Tíminn - 19.12.1991, Qupperneq 11
Fimmtudagur 19. desember 1991
Tíminn 11
MEN NTAMÁLARÁÐ U N EYTIÐ
Stöðupróf í
framhaldsskólum
Stöðupróf í framhaldsskólum á vorönn 1992 eru hald-
in sem hér segir:
Mánud. 6. jan. kl. 18.00 Enska
Þriðjud. 7. jan. kl. 18.00 Norska, sænska
Miðvikud. 8. jan. kl. 18.00 Franska, spænska, ítalska
Fimmtud. 9. jan. kl. 18.00 Stærðfræði, þýska
Athygli skal vakin á því að stöðupróf í eriendum mál-
um eru aðeins ætluð nemendum sem hafa dvalist
nokkra hríð í landi þar sem viðkomandi mál er talað
eða málið er talað á heimili þeirra. Prófin eru ekki fyrir
nemendur sem aðeins hafa lagt stund á málið í grunn-
skóla, hversu góður sem árangur þeirra þar var. Próf-
in eru haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð og eru
opin nemendum úr öllum framhaldsskólum. Þeir, sem
ætla að gangast undir þessi próf, þurfa að tilkynna
þátttöku sína á skrifstofu Menntaskólans við Hamra-
hlíð.
Skráningu lýkur föstud. 20. desember.
Keflvíkingar
Ákveðið hefur veriö að hafa bæjarmálafundi kl. 18.00 alla mánudaga tll jóla.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélögln.
Hafnfirðingar
Skrifstofa Framsóknarfélaganna að Hverfisgötu 25, simi 51819, veröur opin á
fimmtudögum kl. 17.00-19.00.
Allirvelkomnir. _
Framsóknarfélogln I Hafnarfiról.
Reykjanes
Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Digranesvegi 12, Kópavogi, er opin mánud.-
fimmtud. kl. 17.00-19.00.
Sfmi43222.
Suðurland
Skrifstofa Kjördæmissambands framsóknarfélaganna á Suðurlandi að Eyrarvegi
15, Selfossi, er opin á fimmtudögum kl. 16-18.
Slmi 22547. Fax 22852.
Borgarnes - Opið hús
I vetur verður að venju opið hús á mánudögum frá kl. 20.30 til 21.30 I Framsóknar-
húsinu, Brákarbraut 1. Bæjarfulltrúar flokksins verða þar til viðtals ásamt ýmsum
fulltrúum I nefndum á vegum bæjarfélagsins.
Heitt verður á könnunni og allir velkomnir til að ræða bæjarmálin.
Slmi 71633.
Framsóknarfélag Borgamess.
Happdrætti
Framsóknarflokksins
Dregið verður f Jólahappdrættinu 24. desember n.k. Munið aö greiöa heimsenda
glróseðla.
Framsóknarflokkurinn
Jólaalmanak SUF
Eftlrtalin númer hlutu vinning í jólaalmanakl SUF:
1. vinninguralmanak nr. 1397
2. vinningur almanak nr. 5731
3. vinningur almanak nr. 2569
4. vinningur almanak nr. 5681
5. vinningur almanak nr. 5469
6. vinningur almanak nr. 5652
7. vinningur almanak nr. 1177
8. vinningur almanak nr. 1484
9. vinningur almanak nr. 3895
10. vinningur almanak nr. 1655
11. vinningur almanak nr. 4832
12. vinningur almanak nr. 240
13. vinningur almanak nr. 5363
14. vinningur almanak nr. 2114
15. vinningur almanak nr. 1912
16. vinningur almanak nr. 666
17. vinningur almanak nr. 5794
18. vinningur almanak nr. 1579
Þökkum stuðninginn.
19. vinningur almanak nr. 753
20. vinningur almanak nr. 1841
21. vinningur almanak nr. 1371
22. vinningur almanak nr. 3109
23. vinningur almanak nr. 4694
24. vinningur almanak nr. 3317
25. vinningur almanak nr. 1067
26. vinningur almanak nr. 4668
27. vinningur almanak nr. 1530
28. vinningur almanak nr. 2671
29. vinningur almanak nr. 545
30. vinningur almanak nr. 99
31. vinningur almanak nr. 5240
32. vinningur almanak nr. 470
33. vinningur almanak nr. 2034
34. vinningur almanak nr. 844
35. vinningur almanak nr. 637
36. vinningur almanak nr. 2138
Samband ungra framsóknarmanna
Jólaglögg SUF
Föstudaginn 20. desember stendur SUF fyrir jólaglöggi á flokksskrifstofunni, Hafn-
arstræti 20, 3. hæð, kl. 20.30.
Dagskrá:
Formenn ungliðahreyfinga stjómmálaflokkanna flytja ávörp i stil að eigin vali.
Sigurður Pétursson, Sambandi ungra jafnaðarmanna
Davið Stefánsson, Sambandi ungra sjálfstæðismanna
Kolbeinn Proppé, Æskulýðsfylkingu Alþýðubandalagsins
Siv Friðleifsdóttir, Sambandi ungra framsóknarmanna
Komið með jólapakka á 500 krónur.
Mætum öll.
Framkvæmdastjóm SUF
Kid í faðmi fjölskyldunnar, en kona hans er íslensk, Guðrún Þórarinsdóttir Jensen.
Haldið upp á 25 ára út-
varpsafmæli „Kids“ Jensen
Fyrir skömmu var þess minnst
með glæsilegri kampavínsveislu í
anddyri Capital Radio í London, að
25 ár eru liðin síðan David Jensen,
betur þekktur sem „Kid“ Jensen,
fór að starfa við útvarpssendingar,
en hann er enn vinsælasta stjama
útvarpsstöðvarinnar. Kona Kids er
íslensk, Guðrún Þórarinsdóttir
Jensen.
í veisluna mættu poppstjömur og
plötusnúðar og hrósuðu Kid mjög
fyrir útbreiðslu haris á popptónlist
og Errol Brown, aðalsöngvari
hljómsveitarinnar Hot Chocolate,
lagði áherslu á að Kid hefði spilað
músikina þeirra þegar enginn ann-
ar fékkst til þess.
David segist hafa byrjað sem
plötusnúður á lítilli útvarpsstöð í
Kanada þegar hann var aðeins 16
ára, en þar vom þá svo margir
plötusnúðar að erfitt var að láta að
sér kveða á því sviði. Hins vegar
hafi þá verið færri útvarpsstöðvar í
Evrópu, svo að ekki var eins erfitt
að koma undir sig fótunum þar á
þessu sviði.
Hann sendi sýnishomsupptöku til
Radio Luxembourg, sem bauð
honum starf ef hann gæti verið
mættur á staðinn innan flögurra
sólarhringa. Frá Lúxemborg fór
hann til Bretlands þar sem hann
hefur unnið hjá Radio 1 og Capital
Radio í London. Núna er hann með
vinsældalistaþátt, sem útvarpað er
um allt Bretland á sunnudögum.
En það er ekki bara rödd Kids
Jensen í útvarpi sem nýtur vin-
sælda. Hann er orðinn þekktur
sjónvarpsmaður og stýrir spum-
inga- og tónlistarþáttum af rögg-
semi, enda er hann enginn ný-
græðingur í sjónvarpi, var sjón-
varpsfréttamaður í Bandaríkjun-
um um tveggja ára skeið.
Fjölskyldan þoldi hins vegar ekki
við í Bandaríkjunum fyrir heimþrá
og kaus að snúa aftur til Bretlands.
Fundum þeirra Guðrúnar bar
saman í Lúxemborg á aðfangadags-
kvöld 1974 og fáum mánuðum síð-
ar vom þau gift. „Hún var flug-
freyja og ég var að vinna hjá Radio
Luxembourg. Við vomm bæði út-
lendingar þar á jólunum," segir
hann með angurværð. Hann segist
trúa á tryggð í hjónabandinu og
fljótlega gert sér Ijóst að hann vildi
giftast Guðrúnu, þó að þau hafi
sjaldan haft tækifæri til að hittast í
tilhugalífinu.
Nú em þau búin að vera gift í 17 ár
og eiga þrjú böm: Önnu Lísu 12
ára, Alexander 10 ára og Viktor 3
ára. En drengjalegt útlit Davids, þó
að hann sé orðinn 41 árs, er til þess
að enn er hann kallaður „Kid“
(krakkinn), og það er líka til þess að
enn laðast að honum ungar stúlk-
ur. Það veldur Guðrúnu þó ekki
áhyggjum, enda hefur hann lýst af-
stöðu sinni til hjónabandsins af-
dráttarlaust.
Með hækkandi aldri hefur þó lík-
lega virðuleiki hans aukist og
starfsbræður hans em hættir að
hrekkja hann, eins og þeir gerðu,
honum til mikils léttis. Hann segir
menn taka starf sitt alvarlegar en
þeir gerðu og núna dytti varla
nokkmm í hug að kveikja í vin-
sældalistahandritinu til að komast
að því hvort hann gæti klórað sig
fram úr því áður en það brynni til
ösku!
Kona missti fóstur
og lamaðist eftir
árekstur við fasana!
Sérkennilegt veiðislys:
Hertoginn af Roxburghe hefur
verið að endurskoða öryggis-
reglur á 80.000 ekra landar-
eign sinni, Floors Castle í
grennd við Kelso við skosku
landamærin, eftir að þar varð
það sorglega slys að bamshaf-
andi kona missti fóstur og
lamaðist fyrir neðan mitti eftir
að hafa orðið fyrir skotnum
fasanal
Emmanuelle Argand, 31 árs,
var ein í hópi svissneskra og
franskra kaupsýslumanna og
eiginkvenna þeirra, sem höfðu
greitt allt að 3000 sterlings-
pund fyrir að stunda veiðar á
landareign hertogans einn dag.
Frúin sat á steinvegg við hlið
manns síns þar sem hann skaut
á bráð sína. Veiðibráðin, fasan-
inn, Ienti á henni og skellti
henni þriggja metra vegalengd
ofan í skurð. Hún var í skyndi
flutt á sjúkrahús og síðan var
flogið með hana á sjúkraheimili
í Genf.
Hertoginn var miður sín, en
margítrekaði að hér hefði verið
um slys að ræða, ekki væri
hægt að tengja það skotveiði.
„Líkurnar á því að svona lagað
gerist, eru ekki nema ein á móti
milljón," sagði hann. Samt sá
hann ástæðu til að endurskoða
öryggisreglurnar.
Hertoginn af Roxburghe vill
endurskoða öryggisreglur á
landareign sinni, eftir sorg-
legt slys sem varð þar í sam-
bandi við veiðar.