Tíminn - 15.08.1991, Side 11
Fimmtudagur 15. ágúst 1991
Tíminn 11
DAGBÓK
MINNING
75 ára afmæli
í dag, 15. ágúst, er Jón F. Hjartar, fv.
deildarstjóri, 75 ára.
Eiginkona hans er Ragna H. Hjart-
ar.
Þau eru að heiman.
< ■
7 s
H
n
m u
10
■
6331.
Lárétt
1) Húsdýr. 5) Utanhúss. 7) Miðdegi.
9) Fljót. 11) Eins bókstafir. 12)
Ógna. 13) Svar. 15) Iðn. 16) Bráð-
lynda. 18) Dapur.
Lóðrétt
1) Þjóðhöfðingjar. 2) Ræktað land.
3) Tveir eins. 4) Þrír. 6) Hankar. 8)
Skelfmg. 10) Mann. 14) Sekt. 15)
ílát. 17) Siglutré.
Ráðning á gátu no. 6330
Lárétt
1) ísland. 5) Úri. 7) Kær. 9) Tóm. 11)
At. 12) MI. 13) LII. 15) Bað. 16) Lóa.
18) Smára.
Lóðrétt
1) ískalt. 2) Lúr. 3) Ar. 4) Nit. 5)
Smiður. 8) Æti. 10) Óma. 14) Ilm.
15) Bar. 17) Óa.
Ef bilar rafmagn, hitaveita eða vatnsveita
má hringja f þessi simanúmer:
Rafmagn: I Reykjavik, Kópavogi og Seltjam-
amesi er slmi 686230. Akureyri 24414, Kefia-
vlk 12039, Hafnarfjörður 51336, Vestmanna-
eyjar 11321.
Hitaveita: Reykjavik simi 82400, Seltjamar-
nes simi 621180, Kópavogur 41580, en eftir
kl. 18.00 og um helgar Islma 41575, Akureyri
23206, Keflavlk 11515, en eftir lokun 11552.
Vestmannaeyjar slmi 11088 og 11533, Hafn-
arljöröur 53445.
Slml: Reykjavlk, Kópavogi, Seltjamamesi,
Akureyri, Keflavlk og Vestmannaeyjum til-
kynnist I slma 05.
Bilanavakt hjá borgarstofnunum (vatn,
hitaveita o.fl.) er I slma 27311 alla virka daga
frá ki. 17.00 til Id. 08.00 og á helgum dögum
er svarað allan sólarhringinn. Tekið er þar við
tilkynningum á veitukerfum borgarinnar og I
öðrum tilfellum, þar sem borgarbúar telja sig
þurfa að fá aðstoö borgarstofnana.
14. ágúst1991 kl. 9.15
ECU-Evrópum......72,1181
5 Kaup Sala
...61,130 61,290
.103,252 103,522
...53,358 53,498
...9,0933 9,1171
...8,9943 9,0179
...9,6763 9,7016
.14,4635 14,5014
.10,3382 10,3653
...1,7073 1,7118
.40,2767 40,3821
.31,1975 31,2792
.35,1726 35,2647
.0,04701 0,04713
...4,9973 5,0104
...0,4090 0,4101
...0,5617 0,5631
.0,44768 0,44885
...94,027 94.273
...81,7901 82,0042
...72,1181 72,3069
Þuríður Jóhannesdóttir
Fædd 4. nóvember 1908
Dáin 2. ágúst 1991
Þegar vinir deyja, deyr hluti af
manni sjálfum. Þannig er því varið
við fráfall vinkonu minnar, Þuríðar
Jóhannesdóttur. Eftir stendur ófyllt
skarð en þekkar minningar streyma
fram í hugann.
Þuríður var fædd á Miðgrund í
Skagafirði þann 4. nóvember 1908
og hlaut það hlutskipti að alast upp
hjá vandalausum frá 7 ára aldri.
Sauðfjárveiki hafði herjað á héraðið
og áttu foreldrar hennar ekki annars
úrkosta en að bregða búi. Næstu sex
árin dvaldi hún í Vesturdal í Skaga-
firði en til þeirrar byggðar bar hún
æ síðan afar sterkar tilfinningar.
Afburðagreind, háttvísi, iðjusemi,
hógværð og skapfesta einkenndu
Þuríði til hinstu stundar. Hún hlaut
í æsku meiri menntun en títt var
um konur á fyrri hluta aldarinnar.
Þannig var hún veturlangt við nám í
Kvennaskólanum á Blönduósi.
Næsta vetur var hún fengin til að
vefa fyrir skólann. Slíkt mun hafa
verið mikil upphefð fyrir unga
stúlku í þá daga og sýnir hve mikill-
ar tiitrúar hún naut þá þegar.
Leið Þuríðar lá því næst í Kennara-
skóla íslands, en þaðan varð hún frá
að hverfa eftir eins árs nám vegna
fjárskorts. í Kennaraskólanum
kynntist Þuríður eftirlifandi eigin-
manni sínum, Þórami Jónssyni
kennara, og gengu þau í hjónaband
þann 5. júní 1930.
Ekki var auðvelt fyrir ungan kenn-
ara að fá fasta kennarastöðu á
kreppuárunum. Farkennsla í Kjós
var það vænlegasta sem bauðst.
Ungu hjónin dvöldu þann vetur á
Ingunnarstöðum í Kjós þar sem
fæddist elsta dóttirin. Átti Þuríður
síðan afar góðar minningar um
hjónin á Ingunnarstöðum og dvöl
sína þar.
Að því kennsluári loknu héldu þau
til Reykjavíkur, þar sem Þórami
hlotnaðist foríallakennsla við Aust-
urbæjarskólann. Þaðan lá leiðin til
Aðalvíkur í Norður- ísafjarðarsýslu
og sfðan til Flateyjar á Skjálfanda.
Munu þau hafa dvalið í u.þ.b. 7 ár á
hvorum stað. Höfðu þessi afskekktu
og um leið framandlegu byggðarlög,
kjör fólksins þar og staðhættir alíir
djúpstæð áhrif á næma og glögg-
skyggna sál Þuríðar. Margt það er
hún hafði séð þar og reynt varð
henni óþrotleg uppspretta hugleið-
inga um örlög manna og hinstu rök
tilveru okkar.
Kennsluferli Þuríðar og Þórarins
lauk í Innri-Akraneshreppi þar sem
þau ásamt með kennslu hófu bú-
skap. Jörðina Kjaranstaði keyptu
þau og byggðu síðar upp með dóttur
sinni og tengdasyni. Þar er nú eitt af
fyrirmyndarbúum landsins.
Þó Þuríði hafi ekki tekist að Ijúka
kennaraprófi mun hún hafa verið
frábær kennari og aðstoðað mann
sinn dyggilega í starfi. Auk þess sem
hún kenndi hinar ýmsu greinar
skólaskyldunnar, tók hún iðulega að
sér böm sem af ýmsum orsökum
þurftu á sérstakri aðstoð að halda.
Sum þeirra dvöldu um lengri eða
skemmri tíma í einstakri umsjá
þeirra Þuríðar og Þórarins, en þau
hjónin munu hafa verið sérstaklega
samhent í öllu því er náungakærleik
varðaði.
Þá er kennsluferli Þuríðar og Þór-
arins lauk, réð Þuríður sig sem að-
stoðarkonu við bamaskólann að Ás-
garði í Kjós um nokkurra ára skeið.
Aðstoð hennar þar var mjög marg-
þátta. Fósturdóttur sína Sigþrúði
aðstoðaði hún við matseldina,
Hólmfríði skólastjóra við umönnun
ungra dætra hennar, undirritaða við
kennsluna, auk þess sem hún sá um
að halda skólanum hreinum og vist-
Iegum. Alúð hennar og trúmennska
við öll þessi störf var eftirbreytni-
verð og fjölhæfni hennar þar sem
annars staðar eftirtektarverð.
Skólahúsið, sem eftir eril og ærsl
dagsins hafði verið í óreiðu, varð
fínt og fágað án þess að nokkur yrði
var við þau umsvif sem gjama fylgja
tiltektum. Sömuleiðis var morgun-
verðurinn tilbúinn og ilmandi á
réttum tíma dag hvem án þess að
nokkur hefði heyrt svo mikið sem
skóhljóð í húsinu. Fyrir þessar eðlis-
eigindir, þ.e. hljóðlætið og eljusem-
ina, hlaut hún nafnið „búálfurinn
góði“ hjá undirritaðri, en að þeirri
nafngift henti hún oft gaman, þar eð
henni þótti hún hæfa sér harla vel.
Síðustu starfsámm sínum varði
Þuríður í umönnun þriggja aldraðra
kvenna, hverri á eftir annarri. Þær
studdi hún með styrkri hönd af nær-
færni og skilningsríki síðasta spöl
lífsferils þeirra.
Þuríður var sem fyrr segir afburð-
areind og fljúgandi hagmælt. Skop-
skyn hennar var ríkt þótt í heild
væri hún mikil alvömkona. Hún var
hafsjór af þekkingu á þjóðlegum
fræðum, íslensku máli og bók-
menntum. Stærðfræðingur var hún
og góður. Fátítt er að hitta fyrir ein-
stakling svo fjölþættum gáfum
gæddan. Geta má nærri að fengur
var í því fyrir ungan og óreyndan
kennara að hitta fyrir slíka mann-
gerð í upphafi kennsluferils síns.
Síðar, eftir að undirrituð var orðin
háskólakennari, kom það oft fyrir að
hún hringdi til Þuríðar og spurði
hvort hægt væri að fá viðtal við fót-
gangandi orðabókina!
Unun var og uppbyggilegt að eiga
við Þuríði samræður um hvað eina
er mannrækt og mannlífi viðkom.
Sífellt var hún tilbúin að miðla af
þekkingu sinni og lífsreynslu.
Átthagatryggð Þuríðar var fágæt.
Tilfinning hennar fyrri eðli og lífs-
háttum Skagfirðinga var mótuð af
næmleik og víðtækum samanburði
við önnur byggðarlög. Þá taldi hún
kunna manna best að hryggjast og
gleðjast.
Meðfædd hógværð Þuríðar varð
þess valdandi að ótilkvödd flíkaði
hún hvorki hagmælsku sinni né
þekkingu. Hún vann störf sín í kyrr-
þey af elju og alúð hvert sem eðli
þeirra var og gætti þess vandlega að
styggja ekki umhverfi sitt í neinu.
Barnalán Þuríðar og Þórarins er
mikið, dæturnar 3, Þórný, Jóhanna
og Þórgunnur, einkasonurinn Þór-
mundur svo og fósturbörnin Sig-
þrúður og Pálmi eru öll dugandi
mannkostafólk hvert á sínu sviði af-
komendurnir eru komnir á fimmta
tuginn. Manndómur og farsæld ein-
kenna hópinn.
Ævikvöldið var kyrrlátt og fagurt
þar sem þau Þuríður og Þórarinn
hafa mörg undangengin ár dvalið
við frábært atlæti í skjóli sonar og
tengdadóttur. Þar hefúr ekkert verið
til sparað að gera góðum foreldrum
og fósturforeldrum ævikvöldið sem
ánægjulegast.
Farsælli lífsgöngu gagnmerkrar
konu er lokið. Efst í huga er þakk-
læti fyrir tryggð og ómæld elskuleg-
heit um tæplega aldarfjórðungs-
skeið. Eftirlifandi eiginmanni Þur-
íðar, systkinum svo og allri fjöl-
skyldu hennar votta ég einlæga
samúð.
Tilhlýðilegt má telja að ljúka þess-
ari grein með stöku eftir Þuríði
sjálfa, um þau lífsviðhorf sem á
langri ævi einkenndu alla henrn.''
gjörð.
„Viðþað eitt ég hugarm hef
þó heldur gerist fábreytt saga,
að yrkja svo mitt ævistef
að öðrum verði lítt til baga. “
Ragna Sigrún Sveinsdóttir
Hendrik Rasmus
Fæddur 6. maí 1911
Dáinn 4. ágúst 1991
Mágur minn og góður vinur er lát-
inn. Henni, eins og flestir nefndu
hann, var sonur hjónanna Ólafíu
Þuríðar Bjarnadóttur, Þórðarsonar
frá Reykhólum og konu hans Þór-
eyjar Pálsdóttur sama stað, og Sig-
urðar Þorsteinssonar Jónssonar og
konu hans Önnu Guðmundsdóttur,
bæði ættuð úr Borgarfirði eystra, en
bjuggu lengst á Þrándarstöðum í
Eyðaþinghá.
Sigurður var að mestu alinn upp
hjá frænda sínum, séra Sigurði
Gunnarssyni, sem síðast þjónaði f
Stykkishólmi, en þeir voru þre-
menningar.
Foreldrar Henna, sem fullu nafni
hét Sigurður Gunnar Hendrik, slitu
samvistir. Móðursystir hans, Margr-
ét Theodóra, og maður hennar, Jo-
han Chr. G. Rasmus, vefari og fram-
kvæmdastjóri frá Neumúnster í
Þýskalandi, ættleiddu hann ásamt
tveimur stúlkum, Hjördísi, f. 22.
jan. 1916, og Edith Sophie, f. 8. des.
1916, sem er látin.
Margrét var fædd 27.03.1877, d.
19.12.1958 en Johan fæddur
26.12.1881, d. 22.11.1934.
Margrét var málleysingjakennari,
lærði til þess í Danmörku og Þýska-
landi. Kennari málleysingjaskólans
Stóra Hrauni 1899-1908. Skóla-
stjóri sama skóla eftir flutning til
Rvk frá 1908 til 1944.
Bemsku- og æskuheimili Henna
var mikið menningarheimili þar
sem jafnframt var mikið hugsað
mikið um þá sem minni máttar vom
og áttu erfitt uppdráttar í lífinu.
Hann var við verkfræðinám í
Þýskalandi árin 1931-1935. Hann
hætti námi eftir 2 ár án þess að ljúka
prófi en sneri sér þess í stað að
hljómlistinni, en sem bam nam
hann á píanó og lék fyrst opinber-
lega 13 ára gamall.
I Þýskalandi kynntist hann djass-
tónlistinni og var ákaflega hrifinn af
þeirri tónlisL í Þýskalandi lék hann
með ýmsum hljómsveitum þar til
hann kom heim árið 1935. Árið eftir
stofnar hann hljómsveitina Blue
Boys sem lék í K.R.-húsinu. 1941-
1942 starfaði hann í Hafnarfirði,
stofnaði þar kabarett en fór jafn-
framt út f húsamálun ásamt öðmm
hljómlistarmanni, Jónatan Ólafs-
syni.
í síldinni á Siglufirði fyrir 1940 lék
hann í 2 sumur, en hélt sig annars
að mestu við Suðurlandið. Við ball-
ettskóla Sigríðar Ármann annaðist
hann undirleik til margra ára, bæði í
skólanum og á danssýningum.
Hann samdi lög og útsetti og var
fljótur að hvom tveggja, sagði vinur
hans Jónatan Ólafsson.
Frá 1953 í ein 15 ár starfaði Henni
við skrifstofustörf á Keflavíkurflug-
velli og lék jafnframt á samkomum
þar. Þegar hér var komið var heilsan
orðin heldur léleg og uppgötvaðist
að hann var kominn með parkin-
sonsveikina. Eftir það var hann ekki
í föstu starfi.
Henni var gleðimaður mikill,
heimsborgarabragur var á honum,
vel gefinn, skemmtilegur og snyrti-
menni hið mesta. Ósvikinn fram-
sóknarmaður og fylgdist vel bæði
með þjóðmálum og heimsmálum.
Það skiptust á skin og skúrir í lífi
Henna, hann var ákaflega gestrisinn
maður og rausnarlegur og sást þá
ekki alltaf fyrir í gerðum sínum,
hestamaður góður á yngri árum.
Fljótur að taka ákvarðanir og fram-
kvæma þær hverjar sem afleiðing-
arnar urðu.
Árið 1949 vann Henni við húsamál-
un á Reykhólum, þar kynntist hann
systur minni, Sigurlaugu Hrefnu
Þórarinsdóttur. Þau gengu í hjóna-
band 12. sept. 1950. Bjuggu fyrst í
Reykjavík, síðan á Suðumesjum til
ársins 1959 að þau flytja að Hlíðar-
vegi 62A í Kópavogi og þar hefur
heimili þeirra staðið síðan.
Börn þeirra em þrjú. Húgó, f.
26.12.52, maki María Játbarðardótt-
ir, Tómas, f. 04.09.54, maki Hlíf Er-
lingsdóttir, Steinunn Ólafía, f.
13.07.56, maki Jón Árni Sigurðsson.
Frá hjónabandi með Ástríði önnu
Guðmundsdóttur eignaðist hann
dótturina Margréti, f. 1.04.36, hún
er lögfræðingur en hin börnin
kennarar.
Barnabörnin em 10 og eitt bama-
barnabarn.
Góð vinátta var með okkur Henna.
Á afmælinu mínu bámst mér alltaf
blóm og vín ásamt upphringinu eða
heimsókn, þetta mátti aldrei bregð-
ast af hans hálfu.
19. júlí lagði ég af stað í sumar-
leyfi, kvöldið áður skrapp ég til að
kveðja systur mína og mág, því mér
sagðist svo hugur um að hann yrði
ekki að finna er ég kæmi aftur, svo
varð líka raunin á. Hann var þó all-
hress og stutt í glettnina og gömlu
reisnina sem alltaf prýddi hann. Ég
kveð mág minn með ljóðmælum
eftir Tómas Guðmundsson.
Og þögnm, þögnin hvíslar hálfum orðum.
Hugurinn mirmist söngs sem löngu er dáirm.
Ó, sál min, sál mín! svona komu forðum
sumrm öll, sem horfin eru i bláirm.
Við Máni vottum systur minni,
börnum Henna og fjölskyldum
þeirra innilega samúð.
Guð blessi minningu Henna
Rasmus.
Kristín Ingibjörg
Afmælis- og minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða
minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa
að berast a.m.k. tveimur dögum fyrir birtingardag.
Þœrþurfa að vera vélrítaðar.