Tíminn - 15.08.1991, Qupperneq 9
Tíminn 9
Fimmtudagur 15. ágúst 1991
aa Samskipadeildin í Knattspyrnu:
Oruggur Fram-
sigur á Víði
Pramarar unnu sinn stærsta sigur
á sumrinu er þeir sigruðu Víðis-
menn á iaugardalsvelli með fjórum
mörkum gegn engu. Safamýrar-
drengimir voru betri aðilinn allan
ieikinn og réðu gangi leiksins frá
upphafi hans til enda.
Það var á 26. mín. sem Anton Mark-
ússon skoraði fyrsta mark leiksins
og var staðan þannig í hálfleik. í
upphafi síðari hálfleiks áttu Víðis-
menn sitt besta færi þegar Grétar
Einarsson átti hörkuskalla að marki
Fram en Birkir varði vel. En Fram
hélt uppi leik sínum og sótti, en átti
í erfiðleikum með að brjóta niður
sterka Víðismenn, eða allt þar til
undir Iok leiksins þegar flóðgáttir
opnuðust. Á 84. mínútu skoraði Jón
Erling Ragnarsson með skalla og
þremur mínútum síðar gerði hann
annað mark sitt og þriðja mark
Fram. Það var síðan Steinar Guð-
geirsson sem innsiglaði öruggan
sigur Fram. Leikinn dæmdi Ólafur
Ragnarsson.
Maður leiksins : Jón Erling Ragn-
arsson.
Fjörugt jafntefli
Úrslit
1 deild karla
Stjarnan-FH 2-2 (1-2)
Fram-Víðir 4-0 (1-0)
1 deild kvenna
UBK-Týr 6-0 (2-0)
Bikark.kv.undanúrslit
ÍBK-Þór 2-1 (0-0)
ÍA-Valur 2-1 (1-0)
3.deild
Völsungur-Skallagrímur 3-0
KS-Magni 2-2
Það var heldur betur Qörugur leikur
Stjömunnar og FH í Garðabænum
sem háður var í gærkvöldi. Úrslit
leiksins urðu 2-2 eftir að FH hafði
haft yfiihöndina í hálfleik, 1-2. Leik-
urinn var skemmtilegur og vel leikinn
afbáðum liðum.
Leikurinn byijaði með látum. Strax á
7. mfnútu komst Valdimar Kristófers-
son einn inn fyrir vöm FH og var felld-
ur af Stefáni Amarssyni og dæmdi Eyj-
ólfur Ólafsson umsvifalaust víti. Úr því
skoraði Sveinbjöm Hákonarson. Eftir
marki sóttu FH-ingar meira og upp-
skám mark á 18. mín. Hallsteinn Am-
arsson braust af harðfylgi upp hægri
kantinn ffam hjá tveimur vamar-
mönnum Stjömunnar, sem reyndar
brutu báðir á honum og gerði Eyjólfur
dómari vel að láta leikinn halda áfram.
Hallsteinn gaf góðan bolta fyrir markið
og þar afgreiddi Hlynur Eiríksson bolt-
Knattspyma:
Næst í
Noregi
Norðurlandamót drengja 15 ára og
yngri verður næsta ár haldið í Nor-
egi. Sú breyting verður á mótshald-
inu að liðum fjölgar um tvö. Ástæð-
an er sú að Færeyingar hafa ákveðið
að vera með að nýju eftir sex ára
fjarveru úr mótinu og verður þá
bætt við einu liöi enn til að fá út
slétta tölu. Þá má heimaliðið bjóða
einu liði til leiks og ákváðu Norð-
menn að bjóða ítölum til næsta
móts. Þá verður leikið í tveimur
riðlum og síðan leikið um sæti, en
leikjum liðanna fækkar um einn, en
við breytinguna verður mótið sterk-
ara þar sem engum blöðum er um
það að fletta að ítalir eru mjög
sterkir. -PS
ann glæsilega í netið. Hlynur klippti
boltann aftur fyrir sig, óveijandi fýrir
Jón Otta í markinu.
FH náði forystunni á 25. mínútu fyrri
hálfleiks og var Izudin Dervic að verki
með eitt glæsilegasta mark sumarsins.
Boltinn barst út fyrir vöm Stjömunn-
ar og tók Dervic hann viðstöðulaust af
25 metra færi stöngin inn. Stjömu-
menn áttu tvö færi fyrir hálfleik en
náðu ekki að skora, staðan því 1-2 í
hálfleik.
Liðin hófú seinni hálfleik af krafti og
strax á fyrstu mínútu átti Valdimar
Kristófersson skalla í slá. Á 3. mínútu
braust Dervic upp allan völl og gaf
góða sendingu fyrir mark Stjömunnar,
en Hlynur skaut yfir. Efdr þetta áttu
Stjömumenn meira í leiknum og á 7.
mínútu skoraði Stjaman jöfnunar-
markið. Valdimar Kristófersson fékk
boltann á miðjum vallarhelmingi FH,
tók á rás og skaut þmmuskoti af um 20
metra færi sem Stefán Amarsson réð
ekki við. Stjömumenn vom það sem
eftir lifði leiks hættulegri aðilinn og
geta FH- ingar þakkað Stefáni Amars-
syni markverði sínum stigið því 5 mín-
útum fyrir leikslok fengu Stjömu-
menn víti, þegar Valdimar Kristófers-
son var felldur inn í teig en Stefán
varði frá Sveinbimi. Fleiri urðu mörk-
in ekki. Ekki ósanngjöm úrslit, en
Stjömumenn geta nagað sig í handar-
bökin yfir því að klúðra vítinu.
Bestu menn liðanna vom þeir Valdi-
mar Kristófersson og Sveinbjöm Há-
konarson hjá Stjömunni, en hjá FH
vom þeir Izudin Dervic og Stefán Am-
arsson bestir. -PS
Frjálsar íþróttir:
Rétt úrslit
Vegna mistaka við stigaútreikn-
ing á Bikarkeppni Frí, sem fór
fram um helgina og sagt var frá í
blaðinu á þriðjudag, komu fram
Knattspyrna:
Nóg að gera
hjá Aganefnd
tvær villur. Mistökin lágu í því að
að í 2. deild 100 metra hlaupsins
víxluðust stigin þannig að HSÞ
voru gefin 3 stig í stað 2 og UMSB
2 í stað 3 stiga. Þá voru stig UMSE
í 1. deild ofreiknuð um 1 stig en
það breytir ekki stöðunni þar. Rétt
úrslit í deildunum voru því sem
hér segir:
1 deild
Heildarstig Karlar Konur
A fundi Aganefndar KSI á þriðju-
daginn voru 15 leikmenn og einn
þjálfari dæmdir í leikbann. Það var
Kjartan Másson, þjálfari ÍBK, sem
fékk eins leiks bann fyrir brottvís-
un. Þá fengu einnig einn leik fyrir
brottvísun Víðismennirnir Björn
Vilhelmsson og Sigurður Magnús-
son. Tveir leikmenn úr Samskipa-
deild voru úrskurðaðir í leikbann
vegna fjögurra gulra spjalda. Það
voru þeir Izudin Dervic FH og Pavel
Vandas KA. Pavel Vandas nær að
leika með liði sínu í kvöld þar sem
bannið tekur ekki gildi fyrr en á há-
degi föstudags. Þá voru fjórir leik-
FH 139 88 51
HSK 127 75 52
KR 120 70 50
UMSE 110 55 55
ÍR 110 63 47
ÁRM. 107 48 59
2 deild
Heildarstig Karlar Konur
menn úr 2. deild úrskurðaðir í leik- UMSS 144 98 46
bann. Dragan Monojlovic Þrótti fyr- UMSK 125 56 69
ir sex gul spjöld og fyrir fjögur þeir HSÞ 124,5 76 48,5
Einar Daníelsson Grindavík, Hlynur UMSB 117 60,5 56,5
Birgisson og Lárus Orri Sigurðsson USAH 117 59 58
Þór A. UDN 80,5 46,5 34
Jón Erling Ragnarsson var besti maður Fram í gærkvöldi er hann skoraði tvö af fjórum mörkum gegn
Víði frá Garði. Hér er hann í leik gegn Val. Tímamynd Pjetur
•--------\
JEPPA
HJÓLBARÐ-
APNIR
VINSÆLU
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
Skólabíll óskast
Kleppjárnsreykjaskóli í Reykholtsdal óskar eftir fólks-
flutningabíl á leigu n.k. vetur, stærð 12-17 manna eða
30-35 manna.
Einnig kemur til greina að kaupa, ef hagstætt tilboð fæst.
Upplýsingar í síma 93-51400.
MEÐ UTIBU ALLTIKRINGUM
LANDIÐ.
MUNIb ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRl
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
ecHANKOOK
Jeppahjólbarðar
frá Suður-Kóreu:
215/75 R15, kr. 6.320.
235/75 R15, kr. 6.950.
30- 9,5 R15, kr. 6.950.
31- 10,5 R15, kr. 7.950.
31-11,5 R15, kr. 9.470.
33-12,5 R15, kr. 9.950.
Hröð og örugg
þjónusta.
BARÐININ hf.
Skú'.uvogi 2, Reykjavík
I Sfmar: 91-30501 og 91-84844
V ^