Tíminn - 15.02.1992, Blaðsíða 20
AUGLYSINGASBMAR: 680001 & 686300
HEIÐI
Bl LAPARTAS ALA
Varahlutir í árgerðir 74- 87
Ýmsar smáviðgerðir
Kaupi bíla til niðurrifs
HEIÐI • BÍLAPARTASALA
Flugumýrl 18D • Mosfellsbœ
Sfmar 668138 & 667387
HOGG
> DEYFAR
j Versiió hjá fagmönnum
’ Hamarsböfða l - s. 67-6744
ÞJONUSTA
MÁLARAR
geta bætt við sig
málningarvinnu úti sem inni
Vönduð og góð vinnubrögð
Sími 670269
ÞÉTTING OG KLÆÐNING
Tíminn
LAUGÁRDAGUR 15. FEBR. 1992
Kennarafélögin á höfuðborgarsvæðinu senda út yfirlýsingar vegna ummæla ráðherra um kennara:
Blaðinu hefur boríst yfirlýsing frá formönnum kennarafélaga á höfuðborg-
arsvæðinu þar sem formennirnir segja það rangt að kennarar noti kennslu-
stundir til að ófrægja Ólaf G. Einarsson. Formennimir benda á að hver
kennslustund sé dýrmæt og að kennurum sé Ijós sú ábyrgð sem á þeim
hvflir og líti á það sem skyldu sína að vera óhlutdrægir í starfi.
í yfirlýsingunni er einnig vísað á
bug fullyrðingu sem Morgunblaðið
hefur eftir Ólafi Arnarsyni aðstoðar-
manni ráðherra 11. feb. sl. þar sem
Ólafur segir að kennarar fái árslaun
fyrir 9 mánaða starf. Er Ólafur í
framhaldi af því hvattur til að kynna
sér kjarasamninga kennara.
Þá segir í yfirlýsingunni: „Fimmtu-
daginn 13. febrúar gengu nemendur
í grunnskólum Reykjavíkursvæðis-
ins fylktu liði á fund menntamála-
ráðherra og afhentu honum undir-
skriftalista nemenda í 8.-10. bekkj-
um grunnskóla. í sjónvarpsfréttum
sama kvöld hélt ráðherra því fram
að kennarar hefðu staðið að baki
þessum undirskriftalistum, gefið
nemendum frí til að fara á fundinn,
að eitthvað sé að í skólakerfinu og
að ástæða sé til að laga til kennara-
menntunina í landinu. Samtök
kennara hafa á engan hátt haft af-
skipti af undirskriftasöfnun nem-
enda og margir kennarar jafnvel
ekki vitað af henni fyrr en fjölmiðlar
fluttu fréttir af fundi nemenda og
menntamálaráðherra. Skólastjórar
munu ekki hafa gefið nemendum frí
en þeir hafa einir leyfi til þess. Við
viljum gjarnan fá nánari skýringu á
því hvað menntamálaráðherra telur
vera að í skólakerfinu og hvernig
kennaramenntun tengist þessari
undirskriftasöfnun."
Loks kemur fram í ályktun for-
manna kennarafélaganna að þeir
harmi þá tortryggni og vantraust
sem yfirmenn menntamála beri til
kennara og segja að ásakanir þeirra
megi ekki verða til þess að spilla
samstarfi kennara og foreldra. Það
samstarf hafi verið að aukast á um-
liðnum árum og sé þýðingarmikill
þáttur í skólastarfinu.
Þá hefur Kennarasamband íslands
látið þessar yfirlýsngar til sín taka
og sent frá sér yfirlýsingu þar sem
harmað er að yfirmenn menntamála
í landinu skuli leitast við að sverta
mannorð kennara og rýra traust for-
eldra á þeim. K.í. hefur ritað ráð-
herra bréf þar sem farið er fram á að
hann hitti fulltrúa félagsins á fundi
þar sem unnt verði að setja fram
mótmæli við þeim ásökunum sem á
stéttina eru bornar.
NISSAN SUNNY SLX 1.6
STÓRSKEMMTILEGUR OG GLÆSILEGUR
Nissan Sunny SLX 1.6 16 ventla
hlaðinn aukahlutum s.s. rafdrifnum rúðum,
rafstillanlegum speglum, upphituðum sætum,
vökvastýri, samlæstum hurðum og m.fl.
Fáanlegur í ýmsum útfærslum.
Bílasýning laugardag og sunnudag kl. 1400-1700.
Nissan Sunny SLX 1,6, 3ja dyra.
Verð kr. 903.000 stgr.
4ra dyra stallbakur. Verð kr. 981.000 stgr.
5 dyra hlaðbakur. Verð kr. 980.000 stgr.
Ingvar
Helgason hf
Sævarhöfóa 2
sími 91-674000