Tíminn - 30.10.1991, Blaðsíða 1
Jafnvel velflestir vinnuveitenda með auknum kaupmætti
í skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar fyrir BSRB:
Meirihluti vill
aukinn kaupmátt
í könnun, sem Félagsvísindastofnun
hefur gert fyrir BSRB, kemur fram að
90% atvinnurekenda telja ástæðu til að
auka kaupmátt lægstu launa. Þá sýna
niðurstöður að 80% þjóðarinnar telja að
gera eigi kjarasamninga sem feli í sér
aukinn kaupmátt, og 92% telja að
ástæða sé til að auka sérstaklega kaup-
mátt lægstu launa. Skoðanakönnunin
var gerð 11.-19. október, 1500 voru í úr-
taki hennar og svör bárust frá 1056
manns alls staðar að af landinu. VSÍ lét
nýlega gera könnun á afstöðu fólks til
þjóðarsáttarsamninganna og nýrra
samninga á svipuðum nótum. Af niður-
stöðum þeirrar könnunar mátti ráða að
meirihluti fólks aðhylltist nýja kjara-
samninga án kaupmáttaraukningar. For-
maður BSRB segir að VSÍ hafi túlkað
niðurstöður sinnar könnunar með vill-
andi hætti. Þegar grannt sé skoðað sjá-
ist að meirihluti svarenda, sem á annað
borð tóku afstöðu, hafi viljað að samið
yrði á svipaðan hátt og gert var í samn-
ingunum 1990.
• Blaðsíða 5
Jólasveirtninn
er kominn í
glugga versl-
unarinnar Exit
á Laugavegí,
en ekki hjá
Rammagerð-
inni þar sem
hann hefur
birst fyrst um
áratugi. „Ekki
raunverulegur
jólasveinn. Sá
rétti kemur 1.
növember í
Rammagerð-
ina, eins og
alltaf," segir
framkvæmda-
stjóri Ramma-
gerðarinnar.
Tlmamynd: Aml Bjama
• Blaðsíða 3