Tíminn - 22.08.1991, Síða 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 22. ágúst 1991
Tíminn
MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og
Framsóknarfélögin (Reykjavik
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason
Ritsfjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm.
Ingvar Glslason
Aöstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson
Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson
Stefán Asgrimsson
Auglýsingastjóri: Steingrlmur Gislason
Skrifstofur:Lyngháls 9,110 Reykjavfk. Síml: 686300.
Auglýslngasfml: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300,
ritstjóm, fréttastjórar 686306, fþróttir 686332, tæknideild 686387.
Setning og umbrot: Tæknideild Tfmans. Prentun: Oddi hf.
Mánaöaráskrift kr. 1100,-, verð f lausasölu kr. 100,- og kr. 120,- um
helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri
Póstfax: 68-76-91
Þingflokkur á Húsavík
Sú venja hefur verið við lýði um allmörg ár að
þingflokkur Framsóknarflokksins hefur haldið
einn fund á ári til skiptis í kjördæmum utan
Reykjavíkur.
Að þessu sinni verður þingflokksfundur haldinn
á Húsavík í dag og á morgun. Til þessa fundar er
boðið landsstjórn Framsóknarflokksins. Samtals
munu því um 35 manns sitja Húsavíkurfund þing-
flokksins auk gesta úr hópi heimamanna.
Á Húsavík verða rædd almenn flokksmál og þing-
mál eins og venja er á fundum sem þessum. Eins
og Guðmundur Bjarnason, ritari Framsóknar-
flokksins og fyrsti þingmaður Norðurlandskjör-
dæmis eystra, segir í viðtali við Tímann, er efnt til
funda af þessu tagi til þess að kynnast aðstæðum á
þeim stað þar sem fundur er haldinn hverju sinni.
Það er gert með þeim hætti að skoða athafnalíf og
atvinnumál, ná tali af sem flestum um brýn hags-
munamál á því sviði og öðrum sviðum þjóðfélags-
ins, hvers kyns félags- og menningarmálum.
Framsókn og landsbyggð
Heimsókn þingflokks og flokksstjórnar Fram-
sóknarflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra
minnir ekki eingöngu á þá staðreynd að Fram-
sóknarflokkurinn styðst mjög við fylgi kjósenda á
landsbyggðinni utan höfuðborgarsvæðisins, held-
ur einnig hitt að Norðurlandskjördæmi eystra er
eitt höfuðvígi flokksins. Flokkur sem hefur um
19% kjósendafylgis í landinu öllu nýtur fylgis
nærri 35% kjósenda í Norðurlandskjördæmi
eystra. Fylgi flokksins er þar traust og jafnast vel
milli dreifbýlis og þéttbýlis eins og sveitarstjórn-
arkosningar bera vitni um. í kjördæminu er at-
vinnulíf fjölbreytt og fólksfjöldi meiri en í öðrum
kjördæmum utan höfuðborgarsvæðisins.
Þess þarf ekki langt að leita að miklar framfarir
hafi orðið í Norðurlandskjördæmi eystra á undan-
gengnum áratugum. Þeirra sér víða stað í atvinn-
uppbyggingu, samgöngum og félags- og menn-
ingarmálum. Hinu er ekki að leyna að á allra síð-
ustu árum hefur þjóðfélagsþróunin ekki verið
landsbyggðinni hagstæð, m.a. vegna óhjákvæmi-
legs samdráttar í landbúnaði, sem ávallt hefur
skipt búsetuþróun á Norðurlandi sem annars
staðar á landsbyggðinni afar miklu máli.
Sem forystuflokkur í landsbyggðarmálum hlýtur
Framsóknarflokkurinn að láta þessa þróun sér-
staklega til sín taka. Flokkurinn verður að standa
fast við þau fyrirheit sem fólust í mótun nýrra
átaka í byggðamálum á grundvelli tillagna
byggðanefnda þeirra, sem Steingrímur Her-
mannsson skipaði meðan hann var forsætisráð-
herra. Sýnilegt er að herða verður baráttu í
byggðamálum, þegar í ljós er komið að núverandi
forsætisráðherra ætlar með tilstyrk Alþýðuflokks-
ins að gefa þau upp á bátinn.
GARRI
lítið hirt um grafir mikfimenna
síðan ýfúktrkjugarösvörður lands-
ins, BjSra Th. Björasson, vilitist í
trirkjuga
lenti á
nessýslu
annan kirikjugarö, þjóðgaröinn á
Jónas Hallgrímsson og Einar
Benediktsson voru moldu orpuir
þar á annarri ÖM aö því tr viröist.
Þjöðgarðurinn er hið besta leynd-
armál, og ekki horfur á öðru en
komiö, aö hægt verður aö grafa
æðsta poppara landsins þar. Svo
vill til aö bæði Jónas og Eínar voru
nitjándu aldar menn. Tuttugasta
Öldin hefur engan alið, sem talinn
á að jarðsetja hann. Hitler hafði
mikið dálæti á einstökum mfidi-
mennum, eins og Wagner. Komm-
únistar, sem þðttust hafa hreint
hjaría, sáu tii þess með áróðri, að
Wagner fékkst ekld leilrinn {
óperuhúsum eftir strfðið. Það er
fyrst núna, efttr að Wagnerandúð-
in er orðin svolftið hlægileg, að
tóniist hans heyrist að nýju. Um-
byltíngin í Ex-rópn hefur ekki fætt
af ser mfiriimenni á þessari öid.
Það er þá helst að þau séu að koma
aðrir menn búnir að koma við
sogu Þýskaiands, eins og Bis-
marck. En menn skjddu fara gætt-
Jeltsin og Mfiritael Corbatsjov.
Vesturlöndam hafe þeir verið svo
brogaðir og átakalinir, að sagan
gleymir þeim — nema ChurehfiL
að hvíla í þjóðargrafreitnum. Það
er mikill vitnisburður um tuttug-
ustu öldina.
Grafarró
frægöarmanna
Annars staðar eru menn við-
kvæmari fyrír stórmennum súi-
um. En þau hafa flest veríð þannig
að mati samtúnans, að helst vfil
enginn af gröfutn þeirra vita. Len-
ín fékk að vísu sitt grafhýsi á
Rauöatorginu, og þangað var Sta-
lín fluttur. En þegar upp komst
um strákinn 'fuma, var hann flutt-
ur úr grafhýsinu í Kremlarmúr.
Nasistar, einkum Hitler, gerðu
mikið með graflr manna. Hann lét
flytja jarðneskar leyfar Friðriks
mfida og föður hans, Friðriks I,
frá Potsdam í stríðinu. Og sjálfur
gekk hann svo frá, aö eldri var þörf
sem enghr fyrirfinnast hæfír f
þjóðargrafreiti. Þeir standa ónot-
aöir um aOan heim.
Varasamir
beinaflutningar
Tfi að finna tnikfimennJ þarf að
fara aftur í aldlr. Annars leggja
menn mismunandi skilning í orð-
iö mikfimenni. Sigurðor fra Bala-
skaröi skrifaði í merkðegum ævi-
minningum sínum um karía og
konur sem tnfirilmenni. Manni
skilst helst aö hann hafl valið þá
nafngift eftír fasi þcirra. En sagan
dæmir eftír verkum manua. Eitt
þessara mlkilmenna fortíðar var
Friðrik mikli. Hann var uppi fyrir
tvö hundrað árum, og var í áliti
hjá Hitler, Þaö voru aríar iika og
hefur þó engum dottið í hug að
leggja þann kynstofn niður. Frið-
rik háði mörg og iöng stríð og hef-
ur verið tafinn faðir þýsks heraað-
aranda. Slíkur maður hentaði Hiti-
er vel. Aftur á móti voru stríð
Friðriks löngu um garð gengin, og
dótið hélt því fram að þau væru af
dönskum bakara — eða bakara-
frúnni. Kohl, kanslari Þýskalands,
veríð varasamir. Þegar hann ákvað
að flytja bein feðganna aftur heim
tð Potsdam í grafreit þeirra f
Sansoucd, var þessum flutning-
um mótmælt.
Fátækur samtími
Það mátti seœ sagt elrid taka Frið-
rík mikia úr feiustað nasista og
koma honum að nýju fjrír í graf-
reit, sem hann hafði sjáifur látið
útbúa í lifanda Efí. MótmælaBðið
taldi að með því væri verið að veþja
hefur Kohl skfiið manna minnst í
þessum mótmælum. Hann hrað-
aði sem mest hano máttí samein-
ingu Þýskaiands. Mcnn hafa séð
undanfaraa daga hvert þarfaverk
það var, þegar minnstu munaði að
harðiínumenn næðu undirtökum í
Sovétríkjunum. Satt er það að
nasistaflokkurinn vann mfirið
óhæfúverk á Þjóðveijum og um-
heiminum. Eu þeir eru eklri leug-
ur við vöM, og geta eldri frekar en
hálíbræður þeirra í Sovétríkjun-
um, harðlínumeoo, náð völdum að
Og samtíminn, jafnfátækur og
hann er orðinn af mfirilmennum,
getur ekki vænst þess að tvö
hundruö ára Ek reisi hann frá
iliÍÍÍ
VITT OG BREITT
ililll
Framtíðarmúsík í orkumálum
Að ýmsu leyti er það nokkuð fjar-
lægt umhugsunarefni að velta fyr-
ir sér langtímamöguleikum ís-
lands sem mikils orkuöflunar- og
orkusölulands, þegar Landsvirkj-
un gerir ekki betur en að koma á
markað þeirri orku sem hún getur
framleitt á þessari stundu.
Þrátt fyrir það virðist ríkja mikil
bjartsýni um framtíðarmöguleika
íslands sem orkuframleiðslulands.
Þessar vonir standa í sambandi við
það, að heimurinn horfir fram á
orkuþurrð að því er varðar olíu og
jarðgas, ef ekki fleiri almenna
orkugjafa sem nú eru. ísland býr
hins vegar yfir ónýttum orkulind-
um í fallvötnum og jarðvarma sem
augljóst er að verða eftirsóttar þeg-
ar svo er komið ástandi olíuná-
manna sem hér um ræðir.
LEIT AÐ ORKUGJÖFUM
Hvað sem segja má um há-
stemmdar framtíðarvonir á einu
sviði eða öðru sem trúverðugt um-
ræðuefni á líðandi stund, er það á
hinn bóginn nauðsynlegt að ein-
hverjir geri sér skynsamlega grein
fyrir framtíðarhorfum um þróun
þjóðfélagsins miðað við þann
grundvöll sem það er byggt á og al-
mennt er gert ráð fyrir að verði til
frambúðar. Iðnaðar- og tækniþjóð-
félag nútímans byggist á mikilli
nýtingu forgengilegra orkugjafa.
Og ekki nóg með það, heldur
munu þeir ganga til þurrðar innan
ótrúlega stutts tíma.
Ekki er það því undrunarefni þótt
iðnaðarþjóðir og auðhringar iðn-
veldanana eyði miklu fé til rann-
sókna á orkusviði, m.a. hvaða
möguleikar séu á nýjum orkugjöf-
um. Þá er það mjög eðlilegt aö ís-
lendingar taki virkan þátt í þessari
orkumálaumræðu, leiti hag-
kvæmra leiða til þess að nýta orku-
lindir og gera orkumöguleikana að
markaðsvöru. Um þetta hljóta allir
að vera sammála.
VETNI A VÉLARNAR
Orkumálastjóri okkar spilaði
áheyrilega framtíðarmúsík í orku-
málum á síðasta ársfundi Orku-
stofnunar og horfði a.m.k. 40 ár
fram í tímann. Hann lét sér koma
til hugar að árið 2030 yrði vetni
aðaleldsneyti fiskiskipaflotans,
sem virðist styðja trú Braga Áma-
sonar, prófessors við Háskóla ís-
lands, á vetnisframleiðslu sem
stóratvinnuvegi á íslandi, þótt
e.t.v. sé bjartsýni Braga meiri en
orkumálastjóra um hve langan
tíma það tekur drauminn um vetn-
isvélarnar að rætast.
En ef íslenski fiskiflotinn verður
knúinn vetnisvélum eftir nokkra
áratugi, hví skyldi þá ekki alveg
eins mega knýja hreyfla flugvéla
þessu eldsneyti? í grein í tímarit-
inu Útverði (nýútkomnu) segir
Bragi Ámason raunar frá því, að
sérfræðingar hjá flugvélaverk-
smiðjunum Airbus séu með áform
um að smíða vetnisflugvélar þegar
tímabært þykir. Það tekur að vísu
tíu ár að hanna slíka vél, svo að
hún fer ekki í loftið á næstu dög-
um. Þegar hafa verið smíðuð mód-
el að vetnisbflum í reynsluskyni,
svo að það þarf ekki að vera neinn
óratími þangað til slíkir bílar verða
markaðsvara.
ÍSLENSK ORKA
Það sem skiptir íslendinga mestu
máli er að láta kanna hvort ekki sé
hagkvæmt að nýta íslenska raf-
orku til þess að framleiða vetni.
Sem betur fer eru slíkar athuganir
í gangi og raunar stofnað til sam-
starfs við erlenda háskóla og fyrir-
tæki um þær. Það er ekki fyrir leik-
mann á þessu sviði að segja til um
á hvaða stigi þessi mál eru hér á
landi. Auk þess er hyggilegt að
menn hafi vaðið fyrir neðan sig um
árangur slíkra athugana. Hins veg-
ar eiga úrtölur og svartsýni ekki
við þegar um þetta efni er rætt. Á
það ber að líta sem framtíðarmál
og fjalla um það í samræmi við þá
staðreynd. I.G.