Tíminn - 07.03.1992, Qupperneq 2
2 Tíminn
Laugardagur 7. mars 1992
St. Jósefssystur leggjast gegn áætlunum um sameiningu
Landakots og Borgarspítala:
Sjúkrahús Reykja-
víkur andvana fætt?
St. Jósefssystur leggjast gegn því að Landakotsspítali verði sameinaður við
Borgarspítalann á grundvelli þess samkomulags sem sameiningamefnd
Borgarspítala og Landakotsspítala kynnti 2. mars sl.
í sameiningamefndinni sitja full-
trúar frá Reykjavíkurborg, Sjálfseign-
arstofnun St. Jósefsspítala, heilbrigð-
isráðuneytinu og fjármálaráðuneyt-
inu.
St. Jósefssystur kynntu afstöðu sína
fyrir læknaráði og starfsmannaráði
Landakotsspítala í gærdag. Sömu-
leiðis kynntu þær heilbrigðisráðu-
neytinu þessa afstöðu sína bréflega í
gær.
Bæði heilbrigðisráðherra og núver-
andi formaður sameiningamefndar-
innar, Ragnar Kjartansson, hafa lýst
því yfir að ekki verði gengið gegn vilja
Jósefssystra í sameiningarmálinu. Því
virðist sem hugmyndir um sjálfstætt
stórsjúkrahús; Sjúkrahús Reykjavík-
ur, séu úr sögunni, a.m.k. að sinni.
Vegna aukins atvinnuleysis í Borgarnesi hafa Verkalýðs- og Verslun-
armannafélagið í Borgarnesi ákveðið að reyna að klóra í bakkann:
Atvinnulausum boðið
upp á starfsnámskeið
Verkalýðsfélag Borgamess og
Verslunarmannafélag Borgamess
hafa ákveðið, í samvinnu við Menn-
ingar- og fræðslusamband alþýðu,
að bjóða atvinnulausu fólki og fleir-
um í bænum upp á starfsnámskeið
í marsmánuði í þremur greinum
auk kjamagreina. 49 einstaklingar
em skráðir atvinnulausir á félags-
svæði Verkalýðsfélags Borgamess
og er mun meira en á sama tíma í
fyrra og er einkennandi hve margir
ungir einstaklingar em atvinnu-
lausir. Tilgangur námskeiðanna er
að auka þekkingu þátttakenda á
stðrfum sem þeir gætu hugsað sér
að vinna í framtíðinni.
„Við héldum námskeið í fyrra, en
þá var það aðeins í kjarnagreinum
og líkaði þátttakendum það vel og
fór hluti af því fólki á matvælanám-
skeið skömmu síðar. Svo nú þegar
atvinnuleysið hefur aukist þá þótti
okkur sjálfsagt og vel til fundið að
gera tilraun með þetta aftur, en nú
með sérsviðum," sagði Jón A. Egg-
ertsson, formaður Verkalýðsfélags
Borgarness.
Námskeiðið verður þannig byggt
upp að allir þátttakendur taka
nokkrar kjarnagreinar, sem saman-
standa af fræðslu í mannlegum sam-
skiptum á vinnustað, skyndihjálp,
Iíkamsbeitingu og umgengni við
rafmagn í heimahúsum, farið ofan í
kjarasamninga ofl. þættir sem eru
almenns eðlis. Samhliða kjarna-
greinum stunda þátttakendur nám á
sérsviði, en boðið er upp á þrjár
greinar. Það eru byggingargreinar,
matvælagreinar og ferðaþjónustu-
greinar. Ætlun námskeiðshaldara er
ekki að fullmennta menn í þessum
greinum heldur að gefa innsýn í
störfm og hvernig menn eiga að
bera sig að. Má nefna sem dæmi að í
ferðaþjónustugreinum verður
mönnum kennt hvernig á að um-
gangast erlenda ferðamenn og svo
framvegis.
Athygli vekur að 20 af þeim 49 ein-
staklingum sem atvinnulausir eru á
félagssvæði verkalýðsfélagsins eru
fæddir 1970 eða síðar. Jón A. Egg-
ertsson segir það áhyggjuefni að fólk
sem útskrifaðist úr skólum um ára-
mót fái ekki vinnu og segir það jafn-
framt færast í aukana.
Á fimmtudag var haldinn kynning-
arfundur um námskeiðin og var að
sögn Jóns góð mæting og á þriðja
tug manna mætti á fundinn. Fleiri
verkalýðsfélög hafa haldið sams
konar námskeið og vitað er um
nokkur félög sem hafa í hyggju að
gera það. -PS
Hið nýja og reisulega safnaðarheimili Fríkirkjusafnaðaríns við
Laufásveg.
Stór dagur hjá Fríkirkjusöfnuðinum í Reykjavík:
Nýtt safnaðar-
heimili vígt
Nýtt safnaðarheimili Fríkirkju-
safnaðarins í Reykjavík verður
vígt í dag kl. 13.30, en húsið
stendur við Laufásveg 13,
skammt frá Fríkirkjunni, þar sem
áðúr stóð kristniboðshúsið Bet-
anía. Nýja húsið er á þremur
hæðum auk bflageymslukjallara.
Á jarðhæð eru samkomusalur og
eldhús, á annarri hæð fundarað-
staða og skrifstofa prests og
þriðju hæð er íbúð sem ætluð er
umsjónarmanni hússins. Húsið
er 456 fermetrar og er arkitekt
hússins Guðmundur Gunnlaugs-
son.
Opið hús verður í heimilinu
milli klukkan 12 og 18 á morgun
sunnudag og eru allir velkomnir
til að líta inn, skoða húsið og
þiggja veitingar.
-PS
Má ekki á milli sjá hvor er hollari Klípa eða Létta segir Manneldisráð:
Klípan besti kosturinn
ef fækka skal kaloríum
„Klípa er það fítuskert að magn mettaðra fltusýra í vörunni er afar lítið,
raunar lítið meira en í Léttu. Bæði Klípa og Létta henta því mjög vel til að
halda kólesteróli blóðs í skefjum og má ekki á milli sjá hvor varan sé æski-
legri frá sjónarmiði hollustu. Fyrir þá sem vilja fækka hitaeiningum í fæð-
inu er Klípan hins vegar besti kosturinn þar sem hún er fituminnst og þar
með orkusnauðasta viðbitið.“
Þetta segir m.a. í tilkynningu sem
Manneldisráð hefur sent frá sér til
þess að vekja athygli á nýjum mat-
vörum á íslenskum markaði: Klípu,
Léttu og Léttu og laggóðu. „Það er
fengur að þessum vörum fyrir neyt-
endur sem vilja minnka fitu í fæð-
inu,“ segir Manneldisráð.
Bæði Létta og Létt og laggott séu
um það bil helmingi fituminni en
venjulegt smjör og smjörlíki. Klípa
sé þó enn fituminni og innihaldi að-
eins þriðjung af fitu á við venjulegt
viðbit.
Manneldisráð segir þessar þrjár
vörur samt nokkuð ólíkar að gerð og
samsetningu. Eftirfarandi tafla sýnir
í fyrsta lagi fjölda hitaeininga (kalor-
íur) í hverri þessara þriggja tegunda.
í öðru lagi hlutfall fitu í hverri
þeirra. Og síðan í þriðja lagi hve
mikið af þeirri fitu er mettuð fíta:
Næringargildi í 100 grömmum
Mjög mikilvægt að læknar velji miðaldra konum rétt hormónalyf:
Estrogenmeðferð getur aukið
krabbameinsbreytingar
Samhliða aukinní notkun miðaldra kvenna á estrógenum hefur tíðni
vefjaaukninga og krabbameinsbreytinga í legbol aukist og er „engum vafa
undirorpið að sú aukning tengist langvarandi notkun estrógena“. Koma
má í veg fyrir þessi óæskilegu áhrtf með þvt að nota gestagen samhliða
estrógenum. Þessar upplýsingar koma fram í grein tveggja kvensjúk-
dómalækna f Læknablaðinu, þar sem þeir telja ástæðu til að ítreka leið-
beiningar tíl lælcna um rétta lyíjagjöf.
En síst minni ástæða sýnist að
þær ieiðbeiningar komist alla leið
tíl kvennanna sem nota lyfin og
eiga því mest í húfi að þau séu rétt
valin handa þeim.
„Þar sem nokkuð hefur borið á
innlögnum á krabbameinsdelld
kvennadeildar vegna afbrigðilegr-
ar vefjaaukningar og legbols-
krabbamcins, þar sem gestagen-
meðferð hefur ekki verið tengd
estrógenmeðferð, þykir rétt að
koma á framfæri við lækna eftir-
töldum Ielðbeiningum varðandi
estrógenmeðferð við og eftír tíða-
hvörf,“ segja kvensjúkdómalækn-
arnir Jens A. Guðmundsson
(sérgr. innkirtlakvensjúkdómar)
og Kristján Sigurðsson (illkynja
kvensjúkdómar). Síðustu ár segja
þelr það hafa færst mjög í vöxt að
konur fái estrógenmeðferð vegna
svita- og hitakófa, hjartsláttar og
annarra einkenna er fylgja tfða-
hvörfum. Jafnframt hafi færst í
vöxt að gefa estrógena sem fyrir-
byggjandi meðferð við beinþynn-
ingu og hjarta- og æðasjukdóm-
um. Með leiðbeiningum sínum
segjast sérfræðingamir vilja auð-
velda rétt val iyfja og koma í veg
fyrir krabbameinsvaldandi áhrif
estrógenmeðferðar á legbolsslím-
húð. Jafnframt hvetja þeir lækna
tíl að gefa konum greinargóðar
upplýsingar um notkun umræddra
fyfja.
Estrógen má gefa reglulega án
gestagena ef kona hefúr gengist
undir legnám. Gefa skal öllum
konum estrógenmeðferð a.m.k. til
sextugs ef eggjastokkar þeirra og
leg eru fjarlægð fyrir tíðahvörf.
(Lyf: Estraderm, Estroferm,
Progynon Deport og ethinylestr-
adiolum).
Aidrei skal hins vegar gefa est-
rógen eln sér ef leg er til staðar (ef
frá er talin meðferð með estrógen-
um sem sett eru í leggöng tvisvar
f viku). Við aðra estrógenmeðferð
skal gestagen ætíð gefið reglulega
meðan á meðferð stendur.
Sérfræðingamir telja upp nokkra
möguleika á vali lyfja handa þeim
konum sem halda leginu:
Trisekvens; inniheldur gestagen
(norethisteron) á seinni hluta
töfluhringsins og eiga þannig að
valda blæðingum í lok hverrar
meðferðar, þ.e. á fjögurra vikna
frestí.
Cykloprogynon; inniheldur gest-
agen (levonorgestrel) á seinni
hluta töfluhrings og veldur blæð-
ingum í lok meðferðar (á töflufria
millibilinu).
Estroferm, Progynon, ethylestr-
adioium; þar sem Primoiut eða
Periutex er bætt við meðferðina
eigi sjaldnar en á eins til þriggja
mánaða frestí til að hreinsa út ieg-
bolsslimhúð. Sama gildir um
Estraderm plástur og Progynon
Deport.
KUogenst; inniheldur gestagen
allan tímann með estrógeni. Gest-
agenið veldur visnun á slímhúð-
inni og kemur í veg fyrir ofvöxt
hennar, en veldur oft óreglulegum
blæðingum, sérstaklega hjá kon-
um sem eru nýkomnar á tíða-
hvörf.
- HEI
Orka: Fita: Mcttf.: Kkal.g.g.
Létt og laggott 398 40 21
Létta 370 40 3
Klípa 298 27 16
Tegundirnar Létt og laggott og Klípa
eru báðar framleiddar úr smjöri sem
blandað er undanrennu og sojaolíu.
Viðbit gert úr smjöri telst til harðrar
fitu jafnvel þótt sojaolíu hafi verið
blandað í smjörið í einhverjum
mæli. En Létta er hins vegar fram-
leidd úr jurtaolíum og undanrennu.
Fitan í Léttu er því mýkri og hefur
að geyma meira af Ijölómettuðum
fitusýrum en viðbit gert úr smjöri.
Þar sem mjúk fita hækkar ekki kó-
lesteról í blóði er gjarnan mælt með
notkun hennar, ekki hvað síst ef kó-
lesteról blóðs er í hærra lagi.
Hins vegar bendir Manneldisráð á
að Klípa er það fituskert að magn
mettaðra fitusýra í henni sé sára-
lítlu meira en í Léttu. Bæði Klípa
og Létta henti því mjög vel til að
halda kólesteróli blóðs í skefjum.
Manneldisráð bendir á að í mann-
eldismarkmiðum sé lögð sérstök
áhersla á að fólk neyti minni fitu og
minna af sykri en meira af græn-
meti, ávöxtum og kornmat. Hófleg
fitunotkun við matargerð og notk-
un fituminna viðbits með mat og á
brauð geti haft mikil áhrif til að
minnka fituneyslu.
- HEI