Tíminn - 07.03.1992, Síða 8
8 Tíminn
Laugardagur 7. mars 1992
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Vatnsveitu Reykjavíkur, óskar
eftir tilboðum I ductile iron fittings.
Útboðsgögn veröa afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavlk.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miövikudaginn 8. aprll 1992, kl. 14,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Vatnsveitu Reykjavíkur, óskar
eftir tilboðum I ductile iron pípur, stærð 150-900 0, heildarmagn 6.800 m.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin veröa opnuð á sama staö miðvikudaginn 8. apríl 1992, kl. 11,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatnamálastjórans i Reykjavík,
óskar eftir tilboöum i viðgerð á steyptum gangstéttum.
Heildarlengd gangstétta er 12.000 m!.
Útboðsgögn veröa afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 5.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuö á sama stað miövikudaginn 18. mars 1992, kl.
11,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Þvottaþjónusta:
Verðkönnun
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar óskar eftir tilboðum í þvottaþjónustu
(þ.e. þvott og flutning á líni) fyrir stofnanir og fyrirtæki borgarinnar.
Um er að ræða þvott á: Moppum, handklæðum, klútum, mottum, borð-
dúkum, vinnufatnaði og öðru tilfallandi.
Fjöldi afhendingarstaða verður u.þ.b. 140.
Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3, Reykja-
vík.
Tilboöum skal skilað á sama stað eigi siðar en miðvikudaginn 18. mars
1992.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatnamálastjórans I Reykjavík,
óskar eftir tilboðum I malbiksviðgerðir I.
Helstu magntölur:
Sögun 9.020 m
Malbikun á grús 7.760 m!
Útboðsgögn veröa afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 5.000,- skilatryggingu.
Tilboöin verða opnuð á sama stað miövikudaginn 18. mars 1992, kl.
14,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatnamálastjórans I Reykjavík,
óskar eftir tilboðum í malbiksviðgerðir II.
Helstu magntölur:
Sögun 4.510 m
Malbikun á grús 3.830 m!
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 5.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuö á sama stað miðvikudaginn 18. mars 1992, kl.
14,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Kvennaþing á Egilsstöðum
I ár er svokallað Vestnorrænt ár, en með því er fyrirhugað að kynna samstarf Islands, Grænlands og
Færeyja. Á árinu verða haldnar þrjár ráðstefnur í löndunum þremur. I ágúst verður haldin kvennaráð-
stefna á Egilsstöðum um konur og vinnumarkaðinn. Þar munu mæta 300 konur, 150 íslenskar, 100
færeyskar og 50 grænlenskar. Fyrr í ágústmánuði verður haldið Vestnorrænt umhverfisþing í Qaq-
ortoq (Julianehab) á Græniandi. í september verður síðan haldið ungmennaþing í Færeyjum. Áður
hefur ítarlega verið sagt frá ráðstefnunum í Tímanum.
Á myndinni eru (f.v.) Jón Helgason, sem á sæti í íslensku Vestnorrænunefndinni, Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður nefndarinnar, Guðrún Ágústsdóttir, framkvæmdastjóri kvennaráðstefnunnar, og
Ragnheiður Harðardóttir, formaður undirbúningsnefndar fyrir kvennaráðstefnuna.
Tímamynd Árni Bjarna
Tvíhöfðanefndin mun ekki skila neinum tillögum til styrktar sjávarútveginum fyrr en í árslok:
Menn koma sér ekki
saman um tillögur
Magnús Gunnarsson, annar tveggja formanna nefndar sem vinnur
að endurskoðun sjávarútvegsstefnunnar og að tillögum um bætta
skuldastöðu útvegsins, segist ekki eiga von á því að nefndin sendi frá
sér tillögur fyrr en í árslok þegar nefndin á að ljúka störfum. Magn-
ús segir að ágreiningur sé í nefndinni um ieiðir, en samstaða sé um
markmið.
í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar segir að ríkisstjórnin hyggist
ná fram markmiðum sínum „með
mótun sjávarútvegsstefnu, sem
nær jafnt til veiða og vinnslu,
hamlar gegn ofveiði, eflir fiskmark-
aði, treystir byggð og stuðlar að
hagræðingu. Og þar sem stjórn-
skipuleg staða sameignarákvæðis
laga um stjórn fiskveiða er tryggð."
í haust fól ríkisstjórnin átta
manna nefnd að móta þessa stefnu.
Þar sem ríkisstjórnarflokkarnir
urðu ekki sammála um hver ætti að
stýra nefndinni var ákveðið að
nefndin hefði tvo formenn, Magnús
Gunnarsson, fyrir hönd Sjálfstæð-
isflokksins, og Þröst Ólafsson, fyrir
hönd Alþýðuflokksins. Höfuðmark-
mið nefndarinnar er að endurskoða
lögin um stjórn fiskveiða. Nefndin á
að Ijúka störfum fyrir árslok 1992.
Eftir áramót fól ríkisstjórnin nefnd-
inni einnig að fjalla um fjárhags-
vanda sjávarútvegsins og gera til-
lögur um leiðir til að komast út úr
honum.
í lok síðasta mánaðar lýsti Þröstur
Ólafsson sínum skoðunum á vand-
anum. Hann sagði að síðasta ríkis-
stjórn hefði aukið á vanda útvegs-
ins með aðgerðum sínum og leiðin
út úr honum ætti að vera að verst
settu fyrirtækin verði gjaldþrota og
hætti rekstri. Magnús Gunnarsson
sagðist ekkert vilja segja um skoð-
anir Þrastar.
Magnús sagðist ekki eiga von á að
nefndin sendi frá sér tillögur eða
áfangaskýrslu á næstu mánuðum.
„Það er mikill hugur í mönnum að
reyna að flýta þessu. Ég held að ef
menn gætu fundið leiðir út úr
þessu sem væri samstaða um þá
mundu menn vilja gera það sem
fyrst. Það er engin launung á því að
það er áherslumunur inni í nefnd-
inni, ekki síst um spurninguna um
skattlagningu á greinina," sagði
Magnús.
En ertu bjartsýnni að nefndin nái
saman um einhverjar tillögur?
„Það er ekkert hægt að segja til
um það. Ég held að í sjálfu sér séu
allir sammála um meginmarkmið-
in. Menn eru allir af vilja gerðir að
hlúa þannig að sjávarútveginum að
hann standi undir þeim kröfum
sem gerðar eru til hans, en spurn-
ingin er um leiðirnar. Þar eru klár-
lega skiptar skoðanir.
Við þurfum að finna einhvern
ramma sem greinin getur róleg bú-
ið við til frambúðar. Þessar breyt-
ingar í fiskveiðistefnunni og ýms-
um atriðum sem tengjast sjávarút-
vegsmálunum skapa ákveðna
óvissu sem hægja jafnvel á þróun-
inni í þessum hagræðingarmálum
sem við þurfum aö fara í gegnum,"
sagði Magnús.
Magnús sagði að allir gætu verið
sammála um að afkastageta sjávar-
útvegsins væri of mikil í dag miðað
við þann afla sem leyfilegt er að
veiða. Ástæðan sé ekki síst sú að
flotinn og fiskvinnsluhúsin séu
byggð til að veiða svipaðan afla og
var veiddur fyrir fáum árum. Nú
hafi aflaheimildir verið minnkaðar.
Magnús sagðist ekki telja að afla-
heimildir muni aukast mikið í ná-
inni framtíð og því verði menn að
draga úr afkastagetunni. Mikið hafi
verið gert til þess síðustu misseri,
en gera verði meira. Magnús sagði
það sína skoðun að það sé ekki
endilega heppilegasta leiðin að
fækkun fiskvinnsluhúsa gerist með
gjaldþrotum. Sú leið sé ekki sú
fljótvirkasta til að aðlaga afkasta-
getu húsanna þeim afla sem við
megum veiða í dag.
Magnús sagðist telja að gengisfell-
ing hjálpi fiskvinnslunni ekki nema
í mjög skamman tíma og því sé hún
ekki nein lausn á vandanum. Áður
en breyting sé gerð á gengisskrán-
ingu þurfi að aðlaga afkastagetuna
veiðunum. Hann sagðist hins vegar
telja æskilegt að þegar þessi aðlög-
un er um garð gengin verði gengið
markaðstengt líkt og gert er víða
erlendis.
-EÓ
Innkaupastofnun Reykjavikurborgar, f.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík,
óskar eftir tilboðum í viðgeröir á hellulögðum gangstéttum.
Heildarlengd gangstétta er 12.000 m!.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vomi, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavik,
gegn kr. 5.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 25. mars 1992, kl.
11,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800