, FFr 200 eða í
London hjá HMSO, PO Box 276,
London SW8 5DT, 2 pund. Atvinnu-
leysi í þeim 1990 nam 6,2% vinnu-
aflans og var hið lægsta um 10 ára
skeið, en horfur eru á að atvinnu-
lausum fjölgi 1991 um 3,5 milljón-
ir eða upp í 7,1% og í álitsgerðinni
er spáð að þeim fjölgi enn 1992.
Atvinnuleysi í OECD-löndum
Lönd 1980-88 1989 1990 1991(horfur) 1992 (spá)
N.-Ameríka 7,7 5,5 5,8 7,0 6,7
Japan 2,5 2,3 2,1 2,2 2,3
Vestur-Evrópa 7,9 6,8 6,3 7,1 7,6
Suður-Evrópa 11,8 12,0 11,3 11,7 11,7
Norðurlönd 4,4 4,3 4,4 5,4 5,7
Ástralía 7,7 6,1 6,9 9,9 9,9
Nýja Sjáland 4,1 7,1 7,8 9,3 10,0
(öllum aðildarl.7,5 6,4 6,2 7,1 7,1
Þá er þess getið að aðild.starfs-
fólks að fagfélögum sé mjög mis-
mikil, minnst í Bandaríkjunum,
Frakklandi og Spáni, eða 12-16%,
en mest í Svíþjóð 85,3%.
Mercosur
f mars 1991 urðu ráðherr-
ar frá Argentínu, Brasilíu,
Paraguay og Uruguay ásáttir
um drög að fríverslunarsvæði
eða efnahagsbandalagi þeirra
á milli, sem hafi verið komið
1995 (Southern Cone Market
á ensku), en heiti þess er
skammstafað Mercosur. Ann-
an fund sinn um málið áttu
ráðherrar frá löndum þessum
í Montevideo 20. júlí 1991. f
júní 1991 gerðu löndin
rammasamning við Banda-
ríkin um verslun þeirra og
fjárfestingu í löndum sínum.