Tíminn - 15.08.1991, Side 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 15. ágúst 1991
Perez de Cuellar fundar með ísraelskum samningamönnum:
Gíslamálið enn
í brennidepli
í gær hélt Javier Perez de Cuellar, aðalritari Sameinuðu þjóðanna,
fund með þremur sendifulltrúum ísraelsku stjórnarinnar í Genf.
Tilgangur fundarins var að ræða viðbrögð ísraelskra stjómvalda við
tilboði íslamska Jihad, um alhliða skipti á miðausturlenskum föng-
um og vestrænum gíslum. Fundurinn stóð yfir í 90 mínútur.
„Við áttum saman góðar og árang-
ursríkar samræður," sagði Uri Lu-
brani, aðalsamningamaður ísraela í
gíslamálinu. „Við gerðum aðalritar-
anum ljóst hver afstaða ísraelskra
stjórnvalda er, með tilliti til vanda-
mála tengdum stríðsföngum," sagði
Lubrani.
Lubrani sagði að de Cuellar ætlaði
að vera áfram í Genf í einn dag enn,
en greindi ekki frá hvers vegna.
Talsmaður Perez de Cuellar, Nadia
Younes, hafði áður sagt að hann ætl-
aði ekki að vera lengur en til mið-
vikudags í Genf, en þó gæti fundur-
inn með ísraelsku sendifulltrúunum
breytt þar um. Hún var ekki tilbúin
til að fara segja meira um þetta.
Lubrani sagði að ísraelar vildu fá
tákn um að einhver af þeim sjö ísra-
elsku hermönnum sem talið er að sé
haldið föngum í Líbanon, væru á
lffi. Aðspurður um hvort ísraelar
væru tilbúnir til að sýna einhver
merki um samningsvilja, t.d. með að
sleppa nokkrum af þeim fjölda araba
sem þeir hafa í haldi, sagði hann að
það hefði ekki verið rætt.
Þegar hann var spurður hvort þeir
hefðu sett sér einhver tímamörk í
málinu, sagði Lubrani; „Ég held
ekki að tímamörk sé lausn þessa
máls.“
Reuter-SIS
Javier Perez de Cuellar stendur
í ströngu í samningaviöræöum
um lausn gísla víöa um heim.
Japanskar
smagrofur
Getum útvegað með stuttum fyrirvara
smágröfur frá japanska stórfyrirtækinu
KUBOTA.
■ Stærðir 730 kg til 5940 kg. ■ Gúmmíbelti
eða stálbelti. ■ Sýningarvél á staðnum.
Ármúla 11 - Reykjavík - Sími 681500 - Fax 680345
Hin konunglegu hjón varpa
skugga á gíslamálið:
Díana á
bikinf
Myndir af Díönu prinsessu í bikiní
hafa ýtt fréttum af gíslamálum til
hiiðar í Bretlandi. Fátt kætir Bret-
ann eins og fréttir af kóngafólkinu,
svo þeir eru himinlifandi yfir nýj-
ustu fréttum af Díönu og Karii. Hins
vegar er konungsfjölskyldan iítið
hrifin af þessum myndum.
Þau hjón eru nú í annarri brúð-
kaupsferð sinni, en í ár eru einmitt
liðin 10 ár síðan þau gengu í heilagt
hjónaband. Þau eru nú á siglingu
um Miðjarðarhafið. Fréttir frá Buck-
inghamhöll segja að þau kæmu
heim úr ferðinni í dag.
Reuter-SIS
Óttast er að ítalskur kaupsýslumaður hafi
látist hjá mannræningjum í Líbanon:
Ekkert frést af
honum í sex ár
Yfirmaður líbönsku öryggissveit-
anna sagði í gær að mannræn-
ingjarnir sem hefðu haft Alberto
Molinari, ítalskan viðskiptamann,
í haldi, hefðu myrt hann skömmu
eftir að þeir rændu honum fyrir
sex árum.
Yfirmaðurinn segir að mann-
ræningjarnir hafi drepið hann
vegna mistaka. Hann fékkst ekki
til að útskýra mál sitt betur.
John McCarty, sem losnaði úr
gíslingu í síðustu viku, hefúr sagt
að allir vestrænir gíslar sem eru í
haldi mannræningja í Líbanon
væru á lífi. Við það vöknuðu vonir
manna um að Molinari væri enn á
lífi.
Vestrænir diplómatar segjast
hins vegar óttast að Molinari sé
látinn.
Bandaríkjamaðurinn Edward
Tracy, sem látinn var laus úr gísl-
ingu á sunnudag, sagðist halda að
mannræningjarnir hefðu tíu vest-
ræna gísla í haldi hjá sér, fimm
Bandaríkjamenn, 2 Breta, 2 Þjóð-
verja og einn ítala.
Molinari hefur hingað til verið
„hinn gleymdi gísl“ því engar
fréttir hafa borist af honum síðan
11. september 1985. Reuter-SIS
Fréttayfirlit
Kalifomía - James Roose-
velt, elstí sonur Franklin Ro-
osevelt fyrrverandi forseta
Bandaríkjanna, lést á heimili
sínu f Newport Beach, á þriðju-
dag. Síðustu árin starfaði hann
víö viðsklpti. Hann veröur Jarö-
settur á sunnudaginn.
Bari - Enn eru nokkur hundr-
uö Aibana eftir á íþróttaleik-
vanginum í Barí. Þeír sögöu að
þeir myndu frekar berjast til
síðasta manns, en fara heim
aftur. Itölsk stjómvöid hafa
ókveöið aö leyfa þessu fólki að
vera áfram f landinu, en þó er
ekki Ijóst hversu lengi. Senni-
legt þykir að fólkið verðf flutt f
flóttamannabúöir á Noröur-
ftaiíú.
íslamabad - Afganska frétta-
stofan í Bakhtar greindi frá því
í fréttum að hópur skæruliða
hafi gert árás í Kabul. Skæru-
liöamir skutu á rútu, drápu 21
manneskju og særöu 34.
Nýja Delhí - Allar öryggis-
vamir hafa veriö hertar tíl
muna við Punjab og Jammu
og Kashmir. Þetta er gert
vegna hættu óeiröum á þjóð-
hátíðardegi þjóðarinnar.
Seou! • Hundruð Suður-Kóre-
anskra stúdenda, kÖstuðu
bensínsprengjum og síeinum
aö lögreglunni i Seoul. Óeirö-
imar brutust út vegna
óánægju stúdentanna með rik-
isstjóm Roh Tae- woo.
Wadowice - Jóhannes Páll
páfi U kom til Wadowice í Pól-
landi í gær. Páfi er uppaiinn í
Wadowice. Hann fagnaöi
gömlum vinum þar, og sagöi
fólkinu þar m.a. að móöir hans
hafi alið hann upp f guðsótta
og góðum siöum.
Jóhannesarborg - Helsfai
stjómmálamenn í Suður-Afr-
íku hafa fengið sig fullsadda af
óeirðum í iandinu undanfarin
ár og eru nú sestir niður tii að
ræða hvað hægt sé að gera til
að stöðva þetta ástand.
Nairobí - Mikchel Camedess-
us, framkvæmdastjóri Alþjóða
gjaldeyrisstjóðsins, hefúr beð-
iö um hjálp til að örva efna-
hafslega þróun í hinum bláfá-
tæku ríkjum þriðja heimsins.
Frakkland • Franskur bóndi
skaut til bana 12 ára gamlan
strák á þriðjudagskvöld, vegna
ótta við að strákurinn hafi stol-
ið frá sér kjúklingum. (júif drap
annar franskur bóndi mann
sem hafði stoiið ffá honum
gulrótum. Fangelsun hans
vakti mikta ólgu meðal bænda
sem vi Ija fá að verja eigur sínar
fyrir ágangi annarra.
Bandarískur maður játar 60 morð:
Búiö að sanna á hann 4 morð
Bandarískur maður sem ákærður
er fýrir morð á 10 ára gamalli
stúlku, hefur viðurkennt að hafa
myrt meira en 60 manns, víða um
Bandaríkin, undanfarin 10 ár. Mað-
urinn heitir Donald Leroy Evans og
er 34 ára gamall. Hann er frá Miss-
issippi.
Ef framburður Evans reynist rétt-
ur, er hann mesti raðmorðingi
bandarísku réttarsögunnar.
Fred Lusk, skipaður verjandi Ev-
ans, segir að sérfræðingar vinni nú
hörðum höndum við að sannprófa
framburð Evans. „Þeir eru að leita
að upplýsingum sem aðeins sá sem
framið hefur glæpinn getur vitað
um,“ sagði hann.
Lusk segir að þegar sá búið að
sanna þrjú morð á Evans, fýrir utan
morðið á Beatrice Louise Routh
sem var ekki nema 10 ára þegar
hún var myrt. Hún hvarf frá Gulf-
port, Mississippi, í byrjun ágúst-
mánaðar, en lík hennar fannst sl.
sunnudag.
Reuter-SIS
Eftirlit með að vopnahlé verði haldið í Serbíu og Króatíu:
Fimm létu líf-
iö í fyrrinótt
Ráðmenn júgóslavneska ríkjasam-
bandsins staðfestu í gær að þeir
hafa sent friðareftirlitsmenn á sín-
um vegum þangað sem átök hafa
blossað upp á ný, á milli Serba og
Króata. Þeim er ætlað að sjá til þess
að vopnahlé sem sett var á í síðustu
viku verði haldið.
Að minnsta kosti fimm manns
týndu lífi í fyrrinótt í átökum Serba
og Króata.
Irfan Ajanovic, talsmaður ríkja-
sambandsins, sagði að friðareftir-
litsmenn yrðu komnir til átaka-
svæðanna í dag og á morgun. „Hlut-
verk þeirra verður að athuga hvor
deiluaðilinn brýtur vopnahléið.“
Hann sagði einnig á fréttamanna-
fundi í Belgrad, að ráðamenn í Júgó-
slavíu myndu halda áfram umræð-
um um framtíð ríkjanna á Balkan-
skaga, eftir sjálfstæðisyfirlýsingar
Slóveníu og Króatíu.
Ríkjasambandsstjórnin og forsetar
Serbíu, Króatíu og fjögurra annarra
ríkja á skaganum munu hittast á
fundi í Belgrad, 20. og 21. ágúst til
samningaviðræðna.
Að minnsta kosti 300 manns hafa
látið lífið síðan Slóvenía og Króatía
lýstu yfir sjálfstæði, þann 25. júní.
Flestir hafa látist í átökum á milli
serbneskra skæruliða og króatískra
öryggissveita.
Aður hefur fundur á borð við þann
sem halda á í ágúst ekki borið árang-
ur, vegna deilna lýðveldanna, og
ásakana þeirra á milli.
Reuter-SIS